Nýja dagblaðið - 09.11.1933, Síða 1
1 DAG
Sólaruppkoma kl. 8,38.
Sólarlag kl. 3,44.
Máflóð árdegis kl. 9,40.
Háflóð síðdegis kl. 10,05.
Ljósatími hjóla og bifreiða kl. 4,20
e. m. til 8,05 árd.
Veðurspá: Suðvestan og vestan-
gola, skúrir og kaldara.
Söfn, skrifstolur o. fL:
Landsbókasafnið opið kl. 1-7 og 8-10
JJjóðskjalasafnið ....... opið 1-4
þjóðminjasafnið .......... kl. 1-3
Náttúrugripasafnið ....... kl. 2-3
Landsbankinn .... opinn kl. 10-3
Búnaðarbankinn opinn 10-12 og 1-3
Útvegsbankinn .. opinn kl. 10-4
Útibú Landsbankans á Klappar-
stíg ................... opið 2-7
Sparisjóður Rvikur og nágrennis
opinn kl. 10-12 og 5-7%
Pósthúsið: Bréfapóstst. .. opin 10-6
Bögglapóststofan .... opin 10-5
Landsíminn ............. opinn 8-9
Búnaðarfél. Skrifst.t. 10-12 og 1-4
Fiskifél. ... Skrifst.t. 10-12 og 1-5.
Samband ísl. samvinnufélaga
opið ............... 9-12 og 1-6
Sölusamband ísl. fiskframleiðenda
10-12 og 1-6
Skipaútg. ríkisins opin 9-12 og 1-6
Eimskipafél. íslands .... opið 9-6
Skrifst. bæjarins opnar 9-12 og 1-4
Skrifst. lögreglustj. opin 10-12og 1-4
Skrifst. lögmanns opin 10-12 og 1-4
Skrifst. tollstjóra opin 10-12 og 1-4
Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6
Stjórnarráðsskrifstofumar
opnar 10-12 og 1-4
Baðhús Reykjavíkur opið 8—8.
Upplýsingaskrifstofa mæðrastyrks-
nefndarinnar, þingholtsstræti 18,
opin kl. 8—10 e. m.
Alþingi: Fundur kl. 1 í báðum
deildum.
Heimsóknartimi sjúkrahása:
Landsspítalinn ............ kl. 3-4
Landakotsspítalinn ............ 3-5
Laugarnesspítali ...... kl. 12%-2
Vífilstaðahælið 12%-1% og 3%-4%
Kleppur .................... kl. 1-5
Næturlæknir Valtýr Albertsson,
Túngötu 3. Sími 3751.
Næturvörður í Reykjavíkurapóteki
og Lyfjábúðinni Iðunn.
Læknisskoðun íþróttamanna Póst-
hússtræti 7 kl. 7—8 (Óskar þórð-
arson læknir).
Skemmtanir og samkomur:
Nýja Bíó: Gæfubíllinn, þýzk mynd,
kl. 9.
Gamla Bíó: Hjartaþjófurinn kl. 9.
Dagskrá útvarpsins.
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há-
degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir.
Endurtekning frétta o. fl. þing-
fréttir. 19,00 Tónleikar. 19,10 Veð-
urfregnir. 19,20. Tilkynningar. Tón-
leiktír. 19,35 Dagskrá næstu viku.
Tónleikar. 20,00 Klukkusláttur.
Fréttir. 20,30 Erindi (úr dómkirkj-
unni): Kristilegt félag ungra
kvenna. (Frú Guðrún Lárusdóttir).
21,15 Tónleikar. (Útvarpstríóið).
Grammófón. Wennerberg: Glunt-
arne. Danslög.
Stjórnarskipt
Enn einu sinni hafa orðið
stjórnarskipti í Frakklandi.
Frakkar eru orðnir frægir
fyrir tíð stjórnarskipti. Þing-
flokkarnir eru nú alls 15 og
enginn svo stór að hægt sé að j
mynda flokksstjóm. Stjómin á '
því löngum líf sitt undir mörg-
um flokkum, sem annars eru
lítt samstæðir.
Albert Sarraut.
Þegar Daladier tókst að
mynda stjórn snemma á þessu
ári, væntu margir þess, að |
honum tækist að halda völd- .
unum lengur en fyrirrennurum .
hans. Þær vonir studdust við ,
það álit, sem Daladier hafði
sem einn þróttmesti og hæf-
asti stjórnmálamaður Frakk-
lands. -
Flokkur Daladiers, social-
radikali flokkurinn vann mikið
á í kosningunum 1932 og varð
stærsti flokkur þingsins, fékk
160 sæti, en alls eru þingsætin
615. Kjörorð flokksins í kosn-
ingunum var það, að lækka
yrði útgjöld ríkisins og af- j
greiða tekjuhallalaus fjárlög.
