Nýja dagblaðið - 05.12.1933, Side 3
N Ý J A
DAGBLASI9
3
NYJA DAGBLAÐIÐ
Útgefandi: „BlaOaútgáfan h/f'
Ritstjóri:
Dr. phil. JJorkell Jóhannesson.
Ritstjórnarsk rifstofur:
Laugav. 10. Símar: 4373 og 2353.
Afgr. og auglýsingaskrifstofa:
Austurstrœti 12. Sími 2323.
Framkv.stj óri:
Vigfús Guömundsson.
Áskriftagj. kr. 2,00 á mánuöi.
í lausasölu 10 aura eint.
Prentsmiðjan Acta.
Sundnámið
í barnaslcólunum.
Hún er gersemi, litla sund-
laugin í nýja barnaskólanum.
Öll börn úr eldri deildum
beggja skólanna fá þar þriggja
vikna tilsögn í sundi. Sá, sem
þetta ritar var viðstaddur
lokakennslustundir tveggja
drengjahópa. Var það einskon-
ar próf. Fyrri hópurinn var
ósyndur fyrir þrem vikum, en
nú syntu allir drengirnir
bringusund og sumir farnir að
bera við baksund, og allir
þorðu þeir að stinga sér í
vatnið. Síðari hópurinn mun
hafa verið syndur við upphaf
námsskeiðsins, enda syntu
drengirnir prýðilega og allir
mjög vel bringusund, misjafn-
ari voru þeir á baksundi, en
þó allir vel færir. Björgunar-
sund höfðu sumir þeirra til-
einkað sér til gagns og allir
höfðu þeii1 viðburði um það.
Flestir syntu þessir drengir í
kafi yfir laugina. Einnig
stungu þeir sér fallega til
sunds. Er áhugi barnanna
yfirleitt mikill við sundnámið.
Alls hreinlætis er gætt. Eng-
inn fer á útiskóm í dklefann
þar sem menn afklæðast. Eftir
því lítur hinn nafnkunni sund-
maður Jón Ingi Guðmundsson,
en hann er baðvörður skólans,
og sér um að allir fari undir
steypibað og þvoi sig vel áður
gengið er til laugarinnar. Að-
komumenn fá sérstaklega
gerða tréklossa til þess að
ganga á, fái þeir leyfi til að
horfa á sundið. Sundkennarar
eru tveir, þeir Vignir Andrés-
son og Júlíus Magnússon.
Er þessi litla sundlaug, gagn-
semi hennar og vinsældir nokk-
ur bending um það, hver nyt-
semi verður að sundhölinni,
þegar hún er fullbúin. Og þá
mun harmað, hver dráttur hef-
ir á því orðið, að við hana
yrði lokið. En sá dráttur má
heldur eigi verða að óþörfu,
úr þessu. En sú er spá mín,
að ekki verði að fullu séð fyr-
ir sundþörf Reykvíkinga í
volgu vatni, fyr en rúmgóð
laug hefir verið gerð vestan
Laufásvegar og opin laug með
endilöngum suðurvegg sund-
hallarinnar.
Er það sæmandi fyrir
sjálfan höfuðstaðinn úr þessu,
að sjá ekki fyrir sæmilegri að-
stöðu til sundnáms fyrir bæjar-
búa eins og á stendur, þegar
önnur byggðarlög koma upp
sundlaugum og hita þær upp
með kolum, eins og Bolungaiv
vík hefir gjört og Vestmanna-
eyjar eru að gjöra.
Innfl Titni nijsh öl*tin.
Allsherjarnefnd efri deildar
hefir sent frumvarp um afnám
innflutningshaftanna til um-
sagnar bankastjóra Lands-
bankans, fulltrúaráðs Útvegs-
bankans, Sambandsins, Búnað-
arfélagsins, Verzlunarráðsins,
Fiskifélagsins og iðnráðsins.
