Nýja dagblaðið - 08.11.1933, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 08.11.1933, Blaðsíða 1
NYJA DAGBIAÐIÐ I. ár, Reykjavík, miðvikudaginn 8. nóv. 1933. 10. bl. Suður-Jötland og samtök norrænna þjóða Á landamerkjum Dana og Þjóðverja í Suður-Jótlandi. ÍDAG Sólaruppkoma kl. 8,35. Sólarlag kl. 3,47. Háflóð árdegis kl. 8,55. Hái'lóð síðdegis kl. 9,15. Ljósatími hjóla og bifreiða kl. 4,20 e. m. til 8,05 árd. Veðurspá: Suðvestankaldi með skúi’um. Söfn, skriístofur o. fL: Landshókasafnið opið kl. 1-7 og 8-10 þjóðminjasafnið lokað. Náttúrugripasafnið lokað. Listasafn Einars Jónssonar opið 1-3 Listasafn Einars Jónssonar lokað. Landsbankinn .... opinn kl. 10-3 Búnaðarbankinn opinn 10-12 og 1-3 Útvegsbankinn .. opinn kl. 10-4 Útibú Landsbankans á Klappar- stíg ................... opið 2-7 Sparisjóður Rvíkur og nágrennis opinn kl. 10-12 og 5-7% Pósthúsið: Bi-éfapóstst. .. opin 10-6 Böggiapóststofan .... opin 10-5 Landsíminn ............. opinn 8-9 Búnaðai'fél. Skrifst.t. 10-12 og 1-4 Fiskifél. .. Skrifst.t. 10-12 og l%-4 Samband ísl. samvinnufélaga opið ............... 9-12 og 1-6 Sölusamband ísl. fiskframleiðenda 10-12 og 1-6 Skipaútg. ríkisins opin 9-12 og 1-6 Eimskipafél. íslands .... opið 9-6 Ski-ifst. bæjarins opnar 9-12 og 1-4 Skrifst. lögreglustj. opin 10-12 og 1-4 Skrifst. lögmanns opin 10-12 og 1-4 Skrifst. tollstjói’a opin 10-12 og 1-4 Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6 St j órnarráðsski’ifstof uraar opnar 10-12 og 1-4 Baðhús Reykjavíkur opið 8—8. Alþingi: Fundur í sameinuðu þingi kl. 1. Háestiréttur kl. 10. Heimsóknartimi sjúkrahúsa: Landsspítalinn ............ kl. 3-4 Landakotsspítalinn ............ 3-5 Laugarnesspítali ...... kl. 12%-2 Vífilstaðahælið 12%-1% og 3%-4% Kleppur .................... kl. 1-5 Nætuiiæknir: Ólafur Helgason, lngólfsstræti 6. Sími 2128. Næturvörður i Reykjavíkurapóteki og Lyfjabúðinni Iðunn. Læknisskoðun íþróttamanna Póst- hússtræti 7 kl. 6—7 (Óskar þórð- arson læknir). Samgöngur og póstferðir: Brúarfoss kemur seint í kvöld. Bíll til Reynivalla. Skemmtanir og samkomur: Nýja Bíó: Gæfubíllinn, þýzk mynd, kl. 9. Gamla Bíó: Hjartaþjófurinn kl. 9. Dagskrá útvarpsins. Kl. 10,00 Veðuiiregnir. 12,15 Há- degisútvai’p. 15,00 Veðurfr. Endur- tekning frótta o. fl. Jfingfréttir. 19,00 Tónleikar. 19,10 Veðurfregnir. 19,20 Tilkynningar. Tónleikar. 19,35 Tónlistarfi’æðsla, III. (Emil Thor- oddsen). 20,00 Klukkusláttur. Frétt- ir. 20,30 Erindi (úr dómkii’kjunni): Frá Finnlandi (Jón Helgason, biskup). 21,15 Ópera, Vex’di: Alda. Richard Sandler utanríkis- ráðherra, Svía hélt 29. f. m. mjög eftirtektarverða ræðu í Gautaborg um samfylkingu Norðurlanda gegn þýzku of- beldi. Hann taldi, að úrsögn Þjóðverja úr Þjóðabandalaginu og brotthlaup þeirra af afvopn- unarráðstefnunni mundi hafa hinar alvarlegustu afleiðingar. Hættan á brjálsemiskapphlaupi milli stórveldanna væri yfir- vofandi. Fyrir Norðurlönd væri þetta ennþá alvarlegra af því, að hin þýzka ofbeldis- og hernaðarólga hefði þegar brot- Afnám bannsíns í Bandaríkjunum. London kl. 17,00 7/11 FÚ. Loka-atkvæðagreiðsla um bannið fór fram í Bandaríkjun- um í dag. Eru það sex ríki, Kentucky, North Carolina, South Carolina, Ohio, Penn- synvania og Utah, sem þannig verða síðust til þess. að leggja dóm sinn á bannið. Þrjátíu og’ þrjú ríki hafa þegar samþykkt afnám þess, og það er búizt við, að minnsta kosti 4 af 'þess- um 6 bætist í þann hóp, en þá verður bannið afnumið 5. des- ember næstkomandi, og hefir þá staðið í 14 ár. Kosningar í Þýzkalandi. Berlín kl. 11,45 7/11 FÚ. Kosningalisti National-Social- ista var birtur í morgun. Eru á honum 685 nöfn, og Hitler efstur á blaði. Við þýzku kosningarnar á sunnudaginn kemur mun í fyrsta skipti í sögu Þýzkalands izt fram norður við landamæri Þýzkalands í Suðurjótlandi. Þó að þetta hafi enn ekki orðið ágreiningsmál milli danskra og þýzkra stjórnarvalda, muni sænska þjóðin láta sig það miklu skipta, að halda í skefj- um óróaseggjum þeim, sem koma af stað upphlaupum inn- an þeirra landamæra, sem réttilega hafi verið kölluð af forsætisráðherra Dana Suður- landamæri Norðurlanda. Sandler endaði ræðu sína með því að lýsa