Nýja dagblaðið - 23.11.1933, Qupperneq 4
4
N Ý J A
D A OBLAÐIÐ
AnnálL.
Minni kaupþvingun. í Grikk-
landi heíir það tiðkast, að þeir
sem selt liafa þar fisk, hafa orðið
að taka vörur alveg út á hann. Nú
hefir þetta breyzt og er nú ekki
skylt að kaupa nema fyrir helm-
inginn af því, sem selt er.
Flutningaskipið Eikhaug er ný-
komið til Akraness og affermir
þar um 1300 smálestir salts. Saltið
skiftist milii 6 útgerðarfélaga,
sem hat'a flest sinn vélbátinn
hvert. .— FÚ.
Nemcndaijöldi béraðsskóla vet-
urinn 1933—34: Laugarvatn 140,
Reykholt 63, Laugar 68, Núpur 16,
Reykir 7, Eiðar 40.
Skipairéttir. Gullfoss kemur til
Kaupmannahafnar í dag. Goðafoss
fór frá Dalvík kl. 5 í gœr á leið til
Siglufjarðar. Brúarfoss fór frá
Kaupmannahöfn í gœr á leið til
Leith. Dettifoss kom tii Hull í
gœr. Lagarfoss er á leið til Aust-
fjarða. Selfoss er í Stykkishólmi.
Esja var á Drangsnesi i gœr.
Nova fór í gærkvöldi kl. 10. Lyra
fer í dag áleiðis til Noregs.
Súðin er nýkomin úr ferö til
Noregs. þangað fór hún með kjöt-
farm og kom með tilbúinn áburð og
skilaði honum af sér á höfnunum
kringum land. Verður henni nú
lagt hér um óákveðinn tíma.
Frá Reykholtsskóla. í gær fóru
nemendur og kennarar Reykholts-
skóla í ferðalag upp í Norðurár-
dal. Farið var í bílum í Bjarnar-
dal og gengið þaðan upp á Baulu.
Veður var ágætt og skyggni
sæmilegt. Nokkur hálka var, en
allir sem fóru komust þó upp. í
heimleið var komið að Hreða-
vatni og borðað þar og drukkið,
en heim var komið kl. 6J4 í gær-
kvöld eftir 10 tíma ferðalag. Milli
40 og 50 manns tóku þátt í för-
inni.
Flsksalan. Surprise úr Haínar-
íriði seldi afla sinn i Englandi á
þriðjudaginn, 1200 körfur, fyrir
813 stcrlingspund.
Frá Norðíirði. Tólf ára drengur,
Gunnar Björnsson frá Brennu, réð-
ist í fyrrakvöld til uppgöngu í
vörubíl, sem var á hægri ferð.
Drengurinn missti fótanna, og féll
'út af aurhlífarbarðinu, þegar hann
ætlaði að stökkva upp á pallinn, og
varð hann þannig fyrir afturhjóli
bilsins. Drengurinn meiddist nokk-
uð, og leið honum óþægilega í
morgun. — F.Ú.
Atvinnuleysi í Danmörka hefir
aukizt aftur dálítið síðastliðna
viku. Norskar fréttir segja einnig
að í Oslo hafi atvinnuleysi líka
aukizt dálítið. — FÚ.
Nýtt samvinnuíélag. Nýstofnað
er á Akranesi samvinnufólagið
Sólmundur. Aðaltilgangur félags
þessa er að reka fiskverkunar-
stöð, þar sem félagsmenn, sem
margir eru sjómenn á vélbátiAn á
Akranesi, geti lagt inn fisk sinn
til verkunar og sölu, og notið
þeirrar atvinnu, sem verkunin
skapar. Félagið vill einnig stefna
að aukinni hagnýtingu á afla fé-
lágsmanna og aukinni atvinnu.
Stjórn félagsins skipa: Sigurður
Símonarson formaður, Sigurður
Björnsson bráðabyrgðafram-
kvæmdastjóri, Ásmundur Jónsson,
Daníel þjóðbjörnsson og Svein-
björn Oddsson. í varastjórn: J>or-
kell Guðmundsson og Jörgen
Hansson.
Fjórðungsþingi tiskideildanna í
Sunnlendingafjórðungi lauk í gær
á Akranesi. þingið sátu 3 full-
trúar, þar af tveir af Akranesi,
þeir Ólafur Björnsson útgerðar-
maður og Kristmann Tómasson
fiskirnatsmaður, og af Eyrarbakka
Bjarni Eggertsson. — FÚ.