Bankastjórar Landsbankans og
Sambandið leggja hiklaust til,
að innflutningshöftin verði
ekki afnumin. Búnaðarfélagið
vill að ríkisstjórnin hafi heim-
ild til að hefta innflutning
vara, sem framleiddar eru inn-
anlands af landbúnaðinum.
Mun það eiga að skiljast, að
félagið vilji verja sitt hús fyr-
ir eldinum, en láti nágrannana
um, hvort þeirra hús brenna.
Verzlunarráðið, fiskifélagið
og iðnráðið leggja til áð höft-
ín yerði afnumin.
Enginn skyldi undrast um
Verzlunarráðið. íslenzka verzl-
unarstéttin hefir þá einu
„stefnu“ að verzla mikið og
verzla „frjálst". Fiskifélagið
hefir fengið trúarbrögð að láni
hjá verzlunarstéttinni, og skal
þess hér að engu getið.
En um iðnráðið mætti segja:
Og þú líka barnið Brútus!
Hafa iðnaðarmenn annara
um það hugsað, livort þeir eru
því vaxnir, að inn á íslenzkan
markað berist steypiflóð af er-
lendum iðnvörum, sem seldar
eru undir kostnaðarverði, bara
til að losna við þær?
Hvað segir Álafoss um það,
að það væri nú fluttir inn ódýr-
ir ullardúkar og ódýr fatnaður
fyrir — segjum — 2 milj.
króna, „Framtíðin" um að flutt
sé inn „frjálst" sem mest af
ullargami og prjónavöru, Sjó-
klæðagerðin um innflutning
sjóklæða, húsgagnasmiðirnir
um innflutning erlendra hús-
gagna, Efnagerðin um kemisk-
an iðnað o. s. frv. ?
Nýja dagblaðið skal annars
ekki tala um þetta frá eigin
brjósti að þessu sinni. Það
leyfir sér bara að birta svo-
lítinn kafla úr grein, sem
Helgi Hermann Eiríksson rit-
aði fyrir Islenzku vikuna 1933,
og er sá greinarkafli um „bú-
skaparlagið“ áður en innflutn-
ingshöftin voru sett.
En til þess að gæta allrar
sanngirni, eru menn beðnir að
hafa það þrennt í huga, þeg-
ar þeir lesa þennan eftirfar-
andi greinarkafla:
1. að innflutningshöftin hafa
náð til þeirra vörutegunda, sem
feitletraðar eru í greinarkafl-
anum.
2. að aðalrök iðnráðsins fyr-
ir því, að það mælir með að
innflutningshöftin séu numin
úr gildi, eru þau, að lögin, sem
þau eru byggð á, séu um
„bann við innflutningi á
óþarfavarningi“, en þeir viti
ekki til, að iðnaðarmenn fram-
leiði óþarfan varning!
3. að bréfið frá iðnráðinu er f
undirritað af formanni iðn-
ráðsins Helga Hermanni Ei-
ríkssyni og vafalaust samið af
honum.
En hér kemur greinarkafl-
inn:
„Auk þess var þetta ár‘ flutt
inn 15,412 kg. af tólg, fyrir
15,325 kr.; 409,637 kg. af
mjólk og rjóma, fyrir 369,984
kr.; 8,510 kg. af smjöri, fyrir
29,942 kr.; 98,630 kg. af osti
fyrir 119,236 kr.; 97,110 kg.
af eggjum fyrir 206,834 kr.;
43,374 kg. af fisksnúðum, fyr-
ir 40,553 kr.; 1137 kg. af laxi,
fyrir 2,355 kr. niðursoðið kjöt
og kjötmeti og lifrarkæfa,
38,869 kg., fyrir 89,632 kr.;
samtals kr. 873,861,00.
