Vísir Sunnudagsblað - 19.04.1942, Blaðsíða 2

Vísir Sunnudagsblað - 19.04.1942, Blaðsíða 2
2 VÍSIR SUNNUDAGSBLAÐ ,,— og knúöi hann hana til þess a‘S drekka þa'ð, sem eftir var í bikarn- um,“ ltann nú bandalag við Avara, aðra kynkvísl Húna, og lofaði þeim liluldeild í ránsfengn- um. Var nú liafin innrás í land (iepidae-œttkvíslarinnar, farið um ráns hendi, myrt og rænt og skildar eftir rústir einar. Gotar vörðust vasklega, en urðu stöð- ugt að láta undan síga. Hiriir vöskustu riddarar féllu í hundr- aðatali, en tókst ekki að stöðva innrásarherinn. Cunimund kon- ungur féll á vígvelii og sannað- ist á liorium, að enginn, þótt vaskur sc, má við margnum. Grimmdarseggurinn Alboin horfði glottandi á lík lians og skipaði svo fvrir, að losa skyldi höfuðið frá bolnum. Ákvað hann að afia sér minjagrips, sem æ jnætti minna hann á af- rek þetta, víg Cunimundar og verður siðar að þessu vikið. í land Gotakynkvíslarinnar, þar sem fyrruin rikti velsæld, voru nú allir slyppir og snauðir, og tóku innrásarherirnir niiklu ríkulegra herfang en Alboin nokkUru sinni hafði gert sér vonir um, og ibúarnir voru gerðir að þrælum Húna. Hinar fegurstu meðal kvenna Gota urðu ambáttir og valdi Álboin sér Rósamundu hina fögru fyrir konu. Alboin stóð nú á tindi frægðar sinnar. Hann þurfti ekki að fara bónarvegu til þess að hljóta ástir hennar. Skipaði Itann svo fyrir, að haldið skyldi brúðkaup þeirra. Rósamunda vissi vel, að eigi muridi duga að hreyfa neinum mótmælum, en nokkur hug- svölun var það heimi i þreng- ingunum og fnótlætinu, að hennar beið drottningartign. IIúu gætti þess að -stilla skap sitt og hélt vel á virðingu sinni og framkomu hennar einkenndi lign og alvöruþungi. Er nokkur tími var liðinn ól hún manni sínum dóttur. En aldrei gleymd- ist henni andartak hver orðið höfðu örlög föður hennar og bróður — og hverjum var um að kenna. En Alboin var svo blindaður í ofmetnaði sínm og hroka, að hann hafði enga hug- mynd um þær tilfinningar, sem lirærðust í brjósti konu lians. Hann var tíðast önnum kaf- inn við hverskonar áform um að leggja undir sig ný lönd og efla völd sín og áhrif, því að „mikið vill meira“. Hann jók her sinn og söfnuðust að honum ævintýramenn frá ýmsum lönd- um. Orðrómur var á kreiki um, að Alboin ætlaði að gera innrás í Ítalíu. Keisarinn í Rómaborg, er um þessar mundir dvaldist í Miklagai'ði, lét orðróm þennan sem vind um eyru þjóta, og gerði engar ráðstafanir, lil þess að bægja friá þeirri hjörð varg- lilfa, sem biðu hentugs færis að vaða inn í lönd hans. Þann fyrsla dag aprílmánað- ar 568 lagði her Alboins af stað frá Króatíu og Austurríki og brátt fóru herskarar hans ráns- hendi um Tyrolai'héruð. Þar var myrt og rænt og hús brennd, og engum er mótspyrnu veitti, var nokkur miskunn sýnd. Þeg- ar grimmdarseggirnir óðu inn í Ítalíu þyrptust menn í hópum suður á bóginn, en þeir sem eft- ir voru bjuggust til varnar og reyndu að viggirða þorp og bæi eftir föngum; en alll kom íyrir ekki, engin tök voru úí að stöðva liinn villta innrásarher. Og i semtember árið eftir liélt Alboin innreið sína í Mílano. Þetta var um uppskerutímann og lifðu nú innrásarmenn i hinum mestu vellystingum um skeið, konung- ur og nánuslu fylgifiskar hans í Feneyjahöll, en í öllum bæj- um var hfað munaðarlifi. I árslok var innrásarherinn kominn til Pavia, sem þá var mikil menningarborg, og var þar mikið safn hverskonar verð- mæta. Alboin hafði lengi haft augastað á þessari víggirlu borg og hófst nú umsát um liana og stóð í hálft fjórða ár. Var Alboin svo æfur orðinn yfir þrálegri og vasklegri vörn borgarbúa, að liann heitstrengdi að myrða hverl mannsbarn í borginni. Eftir uppgjöf borgarinnar reið Alboin fyrir liði sínu um San Giovannihliðið og vildi þá svo til, að hestur hans hnaut, og þótt Alboin léti höggin dynja á lionum lá hann grafkyrr. Einn riddara Alboins sagði, að þetta væri ills vili, en í æði sínu end- urtók Alboin heitstrenginguna, og brá þá svo við, að hesturinn