Vísir Sunnudagsblað - 19.11.1944, Qupperneq 5
VISIR SUNNUDAGSBLAÐ 5
PASTEUR
Eftir Paul de Kruif
Allan þann tíina, er mann-
kynið hefir búið á vorri jörð,
hafa milljónir manna dáið af
orsökum sýkla. Sýklar eru ó-
sýnilegir einsellungar. En um
aldaraðir höfðu menn enga hug-
mynd um tilveru þeirra. Það er
rétt um hundrað ár frá því er
menn fundu sýklana og ráð til
þess að yfirvinna þá og lama.
Og á þrem mannsöldrum hefir
aldur manna tvöfaldazt að með-
altali.
Margir álita, að þessi sigur
hafi verið unninn án mildllar
baráttu. Það var einkum einn
maður: Louis Pasteur, s.em
hafði hugrekki til þess að segja
hermönnum dauðans stríð á
hendur, og þola háð og hlátur
hinna „vitrustu“ samtíðar-
manna sinna.
Louis Pasteur var sonur sút-
ara og sonarsonur bónda,
er hafði verið í ánayð. Fyrstu
tuttugu ár ævinnar var ekkert
útlit fyrir að hann mundi verða
frægur vísindamaður. Hann var
hæglátur og veikbyggður á
þeim árum. Tómstundirnar
notaði hann til þess að mála
myndir af ánni, sem rann fram
hjá sútunarstöð föður hans í
Arbois í Austur-Frakklandi. —
1842 varð Pasteur tvítugur og
tók þá próf við háskólann í
Bessancon. I efnafræði var eink-
unn hans aðeins talin „sæmi-
leg“. En ári síðar, er hann
stundaði lyfjafræðinám við
Sorbonneháskólann í París,
fékk hann áhuga á eðlisfræði
við það að hlusta á fyrirlestra
J. B. Dumas í þessari vísinda-
grein. Dag nokkurn kom hann
heim með tár í augum og
mælti: „En hve dásamleg efna-
fræðin er“. Þá vissi liann að
hann mundi verða efnafræðing-
ur. Málaradótið lagði hann á
hilluna. Og hann byrjaði strax
á tilraunum með áhuga mikl-
um. Hann hafði fjölda grasa
með marglitum vökvum í. Hann
var viðkvæmur og kenndi í
hrjósti um þá sem bágt áttu.
Er hann var níu ára drengur
hljóp hann grátandi frá hóp
manna, sem hafði safnazt sam-
an fyrir framan smiðju járn-
smiðsins í Arbois, til þess að
sjá hann brenna sár manns, er
óður hundur hafði bitið. Mað-
urinn dó, því að þetta var eng-
in lækning. En kvalirnar, sem
menn biðu við þessa meðferð,
voru afskaplegar. Þessi við-
burður varð Pasteur ógleyman-
legur. Þarna fékk hann óslökkv-
andi hatur á dauðanum. Þetta
hatur fyllti hann kjarki gagn-
vart læknunum, er litu smáum
augum á hann, sem einungis var
lyfjafræðingur. Hann hafði
hugrekki til þess að koma fram
með þá kenningu, að sýklar
væru hættulegustu óvinir
mannkynsins.
Um miðja 19. öld, er Pasteur
hóf baráttu sína, voru sýklar
aðeins álitnir einskonar- leik-
fang, er menn horfðu á í smásjá
sér til dægrastyttingar. Hann
gerði heiminn undrandi með þvi
að sanna að gerjun í víni væri
af völdum bakteria. Hann gerði
læknana forviða með því að
fullyrða, að sýklar hefðu drepið
fleiri menn en fallið hefðu í öll-
um orustum, er háðar höfðu
verið.
Pasteur sagði að sýklar yrðu
að komast inn í fórnardýr sín,
hvort sem þau væru lifandi eða
dauð. Og hann kvað sýkla vera
í andrúmsloftinu. En prófessor-
ar þátíðarinnar sögðu bakterí-
urnar kvikna af sjálfu sér. Þær
gætu fæðzt, eða fram komið, úr
dauðu efni.
Og hugmynd Pasteurs, að út-
rýma þeim úr mjólk eða mönn-
um væri hreinasta della.
Pasteur háði einskonar ein-
vígi með vísindatilraunum sín-
um við háð og spott andstæð-
inga sinna. Varð það lcunnugt
um allt Frakkland. Pasteur sauð
sýru í íláti, er hann lokaði, svo
loft komst ekki að því, sem í
því var. Og hann sannaði, að
engar bakteríur voru í sýrunni.
Prófessorarnir sögðu þá, að
bakteríur þyrftu loft til þess að
kvikna af sjálfu sér!
Pasteur hellti sýrunni í flösk-
ur, gerilseyddi þær með suðu.
Engar bakteríur fundust í flöslc-
unum. Hann bræddi flöskuháls-
ana og teygði og sneri glerið
og gerði mjó og löng rör eða
pípur, með vindingum. Hann lét
pípurnar vera opnar og lofaði
loftinu að komast inn i flösk-
urnar. En rykið, sem var í loft-
inu, settist í rörin eða gorma
þeirra, og varla nokkur baktería
fannst í sýrunni. Hann sannaði
með þessu, að sýklar eru í ryki
loftins, én ekki i ryklausu lofti.
Hann sannaði, að kenningin,
er nefndist generatio spontanea
= sjálfkviknun eða sjálffram-
leiðsla, var vitleysa. Hann
hæddi mótstöðumenn sína opin-
berlega. Á miklum fundi sýndi
og skýrði Pasteur frá áður
nefndum niðurstöðum sínum.
