Nýja dagblaðið - 14.11.1933, Síða 4
H * 3 A
DAOBLABI*
I
Hörmulegi slys.
Framh. af 1. síðu.
frétti blaðið í síma, að Þór-
oddur hefði farið síðari hluta
dags ríðandi úr Selvogi og
mundi hafa ætlað að gista á
einhverjum bæjanna í Ölfus-
inu.
Sigurjón Guðmundsson var
fæddur 16. júní 1908 að Móa-
koti í Sandvíkurhreppi í Ár-
nessýslu. Var hann sonur Guð-
mundar Ólafssonar bónda þar.
Sigurjón fór ungur í Kenn-
araskólann og tók þar kenn-
arapróf vorið 1924. Stundaði
hann fyrst kennslu, en hætti
síðan við kennslustörf og gerð-
ist verzlunarmaður. Hefir hann
verið á skrifstofu hjá Þóroddi
Jónssyni nú í nokkur ár og
hafði prókúruumboð fyrir
firmað.
Sigurjón kvæntist fyrir 3 ár-
um Elísiu Þorláksdóttur, sem
ættuð er úr sömu sveit og Sig-
urjón og lifir hún mann sinn.
Þau voru bamlaus. Foreldrar
Sigurjóns eru á lífi og eru til
heimilis hér í Reykjavík.
Sigurjón var heilsuveill, og
lá hann um tíma rúmfastur í
haust.
Heimssýningin
í Chicago.
11 miij. dollara
tekjuhalli.
Berlín kl. 11,45 13/11 FÚ.
Heimssýningunni í Chicago
var lokið í gær, en hún verður
opnuð aftur í júní 1934. Sam-
tals hafa 22ya miljón manns
sótt sýninguna, en tekjur
hennar hafa verið 26 miljónir
dollara. tJtgjöldin eru aftur á
móti 37 miljónir.
Þingfréttir
bíða næsta blaðs vegna rúm-
leysis.
Annáll.
Félag ungra
Framsóknarmanna
hélt aðalfund í gærkveldi.
Nánar á morgun.
Dánarfregn.
Páll J. Ólafson tannlæknír
andaðist að heimili sínu hér í
bæ á sunnudaginn. Banamein
hans var nýmaveiki.
Skipafregnir.
Esja kom til Reykjavíkur
um fjögurleytið í gær. Súðin
var á Seyðisfirði um kl. 4 í
gær.
Fisktökuskipið
s/s. Varoy er hér að taka
fisk frá Fisksölusamlaginu.
Varoy kom að vestan og norð-
an í gær nær því fullhlaðið af
fiski, en tekur hér eitthvað til
viðbótar.
Kristján Kristjánsson
áður bóndi á Víkingavatni,
faðir Björns Kristjánssonar
alþm., var 72 ára í gær. Hann
er nú staddur hér í bænum.
Farfuglafundur
verður í kvöld kl. 9 í Kaup-
þingssalnum. Samkomur þess-
ar eru einkanlega fyrir ung-
unmennafélaga utan af landi
og eru oft mjög fjörugar og
ánægjulegar. — Finnast menn
þama úr öllum landshlutum,
syngja saman, ræða saman,
lesa, dansa, segja sögur o. fl.
í Hafnarfirði
er tekið á móti áskriftum
fyrir Nýja dagblaðið á Hverf-
isgötu 62 eða hjá Valdimar
Long, sem einnig hefir blaðið
í lausasölu.
Glímufélagið Ármann.
Vetrarstarfsskrá félagsins er
fjölbreytt að vanda. 1 eldri
flokkunum kennir Jón Þor-
steinsson, en Vignir Andrésson
kennir bæði drengjum og telp-
um fimleika og Þorst. Krist-
jánsson drengjum ísl. glímu.
Sérstaklega er vakin athygli á
3. flokki kvenna, sem er fyrir
byrjendur og þær konur, sem
lítt eru vanar leikfimi. Sumir
flokkarnir eru nær því fullskip-
aðir og hver síðastur að kom-
ast í þá, því það er líf og
fjör hjá Ármenningum nú eins
og áður.
