Nýja dagblaðið - 05.12.1933, Blaðsíða 4
4
,~i •'
a t j a
SAOBLABIB
AjuálL
ElðsvoðL Eldur kom upp i gœr
í gúmmiviðgerðarv.erkstœði Ingi-
mars Kjartanssonar á Laugaveg
50 og var slökkviliðið kvatt á vett-
vang. Verkstæðið var í kjallara
iiússins, en húsið skemmdist ekki,
j>ví loft var jámvarið. Aftur urðu
nokkrar skemmdir á gúmmi og
vörum er i verkstæðinu voru, en
slökkviliðinu tókst að slökkva
eldinn á skammri stundu.
Merkur rithöfundur látinn.
pýzka skáldið Stephan George
andaðist í gær, 65 ára að aldri.
— F.Ú.
Höskuldur Bjömsson iistmálari
hefir málverkasýningu í Odd-
íellowhúsinu. Eru á sýningunni
um 60 málv.erk. Sýningin verður
opin til 14. J>. m. kl. 10 f. h. til kl.
7 e. m daglega.
Sjötugsaimsli á i dag Nikolina
Snorradóttir, Óðinsgötu '11.
Skipairóttir. Gulifoss kom til
Leith i gær. Goðafoss kom til
Hull í gær. Brúarfoss var á Flat-
ey í gærmorgun. Lagarfoss er á
Akureyri. Dettifoss kom til Vest-
mannaeyja i nótt og hingað i
kvöld. Seifoss er i Reykjavík. Esja
kom hingað á sunnudagsmorgun,
en hafði verið væntanleg á laug-
ardagskveld, eins og frá var sagt
1 seinasta blaði.
Gestamót Ungmennafélaganna
verður haldið hér í Reykjavík n.
k. laugardag. Mót þessi eru hald-
in árlega og eru vanalega mjög
fjölsótt og einhver ánægjulegasta
skemmtun vetrarins.
Erlendum listamönnum hefir
verið bannað að halda skemmt-
anir i Danmörku. Danski þjóð-
bankinn heíir kvartað um það við
dómsmálaráðuneytið þar hvað
eftir annað undanfarið, að mikið
fé væri flutt úr landi af erlendum
listomönnum, sem halda skemmt-
anir í Danmörku. þetta hefir orð-
ið til þess, að banna ýmsum er-
lendum listamönnum að koma
fram í Danmörku, og hófst þetta
bann í fyrradag á því , að bönnuð
var söngskemmtun Mary Ander-
son.
Utanrikisnefnd transka þingsins
hefir samþykkt að senda þjóða-
bandalaginu áskorun um að meira
verði gert til þess að vernda póli-
tísk réttindi og frelsi íbúanna í
Saarhéraðinu. (þýzka útvarpið
bætir því við, að nefndinni hafi
láðst að geta þess, að frelsi Saar-
búa s'é mest hætta búin af frönsku
stjómarnefndinni). — F.Ú.
Þýzkir flóttamenn. Fyrsti fund-
ur alþjóðanefndarinnar til aðstoð-
ar þýzkum flóttamönnum verður
haldinn í Genf í næstu viku.
Fulltrúar frá 12 þjóðum sækja
fundinn, en forseti hans er Banda-
ríkjamaður. — FÚ.
Fulltrúaráð þýzku ríkisjárn-
brautanna heldur nú fund í
Múnchen. það hefir komið í ljós
á fundinum, að tekjur járnbraut-
anna en nokkru minni í ár held-
ur í fyrra, og er það aðallega því
að kenna, að farþegaflutningur
hefir minnkað. Vöruflutningar
hafa aftur á móti aukizt nokkuð.
— F.Ú.
Víðlesin skáldverk. Bráðlega á
uð opna sýningu á pólskum skáld-
verkum í Varsjá. Frægasta bókin
á sýningunni verður .,Ouo Vadis“
eftir Henryk Sienkrewicz. Hún
hefir komið út á 27 málum og
í 564 útgáfum. Næst kemur skáld-
sagan „Bóndinn“ eftir Reymonts,
sem komið kefir út á 21 máli,
í 142 úgáfum. Báðir þessir höf-
undar hafa fengið Nobelsverðlaun.