Hann mælti: „Generatio sponta-
nea kenningin hefir fengið rot-
höggið með þessari einföldu til-
raun minni.“
Ennþá fundust menn, er
brostu að þessari fullyrðingu
Pasteurs. Én skömmu síðar rit-
ar enskur skurðlæknir honum.
Það var Joseph Lister, einn af
velgerðamönnum mannltynsins.
„Leyfið mér“, segir hann, „að
þakka yður fyrir það, að koma
mér í allan sannleika um bakt-
eriurnar, með yðar ágætu rann-
sóknum.“ Lister lýsti því,
hvernig það mætti nú fyrst tak-
ast í sögu mannkynsins, að gera
miklar skurðlækningar, án mik-
illar hættu, ef sóttvarnarlyf
væru notuð. En áður höfðu að
jafnaði átta hverjum tíu dá-
ið er uppskurðir voru gerðir á.
Pasteur var svo áhugasamur
og iðinn við tilraunir sínar, að
það er merkilegt að hann skyldi
hafa tíma til þess að kvongast.
Hann skrifaði konuefninu með-
al annars þetta: „Það er ekkert
við mig, er vakið geti ástTmgr-
ar stúlku.“ En hún skildi hvert
andans mikilmenni eða ofur-
menni (geni) hann var. Vinur
þeirra hefir sagt um konu
Pasteurs: „Hún elskaði hann
svo heitt, að hún skildi störf
hans.“ Þegar hún hafði afklætt
og svæft börnin á kvöldin, eftir
langan og erfiðan vinnudag, sat
hún langt fram á nótt á efna-
rannsóknarstofu manns síns og
ritaði það, sem hann las henni
fyrir.
Pasteur var frumkvöðull að
því að nota vísindin bein-
línis i þjónustu hins daglega
lífs, til lijálpar meðbræðrum
sinum. Þegar hann stjórnaði
efnarannsóknarstofu við há-
skólann í Paris, frétti hann að
vínyrkjumenn töpuðu miklu fé
vegna þess að vínið súrnaði á
dularfullan hátt. öll hin mikla
vínyrkja Frakklands var i
hættu.
Pasteur fór sjálfur til þess að
rannsaka málið. Hann var þess
fullviss, að þarna voru sýklar
að verki. Og það reyndist rétt
tilgáta. Við smásjárrannsóknir
sá hann í víninu geysmildnn
fjölda af smásýldum, er voru í
keðjum. Hann lióf tilraunir til
þess að sigra þessa þraut. Og
er hann hitaði vínvökvann all-
mikið, þó ekki að suðumarki,
drápust bakteriurnar og vínið
gat geymst óskemmt. Sömu að-
ferð mátti liafa með mjólk, og
var hún tekin upp eftir Pasteur.
Er það nefnt Pasteurisering eða
gerilseyðing.
Pasteur tók sér enga hvíld frá
hinni miskunnarlaus vinnu við
að rannsaka bakteríur og áhrif
þeirra.
En skyndilega fékk hann
heilablóðfall. — Hann lifði það
af með naumindmn. Þá var
hann aðeins 45 ára. En er hann
heyrði að verið væri að byggja
rannsóknarstofnun í Paris, er
bæri nafn hans látins, reiddist
liann og ákvað að lifa lengur.
Hann komst á fætur og lét út-
búa nýja efnafræðirannsóknar-
stofnun. Eftir þetta var hann
máttlaus öðru megin. Hann
hafði sett sér það markmið, að
sanna heiminum að hægt væri
að útrýma smitandi veikindum.
Það, að hann var aðeins „apó-
tekari“ (lyfjafræðingur), olli
honum mikilla erfiðleika.
Hann gekk í félag við tvo
unga lækna, Charles Chamber-
land og Emile Rouse. Þeir urðu
lærisveinar hans og miklir að-
dáendur.
Pasteur fann ekki til minni-
máttarkenndar frammi fyrir
hinum lærðu læknum. Einn dag
fór hann á fund í ,„Læknastofn-
un Parisar“. Þar flutti kven-
sjúkdómafræðingur (gynæko-
log) erindi um barnsfararsótt
kvenna og hörmungar þær, er
af. henni leiddu. Notaði ræðu-
maður mörg latnesk orð, og
þóttist mjög lærður. Nítjánda
hver sængurkona dó þá í Paris
úr barnsfararsótt.
Pasteur fékk orðið. Hann
mælti: „Þeir, sem í raun og
veru drepa konurnar, eru lækn-
arnir. Þeir bera bakteriumar
frá þeim veiku til hinna heil-
brigðu. Þið segið“, hélt hann
áfram, „að eg geti ekki fundið
og sýnt sýkil þann, er veldur
„sótt“ þesari. Eg hefi fundið
sýkilinn, herra læknir. Og hér
megið þér sjá útlit hans.“ Að
svo mæltu teiknaði Pasteur lög-
un þessara sýkla upp á töflu,
og sýndi læknunum þennan
morðingja. Nafn hans er nú
„streptococcus“.
Læknarnir máttu hlægja að
þeirri hugmynd Pasteurs, að
liægt væri að eyða, eða halda í
slcefjum öllum sýklum, og
vernda þannig mannkynið fyrir
þessum morðingjum.
Pasteur fór svo að fást við
að svara þessari spurningu:
Hvers vegna verða dýr og menn