Aflafréttir. f fyrradag réru til
fiskjar frá Akranesi 3 vélbátar:
Frygg, Sæíari og Haraldur. Frygg
aflaði um 2000 kg. Sæfari um 1500
kg. og Haraldur eitthvað rninna.
Bátarnlr seldu aflann í Reykja-
vík. — FÚ.
Frá Seyðlsfirði. Fjái'hagsáætl-
unin fyrii' árið 1934 nemur 134
þús. krónum. Útsvör eru áætluð
40 þús. krónur, en í fyrra 42 þús.
kr. Áætlaður tekjuafgangur til
aíborgana, kr. 10,250. — í Ung-
lingaskóla Seyðisfjarðar eru 19
nemendur. Skólinn tók tíl starfa
I. nóvember, og stendur til marz-
loka. Slátrað var þar í haust
3000 fjár. Verð á kjöti var 60—85
aura kilogrammið, en á mör 80
aurar til 1 kr. kg. Slátur var selt á
1 kr. til kr. 1,25. — Aflatregða
er á Seyðisfirði sökum beitu-
leysis og ógæfta, þó vart sé síldar
og þorsks þegar gefur. Rjúpna-
veiði er nokkur. — FÚ.
Frá Akureyri. Æfintýri á göngu-
föi' var loikið á laugardagskvöldið
og aftur á sunnudagskvöld, við á-
gæta aðsókn, og þótti takast vel
og söngkraftar vera góðir. — Nú
eru komnar 1900 lcrónur í krónu-
veltu laugaveitunnar. Búnings-
klefar sundlaugarinnar eru þegar
upphitaðir, en frekari fram-
kvæmdir verða látnar bíða vors.
Undirbúningur bæjarstjórnar-
kosninga á Akureyri er þegar
byrjaður. — FÚ.
Gyllir seldi afla sinn í Cux-
haven í fyrradag fyrir 25.900
mörk, en um 3/s af verði fiskjar-
ins fór í toll og uppskipun. Er
það ekki álitlegt að selja vöru til
þýzkalands meðan svo er,
að þarf að greiða rúman helming
verðsins í toll. Fisktollurinn er i
þýzkalandi 100 mörk á smálest.
Sjávarútvegsnefnd hefir verið
sett á laggirnar og á hún að
rannsaka hag útgerðarinnar. Sæti
eiga í nefnd þessari Jón A. .Tóns-
son og' Kristjan .Tónsson frá Isa-
firði og Jóhann Jósefsson frá
Vestmannaeyjúm. Nefndin hefir
nú sent út skýrsluform til sýslu-
manna og hreppstjóra á landinu.
Er liverju útgerðarfyrirtæki ætluð
skýrsla, og er tilætlunin með'
þessu að fá eins nákvæmt yfirlit
og liægt er yfir hag sjávarútvegs-
ins. Ekki mun nefndin geta farið
að vinna út skýrslum þessuin fyr
en í vor, því fyr munu svörin
ekki koma.
Fiskiinnflutningurinn tll Enp-
lands. ísland hefir samkvæmt
samningum við England leyfi til
þess að flytja til Englands 148
þús. vættir á þessu ári (1 vætt
50,8 kg.). Urn síðustu mánaðamót
var tæpiega V3 af leyfi þessu not-
að. Leyfi er þvi fyrir innflutningi
til Englands til áramóta fyrir um
100 þúsund vætta og er það meðal-
sala, eí við getum s.elt það allt,
og hinsvegar er íull ástæða til
þess að gera sér vonir um sæmi-
legt verð, þar sem Norðurlöndin
hin hafa selt til Englands allan
þann íisk, sem þau hafa leyfi til
á þessu ári.
Nýtt bindlndlsfélag. Á laugar-
daginn var stofnað Vínbindindis-
félag Menntaskóldns á Akureyri,
með 130 félögum, þar af 5 kenn-
urum. Stjórn þess skipa Eirikur
Pálsson, formaður, Brynjólfur
Sveinsson kennari, Karl Strand,
Óskar Magnússon og Ingvar Bryn-
jólfsson, meðstjórnendur. — FÚ.
Háflag. T. G. W. Settle Iiðsfor-
ingi í flugher Bandaríkjanna,
fór í fyrradag í háflug i loftbelg,
lenti í fyrrakvöld í Bridgetown í
New Jersey, en haíði lagt af stað
frá Akron Ohio um morguninn,
og þannig borizt 600 mílur til
austurs. Hann hefir komizt að
minnsta kosti 58.000 fet í loft upp,
eða um 11 enskar mílur, og
þannig komizt hærra en prófes-
sor Piccard síðastliðið ár, en óvíst
1 er enn hvort hann hefir komizt
hærra en rússneski loftbelgurinn
sem talið var að komizt hefði
ll7/s mílur í loft upp í sumar,
því eftir er að gera lokarannsókn
á mælitækjunum.
