Nýja dagblaðið - 01.12.1933, Blaðsíða 2

Nýja dagblaðið - 01.12.1933, Blaðsíða 2
2 N Ý J A DAG-BLABIB Búnaðarbanki Islands, Landsbankí íslands og Utveásbankí Islands verða opnir aðeins frá kl. 10—12 í dag. APOZiIiO Pyrsti dansleikur klúbbains á vetrinum í kvöld (fullveldisdaginn) í Iðnó. Hefst kl. 9VS. Hljómsveit Aage Lorange. Aðgöngu- miðar í Iðnó í dag kl. 4—9 e. h. Sími3191. Stjórnin. Atviima. Maður eða stúlka, sem geta lagt fram 1—2000 krónur, óskast sem fólagi til að setja á stofn arðvænlegt fyrir- tæki. Verzlunarkunnátta ekki nauðsynleg. Tilboð merkt: „Pólagiw sendist afgr. blaðsins fyrir 4. þ.m Það er ekki sama hvað menn hafa í matinn 1. desember Hrmgið i Hjötverzl. Herðubreíð Príkirkjuveg 7 — Sími 4565. Þar fæst allt i matinn. Frá Alþingi í gær. Jón porláksson segir, að afgreiðsla kosningalagafrum- varpsins í neðri úeild sén „J> i n g s v i k“ og að sér þyki leiðinlegt, að fiokksmenn sinir standi ekki við gefin loforð. — Dómsmálaráðherra og Pétur Magnússon segj- ast engin loforð hafa svikið. Q5ófmeuntir - xþróttir - íietir Fundir hófust í gær kl. 1 í báðum deildum. í efri deild voru 7 mál á dagskrá og 13 í neðri deild. Voru einnig síð- degisfundir í báðum deildum og stóðu til kl. að ganga 8. 1 neðri deild var m. a. af- greitt til efri deildar frv.‘ um dráttarbraut í Reykjavík. Var samþykkt brtt. Eysteins Jóns- sonar, að aukin ríkisábyrgð skuli bundin því skilyrði, að Slippfélagið hafi ekki einkarétt á aðgerð skipa á dráttarbraut- inni, heldur sé eigendum skip- I anna frjálst að ráða hverjir ■ þessa vinnu annist. Afgreidd var og til efri deild- ar tillagan um kaup á húsi og lóð templara. í efri deild var frv. um þingsköp Alþingis afgreitt sem lög. Hafði það verið endursent frá neðri deild, með þeirri breytingu, að þingmenn skuli framvegis tala úr ræðustóli, en ekki frá sætum sínum eins og hingað til hefir verið. Sam- þykkti efri deild nú þessa breytingu, og munu því á næsta ári verða settir upp ræðustólar í þingdeildum. Oft áður hefir verið deilt um þetta fyrirkomulag í þinginu. En aðalfundarefnið í gær var 2. umræða kosningalag- anna. Tók hún mestan hluta fundartímans og hófst at- kvæðagreiðsla um frv. og breytingartillögur við það, laust eftir kl. 7 í gærkveldi og stóð lengi, því að brtt. voru margar. Stjórnarskrámefnd hafði klofnað um frv. Að nefndará- litinu og brtt. nefndarinnar stóðu þeir Björn Kristjánsson, Ingvár Pálmason, Jón Bald- vinsson og Jón Þorláksson, og hafði J. Þ. framsögu fyrir hönd nefndarinnar. — Pétur Magnússon vildi ekkert breyta frv. frá því sem varð í nd., og var hann einn í minnahluta. Aðaldeilurnar stóðu um það í gær, hvort heimila skuli flokksstjómum að bera fram landlista með öðrum en þeim, sem í kjöri eru í kjördæmum og raða mönnum á þann lista. En það fyrirkomulag var fellt við 3. umr. í neðri deild. Sagði Jón Þorláksson, að út frá því hefði verið gengið í samkomulaginu milli flokkanna um afgreiðslu stjómarskrár- frv. í fyrra, að þetta fyrir- komulag yrði heimilað og ef gengið yrði frá frv. eins og það kæmi frá neðri deild þá væru það „þ i n g s v i k“, og þætti sér leiðinlegt, að sumir flokksmenn sínir vildu ekki standa við gefin loforð í þessu máli, enda