Nýja dagblaðið - 22.11.1933, Side 4

Nýja dagblaðið - 22.11.1933, Side 4
4 m*** N Ý J A dagblaðið Annáll. Öngultaumaverksmiðju hafa þeir bræðurnir Guðmundur Sveinsson, skipstjóri og Magnús Sveinsson, nýlega sett á stofn hér í bænum. — Magnús sigldi í sumar til þýzkalands til þess að kaupa efni, og síðan hafa þeir fengið sér vélar. Eigendur verk- smiðjunnar vonazt til þess að geta með tímanum fullnægt allri eftir- spurn eftir þessari vöru hér inn- aniands, þótt notkun öngultauma fari stöðugt vaxandi. — FÚ. Lundúnaþoka. Svo mikil var þokan í London og mestum hluta austur-Englands í fyrradag, að ekki sást nema svo sem íimm metra. Jiegar slökkviliðið í Lond- on var kvatt á vettvang til þess að slökkva eld, sem komið hafði upp í verksmiðju einni, átti það íullt í fangi með að gegna störf- um sínum, og brann verksmiðjan til kaldra koia. — FÚ. Vestmannaeyingamót. Um 400 manns sóttu mót innfæddra Vestmannaeyinga, sem haldið var i Vestmannaeyjum á laugardag- inn var. Til skemmtunar voru á mótinu ræður, söngur, íþróttir, kvikmynd og dans. Ræður héldu Páll Oddgeirsson kaupmaður, síra Jes A. Gíslason og Árni J. John- sen. Söngnum stjómaði Bryn- júlfur Sigfússon kaupmaður, en íþróttunum þorsteinn Einarsson k.andidat. Mótið fór hið bezta fram. — FÚ. Stúdentagarðurinn. Hann var reistur á laugardaginn og blöktu flöggin á honum á sunnudaginn og í gær. Frá Ólafsvík. Eitt hið mesta aftakaveður varð í Ólafsvik og þar í grennd síðari hluta laug- ardags. Skemmdir urðu nokkrar. þak fauk af hlöðu hjá síra Magn- úsi Guðmundssyni, og hey fauk, en ekki til stórtjóris. þak fauk eiunig af ísgeymsluhúsi Finnboga Lárussonar, og nokkrir hjallar skemmdust. Veður þetta var af suðaustri, og byrjaði um kl. 5, og stóð um fjórar stundir. Hvassast var á áttunda tímanum. — Flestir J)átar liafa róið úr Ólafsvík und- anfarið. Afli er nokkur, og gæftir sæmilegar. Aflinn hefir verið seld- ur í línuveiðara og togara til út- flutnings. — F.Ú. Málaferli. Setudómari, Arnljótur Jónsson, hefir nú kveðið upp dóm í sakamáli því, er Magnús Jóns- son frá Skagnesi kærði til sýslu- manns gegn Jóni Brynjólfssyni verkstjóra í Vik í Mýrdal. Var .Tón Brynjólfsson sýknaður aí á- kæru réttvisinnar í máli þessu. Réttarhöld út af bruggi þeirra Sigurðar í Hvassahrauni og Guð- mundar þorkelssonar voru haldin í fyrrakvöld. Sigurður kvaðst hafa fundið bnlsann með „landanum“ niðri i fjöru fyrir nokkrum dög- um, en Guðmundur sagðist hafa fundið flöskurnar í holu suður í hrauni. Guðmundi var sleppt í bili, en Sigurður situr innj og tek- ur hann út dóm, á meðan rann- sókn út af þessu fer fram, en hann hefir áður verið dæmdur í fyrir brugg. Gyllir fór tii Þýzkalands með afla sinn, en ekki hefir frétzt um sölu hans. Er það fyrsti togarinn, sem fer þangað nú um langt skeið til þess að selja, sökum þess hve tollurinri er þar hár. Haustkvöld heitir nýr vals, eftir Skúla Halldórsson. Fæst í hljóð- færaverzlunum bæjarins. Strandmennirnir aí Geysir eru kornnir til Blythe á Skotlandi að undanteknum skipstjóra og stýri- tnanni, sem ennþá eru í Orkneyj- um. Kviknar i kassahlaða. Um 3 levtið í gær þar brunaliðið kvatt inri að mjólkurstöð Mjólkurfélags Reykjavíkur, því