Nýja dagblaðið - 03.11.1933, Blaðsíða 1
L ár.
Reykjavík, föstudaginn 3. nóvember 1933.
í DAG
Sólaruppkoma kl. 8.18.
Sólarlag kl. 4.02.
Hóflóð árdegis kl. 5.40.
Háflóð síðdegis kl. 5.55.
Ljósatími hjóla og bifreiða 4.50 e.
)n. til 7.30 órd.
Söfn, skrifstofnr o. fl.:
Landsbókasafnið opið kl. 1-7 og 8-10
þjóðminjasafnið lokað.
Náttúrugripasafnið lokað.
Náttúrugripasafnið ..... opið 2-3
Alþýðubókasafnið .... opið 10-10
Listasafn Einars Jónssonar lokað.
Landsbankinn .... opinn kl. 10-3
Búnaðarbankinn .. opinn kl. 10-3
Útvegsbankinn .. opinn kl. 10-4
Útibú Landslmnkans á Klappar-
stíg ................ opið 2-7
Sparisjóður Rvíkur og nágrennis
opinn ki. 10-12 og 5-7^4
Pósthúsið: Brófapóstst. .. opin 10-6
Bögglapóststofan .... opin 10-5
Landsíminn ............ opinn 8-9
BúnaðarféJ. Skrifst.t. 10-12 og 1-4
Fiskifél. .. Skrifst.t. 10-12 og l1/2-'i
Samband ísl. samvinnufélaga
opið .............. 9-12 og 1-6
Sölusamband ísl. fiskframleiðenda
10-12 og 1-6
Skipaútg. ríkisins opin 9-12 og 1-6
Eimskipaféi. íslands .... opið 9-6
Skrifst. bæjarins opnar '9-12 og 1-4
Skrifst. lögreglustj. opin 10-12 og 1-4
Skrifst. lögmanns opin 10-12 ogl-4
Skrifst. tollstjóra opin 10-12 og 1-4
Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6
Stjórnarróðsskrifstofumar
opnar 10-12 og 1-4
Hæstiréttur kl. 10.
Heimsóknartími sjúkrahúsa:
Landsspitalinn ............ kl. 3-4
Landakotsspítalinn ........... 3-5
Laugarnesspítali ...... ki. 12%-2
Vífilstaðahælið 12y2-iy2 og 3y2-4y2
Kleppur ................... kl. 1-5
Næturlæknir: þórður þórðarson
Skólabrú 2. Sími 3181.
Nætui'vörðui' í Laugavegsapóteki
og Ingólfsapóteki.
Brúarfoss til Breiðafjarðar og
Vestfjarða.
ísland til Akureyrar.
Suðurland kemur fré Borgarnesi.
Skemmtanir og samkomur:
Gamla bíó: Nýhöfn 17 kl. 9.
Nýja bíó: Svörtu riddararnir kl. 9.
Dagskrá útvarpsins.
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há-
degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir.
Endurtekning frétta o. fl. 19,00
Tónleikar. 19,10 Veðurfregnir. 19,20
Tilkynningar. Tónleikar. 19,35
Erindi Búnaðarfélagsins: Um
geymslu verkfæro og véla (Ámi
G. Eylands). 20,00 Klukkusláttur.
Fréttir. 20,30 Kvöldvaka.
Efni Nýja dagblaðsins:
Fjórmál Reykjavíkur, eftir Eystein
Jónsson alþm.
Svar þomióðs Eyjólfssonar við á-
rósum Mbl. og Vísis.
Bæjarstjórnarfundurinn í gær.
Alþingi sett o. fl.
Setníng Alþingis í gær.
Verður kosning þingmanns
Haínarfjarðar gerð ógild?
Lesið fréttir frá Alþingi í dag í
gluggum Nýja dagblaðslns f Aust-
urstratl 12.
G-uðeþjónusta i
dómkirkjunni.
Eins og venja er til komu
þingmenn saman í dómkirkj-
unni kl. 1 e. h. og hlýddu
messu áður en þeir byrjuðu
störf sín í þinginu. Brynjólf-
ur Magnússon prestur í Grinda-
vík steig í stólinn. Var ræða
hans sköruleg, bæði að efni og
flutningi. Áminnti hann þing-
mennina um að hlútverk þeirra
væri að semja lög sem miðuðu
til blessunar og bætts hags
fyrir alþjóð. Mál málanna væri
það að bæta úr atvinnuleys-
inu og reyna að gefa öllum
tækifæri til þess að vinna fyr-
ir sér. Loks benti hann á hve
ófarsælt það mundi verða fyr-
ir velferð þjóðarinnar, að ætla
sér að stjórna henni með hörku
og óbilgimi, og bætti að síð-
ustu við: aðalatriðið er að
réttlæti skapist í landinu og
að allir finni að þeir séu jafn-
ir fyrir lögunum.