hefði þetta fyrirkomulag verið tekið upp í stjórnarfrv., sem borið var fram af Magn- úsi Guðmundssyni. Þeir M. G. og Pétur Magn- ússon mæltu í móti því að frv. yrði breytt og vildu ekki kann- ast við að hafa framið „þing- svik“. Sama sagði Jón í Stóra- dal. Ingvar Pálmason og Björn Kristjánsson báru fram brtt. um tvo kjördaga í sveitum. Það var fellt eins og í neðri deild. Jón Baldvinsson flutti brtt. um, að kjördagur væri síðasti sunnudagur í júní, en ekki fyrsti sunnudagur í júlí. Það var samþykkt. Tillögur nefndarinnar voru ílestar samþykktar, þ. á m. landlistaákvæðið. Hljóðar það á þessa leið: „Landlistar geta verið með tvennu móti, sem hér segir: a. Landlisti, þar sem nöfnum er ekki skipað í röð fyrirfram. Á honum skulu eiga sæti allir frambjóðendur flokks í kjör- dæmum, þó eigi fleiri fram- bjóðendur úr neinu kjördæmi en þar á að kjósa þingmenn. Nú eru fleiri frambjóðendur af hálfu flokks í kjördæmi en þar á að kjósa þingmenn, og sker þá flokksstjómin, sbr. 28. gr., úr því, hver eða hverjir þeirra skuli teknir á slíkan landlista. Á slíkan landlista skulu nöfn frambjóðendanna sett eftir stafrófsröð, en röð- ina á listanum að kosningu lokinni ákveður landskjör- stjórn samkv. ákvæðum 131. gr. b. Landlisti, þar sem nöfn- um er skipað í röð fyrirfram. Á honum skal að minnsta kosti annaðhvert hinna 10 efstu sæta skipað frambjóð- endum flokksins í kjördæmum utan Reykjavíkur. Á slíkan landslista skulu nöfn fram- bjóðendanna sett í þeirri röð, sem flokksstjómin tiltekur. Ef eigi er annaðhvert hinna 10 efstu sæta að minnsta kosti skipað frambjóðendum flokks- ins í kjördæmunum utan Reykjavíkur, nemur landskjör- stjórn af listanum þau nöfn, er þarf til þess að þessu skil- yrði verði fullnægt.“ Nú er eftir 3. umr. í ed. og a. m. k. ein umr. í nd. Ef á- greiningur verður milli deilda, þarf málið að koma til með- ferðar í sameinuðu þingi. Framh. á 3. síðu. Sögukennslnbœkur Norðurlanda endurskoðaðar. í fyrra var það samþykkt á fulltrúafundi Norræna félags- ins, að félagið gengist fyriv því, að sögukennslubækur þær, sem notaðar eru á Norður- löndum yrðu endurskoðaðar og leiðréttar, þar eð full þörf nyndi vera á því. Voru skipaðar nefndir í öll- um löndunum til þess að end- urskoða bækurnar, í nefnd þeirri er hér starfaði, áttu sæti þeir Árni Pálsson prófessor, Barði Guðmundsson mennta- skólakennari og Sveinbj. Sig- urjónsson magister. Nefndin hefir nú lokið störf- um, og skýrsla um störf nefnd- arinnar er send til hinna nefnd- anna og til þeirrar nefndar, sem fullnaðarákvörðun tekur um hverjar athugasemdir verði teknar til greina, og breytingar í bókunum verða síðan gerðar eftir þeim tillög- um. Kom það glöggt í ljós við þessa endurskoðun, að ekki var vanþörf á að þetta væri gert, því villurnar um sögu okkar íslendinga voru mýmargar, sér- staklega í dönsku og í norsku kennslubókunum. 