Nýja dagblaðið - 08.12.1933, Page 1
1. ár.
Reykjavík, föstudaginn 8. desbr. 1933.
36. blað.
1 DAG
Sólai’uppkoma kl. 10,07.
Sólarlag kl. 2,32.
Háflóð árdegis kl. 9,05.
Iláflóð síðdegis kl. 9,25.
Ljósatími hjóla og bifreiða kl. 3,20
e. m. til 9,10 árd.
Veðurspá: Suðaustan og sunnan
gola, skýjað, en úrkomulítið.
1 Söfn, skrifstofur o. fi.:
Landsbókasafnið opið kl. 1-7 og 8-10
þjóðskjalasafnið ........ opið 1-4
þjóðminjasafnið lokað.
Náttúrugripasafnið lokað.
Alþýðubókasafnið .... opið 10-10
Landsbankinn ........... opinn 10-3
Búnaðarbankinn ......... opinn 10-3
Útvegsbankinn .. opinn kl. 10-4
Útibú Landsbankans á Klappar-
stíg .................. opið 2-7
Sparisjóður Rvikur og nágrennis
opinn kl. 10-12 og 5-7Ya
Pósthúsið: Bréfapóstst. .. opin 10-6
Bögglapóststofan .... opin 10-5
Landsíminn ............. opinn 8-9
Búnaðarfélagið opið 10-12 og 1-4
Fiskifél.... Skrifst.t. 10-12 og 1-5
Samband isl. samvinnufélaga
opið kl. 9-12 og 1-6
Sölusamband ísl. fiskframleiðenda
10-12 og 1-6
Skipaútg. ríkisins opin 9-12 og 1-6
Eimskipafél. fslands .... opið 9-6
Skrifst. bæjarins opnar 9-12 og 1-4
Skrifst. lögreglustj. opin 10-12 og 1-4
Skrifst. lögmanns opin 10-12 ogl-4
Skrifst. tollstjóra opin 10-12 og 1-4
Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6
Stjómarráðsskrifstofumár
opnar 10-12 og 1-4
Tryggingarstofnanir ríkisins
Skrifst. lögreglustj... opin 10-12
opnar kl. 10-12 og 1-5.
Baðhús Reykjavíkur opið kl. 8-8
Lögregluvarðstofan
opin allan daginn.
Alþingi: Fundur í báðum deildum
kl. 1.
Hæstiréttur kl. 10.
Heimsóknartími sjókrahúsa:
Landsspítalinn ............ kl. 3-4
Landakotsspitalinn ............ S-6
Laugarnesspítali ...... kl. 12^4-2
Vífilstaðahælið .. 12ya-2 og 3Vi-4y2
Kleppur ................... kl. 1-5
Næturvörður í Reykjavíkurapóteki
og lyfjabúðinni Iðunn.
Næturlæknir: Ólafur Helgason,
lngólfsstræti 6. Sími 2128.
Skemmtanir og samkomnr:
Nýja Bíó: Grænland kallar, kl. 9.
Gamla Bíó: Konungur ljónanna,
kl. 9.
Samgöngur og póstlerBtr:
íslandið kl. 6 til Akureyrar.
Suðurland frá Borgarnesi.
Dagskrá útvarpsins.
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há-
degisútvarp. 13,00 Búnaðarfélagið:
3. búnaðarfræðsluerindi. 15,00 Veð-
urfregnir. Endurtekning frétta o.
fl. þingfréttir. 19,00 Tónleikar.
19,10 Veðurfregnir. 19,20 Tilkynn-
irigar. Tónleikar. 19,35 Erindi
Fiskifélagsins (Árni Friðriksson).
20,00 Klukkusláttur. Fréttir. 20,30
Kvöldvaka.
Bæjarstjórnarfundur.
S&mþykkt tillaga Hermaxms Jónassonar um end-
urskoðun á reikningum Mötuneytis satnaðanna.
Sjáltstæðisflokkurinn felldi tillögu Hermanns Jón-
assonar um samvinnuútgerð, og tillögu Stefáns
Jóh. Stefánssonar um bæjarútgerð.
Vatn handa búendum við ratmagnsstöðina. —
Bókari hjá rafveitunni.—Lögreglunámskeið — o.fl.
Fundurinn hófst að venju
kl. 5 síðd. og stóð til kl. 71/2-
Dagskráin var birt hér í blað-
inu í gær og skal ekki endur-
tekin.