Að guðsþjónustunni lokinni
gengu þingmenn úr kirkjunni
í Alþingishúsið. Fyrir utan
stóð fjöldi manns til þess að
sjá þingmennina, þegar þeir
gengju á milli.
1. þragiundur.
Fundur í sameinuðu þingi
var nú settur í neðrideildarsal
Alþingis. Forsætisráðherra Ás-
geir Ásgeirsson las upp bréf
konungs um samankvaðning
Alþingis, og kvaddi aldursfor-
seta Þorleif Jónsson í Hólum
til þess að stýra fundi, en
hann nefndi til fundarskrif-
ara þingm. Strandamanna
| Tryggva Þórhallsson og 2.
I þingm. Rangæinga Pétur
j Magnússon.
Aldursforseti minntist þá
| eins fyrv. þingmanns, er látizt
| hefir á árinu, Þorgríms Þórð-
| arsonar læknis í Keflavík, en
hann var einu sinni þingmað-
I ur Vesturskaftfellinga.
i Síðan skiptust þingmenn í
kjördeildir, og varð fundarhlé
á meðan kjörbréf þingmanna
| voru athuguð. Að lokinni at-
| hugun, var fundi haldið á-
fram.
j Formaður 2. kjördeildar,
j Bergur Jónsson, skýrði frá
| því, að kjördeildin hefði orðið
! sammála um að samþykkt
I yrðu öll kjörbréfin, sem hún
| hafði athugað, nema eitt,
! — Meirihluti kjördeildarinnar
lagði til, að kjörbréfi Bjama
: Snæbjörnssonar í Hafnarfirði
i yrði vísað til kjörbréfanefndar
Alþingis og frestað að taka á-
kvörðun um það.
i Magnús Jónsson lagði til,
fyrir hönd minnihlutans, að
kjörbréf Bjama Snæbjörnsson-
ar yrði tekið gilt og samþykkt
nú þegar.
Miklar umræður urðu um
kjörbréfið. Til máls tóku, auk
fyrnefndra, Jón Baldvinsson,
Bjarni Snæbjömsson og Har-
aldur Guðmundsson.
Það, sem meðal annars er
kært yfir, er, að 6 mönnum
hefir verið veitt aðstoð við
Framh. á 3. síðu.
Enn eitt bífreíðarslys
á þjöðveginum um Sogamýri
Maður bíður bana.
I fyrrakvöld kl. QVz fór
Jónatan Þorsteinsson áleiðis til
heimilis síns með strætisvagni,
og voru í fylgd með honum
piltur og tvær litlar stúlkur.
TJr strætisvagninum fóm þau
við Grenásveg, gengu síðan
reiðveg þann, sem liggur sam-
hliða þjóðveginum unz þau
komu á móts við Hálogaland,
þar sem Jónatan átti heima,
en einmitt þar liggur reiðveg-
urinn yfir þjóðveginn. En í því
að Jónatan fer þarna yfir veg-
inn kemur bifreiðin R.E. 878
og ekur á hann. Bar Jónatan
aðra litlu stúlkuna í fanginu
þegar slysið varð, og voru þau
bæði þegar flutt á Landsspít-
alann og lézt Jónatan þar í
j gærmorgun kl. ÍOV^.
i Bifreiðarstjóri sá er stýrði
; bifreiðinni heitir Hallgrímur
Aðalbjörnsson Skólavörðustíg
15. Málið er í rannsókn, en
upplýst er að bifreiðin hafi
ekið hratt.
Litlu stúlkuna mun lítið hafa
sakað.
Jónatan Þorsteinsson var
fæddur að Arnarhóli í Gaul-
verjabæjarhreppi 14. maí 1888.
Var hann dugnaðar- og at-
hafnamaður, og um skeið einn
af umsvifamestu kaupsýslu-
mönnum bæjarins. Síðari kona
! hans er Hulda kjördóttir Egg-
; erts kaupmanns Laxdal frá
Akureyri. Lifir hún mann sinn
ásamt tveim bömum þeirra.
I haidsflokkurinn
tapar fylgí í
Englandi.
London kl. 17 2/11. FÚ.
Bæjarstjómarkosningar fóru
fram í Englandi og Wales í
gær. Talningu er ekki lokið að
l'ullu- þegar síðast fréttist, en
af þeim úrslitum sem kunn
eru, virðist svo, að jafnaðar-
menn vinni mikið á í kosning-
unum, en tapið sé mest hjá
íhaldsflokknum.
