Nýja dagblaðið - 13.01.1934, Side 4
4
N Ý 3 A
DAGBLAÐIÐ
I
KisniiDukrifstoia Fnmsiknarlokksiis
er á Langareg ÍO. — Símar 3884 og 235 3.
XJ rslit í Hafnaríirði
kl. að ganga 2 í nótt
Anuáll.
Skipairéttir. Gullfoss kom frá
útlöndum í gærmorgun. Goðafoss
er í Kaupmannahöfn. Brúarfoss
kom tii Leith í fyrrinótt. Detti-
foss er á leið til Austfjarða frá
Hull. Lagarfoss er í Kaupm.höfn.
Se'lfoss er á leið til Huil.
Fundahöld á Siflluiirði. Almenn
ur fundur var haldinn á Siglu-
fírði í fyrrakvöld í tilefui af bæj-
arstjóinarkosningunum. — Efstu
menn listanna töluðu. Kommún-
istai- vildu hafa þrjá fundi en aðr-
ir flokkar aðeins einn. — At-
kvæðagreiðsla um nýjan bæjar-
stjóra fer fram strax að aflokn-
um bæjarstjórnarkosningum. Hafa
kommúnistar gert bæjarstjóra-
kosninguna að flokksmáli en hin-
ir flokkarnir ekki. (Samkv. skeyti
frá fréttaritara blaðsins á Siglu-
íirði).
„Nelsou", orustuskipið brezka,
sem strandaði í fyrradag, og írá
er skýrt annarsstaðar í blaðinu,
var jafnstórt og skipið „Rodney",
sem hingað kom 1030
Skemmtlíundux K. R. — Annað
kvöld kl. 9 heldur K. R. innanfé-
lags skemmtiíund í K.-R.-húsinu
fyrir alla starfandi félaga, konur
og kariá. Til skemmtunar verður:
Upplestur (Tómas Guðmundsson),
einsöngur (Einar Markan), piano-
sóló (Eggert Gilfer). Einnig gam-
anvisur og dans. Aðgangur er
mjög ódýr.
Skjaldarglíma Ármanns verður
háð 1. febrúar n. k. þátttakendur
gefi sig fram við stjóm Ármanns
fyrir 25. janúar.
Hjúskapur. í dag verða gelin
saman í hjónaband í Kristskirkj-
unni í Landakoti ungfrú Svandís
Vilhjálmsdóttir og Benedikt Guð-
mundsson pylsugerðarmaður.
Sovétvinafélagið heldur fund á
morgun, sbr. auglýsingu á öðrum
stað i blaðinu.
Meðal íarþega með Lyru til út-
landa voru Páll Eggert Glason,
ungfrú Edda Pálsdóttir, Eiríkur
Hjai-tarson og frú, Magnús Sch.
Thorsteinsson, Elinmundur Ólafs-
son o. fl.
Aflasala. Hávarður ísfirðingur
seldí í gær í Grimsby 60 tonn af
bátafiski frá ísafirði fyrir 2038
sterlingspund. Markham Cook
annaðist iim söluna.
Innbrot. Síðastliðna nótt var
brotizt inn í fisksölu þeirra Jóns
og Steingríms niðri við höfnina.
Hafði þar verið brotin upp skúffa
og stolið npkkrum krónum. Ekki
er ennþá uppvíst hver að verkinu
er valdur. Málið er í rannsókn.
Hnupl í húsum. Heldur er það
að aukazt, segir lögreglan, að
stolið sé í húsum, bæði í forstof-
um og í herbergjum. Biður lög-
jeglan að áminna fólk um, að
skilja ekki lykla eftir að íbúðum
sínum i forstofum, því þjófarnir
sjái það strax, þegar þeir komi
inn, hvar geymslustaðirnir séu.
Bæjarstjórnarkosningar fara
fram á Siglufirði í dag og á ísa-
lirði næstkomandi laugardag.
Umsækjendur um bæjarstjóra-
stöðuna á ísafirði eru tveir, Jón
A. Jónsson útgerðarstjóri og Jens
Hólmgeirsson bústjóri. Staðan
verður veitt 1. febrúar.
Smygl. í gær fundu tollverð-
imir 15 heilflöskur af whisky
Bæjarstjórnarkosningin í
Hafnarfirði fór fram í gær, og
var lokið um kl. 81/2 í gær-
kvöldi. Var kosningin sótt af
miklu kappi á báðar hliðar,
enda úrslit af mörgum talin
tvísýn. Atkvæði greiddu 1855
af 2009, sem á kjörskrá voru,
eða 92%.