Kaupendur Nýja dagblaðsins í '
Reykjavík eru beðnir að ieiðbeina .
unglingunum, sem bera blaðið út
á morgnana, um hvar sé örugg-
ast að skilja blaðið eftir, svo það
komist til skila (sé lokað). Gerið i
afgreiðslunni viðvart sem allra
fyrst, ef vanskil verða. - ■
Stéttafélag kennara hélt fyrir
skömmu fund þar sem þau frú
Aðalbjörgn Sigurðardóttir form.
skólanefndar og Pétur Halldórs-
son voru boðin. Frú Aðalbjörg
lióf máls um samvinnu kennara
og skólanefndar og urðu allharð-
ai' umræðui'. — Einnig var raitt
um vöntun á viðunandi leiksvæði
fyrir börnin i Miðbæjarskólanum,
salernis og annara nauðsynlegra
hluta. Sömuleiðis var rætt um
námsgreinafjöldann í skólunum,
að þær væru allt. of margar og
börnin væru of lengi i skólunum.
Var sérstaklega áfellst að láta
börnin lesa dönsku 2 tíma á dag
áður en þau kunna móðurmál sitt
svo að í nokkru lagi sé. — Er
það ekki að furða þó kennarar
reki augun í svona fjarstæðu eins
og að kenna dönsku í tvo tíma á
dag i barnaskólum.
Meðal gesta i bænum: Séra Jón
Guðnason frá Reykjum.
Kaupbætir, þeir, sem gerast
kaupendur Nýja dagblaðsins nú
strax, fá blaðið ókeypis til 1. des.
og eins það, sem til er óselt af
eldri blöðum.
Nemendafjöidi gagnfræðaskóla
veturinn 1933—34: Reykjavík 130,
Flensborg 57, ísafjörður 55, Vest-
mannaeyjar 35, Akureyri 34, Nes-
kaupstaður 13.
Skemmtileg afgreiðsla!
Maður, sem víða hefir ferð-
azt og komið í afgreiðslusali
margra banka sagði fyrir
skömmu: „Afgreiðslan í Lands-
bankanum í Reykjavík á varla
sinn líka í heiminum. Það mun
líklega engin afgreiðsla geta
keppt við hana í seinlæti og
skipulagsleysi“. — En minnsta
kosti einn af afgreiðslumönn-
unum stendur líka framarlega
í einu og það er ókurteisi.
Gjaldkerinn í sparisjóðsdeild-
inni sagði t. d. við mann, sem
lengi hafði beðið eftir af-
greiðslu og spurði mjög kurt-
eislega hvort röðin mundi ekki
bráðum vera komin að sér.
„Því í andskotanum getið þér
ekki heyrt, hafið þér troðið
upp í eyrun?“, hljóðar svarið.
— Hvar í lieiminum mundi
maður fá slík svör í opinberri
bankastofnun? R.
% Ódýru %
auglýsingarnar.
Kennsla
ÖKUKENN SLA.
Steingr. Gunnarsson Bergst.
stræti 65, heima. Sími 3973
eða á Aðalstöðinni. Sími 1383.
Kaup og sala
Fimmföld harmoníka óskast
til kaups. A. v. á.
Notað skrifborð óskast. A.
v. á.
TIL SÖLU
Kvenblúsur og samkvæmis-
kragar.
SAUMASTOPAN TlZKAN
Austurstræti 12.
Munið
lága vöi'uverðið á
TÝ-SGÖTU 3
RULLUGARDlNUR
alltaf til úr bezta eí'ni. Skóla-
brú 2 (hús ólafs Þorsteins-
sonar læknis).
ÓDÝRASTAR
vörur fáið þið aðeins á Vest-
urgötu 16.
VERZLUNIN BRÚARFOSS
Sími 3749.
KJARNABRAUÐIN
Hafið þið reynt hið holla og
ljúffenga kjarnabrauð frá
Brauðgerð Kaupfél. Reykjavík-
ur?
Tilkynningar
Gerið svo vel að hringja upp
2266 eða 4262, þegar ykkur
vantar nýjan fisk.
Tveim stólum,, sem fengnir
hafa verið að láni á Mímisveg
8 í fyrra, óskast skilað til
sjúklings á herbergi nr. 1,
Landspítalanum niðri.