kviknað hafði þar í kassahlaða og hálmi. Var það mikið bál. Brunaliðinu tókst fljótt að slökkva og engar veru- legar skemmdir urðu, nema að kassarnir brunnu og bíll, sem stóð þar hjá sviðnaði eitthvað. Talið er að krakkar liafi kveikt í kössunum. Vikulegar hraðferðir verða næsta sumar milli Reykjavíkur og Akureyrar hjá Eimskipafélag- inu. Munu ferðir þessar verða samtais 34. Fjöldi ferða Eimskips á milli landa. Ferðir frá Kaupnmnnahöfn til íslands verða 31, frá Ilamborg 23, frá Antwerpen 12, frá Reyk.ja- vík til Kaupmannah. 25 og frá Reykjavík til Iíamborgar 22 ferðir. Samtals verða þá ferðir frá út- lönduni 06, en til útlanda 63. Meðai gesta í bænum: Sigurður Jakobsson bóndi á Varmalæk, Pétur Bjarnason hreppstjóri á Grund og Gísli Jónsson bóndi á Stóru-Reykjum. . Vextir. í greininni í gær um vexti, er það að athuga, að það er aðeins á vöruvíxlum, sem vextirnir eru 5þíj% í Landsbank- anum, en um slíka víxla er ekki að ræða í Búnaðarbankanum. Út- lánsvextii' af samskonar víxillán- um eru því eins i báðum þessum bönkurn. Fundir um brezk-rússnesku samningana hefjast nú aftur, eft- ii' þi'iggja vikna hlé. það sem sér- staklega mun vei-ða samningun- um JJrándur í Götu eru ákvæði Ottawa-samninganna, þar sem Bretar skuldbinda sig til að kaupa ekki vörúr sem settar eru á markaðinn fyrir neðan mai'k- aðsverð, og mundi þetta ákvæði koma niður á rússneskum trjávið. - F.Ú. Bifreiðarþjónaður. í gær- um eitt- le.vtið var bifreiðin RE S00 skilin eftir fyrir utan húsið nr. 40 á Hverfisgötu meðan bifreiðarstjór- inn, Kristinn Kristjánsson, gekk inn í búðina. JJegar bílstjórinn korp út, sá hann á eftir bifreið ■<inni á hraðri ferð inn Hverfisgötuna. í þeim svifum kom þar að kunningi Kristins og fóru þeir í bifreið á eftir og eltu þeir hina stolnu bif- reið innfyrir Árbæ, en þar ók hún útaf. Maður sá, sem hafði tekið hifi'eiðina var töluvert ölvaður, og var uýkominn út frá vinnuhæl- inu á Litla-Ilrauni, og kvaðst hann hafa ætlað að fara austur að Litla-Hrauni í kynnisför. Brot mannsins er þannig ferfalt: iiann íekur bíl í óleyfi, ekur allt of hratt, er öivaður og ekur án þess að hafa ökuleyfi. Sæsíminn hefir verið bilaður nokkra undanfarna daga. Bilunin varð 55 sjómílur undan Seyðis- firði. Eru það togarar, er bilun- inni valda. Síminn komst i lag í gærkvöldi. Skipafréttlr. Gullfoss fór frá Vestmannaeyjum 19. nóv. áleiðis til Kaupmannahafnar. Goðafoss var á Akureyi'i i gær. Brúarfoss kom til Kaupmannahafnar á mánudag. Dettifoss kemur til Hull í dag snennna. Lagai'foss er á leið til Austfjarða. Selfoss fór til Stykkishólms í gærkvöldi. Súðin kom hingað um miðnætti. Esja var á þingeyri í gær um hádegi. Skakkt var það í blaðinu í gær, að maðurinn, sem tekinn var fyr- ir sunnan Hafnarfjörð fyrir fyllirí væri þorbjörnsson. Hann heitir Guðmundur þorkelsson, en er frá Jlorbjörnsstöðum. Varðskipin Óðinn og Ægir Iágu bæði á Reykjavikurhöfn í gær og þór á Skerjafirði með 9 manna áhöfn. Ekki breytist stefna Magn- úsar í landhelgismálunum þótt hann vinni á ábyrgð konungs. Fisksalan. Bragi seldi á mánu- daginn afla sinn i Grimsby, 1400 körfur, fyrir 794 sterlingspund. Gylfi seldi í Hull fyrir 777 pund. Maður verður