Bezti meðgöngutíminn. Norsk
kona, dr. med. Kirsten Toverud,
sem í mörg ár hefir verið bama-
læknir, heldur því fram, að
hraustustu börnin fæðist í ágúst-
mánuði. Ástæðuna til þessa, grein-
ir hún þá, að mæðurnar borði þá
meira af ávöxtum, grænmeti og
öðrum hollum fæðutegundum á
þýðingarmesta hluta meðgöngu-
timans, heldur en á öðrum tímum
ársins.
Hressingarskálinn er orðinn vin-
sælt kaffihús, fyrst og fremst fyr-
ir að veitingar eru þar ódýrar, og
góðar, hefir enga drykkjupeninga
og þó góða afgreiðslu, viðkunnan-
leg húsakynni og þennan fallega
garð, sem sérstök ánægja er að
sitja í á sumrin, við kaffidryklcju
: góðu veðri.
Aldur bílanna. í London eru
25% fólksflutningsbílanna eldri en
10 ára og 3% enn meira en 15
ára gamlir.
Uppreisn í Kína. Bretar hafa nú
sent tundurspilli, og Bandaríkin
annan, til Foochow í Fu-Kien i
Kína, þar sem uppreist stendur
riú yfir, og eiga herskipin að
vernda brezka og bandaríska borg-
ara þar. Búizt er við að Japan-
ar hafi sent herskip þangað í
gær. — FÚ.
Ungmennafélagið Velvakandi
heldur fund í kvöld kl. 9 á Bar-
ónsstíg 65. Á undan fundinum
verður námsskeið í útskurði.
Norskur herforíngi var fyrir
skömmu með dómi sviftur embætti
sínu í norska hernum, fyrir það,
að hafa látið 'í ljós þá skoðun, að
hann vildi ekki fara í strið. Rétt-
urinn taldi svo, að maður sem
lýsti þvi yfir, að hann vildi ekki
vinna verk, sem hann hefði tekið
að sér, eða færi um það hrakyrð-
um, ætti ekki við það að vera.
Ennfremur taldi rétturinn, að
þessi neitun herforíngjans á því
að fara í stríð, væri ástæðulaus,
þar sem ekki gæti, að því er Nor-
eg snerti, verið um annað að ræða
en varnarstríð.
Urslit spönsku kosninganna, sem
þegar eru fullkunn, eru þessi:
Hægri flokkarnir hafa fengið 184
þingmenn, miðflokkarnir 128 og
vinstri ílokkarnir 66. Endurkosn-
ing á að fara fram i 95 þing-
sæti. —■ FÚ.
Á fjárlögum Japana fyrir næst-
komandi fjárhagsár er gert ráð
fyrir mjög auknum gjöldum til
hers og flota. Til flotans er á-
ætlað að veita 449 milljónir yena,
en til hersins 487 milljónir. — FÚ, >
Einkennilegt vinnulag. Flestir
vegfarendur í bænum munu hafa
tekið eftir því að sumar götumm
eru stundum svo að segja jafn-
harðan rifnar upp og þær eru
lullgerðar. í sumar var t. d. Skot-
liúsvegurinn mjög mikið lagaður,
sömuleiðis Fjólugatan. þegar ný-
búið er að leggja þessar götur báð-
ar mörgum lögum og þjappa þær,
eru þær rifnar upp til þess að
koma fyrir gasleiðslum, þegar bú-
ið var að ganga frá þessum leiðsl-
um, þurfti að rífa nefndar götur
upp aftur, því þá þurfti að leggja
í þær rafmagnsleiðslur. — Mundi
ekki vera hægt að finna einhverja
liagkvæmari atvinnubótavinnu?
Kuldar í Englandi. Víða í Eng-
landi hafa verið kuldar og hríð-
ar undanfarna daga. Snjókoma
varð víða mikii og féll tveggja til
sex þumlunga snjór. — FÚ.
Úr Dalasýslu. Fjárheimtur hafa
verið hér yfirleitt góðar, og lömb
í meðallagi að þroska. Fé liggur
viðast .úti, og er það óvenjulegt
um þetta leyti árs. Bráðapest hef-
ir stungið sér niður á nokkmm
stöðum. — Sláturfé var margt
rekið til Borgarness og Reykjavík-
ur, 3—4 þúsund. þó mun slátrun
í Búðardal hafa verið svipuð og
undanfarin ár. Hækkandi verð
sláturfjárafurða hefir gert það að
verkum, að fœrra hefir verið sett
á af lömbum nú en undanfarin
ár. Talsvert hefir verið keypt af
fóðurbæti, að mestu leyti síld. FÚ.