Hermann Jónasson bar fram
tillögu um að gefa búendum
við Elliðaárstöðina kost á að
leggja vatnspípur frá aðal-
vatnsæð bæjarins, samkvæmt
ósk þeirra. Tillögunni var vís-
að til bæjarráðs.
Fyrir lá ályktun frá meira-
hluta bæjarráðs (Sjálfstæðis-
mönnum) um stofnun bókara-
embættis hjá rafveitunni.
Hafði minnihluti bæjarráðsins
skotið þessu til bæjarstjórnar,
en eigi að síður hafði borg-
arstjóri auglýst stöðuna.
Var það átalið á fundinum, en
borgarstjóri kvaðst hafa aug-
lýst eftir ósk meirahluta bæj-
arráðs og „að áskildu sam-
þykki bæjarstjómar".
1 þessum umr. var það m.
a. upplýst, að fráfarandi borg-
arstjóri, Knud Zimsen, hefir
rúml. 10 þús. kr. eftirlaun ár-
lega frá bænum.
Samþ. var að hafa tvær um-
ræður um tillöguna og var
henni vísað til 2. umr.
Þá lá fyrir gömul tillaga
frá Jakob Möller um að fela
borgarstjóra að setja upp lög-
reglu-námskeið fyrir þá menn,
sem „settir voru af bæjar-
stjóminni“ í lögregluþjóna-
stöður.
Hermann Jónasson gaf þá
þær upplýsingar, að hinir nýju
lögregluþjónar væru nú teknir
til starfa, enda meira en mán-
aðartími síðan þeir voru settir,
og væri búið að láta þá fá
allra nauðsynlegustu tilsögn,
svo sem óhjákvæmilegt hefði
verið. Sagðist álíta tillöguna
skoplega eins og nú stæðu
sakir.
Jón Þorláksson skýrði frá
því, að hann ætlaði ekki að
kenna sjálfur á námskeiðinu,
en myndi biðja lögreglustjór-
axm aðstoðar við námskeiðið.
Tillagan var svo samþykkt
með 8 gegn 7 atkv.
Lengstar urðu umræður um
tillögur Stefáns Jóh. Stefáns-
sonar, sem að því miða að
draga úr yfirvofandi atvinnu-
leysi og bjargarskorti í bæn-
um, og þá jafnframt um breyt-
ingartillögur Hermanns Jónas-
sonar, sem voru um það, að í
atvinnubótavinnunni skuli mið-
að við venjulegan vinnutíma,
„eftir því, sem við verður
komið“, og að
bæjarstjórniu stuðli aö því
að koma upp samvinnuút-
gerð, en ekki bæjarútgerð,
eins og talað var um í til-
lögum Stefáns Jóh. Stefáns-
sonar.
Till. H. J. um samvinnuút-
gerð fékk aðeins atkvæði
Framsóknarflokksfulltrúanna
tveggja, en síðan var bæjar-
útgerðartillaga Alþýðuflokks-
ins felld með 8 gegn 5 atkv.
Aðrar tillögur St. J. St., um j
atvinnubótavinnuna, ókeypis ^
gas, rafmagn, koks og húsnæði j
til atvinnu- og eignalausra
verkamanna, sömuleiðis um, að
bærinn setji upp almennings-
mötuneyti, voru felldar með 8 j
gegn 7 atkv. En tillaga frá
honum um, að skrá alla at- !
vinnulausa menn, sem þess
óska, var samþykkt með 7:6
atkv.
Síðasta mál á dagskránni
var tillaga Hermanns Jónas-
sonar um kosningu
tveggja manna til þess að
athuga reikninga og rekstur
mötuneytis safnaðanna.
Um mötuneytið urðu all-
miklar umræður, bæði í sam-
’ i
bandi við þennan dagskrárlið
og næsta á undan. Aðalbjörg
Sigurðardóttir sagðist lengi
hafa verið því fylgjandi, að
bærinn kæmi upp almennings-
eldhúsi, og m. a. þessvegna
vildi hún að bærinn ræki sjálf-
ur mötuneytið.
Borgarstjóri kom þá fram
með tillögu, sem fól í sér það
tvennt:
Að bæjarstjórnin bæri fram
þakkir til stjórnar mötuneytis
safnaðanna fyrir vel unnið
starf og
Að skorað væri á forgöngu-
menn mötuneytisins að halda
starfseminni áfram í einhverri
mynd.
Síðari liðurinn var samþ.
Framh. á 4. «íðu.
Engin þingræðisstjórn.
