Nýja dagblaðið - 23.11.1933, Page 3
N Y J A
DAGBLABIB
S
NYJÁ DAGBLAÐIÐ
Útgefendi: „Blaöaútgáfan h/f“
Ritstjóri:
Di. phil. porkell Jóhannesson.
Ritstjórnarskrifstofur:
1 uugav. 10. Síniai: 4373 og 2353.
Afgr. og auglýsingaskrifstofa:
Austurstrœt: 12. Simi 2323.
Frumkv.stj óri:
Vigfús Guðmuudsson.
Áskriflagj. kr. 2,00 á mánuði.
í lausasölu 10 aura eint.
Prentsmiðjan Acta.
OfríÖarhætta
og viðbúnaður
Um þessar mundir berast
liingað margar iréttir í senn,
sem allar benda á nálæga
óiriðarhættu. Japanar, Banda-
ríkin og Bretar keppa hvor við
annan um útbúnað til sjó-
liernaðar. Japanar ógna með
stórkostlegum flotaæfingum og
flotasýningu í Kyrrahafinu.
Japanar og Rússai1 draga
saman lið við landamæri Mand-
sjúríu og -Síberíu. Bandaríkin
hafa snúið íjandskap við Rússa
upp í vináttu, hafa viðurkennt
Sovétlýðveldin eftir 17 ára
þversköllun, ráðgera að stofna
stórfellda flugvélaverksmiðj u i
Rússlandi og koma á regiuleg
um flugferðum til Rússaveldis,
bæði að_.austan og vestan. Jap-
anar : heimta aukið land og
aukna markaði Austur-Asíu á
kostnað Rússa og Bandarikja-
manna og þykjast nú hafa
tækifæri til að ryðja sér til
rúms.
Sumir telja, að hin nýja
vinátta Rússa og Bandaríkja-
manna dragi úr ófriðarhætt-
unni 'í Austur-Asíu. Japanar
muni ekki þora að leggja til
ófriðar, ef báðum þessum ríkj-
um sé að mæta. En aðrir
liyggja, að Japanir muni ekki
liika að heldur, og þá verður
bandalag Rússa og Bandaríkja-
maima til þess eins að ófriðar-
bálið ber víðar yfir, um alla
jörð. Nokkrar líkur eru til, að
Japanar fái bandamenn, þar sem
eru fasistisku veldin í Evfópu,
Þýzkaland og Italía, og þá
verður leikurinn bæði harður
og tvísýnn.
Víst er að allar þjóðir búast
af kappi til nýs ófriðar —
nema við Islendingar. „En arg-
ur er sá, sem engu verst“. Mun
það sannast á okkur, ef við
fljótum sofandi að feigðarósi.
Hér skal ekki kvatt til víg-
búnaðar eða vopnaburðar. En
viðbúnaður verður að vera til
þess að landið sé sjálfu sér
nóg í næsta ófriði. Við verðum
að gera sem bezt fullnægt
okkar þörfum með eigin fram-
leiðslu, rafmagn á að koma í
stað kola, garðrækt og korn-
yrkju verður að efla, iðnað
verður að reisa og styðja.
1 næsta ófriði verður dreift
eiturgasi, drepsóttum og alls-
lionar sýkingu, líkamlegri og
andlegri um alla jörð. Eina
vörn okkar Islendinga gegn því
er þekking og hreysti, bæði
líkamleg hreysti og siðleg
hreysti. Þann herkostnað eig-
um við að leggja á okkur ls-
lendingar að búast þeim hlut-
um öllum eftir föngum. A.
Kaupin á Templaraloðinni.
Snemma á þessu þingi báru
fjórir þingmenn í nd. Alþingis
fram till. til þingsályktunar
um að fela ríkisstjórninni að
kaupa hús og lóð góðtemplara
við Vonarstræti og Templara-
sund hér í bænum. Kaupverðið
sé 200.000— tvö hundruð þús-
und krónur.
Fordæmið: Lóðir í
Lækjargötunni keypt-
ar undir þjóðhýsi.
Á síðustu árum hefir ríkis-
stjórnin samkvæmt till. Al-
þingis keypt nokkrar lóðir með
húsum hér í bænum, með það
fyrir augum, að þar yrði síðar
reistar opinberar byggingar
eða þjóðhýsi, svo sem það var
nú kallað. Það er vitanlega
hart, að ríkið skuli þurfa að
sæta því, að kaupa aftur
hundraðföldu verði lóðir og
lönd, sem aldi-ei hefðu átt að
ganga úr eign þess. En úr því
einu sinni þannig var komið,
þá var víst ekki annað að gera
en að ráðast í þessi kaup, áð
ur en færi þó ennþá ver, fyrst
að horfur voru á því, að ríkið
þyrfti síðar þessara lóða við.
Lóðirnar munu hafa verið
keyptar eftir mati þar til
kvaddra manna.
