Vísir Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Vísir Sunnudagsblað - 16.04.1944, Qupperneq 7

Vísir Sunnudagsblað - 16.04.1944, Qupperneq 7
VlSffi SUNNUDAGSBLAÐ 7 JÖRUNDUR HUNDADAGAKÓNGUR. Frh. af bls. 3. og það að vera nokkurskonar kennimaður, sem prédikaði yfir föngunum —- sumar prédikan- irnar eru prentaðar —• og að veita sjúkradeild fangelsisins forstöðu, hvort tveggja með prýði. ■ Svo fór um síðir, að Jörund- ur var fluttur sem fangi til Tasamaniu og fekkst þar fyrst við skriftir í stjórnarskrifstofu, en var síðan gefinn frjáls og var eftir það ríðandi sveitalög- regluþjónn, sem ekki veitti af þar í þá daga, en inn á milli var hann í landkönnunarferðum um eyna fyrir opinhera stofn- un. Fór honum livorttveggja prýðilega úr liendi, og gerði hann ýmsar landfræðilegar at- huganir fyrstur manna í þeim ferðum. Þegar liann lét af þess- um störfum, liöfðu þau líkað svo vel, að honum var launað fyrir með góðri og stórri land- spildu, sem hann auðvitað seldi i öllu ráðleysi sínu. Þar til Jörundur kom frá ís- landi liafði hann verið hófsmað- ur um drykk og varla við kven- mann kenndur. En í þeim efn- um keyrði líka um þverbak eft- ir það. Ilann var upp frá því til dauðadags drykkjurútur og lagði lag sitt við liinar auðvirði- legustu kvensniptir. I Australíu tókst einni þeirra, sem var upp- gjafafangi og hlíð við livern sem hafa vildi, að ánetja hann, svo að hann gekk að eiga hana; átti hann eftir það ekki sjö dag- ana sæla, unz hún dó. Eftir að hún var látin lifði Jörundur á knæpunum i Hobarthtown, bæ sem hann að nokkuru leyti í fyrri ferðum sínum hafði átt þátt í að stofna, og liafði þar ofan af fyrir sér sem skottulög- fræðingur og bréfritari fj'rir ó- týndan lýðinn, og þótti hann þar einskonar kóngsgersemi. Þar dó hann svo 1841, og í stærstu alfræðiorðabók Australiu getur hans lofsamlega. Þá kemur spurningin sem eg lcastaði fram áðan: Hver var maðurinn, eða öllu heldur: Hverskonar maður var hann? Var hann almennur auðnuleys- ingi eða auðnulaust mannsefni? Þessu svarar bók Rhys Davis prýðilega, ekki beinlínis, held- ur óbeinlínis með því að tiÞ færa velvalda kafla úr ritum Jörundar og bréfum til hans og frá honum. Er þetta úrval gert með slíkri natni, að það gerir manni ldeift að svara spurn- ingunni um það hvern mann Jörundur hafi haft að geyma, svo með nokkurum íikindum sé. Undirstöðurnar undir svari við slíku hljóta einmitt að vera, það sem maðurinn hugsaði um sjálfan sig og vildi láta aðra liugsa um sig, ásamt þvi, er aðrir hugsuðu um hann. Ur þvi á lausnin að fást. Það er tvent eftirtakanlegast i fari Jörundar. Annarsvegar ýmugusturinn, sem hann alla daga frá blantu barnsbeini virð- ist tiafa hafí á löndum sínum, og aldrei breyttist. Ilann skýrir þetta sjálfur með því liarðræði, sem hann segist hafa átt við að búa í föðurliúsum í æslcu. Sú skýring virðist þó enga stoð hafa í veruleikanum. Þetta verður blátt áfram ekki skilið, en verður þó til þess, að hann yfirgefur ættland sitt kornung- ur og sér það ekki aftur, nema örskamman tírna, og þá sjálf- um sér og því til lítils gagns og gamans. Hvergi brýst þelta liat- ur, því svo verður að kalla það, eins greinilega fram eins og meðan Jörundur er á Islandi. En hvernig sem því er varið, verður engin örugg skýring fundin á því nú, og sennilega hefir það verið sálræns eðlis. Hinsvegar er svo sú einkenni- lega ástúð sem hann, að þvi er virðist að tilefnislausu, leggur við Breta og allt sem brezkt er. Það virðist enginn vafi vera á því, að Jörundur hafi frá nátt- úrunnar hendi verið, ekki að- eins óvenju-athafnasamur, held- ur blátt áfram óhemjulega at- hafnaþurfi, og samhliða þvi framgjarn. Það gæti hugsast, að bonum liafi þótt sem þessir eðlishættir sinir mutidu eiga liægar með að fá framrás með stórþjóðinni Bretum, en með smáþjóðinni Dönum, og að hann hafi því viljað neyta til þess allra bragða að gerast Breti; væri hér nokkur skýring á Breta-ást hans. Hitt er vist, að athafnaþörfin og framgirnin fylgir honum rétt eins og Danahatrið alla daga til enda, en tók á sig mjög