Nýtt bindindisíélag
er nú stofnað í Menntaskól-
anum á Akureyri.
Rottueitrim
á nú að byrja innan skamms.
í auglýsingu
Sambands ísl. samvinnufél-
aga um Fama-prjónavélar hef-
ir misprentast í nokkru af
upplagi Tímans í gær. Á að
standa: Glæpist ekki á að
kaupa dýrari (ekki ódýrari)
vélar. Fama-prjónavélin býður
yður alla þá kosti, sem krafizt
verður. — Fama-prjónavélin
er búin til í hinum alþekktu
Husquarna-verksmið j um.
1 bíl austan aí Síðu
komu fjórtán manns fyrir
nokkrum dögum. Er nú búið
að gera við veginn eftir
skemmdirnar, sem urðu eystra
af völdum vatnavaxtanna í
sumar. Verið er að hlaða fyrir
þá nýju kvísl, sem Jökulsá
myndaði vestanvert við brúna
í sumar, og er verkið langt kom
ið. Nýja kvíslin, sem kom á
Mýradalssandi eftir rigning-
amar í sumar, og sem var
bæði djúp og breið, er nú með
öllu horfin.
Áheit á Strandai'klrkju
afhent blaðinu frá H. G. 5
krónur.
Hjónaband.
Á laugardaginn voru gefin
saman hjá lögmanni ungfrú
Jenny Bjamadóttir og Leo
ólafsson sjómaður. Heimili
þeirra er á Laugaveg 30 B.
Virkjun Skeiðfoss í Fljótá
handa Sigluf jarðarkaupstað.
Bærinn hefir keypt fossinn,
mikið landrými, og stíflu til
rennslisjöfnunar. Steingrímur
Jónsson raffræðingur hefir
áætlað virkjunarkostnaðinn
604 þúsund krónur, með leiðsl-
um til Siglufjarðar, þar í fjögra
kílómetra jarðstreng. Raffræð-
ingurinn áætlar árlegan rekst-
unum. Guðm. Hannesson bæjar-
fógeti leggur til, að Siglufjarð-
arkaupstaður leiti nú þegar til
Alþingis um ríkisábyrgð fyrir
660 þús. króna virkjunarláni,
og byrji næsta sumar virkjun,
fáist lánið. Til þess að standa
straum af rekstri, vöxtum og
afborgunum af þessari virkj-
un, þurfa Siglíirðingar aðeins
að greiða tvöfalt það, er þeir
nú greiða íyrir 124 hestöfl —
þar af 70 hestöfl frá olíumótor
— en fá áttíalda orku. — F.Ú.
Kreppulánasjóður.
1 Lögbirtingablaðinu síðasta
er auglýst hverjir sótt hafa
um lán úr Kreppulánasjóði.
Eru það bændur úr Stranda-
sýslu, Vestur-ísafjarðarsýslu,
Austur-Húnavatnssýslu, Borg-
aríjarðar-, Rangárvalla-, Snæ-
fells- og Hnappadalssýslu og
Gullbringu- og Kjósarsýslu.
Umsækjendur eru fjöldamargir
úr hverjum hreppi þessara
sýsla.
Dýrt spaug, að hlusta á
útvarpið frá Moskva.
1 Þýzku blaði „Altoner Nach-
richten“ er skýrt frá því ekki
fyrir löngu, að komizt hafi upp
um nokkra eigendur sterkra
útvarpstækja, að þeir hlustuðu
á útvarpið frá Moskva. Segir
blaðið, að á slíku verði tekið
með harðri hendi, og þeir mexm,
sem hlusti á rússneskt útvarp,
álitnir vera kommúnistar. Verði
þeir þá fluttir í fangabúðir.
Sænsk-ísl. félagið
í Stokkhólmi.