Lóð sú, sem hér ræðir um
liggur að Alþingishússlóðinni,
og er því sjálfsagt að mönnum
sé annt um, að þar verði ekki
reist hús er á nokkurn hátt
verði Alþingi til baga.
En þetta er þegar
tryggt. Alþingi á
meirahluta þessarar
umræddu lóðar og þar
verður alls ekki byggt
Alþingi til baga.
Því verður varla neitað,
að mál þetta lítur í meira lagi
fáránlega út. 11. marz 1927
féll dómur um það í hæsta-
rétti, að Templarar hafi ein-
ungis öðlazt tímabundinn og
skildagaðan eignarrétt yfir
allri lóðinni fyrir norðan Good-
templarahúsið og að Alþingis-
hússgarðinum, allri lóðinni
undir liúsinu og 5 álna. breiðri
ræmu fyrir sunnan það, þann-
ig að þeim hafi verið skylt að
flytja burt húsið á sinn kostn-
að og láta lóðina af hendi end-
urgjaldslaust frá landsstjórn-
inni, þegar hún þyrfti á lóð-
inni að halda og krefðist henn-
ar. Þessum rétti hins opinbera
hefir á engan hátt verið hagg-
að, svo sem dómur hæstarétt-
ar sýnir ljóslega.
Að þessari lóð liggur svo
i lóðarræma, svokallaður Good-
' templaríiússgarður, milli Good-
í templarahússins og Vonar-
strætis. Þessi lóðarræma hefir
verið metin til fasteignaverðs
ásamt lóð þeirri er Goodtempl-
arahúsið stendur á, eins og um
eina eign væri að ræða. Sam-
kvæmt fasteignamati Reykja-
víkur er þá lóðin öll metin
24,700 kr. En sjálft Goodtempl-
arahúsið er mftið á 26,600 kr.
Hvað gerir Alþingl.
Það sem ríkið á að
kaupa fyrir 200 þús.
kr.: 1. Lóðarræma ca.
10 þús. kr. virði. 2.
Ca. 40 ára gamalt
timburhús, metið á
25.600 kr.
Fyrir 200 þús. kr. á ríkið
að fá eign sem er rúml. 30
þús. kr. að mati og víst ríf-
lega borguð með 40 þús. kr.
Nú er spurt:
Ilvað veldur, að því er nú
haldið að ríkisstjórninni að
kaupa eign þessa 5-földu verði
Starfsemi templara er að sjálf-
sögu góðs makleg. Og ef um það
væri að ræða, að þeir yrði nú
að flytja hús sitt burt sam-
kvæmt kröfu hins opinbera,
væri sjálfsagt i'étt að það yrði
gert á þann hátt, sem regl-
unni mætti minnstur bagi að
verða.
En um það er ekki að
ræða, og engar líkur
til að amazt verði við
templurum eða húsi
þeirra fyrst uni sinn.
En um það er ekki að ræða,
og engar líkur til að amast
verði við templurum eða húsi
þeirra fyrst um sinn.
Ýmsum getum er nú að því
leitt, hvað eiginlega liggi á bak
við þessa þingsályktunartillögu.
En hvað sem öllu líður, er hér
um að ræða mjög óvenjulega
aðferð í meðhöndlun opinbers
fjár. Flestir munu á einu máli
um það, að styrkja beri bind-
indisstarfsemi með ríflegum
fjárframlögum af hálfu þess
opinbera.
Nauðsyn þess, að
vinna kröftuglega að
framgangi bindindis-
hreyfingar í landinu
hefir aldrei verið
brýnni en nú.
Það er eðlilegt og sjálfsagt,
, að goodtemplarareglan hafi
| forustu um þau mál og njóti
; þar fullkomins styrks löggjaf-
: arvaldsins og fjárstyrks frá
| Alþingi. En ef reglan á annað
i borð er styrkt með fj árframlagi
j verður að gera það hreinlega.
; Sú viðurkenning, sem Alþingi
| sýnir svo göfugri menningar-
I starfsemi má ekki líta út eins
, og ófyrirleitið gróðabragð.
, Heiður Reglunnar og heiður
l Alþingis krefst þess. En þessi
i aðferð minnir allt of mikið á
i svindilbrask, sem er fullkom- j
j lega ósamboðið bæði Alþingi og j
; Reglunni og ofboðslegt almenn- ;
ingsálitinu.
Mótorbátur
ca. 12 tonna mótorbátur ósk-
ast keyptur eða leigður nú þeg-
ar. Tilboð merkt „Bátur“ legg-
ist inn á afgreiðslu Nýja dag-
blaðsins.
Bæjarstjórnartundurinn
Frh. af 1. síðu.
sagði,, að ekki væri í rauninni
búið að samþykkja varalög-
regluna ennþá, og væri hér
bara um tillögur bæjarstjórn-
arinnar til dómsmálaráðuneyt-
isins að ræða.