Frá Alþingi.
Framh. af 2. síðu
hefði nú fengið. Báðir banka-
stjórarnir voru sammála um
það, að beita þyrfti frekari
ráðstöfunum en nú viðvíkjandi
skömmtun á gjaldeyri, ef lög
nr. 1 8.' marz 1920 yrðu af-
numin“.
Blindir menn.
Magnús Jónsson flytur til-
lögu til þingsályktunar um að
fela ríkistjórninni að hlutast
til um:
1. Að fátækum, blindum
mönnum verði veitt undan-
þága frá að greiða afnotagjald
af útvarpsviðtækjum, eftir til-
lögum stjómar Blindravinafé-
lags íslands.
2. Að Blindravinafélagi Is-
lands verði fengin ókeypis allt
að 10 viðtæki til afnota fyrir
blinda menn, eftir reglum, sem
ríkisstjórnin setur um útlán
þeirra.
Réttariorsetinn i Leipzig til-
kynnti í réttinum í ^fyrradag, að
hann gerði ráð íyrir því, að hinni
pólitísku hlið rannsóknarinnar út
af bruna Ríkisþingshússins yrði
lokið um helgina, eða þá fyrstu
daga næstu viku. — F.Ú.
Menningarlög. Samkvæmt nýj-
um þýzkum lögum, sem kölluð
eru menningarlög, eru nú allir
þýzkir rithöfundar, nema blaða-
menn, skyldaðir til þess að ganga
í Samband þýzkra rithöfunda, og
hefir verið gefin út fyrirskipun
þess efnis, að þeir skuli hafa gert
það fyrir 15. des. — F.Ú.
Án dóms og laga. Óvenjulega
mikið hefir borið á því í Banda-
ríkjunum í síðastl. mánuði, að
menn hafi verið teknir af án dóms
og laga. í borginni St. Joseph í
Missouri réðist mannfjöldi á fang-
elsi i fyrradag og náði þaðan
negra, sem átti að hafa svívirt
hvíta konu, og var hann hengdur.
í Salisbury í Maryland tókst
mannfjölda að bjarga úr fangelsi
fjórum mönnum, sem höfðu verið
teknir fastir fyrir að taka negra
af lífi án dóms og laga. þrjú
hundruð liermenn börðust við
mannfjöldann, en fengu ekki við
ráðið. í South Carolina voru þrír
menn teknir fastir i gær og höfðu
þeir staðið fyrir því að taka
negra af lífi 16. nóv. — F.Ú.
§ Ódýrn §
auglýsingarnar.
Kennsla
ÖKUKENNSLA.
Steingr. Gunnarsson Bergst.
stræti 65, heima. Sími 8973
eða á Aðalstöðinni. Sími 1388.
Hillupappír, mislitan og
hvítan selur Kaupfélag Reykja-
víkur. Sími 1245.
Rit til sölu. Nýjar kvöldvök-
ur frá byrjun. Einnig nokkrir
fyrstu árgangar Fálkans og
Spegilsins. A. v. á.
Ódýrastar og beztar vörur á
Vesturgötu 16. Sími 3749.
VERZLUNIN BRÚARFOSS
Ilmvötn, hárvötn og hrein-
lætisvörur fjölbreytt úrval hjá
Kaupfélagi Reykjavíkm'.
Sími 1245.
Ef yður vantar góð og ódýr
húsgögn, þá munið Trésmiðj-
una á Frakkastíg 10, sími
4378.
Tiljtynningar
Sauma peysuföt, upphluti,
vendi fötum og fleira. Kögra
einnig peysufatasjöl. Ódýr
vinna. — Upplýsingar á Braga-
götu 22 A III. hæð.
Gerið svo vel að hringja upp
2266 eða 4262, þegar ykkur
vantar nýjan fisk.
Munið Kjötbúð Reykjavíkur
Sími 4769.
Tólg
tr& Kópaskeri
og Búðardal
Fyrirliggjandi hjá
Samb. ísl. samvinnufél.
