Nýja dagblaðið - 08.12.1933, Blaðsíða 4
4
N Ý J A
DAGBIiAÐIÐ
Anuáll.
Prófessor Sigurður Nordal kom
í fyrrakvöld með íslandi úr fyrir-
lestraferð sinni til Stokkhólms.
Verður viðtal við hann birt í blao-
inu á morgun.
Pétur Benediktsson fulltrúi í
utanrikisráðuneytinu danska, var
meðal farþega á íslandi í gær.
Hljómsveit Reykjavíkur efnir til
sinna fyrstu hljómleika á þessu
starfsári, næsta sunnudag. Sveitin
er nú rúmir þrir tugir manna, og
mun vera stærsta innlenda hljóm-
sveit, sem hér hefir leikið. Að-
göngumiðar verða seldir bæði að
hverjum einstökum hljómleik og
ennfremur í einu lagi að öllum
hljómleikum sveitarinnar í vetur,
og þá fyrir nokkru lægra verð.
Mjólkurgjafirnar í barnaskólan-
um eru nú byrjaðar fyrir skömmu.
I Austurbæjarskólanum fá nú
1200 börn mjólk. Um 800 böm fá
mjólkina gefins, en hin borga
hana.
Um 330 börn. fá nú daglega mið-
degisverð gefins í Austurbæjar-
skólanum.
Skipafregnir. Esja er í Reykja-
vík. Fer austur um á mánudag-
inn 11. des. og er það siðasta póst-
ferð fyrir jól.
pót var tekinn af Skerjafirði í
gær og á hann nú að fara í Slipp
inn til viðgerðar.
Lyra fór á leið til Bergen í
gærkvöldi. Meðal farþega voru hr.
Forberg og frú, og frk. Sigríður
Jakobsen.
í Grlkklandi urðu alisnarpir
jarðskjálftakippir í fyrrinótt, á
sömu slóðum og jarðskjálftarnir
í fyrra. Tjón varð þó ekkert af,
en íbúarnir urðu mjög skelkaðir,
og hræddir um að hörmungarnar
þær í fyrra endurtækju sig. — FÚ.
í fjórða lið. þýzka stjórnin hefir
nú gert nýjar ráðstafanir tii þess
að útiloka Gyðinga frá opinberum
störfum. Hún hefir tilkynnt, að
fyrir næstkomandi áramót verði
allir málaflutningsmenn og dóm-
arar að leggja fram skýrslur um
ætt sína, og ef þeir geti ekki
sannað það, að þeir séu ekki af
Gyðingum komnir i fjórða lið,
verði þeim bannað að starfa opin-
berlega við dómstóla ríkisins. En
önnur lögfræðistörf á ekki að
banna þeim. — FÚ.
Samkvæmt Canadiskum hag-
skýrslum virðist ástandið í verzl-
un og iðnaði fara batnandi, eru
horfur taldar betri en á nokkrum
öðrum tíma undunfarin 3 ár. Út-
flutningur hefir verið meiri, verk-
smiðjuframleiðsla er aftur að fær-
ast í aukana, og námuframleiðsla
er nú meiri en síðan einhvern-
tíma 1930. Er því vonast eftir að
hagur almennings batni eitthvað
á næsta ári, ef þessu heldur á-
fram. — FÚ.
Frá Kína. Við og við skýra
heimsblöðin frá ýmiskonar skær-
um í Kína, er starfa af uppreisn-
aráformum móti Nankingstjórn-
inni, sem lieita á að ráði landinu,
kommúnistauppþotum og öðru
slíku. Herma nýjar fréttir þaðan,
að skilnaðarhreyfingin í Suður-
Kína lærist mjög í aukana, en
hún stefnir að því, að Suður-Kína
verði algerlega óháð stjóminni í
Nanking. Hefur nýlega verið
mynduð stjórn í fylkinu Fukien,
sem segist í engu muni lúta
stjórninni í Nanking. Búizt er við
að Kantonstjórnin geri slíkt hið
sama. Stjórnin í Nanking hefir
ákveðið að senda her þangað suð-
ur eftir til þess að bæla uppreisn-
ina niður. En því liði er ekki
spáð nema í meðallagi giftusam-
lega för, því mikið af herliði
stjórnarinnar á i fullu fangi við
að lialda kommúnistum i skefjum
í Mið-Kína. Atburðimir eru sagð-
ir vekja mikla eftirtekt hjá Japön-
unum, sem þykjast hafa mikilla
hagsmuna að gæta í Suður-Kína.