Rússnesk fiota-
deild í Róm.
Berlin kl. 11.45 2/11. FtJ. ’
Nokkur rússnesk herskip eru !
nú komin í opinbera heimsókn
til Róm, og hefir ítalslca stjórn- !
in annazt móttökurnar. í gær j
voru rússneski sendiherrann, j
kona hans, og foringjar af
skipunum, gestir hermálaráð-
herra, en liðsmönnum af skip- 1
unum voru sýndar rústir Pom- i
peiborgar. I
Japanar hervæð-
ast af kappi.
Berlin kl. 11.45 2/11. FÚ.
Japanski flotamálaráðherr-
ann lýsti því yfir í viðtali við
blaðamenn í gær, að Japanar
myndu á næstunni byggja öll
þau skip, sem þeim væri heim-
ilað samkvæmt WTashington-
samþykktinni. Bætti hann því
við, að engin þjóð hefði þörf á
jafnsterkum flota og Japanar.
I dag minnast
Arabar fallinna
liðsmanna.
Berlin kl. 11.45 2/11. FÚ.
Blöði'n í írak komu út í gær
með svörtum sorgarröndum til
minningar um Arabana, sem
hafa fallið í óeirðunum í Jerú-
salem og Haifa. Samúð með
baráttu Arabanna er mikil víða
og hefir verið ákveðið að föstu-
dagurinn verði helgaður at-
höfnum í samúðarskyni við
Araba, í Irak. — FÚ.
Önnnr herferð
Sveins Benediktssonar.
Eftir Þormóð Eyjólfsson.
A Siglufirði f fyrra.
Maður er nefndur Sveinn og
er Benediktsson. Hann er ber-
serkur og herskár mjög. Hann
hyggur sig öllum mönnum
færari, til þess að hafa á hendi
forystu í sjávarútvegsmálum
og eygi hann nokkum mögu-
leika til að komast þar í farar-
brodd, grípur hann æði, svo
vart getur hann talizt einhama.
Brýzt hann þá um ógurlega og
geysar fram móti þeim, er hann
hyggur standa í vegi fyrir sér,
með svo miklu harki og ofsa,
að flestum stendur ógn af, og
gæta þeir þess þá síður en
skyldi, að veita viðnám eða at-
huga vopnaburð.
En það kemur þó í ljós, þeg-
ar óminníð er af honum runn-
ið, að máttur hans er lítill og
vopnin, hin lélegustu er spurn-
ir fara af.
Notar hann einkum þá að-
ferð, með aðstoð nokkurra
skósveina að spúa eitri úr
mörgum áttum í senn, í þeirri
von, að þeir, sem fyrir ofsókn-
inni verða, missi kjark og leiti*
á flótta, en augu áhorfenda
blindist svo að þeir komi
hvergi auga á sannleikann.
Þessi var bardagaaðferð Sv.
B. gegn Guðmundi Skarphéð-
inssyni, sem flestum mun enn
í fersku minni. Menn voru
settir út til að krafsa upp um
hann slúðursögur, safna mynd-
um af honum og húseignum
hans, ná í afrit af skuldasamn-
ingum hans o. fl. o. fl.
Sjálfur skrifaði Sveinn
hverja árásargreinina aðra
svæsnari um hann í Morgun-
blaðið og svo mikið lá á að
koma þeim til almennings, að
Morgunbl. var þá sent sérstak-
lega, í hundraðatali með hrað-
boðum, sem fóru dagfari og
náttfari til Skagafjarðar og
Siglufjarðar.
Sveinn hafði ákveðið að
„jafna Guðmund við jörðu“, og
því varð stórskotahríðin að
dynja á honum svo ört og
vægðarlaust, að engri vörn
yrði við komið, og kjarkinn
brysti.
Þetta tókst. Guðmundur var
heilsuveill og viðkvæmur í
lund.
Hann „brotnaði undan ofur-
j magni hatursfullri árása“.
Sv. B. fer úr verk-
smiðjustjórninni.
j En sigurinn varð Sveini dýr-
keyptur. Hann hefir lengst af
morrað í kafi síðan og hvergi
fengið að koma nærri málefn-
um Síldarverksmiðju ríkisins.
Skortir hann þar þó hvorki
vilja né viðleitni. — En það er
honum löngu síðan ljóst orðið,
að eigi hann að fá nokkru þar
að ráða, verður hann að ryðja
mér úr vegi fyrst.