Nýja dagblaðið - 05.12.1933, Page 1
NyJA DAGBIAÐIÐ
1. ár. Reykjayík, þriðjudaginn 5. desember 1934. 33. biað.
Ríkisrétturinn þýzki í Leipzig
Ríkisréttarbyggingin.
Manntjónið nyrðra
á laugardaginn.
Tveir bátar tarast meö allri áhötn.
Bátur lendir í hrakningum. Einum
manni skolar fyrir borð.
I_DAG
Sólaruppkoma kl. 9,58.
Sólarlag kl. 14,37.
Háflóð árdegis kl. 7,15.
Háflóð siðdegis kl. 7,35.
Ljósatími hjóla og bifreiða kl. 3,20
e. m. til 9,10 árd.
Veðurspá: Stinningskaldi á suð-
austan eða sunnan. Rigning
öðru hvoru.
Söítl, skriistofar o. fL:
Landsbókasaínið opið kl. 1-7 og 8-10
þjóðskjalasafnið ....... opið 1-4
þjóðminjasafnið .......... kl. 1-3
Náttúrugripasafnið ...... opið 2-3
Alþýðubókasafnið .... opið 10-10
Listasafn Einars Jónssonar lokað.
Landsbankinn ......... opinn 10-3
Búnaðarbankinn ....... opinn 10-3
Utvegsbankinn ........ opinn 10-1
Útibú Landsbankans á Klappar-
stíg................... opið 2-7
Sparisjóður Rvíkur og nágrennis
opinn kl. 10-12 og 5-7%
Pósthúsið: Bréfapóstst. .. opin 10-6
Bögglapóststofan .... opin 10-5
Landsíminn ............. opinn 8-9
Búnaðarfélagið opið 10-12 og 1-4
Fiskifél.... Skrifst.t. 10-12 og 1-5
Samband ísl. samvinnufélaga
opið kl. 9-12 og 1-6
Sölusamband isl. fiskframleiðenda
10-12 og 1-6
Skipaútg. ríkisins opin 9-12 og 1-6
Eimskipafél. íslands .... opið 9-6
Skrifst. bæjarins opnar 9-12 og 1-4
Skrifst. lögreglustj. opin 10-12 og 1-4
Skrifst. lögmanns opin 10-12 og 1-4
Skrifst. tollstjóra opin 10-12 og 1-4
Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6
Stjórnarráðsskrifstofumar
opnar 10-12 og 1-4
Tryggingarstofnanir ríkisins
opnar kl. 10-12 og 1-5.
Lögregluvarðstofan opin allan sól-
arhringinn.
Heimsóknartími sjúkrahúsa:
Landsspítaiinn ............ kl. 3-4
Landakotsspítalinn ............ 3-5
Laugarnesspítali ...... kl. 12%-2
Viíilstaðahælið .. 12y2-2 og 3y2-4y2
Kleppur .................... kl. 1-5
Næturvörður í Reykjavíkurapóteki
og lyfjabúðinni Iðunn.
Næturlæknir: Halldór Stefánsson,
Lækjargötu 4. Sími 2234.
Skemmtanir og samkomur:
Nýja Bíó: Grænland kallar, kl. 9.
Gamla Bíó: Iíonungur ljónanna,
kl. 9.
Samgöngur og póstierBir:
Lyra frá Færeyjum og Bergen í
kvöld .
Póstbíll til Grindavíkur.
Dagskró útvarpsins.
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há-
degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir.
Endurtekning frétta o. fl. þing-
fréttir. 19,00 Tónleikar. 19,10 Veð-
urfergnir. 19,20 Tilkynningar. Tón-
leikar. 19,35 Erindi Stórstúkunn-
ar: Unglingastarfsemi reglunnar.
(Magnús V. .Tóhannesson). 20,00
Klukkuslúttur Fréttir. 20,30 Er-
indi: Húsagerð, I. (Sigurður Guð-
mundsson, byggingameistari).
21,00 Tónleikar: Píanósóló. (Emil
Thoroddsen). Grammófónsöngur:
Lögu eftir Boieldieu. Danslög.
Undanfarna mánuði hefir
ekki verið rætt um annað
meira um allan heiminn en
réttarhöldin miklu út af þing-
hallarbrennunni í Berlín í vor.