Ennfremur var þetta sama
ár flutt inn 111,757 kg. af
skipsbrauði og skonroggi, fyr-
ir 110,298 kr.; 13,476 kg. af
kringlum og tvíbökum, fyrir
17,064 kr.; 262,157 kg. af kexi
og kökum, fyrir 339,860 kr.;
2,298,145 kg. af kartöflum, fyr-
ir 355,564 kr.; 12,042 af gul-
rótum og næpum, fyrir 3,566
kr. og 29,723 lítrar af öli og
gosdrykkjum, fyrir 27,712 kr.;
samtals kr. 854,064,00.
Alls hafa þá verið flutt inn
matvæli, sem framleiða má og
framleidd eru í landinu, þetta
eina ár 1930, nálægt því 3703
tonn, fyrir 1,885,137 kr. eða
tæpar tvær miljónir króna.
Ef við lítum svo á iðnaðar-
vörur, þá var flutt inn 8,075
kg. af ullarbandi, fyrir 89,398
kr.; 48,057 kg. af ullarfatnaði,
íyrir 967,751 kr.; inniskór fyr-
ir rúml. 100,000 kr.; penslar,
burstar og sópar fyrir 92,500
kr., vagnáburður fyrir 10,500
kr.; kerti, stangasápa og blaut-
sápa íyrir 220,000 kr.; skó-
sverta og leðuráburður fyrir
20,000 kr.; húsalistar og til-
höggin hús fyrir um 200,000
kr.; legsteinar fyrir nær 18,000
kr.; bátar, prammar og mótor-
bátar, fyrir 460,000 kr.; sam-
tals 2,321,600 kr.
Tvær miljónir króna! Það
ætti að vera nægileg velta fyr-
ir alla þá, sem nú teljast að
vera atvinnulausir hér á landi.
Og þó er margt ótalið af inn-
flutning’i, sem mætti spara sér.
H. H. Eiríksson“.
En setjum nú svo, að Al-
þingi tæki það mark á bréfi
iðnráðsins, að það felldi inn-
flutningshöftin úr gildi þess
vegna. Gæti þá ekki svo farið
á eftir, að formanni iðnráðsins,
Helga Hermann Eiríkssyni
dytti þá óvart í hug sama
spurningin og nafna hans í
íslenzku vikunni?:
„Er nú hægt að finna
nokkra afsökun fyrir þetta
búskaparlag ?“
Og svo til viðbótar:
Hversvegna vorum við að
sækjast eftir óafsakanlegu bú-
skaparlagi ? A.
Auglýsingum,
sem koma eiga innan í blaðinu
sé skilað fyrir kl. 6 e. h., en
smáaugl., sem eiga að koma í
„ódýru auglýsingunum“ sé skil-
að fyrir kl. 10 á kvöldin á
afgr. eða í Acta.
Rafveiia og sund-
laug á Eiðum.
Allir Austfirðingar, hvort
sem staddir eru hér í Reykja-
vík eða í átthögum sínum,
munu veita mikla athygli
þál.till., sem 6 þingmenn bera
nú fram í sameinuðu þingi um
reifveitu og sundlaug vegna
Eiðaskóla. Alþýðuskólinn á
Eiðum er eini héraðsskólinn á
landinu, sem ekki hefir að-
stöðu til sundkennslu. Vegna
þessa aðstöðumunar eru þeir
unglingar eystra, sem hafa
hug á alhliða íþróttanámi,
neyddir til þess að sækja
skóla í fjarlæga landsfjórð-
unga, þótt að öðru leyti kjósi
sér nám í sínum eigin skóla.
Af sömu ástæðu hefir
íþróttamenningu á Austur-
landi hnignað síðustu ár í
samanburði við aðra lands-
fjórðunga, sem hafa betri að-
stöðu. En meðan sú aðstaða
var jafnfrumstæð um allt land,
var á Austurlandi öflug
íþróttastarfsemi. Fjölmenn
íþróttamót fyrir hérað og
firði voru iðulega haldin og í
einstökum félögum var starf-
að ósleitilega. Og þeir sem
þessum málum eru kunnugir
hér vita að íþróttamenningu
Reykjavíkur hafa borizt merk
áhrif frá einu þessara félaga á
Flj ótsdalshéraði.