það voru einmitt svona atburðir,
sem forðum gáfu Japönum tilefni
til, að leggja Mansjúríu undir sig.
purrasta landið er i Turkestan
og nær yfir 300 þús. km. svæði.
Er það svo þurt, að hvorki jurtir,
dýr eða menn geta haíst þar við.
Fyrstu hljómleikar
Hljómsveítar
Reykjavíkur
verða haldnir n. k. sunnudag,
10. þ. m., kl. 5Y2 e. h. í Iðnó.
Aðg’öng'umiðar seldir í Bóka-
verzl. Sigf. Eymundssonar og
K. Viðar.
Hljómleikarnir verða ekki
endurteknir.
Saumum drengjaföt
og telpukápur
vel -og ódýrt, einnig dömukáp-
ur eftir nýjustu tízku.
Höfum fjölbreytt úrval af
unglingafötum og káputauum.
QEFJUN
Laugaveg 10. Simi 2838.
Hringið á
Kjötverzl.
Herdubreið
Fríkirkjuveg 7. Sími 4565.
Bæjarstjóriiatfundur.
Frh. af 1. síðu.
með samhj. atkv., enda áður
búið að fella till. um, að bær-
inn reki sjálfur mötuneytið.
Viðvíkjandi fyrra liðnum
stakk Hermann Jónasson upp
á því, að „þakklætinu“ væri
vísað til bæjarráðs, þangað til
endurskoðunin væri búin að
leiða í ljós, hve mikið tilefni
væri til þakklætis.
En SJálfstæðismenn vildu
bera fram þakkimar strax
og var því frestunartill. H.
J. felld með 8:7 atkv.
En tillaga H. J. um kosning
tveggja manna til að rann-
saka reikninga og rekstur
mötuneytisins var samþykkt,
en kosnir voru Guðmundur Ei-
ríksson og Sigurður Jónasson.
Til starfsemi mötuneytisins
hafa verið lagðar fram 19 þús.
kr. úr bæjarsjóði.
Danska útvarpið byrjar að flytja
hinar svonefndu Grænlandskveðj-
ur þann 14. þ. m. og fara þær
fram með þeim hætti, að þeir sem
vini eða kunningja eiga á Græn-
landi, mæla sjálfir til þeirra nokk-
ur orð í útvarpið, og mega þeir
í stuttu máli segja fréttir af líðan
sinni og högum, en þulur flytur
ekki kveðjuna, nema þegar hlut-
aðeigandi getur ekki mætt í út-
varpinu. þessu verður haldið
áfram öðru hvoru framundir jól-
in. — F.Ú.
Póststofan mælist til þess, að
þeir sem ætla að senda póst með
Esju í síðustu strandferð hennar
11. þ.: m. afhendi hann sem fyrst
á pósthúsið (einkum bóggla) þar
sem dráttur á því til síðustu
stundar veldur miklum óþægind-
um.
Nokkuð á fjórða hundrað pokar
fullir af pósti bárust pósthúsinu
hér í einni hrynu nú í vikunni.
í pósti þessum voru m. a. um 2000
böggulsendingar. Samtímis hafa
landpóstar og skip farið héðan
með allmikinn póst.
Jólapóstar snemma á ferðinnl.
Skip Grænlandsverzlunarinnar
„Gertrud Rask“ lagði á stað frá
Kaupmannahöfn 4. f. m. í síðustu
ferðina til Grænlands á þessu
ári. — Skipið hafði „jólapóstinn"
meðferðis til Julianehaab.
Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar-
kaupstaðar var til umræðu á bæj-
arstjórnarfundi Hafnarfjarðar í
fyrradag. Fjárhagsáætlun þessi er
mjög lík og síðastliðið ár. Útgjöld
eru áætluð 366100.00 kr. Tekjur
150 900.00 kr. og niðurjafnað gjald
er 215 200.00 eða 15 þús. lægra en
í fyrra. — FÚ.
Jólabók Æskunnar er nýkomin
út. Eru þar jólaliugleiðingar eftir
sr. Fr. Hallgrímsson og Fr. Frið-
riksson. Hreystiverk, jólasaga eftir
Jóhannes Friðlaugsson frá Fjalli.
í Nazaret, saga eftir Selmu
Lagerlöf, í gamla daga, eftir
Helgu Sigurðardóttur frá Hofi,
Jólasagan hennar ömmu eftir
Rósu B. Biöndal o. fl.
Guðspekffélagið. — Reykjavíkur-
stúkan, fundur i kvöld kl. 8ya
síðd. — Efni: I-Iallgr. kennari
Jónsson flytur crindi: Nýir þættir
úr talnaspekinni.
Atvinnubótavlnnan i Hafnarflrði
heldur stöðugt áfram síðan byrj-
að var í október. Unnið er að
gatnagerð, holræsagerð og vatns-
veitu. Búið er að vinna fyrir
rúmlega 30 þús. kr. — FÚ.
Bjarnarbani látinn. Nýlega er
dáinn í Romsdal í Noregi maður,
sem liét Johan Alnaes. Hann var
frægur íyrir mikið bjarndýradráp.
Alls hafði hann lagt 11 bjamdýr
að velli.
Frímerkjasýning stendur nú yfir
í London. Meðal frímerkjasafna
þeirra, sem þar eru, er sérstak-
lega getið um tvö söfn frá Nýja
Sjálandi. Annað er safn manns
sem fyrir 50—60 árum keypti -frí-
merki fyrir £3, en þau eru nú
talin £1000 virði. Hitt er safn af
öllum frímerkjum sem gefin hafa
verið út í Nýja Sjálandi siðastlið-
in 75 ár, og er það safn nú talið
£5000 virði. — FÚ.
Fyxirspum til Nýja dagbl.: Af
liverju eru tvö hænsahús á lóð
Elliheimilisins? Er það satt, að
Ástvaldur eigi annað? — Blaðið
vísar fyrirspurninni til hlutaðeig-
enda.
S k i f t a-
f u n d u r
í þrotabúi Hjartar Nielsen,
veitingasala, Cafe Vífill.
verður haldinn í bæjarþing-
stofunni laugardaginn 9. þ.
m. kl. 10 árdngis til þess
að gera ráðstafanir um
eignir búsins.
Skiftaráðandinn í Reykjavík
7. desember 1933
Bjðrn Þórðarson.
• Ódýru •
auglýsingarnar.
Kaup og sala
Saumastofan Tízkan selur
fallegar blússur og pils fyrir
jólin. Pantið í sima 4940. Aust-
urstræti 12.
Nýkomið spikfeitt hangikjöt
úr Mývatnssveit. Verzl. Rangá,
Hverfisgötu 71, sími 3402.
Notuð eldavél óskast keypt.
Uppl. í síma 3649 eftir kl. 7.
KJARNABRAUÐIN
Hafið þið reynt hið holla og
ljúffenga kjamabrauð frá
Brauðgerð Kaupfél. Reykjavík-
ur?
Hillupappír, mislitan og
hvítan selur Kaupfélag Reykja-
víkur. Sími 1245.
Ódýrastar og beztar vörur á
Vesturgötu 16. Sími 3749.
VERZLUNIN BRÚARFOSS
Tilkyuningar
Sauma peysuföt, upphluti,
vendi fötum og fleira. Kögra
einnig peysufatasjöl. ódýr
vinna. — Upplýsingar á Braga-
götu 22 A III. hæð.
Atvinna
Vetrarmann vantar í sveit.
Afgr. vísar á.
RAUÐA HÚSIÐ.
— Ojá — hann var fúll.
— Núna í dag?
— Nei. Það fór af honum — eins og alltaf.
