Vísir Sunnudagsblað - 19.04.1942, Blaðsíða 8

Vísir Sunnudagsblað - 19.04.1942, Blaðsíða 8
VÍSIR SUNNUDAGSBLAÐ NÍI»A\ Jón prófessor Helgason í Kaupmannahöfn hefir, sem kunnugt er, ritað bók um Jón Ólafsson frá Grunnavík, ævi hans og starf. Hann segir frá þvi á einhverjum stað í bókinni, að Jóni virðist hafa verið mjög „uppsigað við banka“, ef dæma stúlkur. Þær brostu hlítt til mín. Eg var aftur til. Eg var karl- maður. Eg var stór. Eg var höf- uð konunnar. Það var vor í loft- inu. Eg hálfflaug niður á Borg- ina. Eg leit í kringum mig. Mér komu í hug orð skáldsins: „og gott er um sólbros í hnattanna dansi“. Eg þorði ekki að koma heim fyrr en kl. átta. Konan min sat ein við spilahorðið með spil fyrir framan sig. „Sæll og blessaður. Þú komst ekki í kaffið?“ „Nei, eg fór á fund.“ „Þú trúir ekki, livað var gam- an að spila i dag. Hugsaðu þér, það voru sagðar þrjár liálf- slemmur og ein alslemma. Ó! En eg spilaði af mér einni hálf- slemmunni og nú veit eg að eg sef ekki dúr fyrir því í nótt og eklci i margar nætur. Annars spiluðum við svo vel, að við hefðum vel getað unnið í keppni.“ Eg kveikti mér i cigarettu. „Þú tapaðir nú.samt í keppninni i eftirmiðdag góða mín,“ hugs- aði eg með sjálfum mér, um leið og eg opnaði útvarpið. Bridge-þraut úr síðasta Sunnudagsblaði. Suður spilar út spaðagosa. Norður kastar tigulniu. Suður spilar þá hjartaáttu. Ef vestur lætur drottninguna, verður Norður að láta hjartasjöið. Þá kemur út á eitt, hverju Vestur spilar út. Norður tekur hæstu spilin i hjarta, tígli og laufi. Spilar siðan út hjartafimmi, sem Vestur verður að taka með níunni. Neyðist hann þá til að spila út tíglinum, en Suður á háða slagina i bakhönd. Ef Vest- ur lætur ekki hjartadrotíning- una, tekur Norður með gosan- um. Spilar svo tígulás og lauf- kóng, og síðan hjartasjöinu. Vorid að konia Veturinn er aS kveðja — aðeins örfáir dagar og þá kemur sumar- dagurinn fyrsti, — sá dagur, sem næst fullveldis- fagnaöi, ætti að vera mesti hátí'ö- isdagur íslend- inga. Á þeim degi fögnum við hinu verðandi lífi í náttúrunni,, gróö- urmagni móöur náttúru, litum hennar og lífi, og viö fögnum birtu og yl sólarinnar, sem rekur vetur- inn á braut og færir okkur sum- arið, með þess miklu töfrum. — Vísir sendir aö þessu sinni eitt af hreindýrum'Matt- híasa'r læknis Einarssonar með sumarkveðjur til lesendanna. Þaö liggur undir Arnarfelli viö Þingvallavatn, og vellíöan þess er auðsæ. megi „eftir þeim heitum, sem hann velur þeim“. — „Banco mætti kallast okursbrunnur eigi grunnur, fjárgróðastofn, ágóða- uppsprelta, leigunjótur, fédrátt- ar forsmiður, fjárvaldur, gjaldagræðir, aura aðalbúi, fé- dráttardjöfull, peningaplógur, fédráttarælandi og sig á upp- sölu sinni síalandi etc.“ • „Syngið þið samt, blessaðir." Þetta liefir verið að orðtaki liaft norðanlands, að minnsta kosti í austanverðri Húnavatns- sýslu, en ekki mun fólk alinennt hafa vitað, hvernig það var til komið. Gísli Konráðsson segir svo frá, að faðir sinn, Iíonráð Gísla- son á Völlum (d. 1798) hafi verið viðstaddur jarðarför á Víðimýri, siðasta vorið sem hann lifði, og hratað ofan í gröf- ina, meðan sungið var. Hafi þá söngurinn farið út um þúf- ur, en Konráð gamli kallaði til söngmannanna úr gröfinni: „Syngið þið samt, blessaðir!“ Og síðan sé þetta að orðtaki haft. En þegar faðir sinn liafi verið kominn upp á grafarbakk- ann hafi hann bætt við: „Eg réði mig heima.