Nýja dagblaðið - 23.11.1933, Blaðsíða 1
í DAG
Sólaj’uppkoma kl. 9,25.
Sólariag kl. 3,03.
llállóö árdegis kl. 9,40.
Háfló'ð síðdegis kl. 10,10.
l.jósatimi hljóla og bifreiða kl. 3.35
e. m. til 8.50 árd.
Veðurspá: Stinningskaldi á aust-
án, skýjað, en úrkomulaust.
Söfa, skrifstofur o. fL:
I.andsbókasafnið opið kl. 1-7 og 8-10
pjóðskjalasafnið ........ opið 1-4
pjóðminjasafnið .......... kl. 1-3
Náttúrugripasafnið ........ kl. 2-3
Alþýðubókasafnið .... opið 10-10
Listasafn Einars Jónssonar lokað.
Landsbankinn .... opinn kl. 10-3
Búnaðarbankinn .. opinn kl. 10-3
Útvegsbankinn .. opinn kl. 10-4
Útibú Landsbankans á Klappar-
stíg ................... opið 2-7
Sparisjóður Rvíkur og nágrennis
opinn kl. 10-12 og 5-7V2
Pósthúsíð: Brófapóstst. .. opin 10-0
Bögglapóststofan .... opin 10-5
Landsíminn ............. opinn 8-9
Búnaðarfél. Skrifst.t. 10-12 og 1-4
Fiskifél.... Skrifst.t. 10-12 og 1-5
Samband ísl. samvinnufélaga
opið ............... 9-12 og 1-6
Söiusamband ísl. fiskframleiðenda
10-12 og 1-6
Skipaútg. ríkisins opin 9-12 og 1-6
Eimskipáíél. íslands .... opið 9-6
Skrifst. bæjarins opnar 9-12 og 1-4
Skrifst. lögreglustj. opin 10-12ogl-4
Skrifst. lögmanns opin 10-12 ogl-4
Skrifst. tollstjóra opin 10-12 og 1-4
Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6
Stjórnarráösskrifstofurnar
, opnar 10-12 og 1-4
'rryggingarstofnanir rikisins
opnar kl. 10-12 og 1-5.
Heimsóknartími sjúkrahósa:
Landsspítalinn ............ kl. 3-4
Landakotsspítalinn ............ 3-5
Laugarnesspítali ...... kl. 12Vá-2
Vifilstaðahælið I2V2-IV2 og 3^-4%
Kleppur .................... kl. 1-5
Mæðrastyrksnefndin i þingholts-
stræti 18 .............. kL 8-10
Næturvörður i Reykjavíkurapóteki
og lyfjabúðinni Iðunn,
Næturlæknir: Ólafur Helgason,
Ingólfsstræti 6. Simi 2128.
Samgöngur og póstierðlr:
Lyra til Noregs kl. 6.
Dronning Alexandrine vestur og
norður kl. 6.
Suðurland til Borgamess kl. 8.
Skemmtanir og samkomur:
Nýja Bíó: Drottningin og ég, þýzk
mynd, kl. 9.
Gamla Bíó: Bláa ljósið, kl. 9.
Alþingi: Fundur í báðum deildum
kl. 1.
Bæjarþing. Fundur kl. 10 árd.
Dagskrá útvarpsins.
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há-
degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir.
Endurtckning frétta o. fl. þing-
fréttir. 19.00 tónleikar. 19.10 veð-
urfregnir. 19.20 tilkynningar, tón-
leikar. 19,35 Dagskrá næstu viku.
Tónleikar. 20,00 Klukkusláttur.
Fréttir. 20,30 Nýjar íslenzkar bœk-
ur, II. (Vilhj. þ. Gíslason). 21,00
Grammófóntónleikar. Sehubert:
Trio nr. 1 i B-dúr. Danslög,
Konungur felur Asgeiri Asgeirssyni
að gera tilrann til að mynda nýia þing-
’ l f
ræðisstiórn með stuðning’i eða hlutleysi
meirihluta Alþingis.
Bæjarstjórnarfundur
Meirihlutinn beitir valdi. — Umræður skornar
niður. — Neitað að bera tillögur til atkvæða. —
Borgarstjórinn vill ekki leita úrskurðar dómsmála-
ráðuneytisins nú þegar um setningu hinna 7
manna í bæiarlögregluna.