Ríkisrétturinn þýzki hefir haft
með höndum rannsókn þessa
stórmáls og hafa réttarhöldin
farið fram bæði í Leipzig, þar
sem rétturinn hefir aðsetur
sitt, o g í Berlín, þar sem
Eins og sagt var frá í Nýja
dagblaðinu á sunudaginn fóru
þeir Steindór Sigurðsson og
félagar hans á sunnudaginn
var áleiðis suður á öræfi og
gistu á sunnudagsnótt í öxna-
dal, sem ■ liggur alllangt suður
með Skjálfandafljóti. Fengu
þeir rok á móti sér, en þó var
bjart veður.
Á sunnudag gengu þeir upp
á öldu fyrir suðaustan dalinn
og sáu þaðan yfir öræfin frá
Trölladyngju austur að Þrí-
hyrning og þaðan allt austur til
Dyngjufjalla. En beggja vegna
við Trölladyngju sáu þeir
Vatnajökul. Héldu þeir síðan
austur undir Þríhyrning og
höfðu þaðan ágætt útsýni suð-
ur í Vonarskarð og til jökl-
anna, en sáu engin merki elds
á þessum slóðum.
Sneru þeir þá við og héldu
norður yfir Ódáðahraun, í
sæluhús á Sandmúladal, sem
er norðarlega í hrauninu. Þar
gistu þeir. Komu þeir félagar
um miðjan dag í Víðiker og
héldu síðan áleiðis til Akureyr-
ar seinni partinn í gær. Fengu
þeir gott veður alla leiðina.
Þess má geta, að alls einu
sinni á leiðinni sáu þeir elds-
bjarma, en þá voru þeir stadd-
ir niðri í dalverpi og gátu ekki
áttað sig á stefnunni.
brennan varð. Nú er réttar-
höldum þessum að verða lokið,
og verður málið þá lagt í dóm.
Nokkur tími mun þó enn líða,
þangað til svo langt er komið,
en þá verður þess skammt að
bíða, að dómurinn verði kveð-
inn upp í því máli, sem einna
rnesta athygli hefir vakið, síð-
in Dreyfusmálið mikla var á
döfinni í Frakklandi.
Á sunnudaginn sást til elds-
ins úr Bárðardal, einkum frá
Mýri, og á mánudagskvöld sáu
menn frá Akureyri er gengu
upp á Súlur, eldsbjarma í suð-
austri og önnur merki jarð-
elds, en eigi gátu þeir stað-
greint eldinn.
Eftir för Steindórs Sigurðs-
sonar þykir víst, að eldurinn
er ekki í grennd við Trölla-
dyngju, og hvergi á því svæði,
sem menn ætluðu fyrst. Fróð-
ir menn ætla nú að eldurinn
muni vera í Vatnajökli, á lík-
um slóðum og eldurinn haustið
1922. Sá eldur sást bæði fyrir
norðan og sunnan land og var
hann allstórkostlegur, þótt
ekki kæmi öskufall í byggð.
Svo björt voru leiftrin af eldi
þessum, að gerði bjart sem
um hádag er rökkva tók, en
dimdi yfir á milli. Stóðu gos
þessi rúma viku, svo vart yrði.
Annars er talið að fá ár líði
svo, að ekki verði einhver elds-
umbrot í Vatnajökli, þótt
þeirra verði að jafnaði lítið
vart. Er ófróðlegt, að jökul-
flæmi þetta skuli vera því sem
næst ókannað. Ennþá hefir t.
d. enginn maður séð gosstöðv-
arnar frá 1922. En það gos var
að vísu hið stórfenglegasta.
í blaðinu á sunnudaginn var
getið um ofviðri það, sem
gerði nyrðra á Skagafirði og
Eyjafirði eftir hádegi á laug-
ardag. Þann dag reru bátar í
blíðuveðri bæði af Siglufirði
og frá Bæjarklettum við Hofs-
ós. Er rokið skall á, leituðu
bátarnir lands, en 2 bátar frá
| Bæjarklettum náðu ekki landi
og einn bát vantaði af Siglu-
firði. Var þá farið að leita
I bátanna. Fannst Siglufjarðar-
báturinn morandi í kafi aust-
ur í Eyjafjarðarál og voru
mennirnir allir týndir.