Fjárlögin fyrir 1934 voru lögð
fyrir þingið með miklum tekju-
halla. Þann halla hugðist Dala-
dier að jafna án þess að taka
Mjólkurgjaflrnar
Blaðið hafði frétt að dráttur
hefði orðið á því í haust, að
byrjað væri á því að veita
börnunum mjólk í barnaskól-
unum hér í bænum, en það
hefir nú verið gert 2 undanfar-
in ár. Blaðið hringdi því til
skólastjóranna til þess að afla
sér upplýsinga um þetta. Eins
og kunnugt er, stakk skóla-
stjóri Austurbæjarskólans upp
á því í hitteðfyrra, að veita
mjólk í skólanum og að fátæk-
i í Frakklandi
ný lán. Til Þess þurfti að taka
til óvenjulegra ráðstafana
bæði um niðurfærslu á gjöld-
um og frekari tekjuöflun. Laun
opinberra starfsmanna og þá
einkum eftirlaun, skyldu lækka
að verulegu leyti. Beinir skatt-
ar áttu að aukast og krefjast
skilyrðislausrar greiðslu á þeim
sköttum, sem þegar væru á
lagðir.
Ekki þurfti að því að spyrja,
að þessar fyrirhuguðu ráð-
stafanir Daladiers yrðu æði ó-
vinsælar.
Hægri mennirnir stóðu fast
á móti hækkun skattanna, en
vinstri á móti lækkun laun-
anna. Almennust var þó mót-
staðan gegn þeim róttæku
ráðstöfunum, sem gera átti
til að fá skattana greidda og
koma í veg fyrir skattsvik.
En skattsvik eru mjög algeng í
landinu og þykir sjálfsagt ráð
til þess að verjast „blóðsugum
ríkisst j órnarinnar“.
Þegar Daladier lagði þessar
tillögur sínar fyrir þingið, rak
hann fast á eftir og vildi fá
þær afgreiddar sem skjótast.
Fyrst í stað gekk allt skaplega
og sumt af tillögum hans gekk
fram.
En þegar kom að niðurfærslu
launanna, varð ekki lengra
komizt. Róttækustu flokkarnir
báru fram vantraust á stjórn-
ina. Hægri flokkarnir gripu
tækifærið og studdu auðvitað
vantraustið og stjómin féll
með allverulegum atkvæðamun.
Stjórnmálamennirnir munu
þó hafa fengið eftirþanka um
það, að tæplega yrði gengið
framhjá höfuðlínunum 1 fjár-
málapólitík Daladiers, því að
til tals kom, að hann myndaði
stjórn að nýju. Það varð þó
ekki.
Sarraut myndaði ráðuneytið,
en ekki er gert ráð fyrir, að
j tillögur hans til viðreisnar
j verði að verulegú leyti frá-
1 brugðnar tillögum Daladiers.
■ Er Daladier nú hermálaráð-
! herra í ráðuneyti Sarraut.
1 barnaskólunum.
Viðtöl við skólastjórana.
| um börnum yrði gefin mjólkin.
Þetta fékk litlar undirtektir
hjá ráðamönnum bæjarins og
vildu þeir þá ekkert fé veita til
slíks. En nokkurir áhuga-
menn sáu þörfina á þessu og
gáfu töluvert fé til þessa, einn
af læknum bæjarins byrjaði
með því að gefa til þessa um
200 krónur. Þennan vetur
fengu um 900 böm mjólk í
skólanuni og um 100 af þeim
Frtonh. á 2. aíðu^
Kosníngarnar
i Bretlandi.
Ihaldið tapar.
London kl. 17,00 8/11 FÚ.
Við aukakosningar, sem
fram fóru í gær í Skipton kjör-
dæmi í Englandi, sigraði fram-
bjóðandi íhaldsflokksins, D. W.
Rickard, og hlaut 18.136 at-
kvæði, eða 3 979 atkvæða
meirihluta. Við síðustu kosn-
ingar hafði frambjóðandi
Ihaldsflokksins í þessu kjör-
dæmi 14.960 atkvæði meiri-
hluta. Það er frambjóðandi
Verkamannaflokksins, J. P.
Davis, sem mest hefir unnið
á síðan, og hlaut hann nú rúm-
lega 14.000 atkvæði, og fram-
bjóðandi Frjálslynda flokksins
rúmlega 9.000. Kommúnistar
höfðu einnig mann í kjöri í
kjördæmi þessu, en hann hlaut
svo lítið fylgi, að hann tapaði
tryggingarfé því, sem fram-
bjóðendur verða að setja að
enskum lögum um leið og þeir
bjóða sig fram.