En þá lagði Pétur Halldórs-
son fram tillögu um, að um
læðunum yrði tafarlaust slitið.
Stefán Jóh. Stefánsson fékk
þó að lialda eina stutta ræðu,
en því næst bjóst forseti til
að bera upp tillöguna um að
slíta umræðum,
en þá vantaði Ragn-
hildi í Háteigi.
Það kom mesta fát á Sjálf
stæðismennina, því að ef Ragn-
hildur hefði ekki komið í leit-
irnar myndi tillagan hafa fall-
ið með jofnum atkvæðum.
En Ragnhildur kom.
Tillagan um að slíta umræð-
um var þá samþykkt með 8:7
atkv.
Sigurður Jónasson vakti þá
athygli á því, að hann væri
búinn að leggja fram hjá for-
seta tillögu, sem ætti að koma
til atkvæða í þessu máli. En
hún var um
Að bæjárstjórnin ákvæði, að
kostnaður við varalögreglu
megi ekki fara f'rám úr 45 þús.
kr. á næsta ári.
En það er sú upphæð, sem
borgárstjóri hefir talað um í
þessu sambandi.
Forseti neitaði að bera þessa
tillögu upp og sagði, að hún
væri óviðkomandi því máli, er
á dagskrá væri.
Tillaga Jakobs Möllers um
að leita úrskurðar dómstóla
um setningu hinna 7 manna
var samþykkt með samhljóða
10 atkv.
Tillögu H. J. um að leita
einnig dómstólaúrskurðar rnn
afsetninguna var frestað með
8:7 atkv.
Tillaga J. M. um að greiða
þessum 7 mönnum fullt kaup
unz málinu lýkur var samþ.
með 8:7 atkv., og tillaga Sig-
urðar Jónassonar um að hafa
um það mál 2 umræður felld
með 8:7 atkv.
Tillögu Stefáns Jóh. Stefáns-
sonar um að leita þegar úr
skurðar dómsmálaráðuneytis-
ins frestað með 8:7 atkv.
Greiðsla bæjarins til þessara
7 manna, ef málið tæki 2 ár,
nemur um 80 þúsundum króna.
Þegar þessu máli lauk voru
tekin fyrir erindi frá Mæðra-
styrksnefndinni og síðan erindi
frá Sjómannafélaginu og
verkamannafélaginu Dagsbrún,
og flutti Stefán Jóh. Stefáns-
son ýmsar tillögur í því sam-
bandi, sem að því miða að
draga úr atvinnuleysinu og
hjálpa þurfandi fólki í vetur.
Var þeim öllum vísað til bæj
arráðs.
Trúlofunarhringar
alltaf fyrirliggjandi.
Haraldur Hagan
§ími 3890. Austurstr. 3
Húsmæður!
Munið að
Svana-smjörlíki,
Svana-jurtafeiti,
Svana-kaffi,
Svana-kryddvörur,
Svana-lyftiduft,
Svana-edik,
Svana-soya,
og yfirleitt allar Svana-
vörur, sem nú eru orðnar
þjóðkunnar fyrir gæði,
fást í
Kaupfélagi ReykjaYíkur
. Bankastræti.
HOBQVABNA-
merkið er alltaf örugg
trygging fyrir úrvals-
efni og afburða-smíði.
Kynnið yður verð og gæði
HUSQUARNA-
prjónavélanna og
HUSQUARNA-
saumavélanna.
Samband ísi.
- samvinnufélaga
Fyrír 1 krónu
Alum. eggskerar...........1,00
Alum. smjördósir..........1,00
Teppabankarar.............1,00
Mjólkurmál, % ltr........1,00
Gler í hitaflöskur........1,00
Fataburstar, sterkir .. .. 1,00
3 klósettrúllur (1500 blöð) 1,00
4 eldspýtnabúnt (40 st.) 1,00
50 þvottaklemmur, gorm . 1,00
Þvottasnúrur, 20 mtr. .. 1,00
2 kveikir í olíuvélar . . . . 1,00
3 gólfklútar, góðir . . .. 1,00
Kökuform..................1,00
Sápuþeytarar .............1,00
Flautukatlar, blikk . . .. 1,00
4 borðþurkur.............1,00
Diska- og könnu-bretti .. 1,00
Myndarammar...............1,00
4 vatnsglös...............1,00
Rafmagnsperur.............1,00
2 borðhnífar.............1,00
4 matskeiðar, alm........1,00
3 vartappar..............1,00
2 matardiskar.............1,00
2 bollapör...............1,00
3 sápustykki.............1,00
1 bóndós..................1,00
2 brúsar fægilög.........1,00
Niðursuðuglös.............1>00
Skaftpottar...............1,00
Leirskálar................1,00
Emaill. skálar............1,00
Sigurönr Kjartansson
Laugavegi 41.