Hann vill heldur ekki leita úrskurðar dómstól-
anna um, hvort rétt hafi verið að veita þessum
7 mönnum iausn.
80 þús. kr. tjárveiting samþykkt at meirihlutanum
Bæjaistjórnarfundur var
settur í Kaupþingssalnum kl.
5 í gær. Virðist þessi fundur
hafa verið lítið tilkynntur, því
að enginn blaðamaður var þar
mættur nema frá Nýja dag-
blaðinu, og aðeins einn áheyr-
andi annar, sem kom inn
snöggvast og fór fljótlega út
aftur.
Fyrsti hálftíminn fór í að
lesa upp fundargerðir og und-
irrita þær.
En svo voru lögreglumálin
tekin á dagskrá. í
Fyrir lá að greiða atkvæði
um tillögur frá Jakob Möller
um málshöfðun gegn lögreglu-
stjóra og greiðslu til 7 manna,
sem ekki komust inn í lögregl-
una, ásamt viðaukatillögu frá
Hermanni Jónassyni um að
einnig yrði leitað úrskurðar
dómstólanna um hvort rétt
hefði verið að veita þessum 7
mönnum lausn. Þessar tillögur
voru frá síðasta fundi og hafði
þá borgarstjórinn borið fram
munnlega breytingartillögu um
að atkvæðagreiðslu um máls-
höfðun út af afsetningmmi
yrði frestað.
Undir eins og búið var að
taka málið á dagskrá, kvaddi
Stefán Jóh. Stefánsson sér
hljóðs og bar fram nýja til-
lögu um
Að leitað verði nú þegar
bráðabirgðarúrskurðar dóms-
málaráðuneytisins um ágrein-
ingsatriði það, sem til stæði
að færi til dómstólanna.
Hermann Jónasson talaði
næstur. Taldi vafasamt vegna
lagaákvæða um ráðningu að
ætla þeim 7 mönnum að starfa
í varalögreglunni eins og gert
væri í tillögu Jakobs Möller.
Ennfremur vakti hann á ný
athygli á því, að stofnun vara-
lögreglu yfir höfuð — á með-
an ekki væri búið að auka
föstu lögregluna upp í 2 merui
á hvert þúsund bæjarbúa —
væri brot á 1. og 6. gr. lag-
anna um lögreglumenn, sem
samþykkt voru á næstsíðasta
Alþingi — og loks að eðlileg-
ast væri að skilja lögin svo,
að um val varalögreglumanna,
ef til kæmi, giltu sömu reglur
og val flestra lögreglumanna
— og lægi þá enn fyrir hið
sama ágreiningsefni.
Sigurður Jónasson krafðist
þess, að um tillögu J. M. um
greiðslu til þessara 7 manna
færu fram tvær umræður í
bæjarstjórninni, því að hér
væri um nýja fjárveitingu að
ræða, en um þær ættu að fara
fram tvær umræður.
Jakob Möller kvaddi sér þá
hljóðs og lagði til að tillögu
Stefáns Jóh. Stefánssonar um
að leita úrskurðar dómsmála-
ráðuneytisins yrði frestað.
Milli Jakobs Möller og
Hermanns Jónassonar spunn-
ust nokkrar umræður út af lög-
unum um lögreglumenn. J. M.
sagði, að stofnun varalögregl
unnar nú færi ekki 1 bága við
lögin. H. J. gekk þá til hans
og lagði stjómartíðindin með
lögunum á borðið fyrir framan
hann. Jakob byrjaði að lesa
upphátt. Hann las alla 1. gr.
og
út í miðja 6 grein.
Þá hætti hann að lesa upp-
hátt og hélt áfram ræðunni.
Borgarstjóri talaði þá og
Frh. á 3 síðu.
Forseti sameinaðs þings sendi konungs-
ritara eftirtaracdi skeyti i gœrmorgnn.