Aðalfundur félagsins var ný-
lega haldinn í Stokkhólmi. 1
stjórn voru kosnir: Elías Wes-
sén prófessor formaður, Hjalm-
ar Lindroth prófessor í Gauta-
borg varaformaður, Helge We-
din skrifstofustjóri féhirðir,
Ivar Wennerström ráðheri’a,
Anders Grape yíirbókav. Upp-
sölum, Gunnar Leijström li-
centiat Stokkhólmi, Holger
Holm ræðism. Gautaborg, Erik
Noreen prófessor Lundi, Emil
Olson prófessor Lundi, Dag
Strömback licentiat Lundi,
Gustav Ross fyrv. landshöfð-
ingi, Gustav Rosén landshöfð-
ingi Umeá og Fritz Henriksson
fulltrúi í utanríkisráðuneytinu.
§ Ódýrn §
auglýBÍng8mar.
Húsnæði
óskað er eftir góðu herbergi
nálægt miðbænum. Upplýsingar
á Bergstaðastræti 82 eftir kl. 8
í kvöld.
Vantar litla íbúð, eða vil
jafnvel kaupa lítið hús á góð-
um stað í bænum. A. v. á.
Tapað-Fundið
Skinnhanzkar hafa tapast ná-
lægt Tjarnarbrúnni. Finnandi
geri viðvart í síma 4245 gegn
fundarlaunum.
Munið síma Herðubreiðar
4565, Fríkirkjuvegi 7. Þar
fæst allt í matinn.
Hafið þið reynt hið holla og
ljúffenga kjarnabrauð frá
Brauðgerð Kaupfél. Reykjavík-
ur?
ÓDÝRASTAR
vörur fáið þið aðeins á Vest-
urgötu 16.
Verzlunin Brúartoss
Sími 3749.
Ný lifur og hjortu.
Kleiu
Baldursgötu 14. Sími 3078.
— Félagið undirbýr nú þriðju
bókaútgáfu sína og eru það
bréf erkibiskupsins Uno von
Troil, frá ferðalagi hans hér
um Island árið 1772. Þetta er
mjög skemmtileg og fróðleg
bók og mjög skemmtilegt að
félagið skuli nú gefa hana út
aftur, því hún er fyrir löngu
uppseld og ekki hægt að ná í
: hana nema á einstaka bóka-
safni.
RAUÐA HÚSH).
sem vegna stærðar sinnar nær 5 metrum lengra út
á grasflötina.
Herbergið við hliðina á svefnherberginu er bað-
herbergi. Þessi þrjú herbergi öll eru einskonar
íbúð fyrjr sig. Meðan fyrsti eigandi hússins lifði,
bjó hér til vill einhver farlama maður, sem ekki
gat gengið upp og ofan stigann. Marta hefir ekki
notað þau neitt, nema vinnuherbergið, að minnsta
kosti svaf hann aldrei þar.
Antony leit inn í baðherbergið og gekk svo inn í
herbergið, sem Cayley hafði farið inn í. Glugginn
stóð opinn og hann leit út á snöggsleginn grasbal-
ann útifyrir og kyrlátan garðinn þar fyrir handan.
Hann fann til með húsráðandanum; hann kenndi í
brjósi um þann mann, er átti þetta allt, en var nú
flæktur inn í svo leiðinlega atburði.
— Cayley heldur, að hann hafi gert það, sagði
Antony við sjálfan sig. Það er augljóst, og þetta er
skýringin á því, hvað hann eyddi löngum tíma í
það að berja á dyrnar. Hvers vegna hefði hann átt
að reyna að brjóta upp læsingu, þegar það var svo
langt um léttara að brjóta ráðu 1 glugga. Auðvitað
tapaði hann sér, en hins vegar hefði hann átt —
já, hann hefir kannske viljað gefa frænda sínum
færi á því að komast á brott. Alveg það sama með
lögregluna og — ja ýmislegt fleira. Hvers vegna
vorum við að hlaupa alla leið kringum húsið til þess
að komast að glugganum. Vafalaust er hægt að
komast út um bakdyr gegnum forsalinn. Það verð
ég að athuga síðar.