Ég tel vafalaust, að nýtt
tímabil hefst fyrir íþrótta-
menningu Austurlands með
rafhitaðri kennslulaug á Eið-
um. Þessi ástæða er næg til
þess, að verkið verði unnið.
En þó koma hér til ýms
fleiri mikilvæg atríði. Olía og
kol, sem nú eru á Eiðum not-
uð til ljóss' og hita verða allt-
af dýr á þessum stað vegna
mikils flutningskostnaðar.
Og þegar stjórn og þingi
verður gefin skýrsla um það,
hve mikið nemendur og starfs-
menn á Eiðum hafa lagt að sér
síðastl. 15 ár vegna sparnaðar
á kolum og olíu, þá mun ýmsa
furða á því, hve langt hefir
verið komizt í þeim efnum á
ekki meiri meinlætaöld.
Þá er þess að gæta hve verð
á þessum hlutum er reikult.
Síðasta heimsstyrjöld sýndi Is-
lendingum, að -ljós og hita er
betra hjá sjálfum sér að taka
en sinn vopnaða bróður að biðja.
Auk þessa má segja, að nýir
kennslukraftar og ýms ný
menningaráhrif bætist skólan- i
um með væntanlegri rafveitu. j
Að sjálfsögðu verður þessu J
máli vel tekið af þingi og
stjórn, því með þeim skilyrð- |
um tók ríkið við Eiðaskóla og j
eignum hans af sýslufélögum
Múlasýslna, að hann skyldi á
hverjum tíma standa jafn- j
íramlega öðrum héraðsskólum.
Guðgeir Jóhannsson.
Umferðin í bænum
10. Gangandi vegfarendur:
Farið gangstéttarnar þar sem
þær eru til að svo miklu leyti,
sem frekast er unnt. Það léttir
fyrir umferð á akbrautinni,
og skapar meira öryggi ykkur
sjálfum og þeim sem stjóma
farartækjum.
Ef gangstéttir eru ekki við
götuna þá gangið götujaðarinn
til vinstri handar.
11. Vegfarendur.
Gleymið því aldrei, að um-
ferðarreglurnar leggja ábyrgð
á herðar sérhverjum vegfar-
anda, bæði gagnvart sjálfum
þeim og öðrum. Lærið þessar
reglur. Hlýðið lögunum, og
komið þannig í veg fyrir hætt-
ur og slys.
Húsmæður?
Munið að
Svana-sm j örlíki,
Svana-jurtafeiti,
Svana-kaffi,
Svana-kryddvörur,
Svana-lyftiduft,
Svana-edik,
Svana-soya,
og yfirleitt allar Svana-
vörur, sem nú eru orðnar
þjóðkunnar fyrir gæði,;
fást í
Kanpfélagi ReykjaYíkur
Bankastræti.
Auglýsendur!
Ef þið viljið að auglýsingar
ykkar séu lesnar og tekið vel
eftir þeim í Reykjavík og ýms-
um öðrum bæjum og kauptún-
um landsins, þá skuluð þið
helzt auglýsa í Nýja dagblað-
inu.
Þeir, sem kynnu að eiga 10.,
11- eða 12. tölubl. Nýja dag-
blaðsins, og ekki ætla að halda
blaðinu saman, eru vinsamlega
beðnir að láta afgreiðsluna
hafa þessi blöð.
* þ. e. 1930.
Ef þér notið
HARO -SJALFBLEKUNGINN
þá þurfið þér ekki ritvél. Með HARO er hægt að
taka mörg afrit af því sem skrifað er. — Fæst í
Bókaverzlun Sigtúsar Eymundssonar og Bóka-
verzlun E. P. Briem og bókaverzlunum úti um land