Vísir Sunnudagsblað - 19.11.1944, Side 8

Vísir Sunnudagsblað - 19.11.1944, Side 8
VISIR SUNNUDAGSBLAÐ SÍI>A\ Stefán amtmaður Þórarins- son á Möðruvöllum andaðist snögglega að liðninn miðjum degi 12. dag marzmánaðar 1823. Það var á föstu og bar upp á miðvikudag. I árbókinn Jóns Espólíns er frásaga um atvik að fráfalli hans, en yfir sögu þeirri hvilir einhver hula, er gerir hana tortryggilega; en hér er sagan höfð eftir manni, sem átti heima þar í sókninni og við var staddur útför amtmanns- ins. Sunnudaginn næstan áður amtmaður lézt, embættaði Árni prestur Halldórsson á Möðru- völlum, og kom að vanda í stofu til amtmanns og átti tal við og hann réð yfir lífi og limum samlanda sinna. Fyrir Þjóð- verja hefir útnefning hans þeg- ar orðið happadrjúg. Hann hef- ir látið reka marga foringja fyr- ir ímyndaðan ódugnað, hefir látið reka óáreiðanlega yfirfor- ingja í hernum og sett upp sér- stakan dómstól, án áfrýjunar- stigs, til að dæma frönsku föð- urlandsvinina til dauða. Þýzku blöðin hafa aldrei vér- ið sparsöm að lýsa afrekum Darnands, og blað Göbbels, Das Reich, skrifaði langan leiðara um æviferil hans og hæfileika. Engu verður um það spáð, hve lengi hann muni halda völd- um. Skýrsla hans um mannaveið- ar, ásamt dýrslegu grimmdar- æði óalda^flokka hans, verður æ lengri. Fylgifiskar hans eiga i bar- áttu upp á líf og dauða við ó- einkennisklædda heriím og ekki er hægt að segja um fjölda þeirra hetjulegu föðurlands- vina, sem blóðhundar hans hafa pínt til dauða. En nafn hins samanrekna svíradigra óþokka stendur ofarlega á minnisblaði yfir stríðsglæpamenn, sem bandamenn munu draga fyrir lög og dóm, er þeir hafa sigrað. Hinn ofstækisfulli áhugi Darn- ands fyrir málstað nazista, grimmd hans og miskunnar- leysi hefir orðið til þess, að bæði í Frakklandi og annars staðar í frjálsum löndum hefir hann fengið á sig hið viðbjóðs- lega nafn „Franski Himmler“. hann. Var amtmaður þá að vísu heill á húfi, en venju fremur mjög angursamur og dapur, enda var það í byrjun fásinnu Vigfúsar sonar hans. Prestur mat svo, að þetta einkum mundi valda fásinnu hans og angur- semi. Amtmaður mun þá hafa látið prest á sér heyra, að til eins mundi draga fyrir sér. Hafði hann og raunatölur nokk- urar, er hann hafði aldrei fyrr haft. Furðaði pres’t á, hversu honum var þá brugðið, og hafði orð á því heima hjá sér inn kvöldið. Á miðVikudaginn fór prestur til embættisgjörðar á Möðru- völlum. Veður var dumbungs- legt með stormi nokkrum og kraparigningu. Prestur steig þá af baki á hlaðinu við kirkju- garðshliðið og gekk i kirkjuna. Amtmaður stóð þá í útidyrum við stofuna, hið svonefnda nýja hús, að heita á vinnumenn, er þar voru, til liðveizlu að binda Vigfús. Fátt var manna í bað- stofu, því sumt fólk var í kirkju, en vinnumenn sumir að þjóna peningi. Þó voru inni einn eða tveir karlmenn, og brugðu þeir við skjótt. Var þá og sent i kirkju, að sækja fólk, er þar var. Amtmaður vissi, hvert Öl- afur (sonur sinn) hafði gengið, og fór sjálfur að sækja hann. Karl gamall var á Möðruvöllum, fjósamaður, sá er Lárus hét. Hann stóð við bæjardyr og horfði á amtmann, þá er hann fór eftir ólafi. Sagði hann síð- ar, að sig hefði undrað á, hve liratt hann fór, fram og aftur, því hann hefði hlaupið eins og lamb; það voru orð karls. ÓI- afur brá við skjótt og hljóp undan föður sínum suður hlað- ið og inn í stofuna, og er þang- að kom er .Vigfús inni, en amt- maður á'eftir. Bar nú allt að i senn. Fólkið kom að, réðst á Vigfús, og var nú eigi dælt við hann að eiga. Braut það hann niður í lausarúm, og héldu sum- ir, en aðrir búndu, og höfðu nú allir ærinn starfa. Kom amt- maður þar þá inn að baki fólks- ins, mæddur af göngunni, og studdi hendinni á rúmstólpann að höfðalagi Vigfúsar, en jafn- skjótt datt hann þar dauður nið- ur á gólfið og varð af dynkur mikill. Annarhvor hinna yngri sona amtmanns, Stefán eða Jó- hann, sá fyrst til og hrópaði upp: „Guð hjálpi mér! Er hann faðir minn dauður?