fyrir skoti. Ingi- mundur Guðmundsson fisksali á Framnesveg var i gær suður við þormóðsstaði að skjóta í mark, og fannst hann þar um kl. 1. Byssan hafði sprungið í höndum lians og hljóp skotið í ” ennið á honum. Meiddist hann töluvert. En i gærkvöldi, þegar blaðið talaði viö sjúkrahúsið, þar sem hann liggur, var sagt, að honum liði sæmilega, og að hann mundi ekki vcra 1 neinni lííshættu. % Ódýru % auglýsingarnar. Kennsla i ÖKUKENNSLA. Steingr. Guðmundsson Bergst,- stræti 65, heima. Sími 3973 eða á Aðalstöðinni. Sími 1383. Áætianir fyrir skip Eimskipa- félags Islands eru nýkomnar út. Gullfoss verðui' áfram í förum á Kaup og sala milli Reykjavíkur og Kaupmanna- hafnar með viðkomu i Leitli ann- að en sumarmánuðina, þá verður hunn í liraðferðum niilli Reykja- víkur og Kaupmannaliaínai'. Brú- arfoss verðúr aðallega í ferðum milli Kaupmannahafnar, Reykja víkur og Vestfjarða. Lagax’foss aft- ur n móti, verður í íerðum til Austurlandsins að mestu og líaup- tnannah. og Leith. Selfoss, Goða- foss og Dettifoss verða aðallega í ferðum til Englands, þýzkalands og Belgíu. Burtfarardagar skipu Eimskipa- félagsins breytast. í stað þess sem skipin hafa farið á þriðjudögum frá Kaupmannahöfrt, eiga þau nú að fara á laugardögum hálfsmán- aðarlega yfir sumarið. — Frá Reyltjavík i'ara skipin nú eftir þessari nýju áætlun á mánudög- um og miðvikudögum til Vestur- og Norðurlandsins. Innflutningur á nautgripum frá C.anada til Englands jókst unt 117% á fyrstu 9 mánuðum þessa árs, samanborið við sama tímabil 1932. Alls voi’U innflutt, frá Can- ada, 45000 nautgripir l'ram til septemberloka, en aðeins 16000 á sama tírna i fyrra. F.Ú. Kosningarnar á Spáni. í kosn- ingunum á Spáni voru kjörstaðir mjög vel sóttir, og ekki sízt af kvenfólkinu, sem nú greiddi al- kvæði i fyrsta skipti, og eiga nú 8 miljónir kvenna kosningarétt, en ltann er bundinn við 23 ára aldur. Ný flugvélagerð. í Englandi er nú verið að reyna helikopter flug- vél, sem getur hafið sig beint í loft upp, og er sagt að tilraunirn- ar hafi tekizt ágætlega. Flugvélin getur náð 345 kílómetra hraða á klukkustund, en getur hafið sig í 3000 metra hæð á 5V2 mínútu, og í' íi þús. metra hæð á 16 mínútum. Sagt er að brezka herstjórnin hafi í hyggju* að kaupa uppfinningu þessa. — F.Ú. Fimmföld harmonílva óskast til kaups. A. v. á. Notað skrifborð óskast. A. v. á. TIL SÖLU Kvenblúsur og samkvæmis- kragar. SAUMASTOFAN TÍZKAN Austurstræti 12. RULLU GARDÍNUR 1 j alltaf til úr bezta efni. Skóla- ! brú 2 (hús Ólafs Þorsteins- j sonar læknis). ÓDÝRASTAR I vörur fáið þið aðeins á Vest- ! urgötu 16. VERZLUNIN BRÚARFOSS ! Sími 3749. KJARNABRAUÐIN ! Hafið þið reynt hið holla og I ljúffenga kjarnabrauð frá i Brauðgerð Kaupfél. Reykjavík- ur ? Tilkynningar Tveim stólum,, sem fengnir liafa verið að láni á Mímisveg 8 í fyrra, óskast skilað til sjúklings á herbergi nr. 1, Landspítalanum niðri. „Verkstæðið Brýnsla* Hverfisgötu 4 (hús Garðars Gíslasonar) Brýnir öll eggjárn. Sími 1987. Allir strákar, sem hafa hug á að vinna sér inn peninga, Ivomi í fyrramálið í Hafnarstr. 