Út af síniskeyti yðar í fyrra-
dag skal ég leyfa mér að taka
fram eftirf arandi: Áður en
ráðuneyti Ásgeirs Ásgeirsson-
ar baðst lausnar höfðu farið
fram tilraunir til stjórnar-
myndunar með þátttöku Al-
þýðuflokksins og Framsóknar-
flokksins. En þessar tilraunir
strönduðu á því, að minnsta
kosti tveir alþingismenn úr
Framsóknarflokknum vildu
ekki styðja slíkt ráðuneyti eða
samþykkja þann grundvöll er
samvinna milli flokkanna um
ráðuneytismyndun átti að
byggjast á, og frekari tilraun-
um í þessa átt er nú hætt. Það
er því ekki nú sem stendur
möguleiki fyrir hendi, að þess-
ir flokkar geti staðið saman
að stjórnarmyndun. Á Alþingi
er f lokkaskipun þannig: 5
Alþýðuflokksmenn, 17 Fram-
sóknarmenn og 20 Sjálfstæðis-
menn. Þar sem þannig enginn
einn flokkur út af fyrir sig,
getur myndað sjóm, tel ég, að
athuguðu máli helzt likur fyr-
ir því, að Ásgeir Ásgeirsson,
sem nú veitir ráðuneytinu for-
stöðu til bráðabirgha sé líkleg-
astur til að geta myndað þing-
ræðisstjórn. Byggi ég það með-
al annars á því, að formaður
Sjálfstæðisflokksins, Jón Þor-
láksson, hefir í viðtali við mig
staðfest það, að Sjálfstæðis-
flokkurinn óskiptur hafi við
byrjun Alþingis nú látið ráð-
herra sinn í ríkisstjórninni
skila því til forsætisráðherra,
að Sjálfstæðisflokkurinn ósk-
aði ekki eftir stjórnarskiptum
að svo stöddu, og veit ég ekki
til að sú afstaða sé breytt. Þá
tel ég líklegt að Ásgeir Ás-
geirsson myndi í sínum flokki,
Framsóknarflokknum, geta
fengið nægilega marga stuðn-
ingsmenn til þess að væntan-
legt ráðuneyti hans hefði
stuðning eða hlutleysi meira
hluta alþingismanna. Ég beini
því til yðar að þér leggið á
það ríka áherzlu við konung,
að það takist áður en Alþingi
nú lýkur störfum sínum að
mynda ríkisstjórn á þingræðis-
grundvelli með því að ætla má
að lioið geti allt að sjö mánuð-
ir þar til alþingiskosningar
fara fram og allt að tíu mán-
uðir þar til Alþingi kemur
saman næst.
Jón Baldvinsson.
í sambandi við þetta skeyti
vill Nýja dagblaðið taka það
fram, að forrætisráðherra hef-
ir þegar tekið afstöðu gegn
þeim úrkosti, sem forseti sam-
einaðs Alþingis bendir á. Sá
úrkostur er því ekki til. Ef
Ásgeir Ásgeirsson hefði talið
þann kost tækan, að veita for-
stöðu ráðuneyti, sem fyrst og
fremst var stutt af Sjálfstæð-
isflokknum, var það með öllu
óþarft að hann bæðist lausnar
fyrir ráðuneyti sitt.
Forsætisráöherra tékk i gærkvöldi svo-
hljóðandi simskeyti trá konungi:
Forsætisráðherra
Ásgeir Ásgeirsson,
Reykjavík.
Sem síðustu tilraun til þess
nú, að mynda þingræðisstjórn,
viljum vér hérmeð fela yður
að rannsaka, hvort þér getið
aflað yður nægilegs stuðnings,
til þess nú þegar að mynda
nýtt ráðuneyti, er hefði stuðn-
ing eða hlutleysi meiri hluta
aiþingismanna. Vér bíðam
svars yðar sem allra fyrst.
Christian R.
Nýja dagblaðið hefir áður
lýst því yfir, hversu óviðeig-
andi það er í þingræðislandi, ef
ekki tekst að mynda þingræð-
isstjórn. Hinsvegar er eins og
nú er komið málum óhugsandi
að þingræðisstjóm verði mynd-
uð, nema frjálslyndu flokkarn-
ir taki höndum saman um það.
Treystir blaðið því, að enginn
þingmaður Framsóknarflokks-
ins muni láta á sér standa til
þess, þegar ekki er annar
kostur þingræðisstjórnar. Geta
á þann hátt enn orðið þau lok
þessara mála, er flokkurinn
má vel við una, eftir að þau
hafa óvænlega horft nú um
I nokkura hríð.