1 einni af dönsku kennslubókunum er þetta t. d. sérstaklega áberandi. Þar telur höf. upp marga danska vísindamenn og meðal þeirra Níels P'insen, og þá tek- ur hann það sérstaklega fram, að hann hafi verið danskur og segir „den danske Læge Niels Finsen“. Eins talar hann, eins Síðan Nýja dagblaðið fyrst j skýrði frá starfsemi mötuneyt- is safnaðanna og vakti at- hygli á nokkrum atriðum í því sambandi, er því þótti athuga- verð, hefir ekki verið meira talað um neitt annað mál hér í bænum. Ekki vantar þó, að mörgum hefði þótt bezt að alveg væri um málið þagað. Þegar Hermann Jónasson bar fram till. um það á síðasta bæjarstjórnarfundi, að fengnir væri 2 menn til þess að athuga reikninga mötuneytisins, fékk Pétur Halldórsson það samþ. að vísa þessu til bæjarráðs, og þar bíður það enn. Engan undrar þótt íhaldsblöðin kjósi að þegja meðan unnt er. En hitt er meira, að Alþýðublað- ið hefir farið alveg hjá sér í þessu máli þangað til loks í gær, að það vaknaði, og var þá eins og vænta mátti ekki sem bezt með á nótunum. í gær skýrir Alþýðublaðið frá því, að Alþýðuflokksmenn- og raunar flestir eða allir hinir höfundarnir, um Bertel Thor- valdsen sem danskan listamann og varast að minnast á ísl. uppruna hans.Viðvíkjandi hinni réttarfarslegu aðstöðu íslands til Danmerkur er einnig víða sagt mjög villandi frá. Norsku kennslubækurnar eru engu betri. Á einum stað segir að Alþingi hafi sam- þykkt, að „eyjan“ skyldi verða norskt skattland. íslendinga- sögumar er sagt að hafi verið skrifaðar í Noregi af fs- lendingum, sem hafi skrifað þær fyrir norska konunga. Einn höf. er jafnvel svo ósvíf- inn að hann segir að um 50 gamal-norskar sögur hafi fundizt á íslandi, og á liann þar sjálfsagt við íslendinga- sögurnar. Grænland og Amer- íku er sagt, að Norðmenn hafi fundið. Snorri Sturluson er tal- inn Norðmaður. Segja fjöl- margir norskir menntamenn,að þeim hafi verið kennt þetta og standa stöðugir í þeirri mein- ingu. Af þessum fáu dæmum, sem hér eru nefnd, er það fyllilega ljóst, að þörf er endurskoðunar á slíkum kennslubókum. Von- andi verða flestar eða allar þessar villur nú leiðréttar. Mun því endurskoðun þessi verða að miklu gagni og í framtíðinni mun hún koma í veg fyrir mik- inn misskilning. Tilætlunin er hjá Norræna félaginu að gangast síðar fyrir samskonar endurskoðun á bók- menntasögum og landafræðis- kennslubókum Norðurlandanna, og mun þar einnig margt vera athugavert. irnir Ingimar Jónsson, Arn- grímur Kristjánsson og Sigur- jón Á. Ólafsson hafi sagt sig úr mötuneytisnefndinni. I því sama blaði er yfirlýsing frá þeim þremenningunum, að tveir þeirra hafi ekki verið á fundi, er ferðastyrkur Gísla Sigurbjörnssonar var sam- þykktur og einn þeirra hafi ekki greitt atkvæði. Sigurjón Á. ólafsson ritar um, að sjálfsagt sé að hefja nákvæma rannsókn á rekstri mötuneytisins. Segir hann þar meðal annars: Ýmsar kvik- sögur ganga um, bæinn við- víkjandi starfi mötuneytisins. Um slíkar sögur verður að fara sem vill. Okkur Jafnað- armönnum, og svo mun og öðr- um nefndarmönnum, er ókunn- ugt um sannleiksgildi þeirra". Alþýðublaðið hefir á fremstu síðu mynd af „foringjanum og frímerkjasalanum" Gísla Sigurbjörnssyni og lætur þess Framh. á 4. síðu. „Saklaus er ég — 66 Alþýðullokksmennirnir í stjórn mötuneytisins bafa létið samþykkja mótmælalaust styrk at lé mötuneytisins til Gísla Sigurbjörnssonar „útsendara nazista hér á landi", ganga síðan út og heimta rannsókn ó sínu eigin athæfi.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.