„Verkstæðið Brýnsla*
Hverfisgötu 4
(hús Garðars Gíslasonar)
Brýnir öll eggjárn.
Sími 1987.
Munið síma Herðubreiðar
4565, Fríkirkjuvegi 7. Þar
fæst allt í matinn.
RAUÐA HUSH).
með að fá að vita, hvað h a n n hefði sagt við
h a n a.
— Þér hittuð þá alls ekki mr Mark?
— Nei, herra minn. Hann hlýtur að hafa verið
kominn inn og upp til sín. Líka getur vel átt sér
stað, að hann hafi komið inn um aðaldyrnar í því
ég fór út um bakdyrnar.
— Það er rétt. Jæja, ég held að það sé þá ekki
fleira, sem ég þarf að fá að vita. Þakka yður fyr-
ir. Þá held ég sé bezt að ég tali við hitt vinnufólkið.
— Elsie heyrði húsbóndann og mr Robert talast
við, sagði Audrey áköf. Hann sagði — ég meina
mr Mark ...
— Svo já, en ég held það sé vissara að Elsie
segi mér sjálf frá því. Hver er annars þessi Elsie?
— Ein af vinnukonunum. Á ég að láta hana
koma herra minn?
— Það væri vænt ef þér gerðuð það.
Það kom sér vel fyrir Elsie að fá þessa orð-
sendingu. Hún kom eins og andmæli gegn nokkrum
athugasemdum frá mrs Stevens út af framferði
Elsie fyr um daginn, og þær athugasemdir áttu
ekki betra skilið að hennar dómi en að þeim væri
lækilega svarað. I augum mrs Stevens var glæpur
sá, sem framinn hafði verið í vinnuherberginu svo
sem ekkert að reikna á móti tvöfaldri yfirsjón, sem
Elsie hafði gert sig seka um. Því að Elsie sá það
of seint, að það hefði farið betur, að hún hefði
þagað aíveg um návist sína í forsalnum um nón-
bilið þennan dag. Henni gekk illa að dylja sann-
leikann og mrs Stevens var seig að hafa upp á hon-
um. Elsie vissi fullvel, að það var ekki í hennar
verkahring að labba ofan af lofti og niður í for-
salinn, og ekki bætti það úr, þó hún reyndi að af-
saka sig með því, að hún hefði af hendingu komið
út úr herbergi miss Norris, sem var rétt við upp-
gönguna, og haldið, að það gerði ekkert þótt hún
gengi niður, þegar enginn var í forsalnum. En hvað
var hún að sýsla - inni hjá miss Norris um þetta
leyti dags? Skila blaði? sem miss Norris hafði
kannske lánað henni? No, ekki kannske beinlínis
lánað. Nú þykir mér týra, Elsie! Og þetta á heið-
virðu heimili! Árangurslaust reyndi Elsie að af-
saka sig með því, að á kápunni hefði verið aug-
lýsing um sögu eftir uppáhaldshöfund hennar,
með mynd af söguhetjunni, rétt í því hún var að
ramba ofan fyrir gínandi hengiflugið.
Það skalt þú sanna, að þannig fer líka fyrir þér
stúlka mín, ef þú gætir ekki vel að, sagði mrs
Stevens og kvað þétt að orðunum. En vitanlega
þurfti hún ekki að játa allar þessar yfirsjónir fyrir
Birch fulltrúa. Hann lét sig engu skipta annað en
það eitt, að hún hafði gengið gegnum forsalinn og
heyrt mannamál í vinnuherberginu.
— Og þér námuð staðar til að hlera?
— Langt frá því, sagði Elsie í hátíðlegum róm,
hún fann til þess, að hún var sárlega misskilin af
öllum. Ég gekk bara gegnum salinn, rétt eins og
þér mynduð hafa gert, og þar sem ég hélt ekki,
að þeir væru að tala um nein leyndarmál, þá var
ég ekki að stinga bómull í eyrun. En ég hefði
sjálfsagt átt að gera það. Og hún kjökraði við.
— Svona, svona, sagði fulltrúinn, sefandi. Ég
meinti ekki ...
— Allir eru svo vondir við mig, sagði Elsie
kjökrandi. Og þarna liggur mannauminginn dauður.
Hefði það verið ég, þá hefðu þær séð eftir því að
hafa rekizt eins í mér og þær gerðu í dag. Það er
ég viss um.
— Hvaða vitleysa. Ég er viss um að við munum
öll verða montin yfir yðui'. Það skal ekki undra
mig neitt þótt það kæmi í ljós, að framburður yðar