þeirri trú sinni að eindrægni Norðurlandaþjóð- verða kosið á skipi á hafi úti og hafðar flugvélar til aðstoð- ar. Er það á skipinu West- phalen, sem liggur í suður- Atlantshafi, og hefir verið Zeppelin greifa til hjálpar á Suður-Ameríku ferðum hans. Þýzki konsúllinn í I.as Palmas mun senda öll kosningagögn til skipsins með flugvélum. Sambléstur gegn Roosevelt. Bœndur herða A krdfum sinum. London kl. 0,45 7/11 FÚ. Ríkisstjórar mið- og vestur- ríkjanna í Bandaríkjunum hafa nú tekið sig saman um að krefjast þess af stjórninni að hún geri nú þegar ráðstafanir til hjálpar landbúnaðinum. Hafa þeir komið sér samán um að krefjast þess, fyrst, að stjórnin ákveði fast söluverð á landbúnaðarafurðum; í öðru lagi, að kornakrar verði tak- markaðir; og í þriðja lagi, að bændum verði veittur beinn styrkur. anna í friðarmálunum mundi á engan hátt hafa dregið úr orku þeirra til framkvæmda, sem nauðsynlegar væru til styrk- ingar ríkinu og verndunar frelsinu. Og það væri eðlilegt og augljóst, að öll Norðurlönd mundu standa saman í þéttri fylkingu í positivri friðarpóli- tík og stefndu öll að aukinni efnalegri og menningarlegri samvinnu, þar sem hvert þeirra neyti þó efnalegrar og menn- ingarlegrar sérstöðu sinnar. Reynast fögur orð um nor- ræn samtök betur nú en 1864? Formaður bændasamtakanna í vestur-ríkjunum hélt í gær mjög harðorða ræðu, þar sem hann bar það upp á Roosevelt forseta og landbúnaðarráðherr- ann, að þeir hefðu svikið bænd- urna, og hvatti hann bændur til þess að berjast með hnúum og hnefum fyrir réttindum sín- um. Frá Alþingi í gær. í neðri deild fór fram kosn- ing á 7 mönnurn í stjómar- skrámefnd, og voru þessir kosnir: af A-lista Bergur Jóns- son, Eysteinn Jónsson og Bern- harð Stefánsson, af B-lista Gísli Sveinsson, Thor Thors og Jakob Möller, af C-lista Vil- mundur Jónsson. Nefndin kaus Vilmund Jónsson fyrir for- mann, en Eystein Jónsson skrifara. Þá var kosningalagafrv. til 1. umr. Dómsmálaráðh. fylgdi því úr hlaði með örfáum orð- um. Eysteinn Jónsson fór einn- ig nokkrum orðum um höfuð- atriði frv. og var það fyrsta Verður lýst van- trausti á brezku stjórnínni? Berlín kl. 11,45 7/11 FÚ. Henderson, sem nú er í London, átti einnar klukku- stundar tal við Sir John Simon,, utanríkismálaráðherra, í gær, en síðar tók hann þátt í fundi stjórnar Verkamannaflokksins, og halda meim að þar hafi ver- ið rætt um hvort bera skyldi fram vantraust á stjórnina. í gærkvöldi talaði Henderson op- inberlega um afvopnunarmálið, og sagði, að enda þótt úrsögn Þýzkalands hefði aukið mjög á erfiðleikana, þá væri ekki loku skotið fyrir að hægt væri að vinna áfram í sama anda og hingað til, sér í lagi þar sem Þýzkaland hefði lýst yfir frið- arvilja, þrátt fyrir allt. Lord Rothermere skrifar grein í blað sitt Daily Mail í morgun, og krefst þar þess enn á ný, að Locamo sam- þykktinni verði sagt upp, og að England myndi varnarbanda- lag með Frökkum. Ennfremur krefst hann þess, að brezki ílugflotinn verði aukinn upp í 5000 flugvélar. Vélbáturinn Fram frá Siglufírði finnst ekki. Um leitina að vélbátnum Fram símar fréttaritari út- varpsins á Siglufirði í dag. Það hefir verið leitað stanslaust að bátnum síðan á sunnudags- morguninn. Vélskipin Sjö- stjarnan og Snorri komu inn til Siglufjarðar kl. 7 í gærkvöldi. Höfðu þau fundið eina flagg- bauju af bátnum, 8—9 sjómíl- ur norðvestur af Rauðanúp. Þau héldu aftur af stað í leit- ina kl. 12 síðastliðna nótt og ætluðu að leita austur fyrir Langanes. Eitt varðskipið kom til Siglufjarðar í dag til þess að taka þátt í leitinni. Á vél- bátnum Fram eru þessir menn: Formaður Helgi Sigurðsson skipstjóri frá Siglufirði, Arn- grímur Jónsson vélstjóri frá Dalvík, Jón Valdimarsson frá Dalvík og Meyvant yngri frá Máná. ræða hans í þinginu. Að lok- inni umr. var málinu vísað til stj órnarskrárnefndar. í efri deild voru 5 mál á dag- skrá og öll til 1. umr. Var þeim öllum vísað til 2. umr. og nefndar, en þau voru: 1. Frv. um breyt. á lögum um þingsköp Alþingis. 2. Frv. um samkomudag reglulegs Alþingis árið 1934, þar sem ætlast er til að þingið komi saman 1. október 1934. Framh. á 3. síðu.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.