Nýja dagblaðið - 01.11.1933, Blaðsíða 3

Nýja dagblaðið - 01.11.1933, Blaðsíða 3
N Ý J A DAGBLAÐIÐ 3 NtJA DAGBLAÐIÐ Útgefandi: „Blaöaútgáfan h/f“ Ritstjóri: Dr. phil. porkell Jóhannesson. Ritstjórnarskrifstofur: Laugav. 10. Símar: 4373 og 2353. Afgr. og auglýsingaskrifstofa: Austurstrœti 12. Sími 2323. Framkv.stjóri: Vigfús Guðmundsson. Áskriftagj. kr. 2,00 ó mánuði. í lausasölu 10 aura eint. Prentsmiðjan Acta. Fjármál Reykjavíkur Eftir Eystein Jónsson alþingismann. „Sendingar“ Reykvíkingar hafa fengið tvær „sendingar" frá Þýzka- landi á þessu ári. — Fyrri sendingin var Gísli Sigur- björnsson frá Ási, sem hingað kom úr siglingu á útmánuðum s. 1„ hafandi verið áheyrandi að sigursöngvum Hitlersmanna yfir val þýzkrar menningar og lýðræðis. Gísli Sigurbjörnsson stofnaði þá Nazistaflokkinn hér, hina svokölluðu Þjóðernis- hreyfingu, sem sltálmaði hér um bæinn á sunnudögum með reiddum hnefum og versa- söngvum undir þýzkum fána, hótaði ýmsum stjórnmála- mönnum limlestingum og barði stundum á unglingum. öllum friðsömum og viti bomum mönnum þótti að þessu hyski hinn mesti ófögnuður. Nú er komin ný „sending“ sunnan að. Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Þorláksson, hef- ir dvalið í Þýzkalandi í sumar. Þar var þá ýmislegt að sjá og læra síðan Gísli í Ási fór þáð- an á útmánuðum. Þjóðverjar voru þá m. a. búnir að vinna sér það til frama að brenna bækur sinna beztu rithöfunda og flæma frægustu vísinda- menn sína úr landi og búnir að koma sér upp gaddavírsgirð- ingum fyrir pólitíska fanga. Fyrir gamalharðnaðan íhalds- mann, sem langar til að verða forsætisráðherra, en getur ekki, var þar ýmislegt að læra. Og auðvitað hefir Jón Þor- láksson lært fleira í Þýzka- landi en að timburhús geti bmnnið! Engum sem ferðast um í „3. ríki“ Hitlers t. d. get- ur dulizt það, að það muni geta verið nokkurs virði fyrir borg- arstjóra að hafa 150 manna flokkslögreglu í 30 þúsunda bæ. Nazistar í Þýzkalandi hafa framið ýmsar frægar aðgerðir í lögreglumálum. Þeir byrjuðu á að setja af alla lögreglu- stjóra, sem hugsuðu sér þá' heimsku, að veita öllum mönn- ' um jafna vemd gegn ofbeldi. 1 Göring gaf út skipun um, að lögregluþjónar ættu elcki að | sinna „kvabbi“ um hjálp frá „óþjóðlegum" mönnum. Og þeir gerðu flokksher sinn, brúnu liðsveitirnar, að ríkis- 1 lögreglu. Jóni Þorlákssyni hafa orðið ýms metorð torsótt um æfina. Þrisvar sinnum féll hann við alþingiskosningar. Einu sinni ætlaði hann að mynda ráðu- neyti, en varð að fá annan fyr- ir sig til þess. Ætli honum tak- ist nú að sigra undir hinu nýja merki — hakakrossinum? Eigi alls fyrir löngu er út kominn „Reikningur Reykja- víkurkaupstáðar árið 1932“. Gegnir furðu hve hljótt er um þann attrnrð. Virðist full ástæða til þess að fram fari opinberar umræður um afkomu bæjar- sjóðs, þar sem eigi er langt að bíða þess, að kjósendur liér í bænum, kveði upp dóm sinn um ráðsmennsku þess flokks, sem öllu ræður í Reykjavík, Fyrirkomulag bæjarreikningsins. Aðalgreinargerðina um af- komu bæjarsjóðs á að vera að finna í „Reikningi yfir tekjur og gjöld bæjarsjóðs Reykjavík- ul' 1932“. Eftir þessari fyrir- sögn hefði mátt búast við, að á þessum reikningi væri sýnd reksturniðurstaða bæjarsjóðs- ins 1932, mismunur tekna og gjalda, reksturshalli eða rekst- ursafgangur. En svo var alls ekki gert og gæti fávísum dott- ið í hug, að slíkt þætti óþarfi þar, svo óhætt væri að treysta því, að útkoman gæti aðeins á einn veg verið, þar sem íhald- ið færi með völdin, þessi bjarg- vættur í öllum fjármálum!! Þessi skoðun verður þó að telj- ast ofrausn, svo sem nánar mun sýnt hér á eftir, og verða bæjarbúar að krefjast þess að reikningur bæjarsjóðs yfir tekjur og gjöld sé þannig úr garði gerður, að rekstursniður- staðan komi greinilega fram, og að hætt sé að telja lánin með tekjum og