“ Þótti það verða að spámæli, þvi að hann sýktist skömmu siðar og andaðist um haustið. Sendillinn: (við blaðadreng) „Hver var þessi fíni burgeis, sem var að tala við þig núna, Jónsi.“ Blaðadrengurinn: „Það er kunningi minn, starfsfélagi — við höfum unnið saman í mörg ár. Hann er ritstjóri við eitt af blöðunum, sem eg hefi til sölu.“ • Kennari nokkur var að segja frá störfum vetrarhjálparinnar, og mæltist til þess við börn ])au, er hann hafði til kennslu, að þau gæfi föl þau, sem þau væri vax- in upp úr, til þessarar starfsemi, svo að börn, er þurfandi væri gæti nolið góðs af þeim. Að lok- um sagði kennarinn við einn drenginn: „Jæja, Doddi minn, hvað eigum við að gera við gömlu fötin okkar?“ „Þegar hún mamma er vaxin upp úr kjólunum sínum styttir hún þá handa henni systur minni. En þegar pahbi vex upp úr sínum fötum eru þau sniðin upp handa mér,“ sagði Doddi. • Fróðum mönnum telst svo til, að enn í dag muni að minnsta kosti um 100.000 manns i Afríku norðanverðri hafast við í jarðhýsuin eða holum, sem grafnar eru í jörð. Það munu nú vera 45 ár síðan er kvikmyndasýningar hófust. Vagga kvikmyndanna stóð fyrir vestan liaf og talið hefir verið, að fyrstu sýningar hafi fram farið í New York 1896. Og nú eru kvikmyndir vafalaust ein- hver algengasta og aðgengileg- asta skemmtan alls almennings. — Því fer þó fjarri, að þær hafi enn sem komið er náð til allra ibúa jarðarinnar. Frá því hefir verið sagt nýlega, að enn mundi um 470—480 milljónir manna aldrei hafa séð kvikmynd, en það er sem svarar einum fjórða hluta alls mannkynsins. • — Nci, drengur minn, — hamingjan í þessu fallvalta lífi er ekki komin undir embætt- um og titlum eða öðru því líku. Eg ei' reyndur maður og get um þetta horið. Eg er ekki vilundar- ögn hamingjusamari nú, þó að eg sé orðinn oddviti, lieldur en eg var í fyrra um þetta leyti, en þá var eg bara réttur og sléttur hreppsnefndarmaður! • — Nei, nú dámar mér ekki! Eg sé ekki betur en að nýi prest- urinn sé að verða sköllóttur — svona kornungur maður! — Jú, liann er einn af þessu fína fólki, sem allt af er að hafa skyrtuskipti! Hann tekur upp á hárið sá eilifi núningur um höfuðið! • Málið var örðugt viðfangs. Vitni engin og fullyi’ðing stóð gegn fullyrðingu. Að lokum spyr dómarinn kærandann, livort hann sé nú alveg sann- færður um, að það hafi verið ákærði og enginn annar, sem greiddi lionum tvö liöfuðhögg nóttina áður. Og kærandinn svaraði: — Alveg sannfærður get eg nú ekki sagt að eg sé, því að í fyrsta lagi var þreifandi myrk- ur og svo líka aðgælandi, að margir hnefar geta verið líkir. En liitt get eg svarið, að það var enginn annar en eg, sem fékk höggin! • Hjónin ætluðu að stytta sér leið með því, að ganga yfir tjörnina. En ísinn reyndist ó- traustur og féllu þau í vatnið. Það var grunnt og tók mannin- um ekki nema undir liendur. Ilann fóúnaði höndum og kall- aði á hjálp: — — Bjargið mér, hrópaði hann í sífellu. Bjargið mér og konunni minni! Maður á bakkanum: Konunni þinni! Hvar er konan þín, lags- maður? Maðurinn í vökinni: Hérna hjá fnér — eg stend á henni! — Hérna eru tvær krónur, Sigga mín, og legðu þær nú í bankann. — Nei, það geri eg ekki. Eg er á móti öllum burgeisum og „kapitalistum“, alveg eins og kennarinn!

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.