Antony hafði, eins og menn hafa víst tekið eftir,
enganveginn tapað sér.
Hann heyrði fótatak framan við dyrnar og' leit
við. Þarna Cayley í dyrunum. Antony virti
hann fyrir sér um hríð, meðan hann var að velta
fyrir sér spurningu. Sú spurning var í meira lagi
skrítin. Hann spurði sjálfan sig að því, hvers vegna
dyrnar stæði opnar. Ja ekki eiginlega að því, hvers-
vegna dyrnar stæði opnar; það var ofur auðvelt að
skýra það. En hvers vegna hann hefði átt von á
því, að dyrnar væri lokaðar. Hann roundi ekki til
þess, að hann hefði lokað hurðinni og hvað sem
öllu leið, þá var hann undrandi yfir því, að sjá nú
dymar opnar og Cayley standa í dyrunum, í þann
veginn að ganga inn í herbergið. Eitthvað í undir-
vitund hans sagði honum að þetta væri kyndugt.
Hvers vegna?
í bili lét hann þessa spurningu eiga sig; svarið
myndi hann áreiðanlega fá, þótt síðar yrði. Hann
hafði furðulega gott minni. Það þar eins og allt
sem hann heyrði og sá væri skrásett einhversstað-
ar í heila hans, oft án þess að hann yrði sér þess
meðvitandi, og þar beið það rétt eins og filmur úr
myndavél, reiðubúnar til framköllunar.
Cayley gekk til hans, þar sem hann stóð við
gluggann.
— Ég er búinn að síma. Þeir senda hingað lög-
reglufulltrúa frá Middlestone og lögreglumenn og
lækni frá Stanton. Hann ypti öxlum. Nú byrjar
ballið.
— Hvað er langt til Middlestone? Einmitt þang-
að hafði Antony keypt farseðil í dag — einum sex
tímum fyr. Það var býsna skrítið.
— Svona þrjár og hálf míla. Gestirnir koma rétt
strax.
— Beverley og þeir?
— Ja, ég geri ráð fyrir að þeir vilji strax fara
sína leið.
— Því betra.
— Já. Cayley þagði um stund. Svo sagði hann:
Búið þér skammt hér frá?
— Á „The George“ í Woodham.
— Ef þér eruð einn yðar liðs, mætti ég kannske
stinga upp á því, að þér settust að hérna. Þér sjáið,
bætti hann strax við, að þér v e r ð i ð að vera hér
— vegna — réttarhaldanna — og þess alls. Ef ég
mætti bjóða yður gistingu í húsi frænda míns —
ég á við, ef hann ekki — ef hann virkilega hefir. ...
Audrey tók fram í fyrir honum og þakkaði strax
boðið.
— Það er ágætt. Máske verður Beverley líka eft-
ir. Það er ágætur strákur.
Þetta, sem Cayley hafði sagt og hikað við að
segja, sannfærði Antony alveg um það, að Mark
hefði verið sá síðasti, sem sá bróður sinn á lífi. Af
því leiddi engan veginn, að Mark væri morðingi.
Skot getur hlaupið úr skammbyssu af hreinni
slysni. Og af skothvellinum verða menn snarringl-
aðir og hlaupa sína leið, vegna þess að þeir eru
hræddir um, að orðum þeirra verði ekki trúað. En
hlaupi menn sína leið, þá ætti þó að vera heimilt
að brjóta heilann um það, hvað leið þeir hafi farið.
— Sennilega þessa leið, sagði Antony upphátt og
leit út um gluggann.
— Hver þá, sagði Cayley þrjózkulega.
— Ja, hver sem það nú var, sagði Antony og var
dillað. Morðinginn. Eða kannske við segjum heldur
maðurinn, sem lokaði dyrunum eftir að búið var að
myrða Robert Ablett.
— Það þykir mér undarlegt.
— Ja, hvernig gat hann lauma»t burtu á annan