grauta þannig, og með mörgu öðru móti, sam- an óskyldum viðskiptum svo að niðurstöður sjáist ekki. Þótt slíkt kunni að vera íhaldinu þægilegast, helzt það aldrei uppi til lengdar. Ef til vill eru íhaldsmenn hikandi við að leið- rétta bæjarreikningana og gera þá almenningi skiljanlega vegna baráttu sinnar móti samskonar leiðréttingu, sem Framsóknarmenn framkvæmdu á reikningum ríkisins? Ef svo væri ættu þeir að láta það uppí því að ef til vill væri hægt að fá loforð hinna flokkanna um að þeim yrði ekki „strítt“ á því þó þeir tækju sér í þessu til fyrirmyndar fráganginn á reikningum ríkisins! Væri slík tilhliðrunarsemi vel hugsanleg, þar sem hér er um mál að ræða, sem eftir eðli sínu ætti ekki að geta verið „pólitískt" fremur en annað það, sem sjálfsagt er. Frágangurinn á reikningnum ber það með sér að mönnum er ætlað „að lifa í góðri trú“ á íhaldsmeirihlutann í bæjar- stjórninni og borgarstjórann, Jón Þorláksson, og fylgja málinu athugasemdalaust. Afkoma bæjarsjóðs 1928—1931. Hvernig er þá afkoma bæjar- sjóðs Reykjavíkur? 1 útvarpsumræðum í fyrra- vetur og í greinum í Tímanum gerði ég grein fyrir því að árin 1928—31 hefði bæjarsjóður verið rekinn með árlegum halla, og nam halhnn samtals 2 milj. 204 þús. króna. Þegar þessi útkoma er fengin eru af- borganir af lánum bæjarsjóðs taldar til útgjalda og virðist sú aðferð réttust, þar sem engin fyrning á eignum bæjarins er talin til útgjalda*. Á þessum árum höfðu skuldir bæjarins vaxið um 88%. Á móti skulda- aukningunni hafði bæjarsjóður enga arðbæra eign eignast. Skuldunum hafði því verið safnað vegna venjulegrar eyðslu og óarðgæfra fram- kvæmda. öll voru þessi ár þó góð til tekjuöflunar fyrir bæ- inn. Sum þeirra voru skatt- skyldar tekjur Reykvíkinga hærri en nokkru sinni fyr. I góðærunum safnaði bæjar- sjóður þannig skuldum undir stjórn hinna frábæru „kunn- áttumanna" íhaldsins í fjár- málum. Búast hefði mátt við því, að eftir 4 ára halla færu „kunn- áttumennirnir" að rumska og gera ráðstafanir til þess að hverfa af þessari hálu braut. Sýndust til þess ærnar ástæð- ur og m. a. sú, að það hlýtur að vera „pólitískt“ háskalegt að prédika seint og snemma um eyðslu, tekjuhalla og skuldasöfnun, og dæma slíkt ó- alandi og óferjandi, en bera jafnframt ábyrgð á skulda- söfnun og tekjuhalla bæjar- sjóðs Reykjavíkur. Þeir, sem ennþá taka íhaldsblöðin, Mbl. og Isafold, alvarlega, búast vitanlega við því, að 1932 og við samning áætlunar fyrir 1933, hafi þó a. m. k. verið skift um aðferð og íhaldið „tekið á honum stóra sínum“ í þessum efnum: Framkvæmt róttækan sparnað með þeim árangri, að tekjuafgangur hefði orðið á rekstri bæjar- sjóðs. Skuldir því lækkað og skattar (þ. e. útsvör) jafn- framt getað lækkað. Við athugun á blaðaskrifum íhaldsmanna annarsvegar og framkvæmdum þeirra í fjár- málum Reykjavíkur hinsvegar fæst alveg fullnægjandi próf- un á áreiðanleik þeirra í póli- tískum málflutningi og dug þeirra í framkvæmdum. í Reykjavík hafa íhaldsmenn ráðið um áratugi óskorað, og geta þeir því eigi borið við, að þeir hafi ekki getað stjórn- að fyllilega eftir sínum eigin meginreglum. Mun ég nú gera grein fyrir niðurstöðum af rekstri ársins 1932, fjárhagsáætluninni fyr- ir yfirstandandi ár, og jafn- framt bera veruleikann saman við fjármálakenningar íhalds- manna í blöðum og á fundum. Framh. * Væri afborganir ekki taldar til útgjalda yrði upphæðin 1.557 milj., en þá væri ófærð til gjalda upphæð, sem svaraði til fyrningar á eignum bæjarsjóðs. Roosevelt eða Nýjustu fréttir frá Banda- ríkjunum herma frá því, að deilu viðreisnarnefndarinnar svonefndu við bifreiðakónginn Ford haldi áfram og fari harðnandi. En stóratvinnurek- endur ýmsir, er áður þótti lík- legt að myndi fylgja áform- um viðreisnarnefndarinnar, hafa nú gerzt því fráhverfir og styðja Ford að málum. Þessi