Forseti sameinaðs þings getur ekki
bent á neinn sem taki að sér að
mynda stjórn á þingræðisgrundvelli.
Jón Baldvinsson forseti
sameinaðs þings sendi kon-
ungsritara í gær símskeyti, þar
sem hann tjáir konungsritara,
að hann geti ekki bent á neinn
mann, sem muni getað mynd-
að þingræðisstjórn. Sendi for-
seti eftirfarandi skeyti:
„Út af símskeyti yðar í gær
hefi ég talað við formann
Sjálfstæðisflokksins og fof-
mann Framsóknarflokksins, og
hafa þeir hvor af hálfu síns
flokks ekki getað gefið neinar
nýjar upplýsingar viðvíkjandi
myndun þingræðisstjórnar. Af-
staða Alþýðuflokksins er
óbreytt frá því sem yður hefir
áður .verið símað. Þar sem Ás-
geir Ásgeirsson eigi treystist
til þess að mynda þingræðis-
stjórn, get ég nú sem stendur,
hversu æskilegt sem mér þó
þætti það, ekki bent á neinn,
er myndað geti stjóm með
stuðningi eða hlutleysi meiri-
hluta alþingismanna".
Horfir eftir þessu ekki væn-
lega um myndun þingræðis-
stjórnar héðan af, hvað sem
þá tekur við.
Innbrot —
og banatilræði?
Þeir, sem innbrotið frömdu, komust
undan í myrkrinu í fyrrinött. En í
gærmorgun voru tveir menn með
byssu handteknir at lögreglunni.
í fyrrakvöld voru þeir *
Tryggvi Einarsson frá Miðdal
0g Steingrímur Hinriksson á
leið frá Miðdal að Geithálsi.
Þegar þeir fóru framhjá sum-
arbústað frú Soffíu Jacob-
sen, sáu þeir þar ljós í glugga.'
Vissu þeir ekki annað en að
bústaðurinn væri lokaður og
mannlaus, svo sem venja er
um þennan árstíma og þótti
þetta grunsamlegt. Sneru þeir
því heim að húsinu, en þegar
þeir komu heim undir var ljós-
ið slökkt
en tveir menn hlupu brott
frá húsinu.
Veittu þeir Tryggvi mönn-
um þessum eftirför, og dró
fljótt saman. Þegar flótta-
mennirnir sáu að alvara var
gjörð úr eftirförinni, námu
þeir staðar og ógnuðu þeim
Tryggva með byssu, er þeir
höfðu meðferðis, hlupu í
brekku nokkra, og gerðu nú
alvöru úr ógnunum sínum.
Hleyptu þeir skoti úr byss-
unni, en hæfðu ekki. Fóru
höglin fyrir ofan höfuð
]>eirra Tryggva og sakaði þá
hvergi.
Þetta varð þó til þess, að
þeir Tryggvi og Steingrímur
sáu sitt óvænna að fást við
menn þessa vopnaða í myrkr-
inu og hættu þeir við eltinga-
leikinn. Tilkynntu þeir lög-
reglunni í Reykjavík atliurði
þessa.
Lögreglan brá við og setti
vörð við veginn fyrir innan
bæinn, þar eð búizt var við því,
að mennimir væru héðan úr
bænum og myndu leita þangað.
Um morguninn kl. rúmlega 4
tók lögreglan tvo menn inni við
Bjarnaborg. Menn þessir voru
að koma í bæinn.
Höfðu þeir byssu moð-
ferðis. Var farið með þá
á lögreglustöðina. Var ann-
þeirra með talsverðan mót-
þróa svo að setja varð hann
í jám.
Mennimir, sem handteknir
voru, eru báðir danskir og
heita Knud Bush og Emil
Kemph. Hafa þeir áður komizt
í kast við lögregluna fyrir lög-
brot. Var Kemph sektaður í
sumar fyrir eggjastuld og dráp
á æðarfugli.
Menn þessir voru undir
rannsókn í allan gærdag, en
ekki hafa þeir játað á sig að
hafa verið að verki uppi í
sumarbústaðnum, né heldur að
hafa skotið á þá félaga,
Tryggva og Steingrím.
Bíða þeir í gæzluvarðhaldi
meðan málið er í rannsókn.
Semor Hitler Yið kommúnista?
London kl. 17,00 7/12 FÚ.
Litvinoff utanríkisráðherra
sovétstjórnarinnar kom frá
Ítalíu til Berlínar í morgun.
Fulltrúar þýzka utanríkisráðu-
neytisins tóku á móti honum á
brautarstöðinni.