mismunandi myndir, eftir þvi sem efni standa tiL Það tar alkunnugt, að slíkt getur brugðist til beggja vona, góðs eða ills, eftir því sem tækifærin bjóðast, en at- liafnaþörfin þarf að fá fram- rás eins og allar aðrar ástríður. Ilún getur leitt til mikil- mennsku eða út í auðvirðileg- ustu glæpamennsku. Það er enn ákaflega eftirtekt- arvert í fari Jörundar, hAað hann, eins og eg minntist á áð- an, átti auðvelt með að bregða sér í allra kvikinda liki. Það mætti skilja þetta sem hvern annan leikaraskap, en það er eftirtektarvert, að svo er einmitt ekki hjá Jörundi. Hann virðist alltaf vera allur og af fullri al- vöru og alúð i öllu, sem hann gerir, hvort sem hann er að stjórna íslandi, er lögregluþjónn í Australíu, er annast sjúkra- deildina i tugthúsinu eða er í landkönnunarferð. Allt er þetta unnið prettalaust, en sama er reyndar að segja, þegar hann er að hafa rangt við í spilum, svíkja og stela, þvi þá er hann þar allur óskiptur líka. Það virð- ist því vera bersýnilegt, að hann hafi verið þess fyllilega umkom- inn að hafa hendur á tækifær- unum, þegar honum hefir boðið svo við að horfa, en gallinn hefii verið sá, að tækifærin hafa reynzt honum hverful. Hvergi kemur alvara hans og alúð við slój'f, ef menn vilja rétt að gá, betur fram en þá fáu daga, sem hann fór með stjórn hér á landi. jjlann virtist þá bókstaflega fylgjast með öllu, grípa allsstað- ar inn og gera það allt vel. Þar sýnist liann hafa fest hendur á tækifæri, sem honum féll og var við hans hæfi, líklegast eina tækifærið, sem honum hefir fallið að fullu. En það reyndist honum einnig hverfult, og eftir-, takanlegt er það, að eftir að það slapp úr höndum hans, 'kemur þegar brotalöm á æviferilinn. Eftir það er hann auðnuleysingi, vegna þess að liann finnur elclc- ert verkefni, er liann fellir sig við, og þá gerist um leið sú merkilega breyting á hugarfari hans, að ástin á Bretum hverf- ur. Síðan er lionum lítið eða ekkert um þá gefið. Það geta legið til þess ýmsar ástæður, til dæmis sú, að honum hafi þótt, sem þeim bæri skyldi til að bjóða sér nýja möguleika, er honum þætti sér samboðnir, en það gerðu þeir ekki. Hitt er þó liklegra, að honum hafi þótt þeir bregðast sér í íslands-ævin- týrinu, og að sitt hafi þar vak- að fyrir hvorum, þeim og hon- um, en hvorugur vitað af því fyr en á hólminn kom. Þá er það og auðvitað síður en svo ómögulegt,að Bretar hafi í raun og veru brugðizt honum þar og ginnt hann út i þetta allt saman, án þess að ætla honum annað en eldtverkin og siðan hlaupið frá öllu saman, er þeim þótti fyrir- tækið ekki ómaksins vert. Það er ákaflega eftirtakan- legt, að ágætasti maðurinn að manngildi sem við sögu Jörund- ar kemur, grasafræðingurinn Sir William Hooker, sleit aldrei tryggð við hann til dauða- dags, og lét meira að segja son sinn leita hann uppi í Tasmaníu til þess að kynnast því af eigin raun, hvernig honum hefði fai’nazt, en það var alla daga svo um Jörund, að liann átti óskiljanlega auðvelt með að afla sér hylli góðra manna. Það eru þessar og þvílíkar hugsanir, sem vakna hjá manni við lestur bókar Rliys Davis.Hún er prýðilega skrifuð og setur glögglega fram, en ályktar lítið, og ætlar lesandanum að gera það sjálfum. Slikar bækur eru öðrum fremur skemmtilegar, þvi þær fá manni eitthvað að glíma við. Fyrir brezka lesendur er bókin auðvitað ekki annað en lielber skemmtilestur, og hann góður, þvi í augum þeirra er saga Jör- undar eklci annað en óvenju- legt og skríngilegt atvik, en í sjálfu sér ómerkilegt. I augum íslenzkra lesenda mun bókin að vísu þykja skemmtileg, en jafn- framt stórfróðleg, því i oklcar sögu er Jörundarbyltingin ann- að og meira en gáski — hún er alvara, og hún er áminning, sem aldrei hefir verið nauðsynlegra en nú fyrir Islendinga að láta ekki sem vind um eyrun þjóta. Þessi fagra skinnkápa er úr marðarskinnum og er til þess ætlazt, að hún sé eingöngu not- uð að kveldlagi. Ermarnar eru mjög víðar. Það er tízkuhús Dain-Bacher i New York, sem hefir saumað kápuna,

x

Vísir Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.