Vísir Sunnudagsblað - 23.07.1939, Page 8

Vísir Sunnudagsblað - 23.07.1939, Page 8
8 VÍSIR SUNNUDAGSBLAÐ Np. 25 Þegar Tarzantvíburárnir liöfðu beðið með öndina í hálsinum í hálfa klukkustund, kom Paabu með vopnin — spjót, langa hnífa og boga og örvar. Nonni launaði lionum þetta með þvi að gefa lion- um annan vasahnífinn, sem drengurinn hélt að gera myndi hann að töframanni. Þegar drengirnir gripu vopn villi- mannanna, hvarf þeim allur ótti og þeir urðu alveg rólegir og ör- uggir, því að það voru einmitt svona vopn, sem Tarzan notaði í bardögum sínum gegn villimönn- um og dýrum frumskóganna. Þeir Iæddust varlega út úr kofan- um og Ukundo fylgdi þeim á báð- um áttum. Það var niðdimt við kofann, en skamt frá kveiktu mannæturnar undir stórum potti. Það var potturinn, sem átti að sjóða Bulala i. Nonni tók að sér forystuna, en i slað þess að halda til þorpshhðs- ins, beygði hann til mannsafnað- arins. „Hvert ætlarðu að fara með okkur?“ spurði dvergurinn hræddur. „Við björgum Bulala“, svaraði Nonni. En hann óttaðist að Ukundo vildi ekki vera með í því, og ef dverg- urinn yfirgæfi þá, þá var öll von úti um björgun. Hann barði sér á brjóst og sagði: „Eg er töfra- maður. Eg get alt.“ Dvergurinn varð nú hugrakkari við þessa fullyrðingu Nonna. Þeir fóru liljóðlega í áttina til pottsins. Kalli og Nonni voru hinir örugg- ustu, því að þeir héldu að allir væru þar. En þeim skjátlaðist. Einmitt á sama augnabliki gekk dökk vera út úr einum kofanum til þe’irra. Þessi vera hélt á stórri kylfu. — „Ráðumst á hann!“ hvíslaði Nonni. En áður en af þvi yrði sagði Kalli: „Nei, þetta er Intamo. Aður en við getum ráðið niðurlögum hans get- ur hann hrópað á hjálp, og þá ke’mur allur hópurinn.“ Veran nálgaðist og Nonni var í klípu. Arásin gerði e. t. v. ilt verra. En þá fann Kalli ráð. Hann stakk upp á því, að þeir feldu vopnin, en þó svo, að þeir gæti náð í þau tafarlaust. Síðan settust þeir svo, að þau sá- ust ekki og létust vera að horfa á hátíðahöldin. Mannætan sá þá ekki fyr en hann var kominn alveg að þeim, og nam þá staðar undrandi. „Hvers vegna eru þið ekki í kof- anum?“ spurði hann lágt. Dreng- irnir könnuðust við Intamo og skildu hvers vegna hann var með kylfuna. Hann liafði ætlað að koma þeim fyrir kattarnéf sjálf- ur! „Hvor ykkar er töframaðurinn ?“ spurði hann. Nonni vissi, að hon- um var illa við sig, en svaraði þeg- ar, að hann væri það. Þá stökk Intamo fram og reiddi kylfuna til höggs. FélagsprentsmiÖjan h.f

x

Vísir Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.