“ Var þá brátt lokið að binda Vigfús, og var tekið að stumra yfir amt- manni, en hann var liðinn. — Miklar lýkur sýnast til að or- sök bráðdauða hans hafi verið, að maðurinn var mjög feitur og Hann er næsta spekingslegur litli þúfutittlingurinn, sem situr hérna í mannslófanum og sperrir höfuði'ð upp eins og han sé aS hlusta eða hann ætli að fara aÖ syngja. En þessu er nú samt ekki þannig variÖ, því aÖ þetta er helsærÖur angi, vængbrotinn og ó- sjálfbjarga, enda þót hann beri sig eins og hetja. Ef til vill bera dýr sársauka betur en menn, en senni- legra er hitt þó, aÖ viÖ mennirnir þekkjum dýrin ekki nógu veí til þess aÖ kunna að lesa sársaukann úr svip þeirra. Nærðnr fngrl: hafði haft mjög snögga hreyf- ingu, en þar að auki hrygg- ur í geði og aldurhniginn, og hafi því andrúmið teppzt, er hann nam staðar og hafi hann svo misst andann og dáið, af þvi að sprungið hafi æð nálægt hjartanu. Svo sem á var minnzt var það á huldu, hversu amtm. lézt, og urðu því grunsemdir á um dauða háns. Sá kvittur kom upp litlu siðar, að þá er amt- maður datt niður bak við fólk- ið, hafi Vigfús átt að segja: „Nú get eg drepið hann föður minn! Þið skuluð fara á eftir!“ Þá hefði og verið laus hönd hans önnur, og hefði haldið á pennahnífi opnum. Ætluðu þeir er þessu vildu trúa, að hann hefði lagt hnífnum í brjóst föð- ur sínum, í hjartað. Styrktist sú trú manna við þann atburð, er Vigfús banaði Þorvaldi Skógalín á þann hátt, að hann stakk hnífi í hjarta honum. Jarðarför amtmanns fór fram á líkan hátt og segir í Árbókun- um. Þar voru viðstaddir prest- arnir, séra Jón í Stærra Árskógi og séra Árni. Jón prestur flutti ræðtt yfir líkinu í stofunni, áð- ur en það var út hafið, en Árni prestur flutti sína ræðu fyrir altarinu í kirkjunni. Kistuna báru: Jón stúd. Þórarinsson, skrifari amtmanns, Páll Þor- bergsson, er síðar varð læknir, — hann var þá með séra Jóni — Jón hreppstjóri Flóventsson í Dunhaga, og Árni hreppstj. Árnason á Reistará, Þorlákur dannebrogsmaður Hallgrímsson á Skriðu, og tók hann danne- brogsorðuna af kistunni, og Þorsteinn Daníelsson á Skipa- lóni; hann var þá á Akureyri, og hafði smíðað líkkistuna, og var snilld á smíðinni. Þessir sex báru líkkistuna, og hinn sjöundi Gunnlaugur Briem sýslumaður, er gekk undir höfðagaflinum, og hélt hann ræðu yfir gröfinni, áður en frá henni var gengið. Að lokinni greftrun var veizla haldin til minningar og voru eigi aðrir virðingamenn við- staddir en getið er. Daginn eftir tóku heimamenn á staðnum gröfina. Hún var fjögurra álna djúp, og var við syðri hlið kórs- ins. Þeir hinir sömu mokuðu moldinni aftur ofan í gröfina við jarðarförina. Var þeim og matur gefinn á eftir, í húsi sér og fáeinum öðrum aðkomandi mönnum, er viðstaddir voru. ★ Ferðamaður kom eitt sinn á forngripasafn. Eigandi safnsins sýndi honum meðal annars riðg- að sverðsblað og mælti: „Hér er sverðið sem Bíleam drap ösn- una sína með.“ Ferðamaðurinn, sem var mjög biblíufastur, vakti þá athygli eigandans á, að Bíleam hefði alls ekki haft neitt sverð, heldur aðeins óskað sér, að hann hefði sverð til að drepa ösnuna með. „Já, þér hafið rétt að mæla“, mælti eigandinn djarflega og hiklaust; „þetta er einmitt sverðið, sem Bíleam óskaði sér í það skipti að hann hefði.“

x

Vísir Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.