London kl. 17,00 8/11 FÚ.
Bæjarstjórnarkosningar fóru
fram í Skotlandi í gær. Verka-
mannaflokkurinn vann á víð-
ast hvar. I Glasgow vann flokk-
urinn 8 sæti, og náði algerðum
meirihluta í bæjarstjórninni. í
Aberdeen vann hann 3 sæti, 1
í Dundee og 4 í Greenock.
Bardagar á
Cuba.
London kl. 17,00 8/11 FÚ.
Óeirðir hafa nú brotizt út á
Cuba. í dag sveimuðu flugvél-
ar yfir Havana, og skutu á
borgina úr vélbyssum. Upp-
reisnarmenn í Havana réðust
í dag á höll forsetans, en varn-
arlið hallarinnar hratt árás
þeirra af sér. Menn halda að
á bak við þessa uppreist standi
leynifélagsskapur, að mestu
leyti sá sami, sem hrakti Mac-
hado forseta frá völdum.
Borgarstjórakosn-
ing í New-York.
London kl. 0,45 8/11 FÚ.
Borgarstjórakosningar fóru
fram í New York í gær, og
voru um þær miklar æsingar.
Almennt var gert ráð fyrir því,
að Major la Guadia myndi bera
sigur úi' býtum, en hann hafði
verið útnefndur af samfylkingu
flokka og félaga, sem andvíg
eru „Tammany Hall“, eða
samtökuni Democrata
Imndon kl. 17,00 8/11 FÚ.
La Guadia Major var í gær
kosinn borgarstjóri í New
York. Kosning hans er sigur
fyrir andstöðuflokka Tammany
Haíl, og er þetta í fyrsta skipti
í 20 ár að andstæðingur Tam-
many Hall hefir verið kosinn
borgarstjóri.
Göbbels leiddur
sem vitni.
London kl. 17,00 8/11 FÚ.
Göbbels mætti í dag sem
vitni fyrir Ríkisréttinum í
Leipzig. Ilann flutti ekki ræðu
í réttinum, eins og Göhring
gerði, en svai-aði spurningum,
sem fyrir hann voru lagðar.
Dimitroff og Torgler lögðu
báðið fyrir hann margar spurn-
ingar. Göbbels sagðist fyrst
hafa heyrt um þinghúsbrunann
heima hjá sér, en Hitler hefði
þá verið þar staddur, og hefðu
þeir verið að borða. Þeir hefðu
ekki trúað fréttunum fyrst í
stað, og haldið að þær væru
í gamni sagðar, en þegar þær
voru ítrekaðar, sagði hann að
þeir hefðu tafarlaust haldið af
stað til þinghússins, og séð að
það var satt, að eldur var kom-
inn upp.
Dimitroff minntist í spurn-
ingum sínum á ódáðaverk, er
hann kenndi Nazistum, en
Göbbels svaraði því, að slík
ódáðaverk hefðu máske verið
unnin af kommúnistum í Naz-
istabúningi.
Dollarinn
lækkar enn.
London kl. 17,00 8/11 FÚ.
Gullverð í Bandaríkjunum
hækkaði enn í dag, og er nú
$ 33.05 únzan af nýunnu gullu.
Gengi Bandaríkjadollars féll
talsvert mikið í London í dag',
og var $ 4.94% er viðskiptum
lauk, og hefir gengi hans ekki
verið svona lágt síðan í styrj-
aldarbyrjun. Franskur franki
féll einnig dálítið.
Hvar er
eldurinn uppí?
Mest hefir orðið vart við
öskufallið á Fáskrúðsfirði.. Var
það svo mikið að vart var kom-
ándi út undir bert loft meðan
það var sem mest. Frá Breið-
dalsvík sást bjarmi í stefnu á
Dyngju, og hafa ýmsir haldið,
að þar mundi hafa verið eldur
uppi, en ekkert er þó víst um
það. I gær að mestu bjart á
Austfjörðum. f Vattamesi ogá
Reyðarfirði var þó slæmt
skygni og sömuleiðis í Horna-
firði. Landskjálfta hefir ekki
orðið vart.
Landskjálfti
á Þýzkalandi.
Berlín kl. 11,45 8/11 FÚ.
í nótt klukkan tæplega 2
fannst allsnarpur jarðskjálfta-
kippur í Wiirtenberg í Þýzka-
landi. Voru dunur og dynkir
samfara jarðskjálftanum, en
ekkert tjón hlauzt af.