Sími 1080.
RAUÐA HÚSH).
komnir góðan spöl frá húsinu. Framundan og til
hægri handar lá trjágarðurinn, fyrst í lægð^ en
hækkaði svo smám saman, svo að byrgði útsýnið
lengra í þá átt. Þétt skógarræma á vinstri hönd
skyggði á þjóðveginn fyrir þeim.
— Hefir þú komið hér fyrri? sagði Antony stutt-
aralega.
— Það held ég. Oftar en einu sinni.
— Ég átti við hvort þú hefðir komið á þennan
,stað, þar sem við stöndum núna. Eða sitjið þið inni
við ballskák allan guðslangan daginn?
— O, sei-sei, nei.
— Jæja, tennis og þessháttar. Það eru til margir
menn sem eiga fallega trjágarða, en nota þá bara
aldrei nokkurn tíma, og allir ræflamir, sem ganga
framhjá rykugan þjóðveginn, hugsa um það, hvað
þeir, sem eiga þetta, séu hamingjusamir menn, og
halda að þama inni hafi þeir allt hugsanlegt, sem
til skemmtunar má vera. Hann benti til hægri. Hef-
ir þú nokkumtíma komið á þessar slóðir?
Bill hló, eins og hann hálfgert blygðaðist sín.
— Ekki sérlega oft. Ég hefi auðvitað gengið
þennan veg vegna þess, að það er styzta leiðin í
bæinn.
— Jæja ... það er rétt; segðu mér nú eitthvað
um Mark.
— Hvað ætti það að vera?
— Sjáðu nú til. Sleppum því, að þú ert gestur
hanns og hann sjálfur einstakt prúðmenni og þar
fram eftir götunum. Vertu ekkert að ryfja upp
fyrir- þér úr „Kennslubók í mannasiðum“, en segðu
afdráttarlaust hvað þér finnst um Mark og hvem-
ig þér líkar að vera hjá honum og hvað oft þessi
litli hópur ykkar hefir átt í rifrildi þessa vikuna,
og hvemig þér semur við Cayley og svo yfirleitt
allt annað.
Bill leit til hans með ákefð.
— Heyrðu, hefurðu tekið þátt í bréflegu náms-
skeiði fyrir spæjara?
— Ég ætla að fá mér nýtt starf, sagði Antony
og brosti við.
— Það er laglegt! Ég á við það.... hann leið-
rétti sig, svo sem í afsökunarskyni, maður ætti
auðvitað ekki að taka svona til orða þegar lík
stendur uppi á bænum og sjálfur húsbóndinn. .. .
Hann þagnaði vandræðalega og lauk svo við setn-
inguna á þessa leið: Fjandinn hafi það, þetta er
dálaglegt ástand héme.
—Jæja? sagði Antony. Haltu áfram. Mark?
— Hvemig mér líkaði við hann?
—,Já.
Bill var í vandræðum hvemig hann ætti að orða
hugsanir, sem hann hafði aldrei getað gert sér vel
Ijósa grein fyrir. Hvaða álit hann hafði á Mark?
Þegar Antony sá að vöflur komu á hann, mælti
hann:
— Ég hefði átt að segja þér það strax, að þú
þarft ekki að vera hræddur um það, að nokkuð af
því sem þú kannt að segja mér verði skrifað nið-
ur og fengið lögreglunni í hendur, svo þú þarft
ekki að vera í neinum vandræðum með það hvaða
orð þú getir leyft þér að nota. Segðu hvað sem þér
sýnist og segðu það alveg eins og þér sýnist. Ég
skal reyna að koma þér á skrið. Hvort vilt þú nú
heldur vera hér yfir helgina, eða vera hjá Borring-
tonsfólkinu ?
— Tja, það er nú undir því komið... .
— Setjum svo, að hún sé þér samtíða á hvorum
staðnum sem væri.
— Þú ert bjáni, sagði Bill, og gaf Antony oln-
bogaskot. En um þetta er vandi að segja, því það
skaltu vita, að hér er allt annað en dónalegt að
vera.
— Svo?
— Já. Ég hugsa að ég viti ekki af neinum stað,
þar sem allt er í jafn góðu lagi. Herbergið hefir
maður, matinn — áfengið — vindlingana — allt er