18, uppi, til að selja Alþýðu- Magasínið. -— Há sölulaun. — Verðlaun. RAUÐA HÚSIÐ. gangi betur að komast eftir sannleikanum, ef ég er einn. — Auðvitað. Ég hafði líka hugsað mér að fara frá snöggvast. Ég ber á vissan hátt ábyrgð á gest- unum hérna. Reyndar hefir mr Gillingham verið svo vænn ... Hann leit brosandi til Antonys sem beið við dyrnar og lauk ekki við setninguna. — Nú kemur mér nokkuð í hug, sagði lögreglu- fulltrúinn. Sögðuð þér ekki að einn gestanna — mr. Beverley, var það ekki? — vinur mr. Gilling- ham, yrði eftir? — Jú, vilduð þér hafa tal af honum? — Ekki nú. Seinna. — Ég skal gera honum aðvart. Ég verð uppi á herbergi mínu, ef þér vilduð finna mig. Það er uppi á lofti, ég vinn þar. Hver sem er af þjónustufólk- inu getur vísað yður þangað. Já, Stevens, Birch fulltrúa langhr til að spyrja yður nokkurra spurn- inga. — Já, herra minn, sagði Audrey hæversklega, en með sjálfri sér var hún óstjórnlega spennt. Hjá ráðskonunni höfðu menn nú þegar fengið talsvert að heyra um það sem gerzt hafði og Audrey hafði mátt hafa sig alla við að skýra hinu þjónustufólk- inu nákvæmlega frá því hvað h a n n hefði sagt og hvað h ú n hefði sagt. 1 smáatriðum var nú ýmislegt ekki sem ljósast, en svo mikið var þó víst: bróðir mr Marks hafði skotið sig og mr Mark var horfinn. Og Audrey hafði strax séð, þegar hún lauk upp fyrir honum að hann var viðsjálsgripur. Hún hafði sagt það við mrs Stevens. Og mrs Stevens — þú manst það Audrey — hafði alltaf sagt það, að fólk færi ekki til Ástralíu án þess að hafa góðar og gildar ástæður til þess. Elsie var á sama máli og þær báðar hinar, en sjálf hafði hún dálitlu við að bæta. Hún hafði heyrt mr Mark hafa í hótunum við bróður sinn inni í vinnuherberginu. — Þú meinar mr Robert, sagði hin vinnukonan. Hún hafði lagt sig útaf í herberginu sínu og heyrt hvellinn. Það var satt, að hún hafði vaknað við þetta — nákvæmlega eins og skotið væri úr byssu, þannig var það. — Það var rödd mr Marks, sagði Elsie og brýndi raustina. — Sem baðst vægðar, sagði eldhússtúlka nokkur sem stóð út við dyr, áfergjuleg á svipinn og með giampandi augu. Hinar ráku hana út, svo að hún sársá eftir að hafa vakið á sér athygli. En það var ekkert spaug ‘að hlusta og verðá að þegja, þegar maður vissi jafn vel hvernig vant var að ganga til við svona tækifæri. Hún fylgdist sem sé vel og rækilega með í neðanmálssögum, sem í blöðunum komu. — Ég verð sannarlega að taka ofan í við þessa drós, sagði mrs Stevens. Nú, nú, Elsie? — Hann sagði, og ég heyrði hann segja það með mínum eigin eyrum: „Nú kemur að mér“, sagði hann, og það var rétt eins og þetta væri honum á- nægja. — Ja ef þér finnst þetta vera hótun, blessuð mín, þá þykir mér þú nokkuð einföld, það verð ég þó að segja. En Audre.v minntist |æss sem Elsie hafði sagt, þegar hún stóð augliti til auglitis við fulltrúann Birch. Vitnisburð sinn bar hún fram jafn greiðlega og þeim er títt, sem þegar hefir margsinnis endur- tekið hann með sjálfum sér. Og fulltrúinn spurði hana þvert og endilangt með eftirtektarverðri lægni. Ilann átti bágt með að stilla sig um að segja: „Kærið yður ekkert um hvað þér sögðuð við h a n n. En hann stillti sig, af því að hann vissi, að á þennan hátt myndi hann eiga hægast

x

Nýja dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.