Bátur frá Siglufirði fann
annan bátinn frá Bæjarklett-
um á reki með bilaða vél. Hafði
hann þá misst einn mann. Hinn
báturinn er nú talinn af.
Manntjónið á
Siglufirði. Ettir
skey ti trá Siglu-
firði í gær.
Vélbáturinn Haraldur af
Siglufirði kom til Siglufjarðar
um kl. 19,30 í gærkveldi með
trillubátinn SI41, sem leitað
var að. Trillubáturinn hafði
fundist hálfsokkinn í Eyja-
fjarðarál — aðeins framstefni
stóð upp úr sjó, en báturinn
var óskemmdur. Ahnar leitar-
bátur, Gunnar, fann vélar-
< Eldgos á Havaii.
London kl. 19,50 3/12 F.Ú.
Stærsta eldfjalli heimsins,
Mauna Loa á Hawaiia eyju í
Kyrrahafinu, byrjaði að gjósa
í nótt, og er eldgosið sagt hið
versta, sem komið hefir síðan
■1903. Miklir jarðskjálftar voru
þar í gær. Fólk, sem býr í ná-
grenni við fjallið flýr nú heim-
ili sín.
Hér er eitthvað blandið mál-
um. Stærsti eldgígur í heimi
er ekki Mauna Loa á Hawaji,
heldur Haleakala á eynni Maui,
skammt frá Hawaii.
Vetrarkuldar
í Míð-Evrópu.
Berlín kl. 11,45 4/12 FÚ.
Kuldar miklir ganga nú um
alla Miðevrópu. I Þýzkalandi
hefir kuldinn orðið mestur í
Slesíu, og var hann þar í nótt
frá 15 til 21 stig á Celcius á
jafnsléttu. I Suður-Englandi
liafa einnig verið miklir kuld-
ar, og hríðarveður, og er snjór-
inn þar sumstaðar orðinn 1
skýli og olíufat af trillubátn-
um frá Bæjarklettum í Skaga-
firði. Margir skipstjórar af
Siglufirði tóku þátt í leitinni.
Þessir menn fórust af sigl-
firska bátnum :
Þorleifur Þorleifsson formað-
ur, 63 ára, lætur eftir sig konu
og uppkomin böm, Þorvaldur
sonur Þorleifs 30 ára ókvænt-
ur, og Hartmann Jónasson 18
ára.
Á síðustu 4 vikum hafa far-
izt frá Siglufirði 5 menn. Fán-
ar voru dregnir í hálfa stöng
um allan bæinn í dag.
Manntjónið
á Skagafirði.
Á skagfirska bátnum voru
þessir menn:
Jónas Jónsson formaður frá
Sæbergi á Bæjarklettum, 39
ára, kvæntur og lætur sig 5
börn. Jóhannes Jóhannsson
yngri frá Vatnsenda á Bæjar-
klettum, 28 ára ókvæntur. Jó-
hann Eggertsson 50 ára kvænt-
ur og átti uppkomin börn, og
sonur hans Eggert Jóhanns-
son 17 ára, báðir frá Ytra-ósi
á Bæjarklettum.
Maðurinn, sem út tók, hét
Jóhann Jónsson bóndi að Glæsi-
bæ í Fellshreppi.
metri á dýpt, og hamlar mjög
umferð.
1 Rúmeníu hafa gengið af-
takastormar þessa dagana, og
hafa nokkur skip farizt á Dóná.
Frá Suður-Ameríku berast
einnig fregnir um storma, og
fórst þar brasilianskt skip við
strönd Uruguay, með allri
áhöfn.
Þjóðaratkvæða-
greiðslan um
bannlögin.
. London kl. 17,00 4/12 FÚ.
Bannmenn í Bandaríkjunum
hafa nú gert síðustu tilraun
sína til þess að koma í veg
fyrir það að bannlögin verði
afnumin. Þeir hafa beðið um
úrskurð dómstóla um það, að
ekki skuli gefa út yfirlýsingu
um afnám bannlaganna. Stjórn-
in hefir svarað því, að afnám
bannlaganna leiði af sjálfu sér
eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna,
og þurfi því ekki að gefa út
neina sérstaka yfirlýsingu um
það, að þau séu úr gildi felld.
Eldgosið nyrðra.
Eldsstöðvarnar eru ekki í Odáða-
hrauni. Þær munu vera um mið-
bik Yatnajökuls vestanvert.