spratt á fætur. Þetta sannfærði Alboin um, að yfirnáttúrlegt vald stjórnaði gerðum hans, og skipaði hann svo fyrii', að heit- stiengingin skyldi framkvæmd. Skömmu síðar tók hann sér aðsetur í mikilli höll i úthvei'fi \rerona og efndi þar til hófs mikils til þess að fagna unnum sigrum. Meðal gx’ipa þein'a, sem hann lét flytja þangað, var bik- ar, sem liann lét gæta vel, en bikarskálin var gerð úr höfuð- skel Cunimundar konungs, og var fesl á málmfót, og var mjög til smíðinnar vandað. Rósamunda hafði aldi-ei séð þennan hræðilega minjagrip, en heyrt um hann getið. Þegai’ veizlugleðin náði, hámarki og Alboin var allmjög drukkinn orðinn og riddarar hans, skipaði hann svo fyrir, að Iionum skyldi fæi’ður bikarinn. Var svo gert. „Fyllið hann af víni,“ æpti Alboin, „og réttið drottning- unni.“ Þegar Rósamunda lyfti bik- arnum að vörum sér var hún föl sem nár, en Albion mælti: „Drekktu út — og minnstu föður þíns um leið.“ Sálarkvöl hennar var meiri en orð fá lýst; en enn gat hún stillt sig og mælti: „Mér ber að hlýða boði kon- ungs míns og herra.“ En um leið og hún drakk vín- ið heitstrengdi hún, að hefna sín, föður síns og bróður, grimmilega. Droltningin liafði alla tíð ver- ið vansæl í hjónabandi sínu, en fróun var það henni, að einn af mei’kisberum konungs, Helmi- akis, ungur maður og vaskleg- ur, hafði fengið ásl á henni, og hún á honum. Og aðeins í örm- um hans vai'paði hún grímunni r— hann einn þekkti hana, vissi um raunir hennar allar og hug- arsti'ið; og hann bað hún nú á- sjái’, til þess að framkvæma með sér hefndaráform sitt, og ráða konunginn af dögum. Vel má vera, að Helmiakis hafi hikað vegna þess, að hon- um hafi fundizt, að liann hafi verið búinn að gera konungin- um nógu mikið illt, með ]ivi að gerast friðill drottningar, en hún var ákveðnari en svo, að hann áræddi að hreyfa öflugum mótmælum. Drottningin ákvað að leita honum aðstoðar annars riddara til og valdi mann, sem Perede- us hét, og var sá elskhugi þernu hennar, einn liinn vígdjarfasli af riddurum Alboins. Peredeus var lítt hrifinn af uppástungu drottningar og kvaðst vera her- maður, en eigi morðingi, en hann hét því að varðveita leynd- armál hennar. Meira hafði hún elcki upp úr hönum. Það, sem síðar gerðist, sýnir að ekkert fær stöðvað marg- særða, slægvitra og liefnigjarna konu. Nú var það svo, að Rósa- munda og þerna hennar voru líkar á vöxt og næsta hkar í út- liti, og flaug nú Rósamundu illráð í hug, sem hún þegar framkvæmdi. Kúgaði hún þernu sína til þess að fallast á, að þær skiptu um svefnstofu eina nótt, en Rósamunda ályktaði, að ef henni tækist að hlekkja Perede- us vrði hann að lúta hennar vilja í öllu. Skömmu eftir, að drottning var lögzt fyrir í myrkvaðri svefnstofu þernu sinnar, kom Peredeus, og svaraði hún ástar- orðum Iians með kossum og vafði örmum sínum háls hon- um, og voru þau saman fram undir morgun, er Rósamunda kallaði á þernu sína, og bað liana koma með ljós. Peredeus vissi naumast hvort þetta var vaka eða draumur, en er hann áttaði sig á, að liann hafði livílst hjá drottningunni, kraup hann á kné, án þess að mæla orð, en Rósamunda hótaði að ljósta upp um hann í áheyrh konungs, nema hann gerði það, sem Iuin byði. Þóttist hún nú hafa komið ár sinni vel fyrir borð og eigi þurfa aðstoðar Helmiakiasar. Næstu nótt var enn drukkið og svallað í höllinni og er Albo- in var genginn til svefnstofu sinnar laumaði Rósamunda Pe- redeusi inn til hans. Konungur bjóst til varnar, en Rósannmda hafði hrugðið böndum um sverð lians, svo að það rann eigi úr slíðrum, er konungur grei]) til þess, og vóg Peredeus hann nú, að Rósamundu ásjáandi og glottandi. Þvi er ver, að sögunni lýkur ekki hér. Ef svo liefði verið mundi Rósamundu hafa verið minnzt með öðrum hætti. Hún mundi ekki hafa sætt þungum áfellisdómi fyrir að hafa liefnt föður sins og bróður og þjóðar sinnar og það. mundi liafa mild- að dóma manna, að lnin var,

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.