mótþrói er mjög við- sjárverður fyrir Roosevelt for- seta, og er ekki annað sýnna en draga muni til stórdeilu mjög bráðlega, og alveg ósýnt, hversu því lyktar. En takist forsetanum ekki að sigra mót- stöðu þessa, er viðreisnará- formi hans öllu stór hætta bú- in. Honum tókst að sigra ótt- ann, með bjartsýni og festu. I-Iann gaf þjóðinni nýja tfú á skjóta og örugga viðreisn. Hann fékk þingið til þess að fá sér í hendur nauðsynlegt vald til þess að geta gert hinar mikilvægustu ráðstafanir, hve- Hvítahafs- skurðnnnn, Stœrsta mannvirki heimsins. Þessi skurður, sem er nýlega fullgerður, er 238 km. langur og liggur á milli Hvítahafsins og Finnska flóans. Við hann unnu 130 þús. menn í 19. mán- uði. (Til samanburður má geta þess, að Panama-skurðurinn er aðeins 80 km. og tók fleiri tugi ára að gera hann). Skurðurinn sparar skipunum að krækja fyrir Noreg, en það er 8 daga ferð. Allir sem unnu að verkinu voru fangar, jafnvel verkfræðingamir líka. Áður en byrjað var á skurðin- um sendi stjórnin menn til allra fangelsa í Rússlandi, og sagði föngunum frá hinu fyrir- hugaða verki, og árangurinn af því varð sá, að 130 þúsund- ir buðust til starfsíns. Þar sém skurðurinn á einum stað er á 100 metra hæð yfir sjó, þurfti marga skipastiga, og til þess að fá nægilega mik- ið yatn var búið til stórt stöðu- vatn, þar sem áður voru 40 sveitaþorp. Þær 8000 fjölskyld- ur, sem þarna bjuggu, voru fluttar á brott og fengið nýtt land til ræktunar. Næst er á dagskrá hjá Rússunum að gera annan stærðar skurð, sem á að setja Moskva í siglingasamband við Volgu og gera Moskvaaðhafn arbæ. Verður þetta engu minna verk en Hvítahafsskurðurinn. (Samkv. frásögn danska rit- höfundarins Andersen-Nexö, sem nýkominn er úr ferðalagi í Rússlandi). Hve margir vinna á skrif- stofunni hjá þér? Hehningurinn. F ortl nær, sem hann áliti þess þörf, ráðstafanir, sem á öðrum tíma myndi jafnvel hafa þótt ganga landráðum næst að leggja fyrir þingið. „Það er aðeins eitt, sem ótt- ast þarf, sagði Roosevelt, er hann tók við forsetatigninni, „og það er ástæðulaus og ó- réttmæt hræðsla“. Þjóðin var orðin hrædd við kreppuástand- uð um það bil sem Roosevelt tók við völdum. Það er stund- um ekki gptt að segja af hverju sjúklíngnum batnar, hvort það er alltaf af meðal- inu, sem hann fær eða ein- hverju öðru. Víst er um það, að ástandið hefir batnað í Bandaríkjunum síðan í marz. En batinn er ekki ör. Þófið við stóriðjuna verður æ þyngra og nú horfir til þess, að reynt verði hver s.terkastur er. Hing- að til hefir enginn efi verið á því, að stóriðnaðurinn hefir verið öllum Bandaríkjastjórn- um sterkari. Hver sigrar nú — Ford eða Roosevelt? TÆKIFÆRIS- GJAFIR • KÆRKOMNAR MÚSIK- ELSKU FÓLKI: Sóuötur Beethovens: eru sígildar sena listaverk. I. og II. bindi með 32 sónötum og mynd af meistaranum. — Kærkomin gjöf. Sónötur Mozarts: Með Mozart náði ný-klassisk músik hámarki sínu. — Músik Mozarts er eins og æfintýri H. C. Andersens, bæði fyrir börn og fullorðna. 16 sónötur, I. og II. bindi, kr. 3,95. Chopin: Valsar, 2,oo. Nocturnes, Rhondos, Præludi- um, Etiidur o. fl. o. fl. Engum komponista hefir tekizt eins vel að komponera fyrir Piano eins og Chopin. Mendelsohn: Lieder ohne Worte: Mendelsohn er Romantiker. þelcktasta verk hans er líkleg- ast „Lieder ohne Worte“. Bach. Bach er líklegast mesti „kom- positions-tekniker", sem uppi hefir verið, Thema hans eru undur falleg. það er sagt um Bach, að hann sé mesti „lo- giker“ á sviði hljómlistarinn- ar, sem uppi hefir verið. Schubert: söngvar o. m. fl. i heftum, einstök lög o. fl. o. fl. Allt kærkomnar en þó ódýrar tækifærisgjafir. — — — — — — HLJÖÐFÆRAHÚSIÐ . Bankastræti 7. Simi 3658. Afgreiðslu- og aug- lýsingasími Nýja dagblaðsins er 2323 tveir-þrír-tveir-þrír

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.