Hann er alveg eins og krakki. Einmitt, Tony, hann
er oft og tíðum alveg eins og krakki. Sannleikur-
inn er sá, að hann var óvenjulega ánægður með sig
í morgun. Og líka í gær.
— I gær? /
— Já, okkur kom saman um það, að við hefðum
aldrei séð hann jafn ánægðan.
— Er hann venjulega í góðu skapi?
— Hann er mjög viðfelldinn í samkvæmi, ef
maður bara tekur hann á réttan hátt. Hann er ein-
kar hégómlegur og barnalegur og — ja eins og ég
hefi sagt þér — stór upp á sig, en reglulega
skemmtilegur á sinn hátt, og ... Bill snarþagnaði.
Það er heldur laglegt að tala svona um gestgjafa
sinn.
— Þú skalt ekki hugsa um hann sem gestgjafa
þinn Hugsaðu um hann sem mann, sem grunaður
er um morð, mann sem á hverri stundu getur orð-
ið tekinn til fanga.
— Þetta er nú bara rugl, það veiztu sjálfur.
— Þetta er staðreynd, Bill.
— Já, en ég á við það, að hann gerði það ekki.
Hann myndi ekki hafa getað drepið mann. Þér
finnst það skrítið, en — hann er ekki nógu mikill
fyrir sér til að geta ,gert slíkt. Hann hefir sína
galla, eins og við hinir, en ekkert í þá átt.
— Það er hægt að drepa mann í barnslegu geð-
vonzkukasti. Bill muldraði til samþykkis, en engan-
veginn samþykkur að þvi er Mark snerti.
— Hvað sem öllu líður get ég ekki trúað því.
Ég meina, að hann hafi gert þetta með vilja.
— Setjum svo að þetta hafi verið slys, eins og
Cayley segir. Ilefði hann þá átt að tapa sér gjör-
samlega og strjúka svona? Bill hugsaði málið and-
artak.
— Já það held ég hann myndi hafa gert. Það
lá við að hann tæki til fótanna þegar hann sá vof-
una. En auðvitað var þar öðru máli að gegna.
— Ja, það veit ég nú ekki. Að minnsta kosti er
það ekki skynsemin sem ræður á slíkum augnablik-
um, heldur blindar eðlishvatir.
Nú voru þeir komnir þangað sem vegurinn lá í
gegnum þéttan skóg. Hér gátu þeir illa gengið
samsíða. Antony gekk á eftir og varð nú hlé á sam-
ræðunni, þangað til þeir voru komnir út fyrir
garðshliðið og út á þjóðveginn. Hér lá vegurinn
jafnhallandi niður að þorpinu Woodham. Fáein smá
hús með rauðu þaki og gráan kirkjutum bar yfir
græn tré og runna.
— Jæja, sagði Antony. Þeir hertu nú gönguna.
— Hvernig er það þá með Cayley?
— Hvað þá, hvað um hann?
— Ég vil fá lýsingu af honum. Ég get nú gert
mér ágæta.hugmynd um Mark, eftir lýsingunni sem
þú hefir gefið mér af honum. Hún var ágæt. Lát-
um okkur nú fá lýsingu af Cayley, eins og hann
lítur út í nálægð séð. Bill hló, ánægður en fór þó
dálítið hjá sér, og bar því við, að hann væri eng-
inn skáldsöguhöfundur.
— En þér að segja, bætti hann við, þá er Mark
ákaflega fábrotinn maður. Cayley er aftur ein-
kennilegur maður, sem ekki er gott að átta sig á.
Mark ber þetta utan á sér ... Ófríður, svartskeggj-
aður þrjótur ... finnst þér það ekki?
— Sumar konur eru nú veikar fyrir þessháttar
ljótleik.
— Ojá, satt er það. Og okkar á milli þá get ég
nú sagt það, að ég held, að hér sé ein, sem þannig
er ástatt um. Annars skrambi lagleg stelpa hjá
Jollands — hann veifaði vinstri handleggnum.
— Þarna, í þessa stefnu.
— Hvað er nú það, þetta Jollands?