Talning atkvæða hófst um
kl. 9Í/o og var lokið kl. að
ganga tvö í nótt.
Gild atkvæði féllu þannig:
A-listi Alþýðufl............990
B-listi Sjálfstæðisfl.....823
C-listi Kommúnistar .... 39
Auðir seðlar 6. ógildir 13.
Alþýðuflokkurinn hefir þann-
ig komið að 5 mönnum, en
Sjálfstæðisflokkurinn 4 mönn-
um.
Hinir nýkjörnu fulltrúar Al-
þýðuflokksins eru:
Davíð Kristjánsson,
Björn Jóhannesson,
Guðm. Jónasson,
milli þilja, á bakvið þvottaborð,
i klefa 1. matsveins á Gullfossi.
Matsveinninn, sem heitir Anker
Jörgensen, játaði sig eiga áfengið.
Ótíð og fiskleysl hefir verið
undanfarið á ísafirði.
Farþegar með Gullfossi frá
Khöfn og Leith í gær: Sigurður
Sigurðsson iæknir og frú, Elisabet
Finsen, Direktör C. Colliander, J.
Jarming, Guðjón Jónsson fyrv.
bryti, Kjartan Kyaerbo, Karolina
Jóns, Katrín Söebeck, J. R. Miller,
Óskar Halldórsson útgm., Aðal-
steinn Friðfinnsson Sigurður Arn-
alds, J. Lindsay, Sveinn Þórðar-
son, J. Guðmundsson, Ásgeir Ein-
arsson, V. Petereit, Jóna Kristó-
fersdóttir, Sigurður Sigurðsson,
Torfi Ásgeirsson, þóroddur þór-
oddsson, Ásgeir Ingimundarson,
frú Jacobsen með barn, frú Helga-
son með dóttur, Sigurður Guð-
jónsson, Sigurður Sigurðsson.
Vélbáturinn Blikl. Milli kl. 12
og 1 gær sást frá Hofsósi í Skaga-
íirði tvímastraður vélbátur hvít-
ur að lit, og rak hann fyrir sjó
og vindi og virtist hafa bilaða
vél. Báturinn gaf neyðarmerki,
en á Hofsós var enga hjálp hægt
að veita sökum óveðurs. Var þá
símað til Sauðárkróks, en þar lá
vélbáturinn Brúni frá Siglufirði,
og var honum gert aðvart og fór
hann bátnum til hjálpar og tókst
honum að koma honum inn á
höfnina í Hofsósi nálægt kl. 4 í
gær. — Bátur þessi reyndist að
vera vélbáturinn Bliki frá Akur-
eyri. Hann fór í fyradag frá Ak-
ureyri áleiðis til Sandgerðis, og
lenti í óveðri og bilaði vélin, og
missti báturinn allt lauslegt ofan
þilja, svo sem legufæri, segl og
vatn, en menn hafði ekki salt-
að. — FÚ.
Árás nazistanna. Fyrir nokkru
var þess getið hér í blaðinu, að
nazistarnir í Stokkhólmi hefðu
ráðist á vísindamann einn, sem
var að flytja fyrirlestur í háskól-
Guðm. Gissurarson og
Emil Jónsson.
Af lista Sjálfstæðisflokksins
náðu kosningu:
Bjami Snæbjörnsson,
Þorleifur Jónsson,
Loftur Bjarnason og
ólafur Þórðarson.
Við bæjarstjórnarkosningar
í Hafnarfirði 1930 fékk Al-
þýðuflokkurinn 772 atkv.,
Sjálfstæðisflokkurinn 636 atkv.
I það sinn tapaði íhaldið með
136 atkvæða mun, en nú tap-
ar það með 167 atkvæða mis-
mun, þrátt fyrir framboð
kommúnista að þessu sinni.
Sú frétt barst hingað rétt
um leið og blaðið var að fara
í prentun, að um 700 hafn-
firskir borgarar hefðu safnast
saman til að hylla Emil Jóns-
son bæjarstjóra um leið og úr-
slitin urðu kunn, en hann var
eins og kunnugt er í baráttu-
sætinu á A-listanum.
anum. Viö rannsóknina hefir það
komið í ljós, að tilætlunin var
hjá þeim, að taka dócentinn og
formann félagsins, Clarté, og fara
með þá. Var ráðgert að gera
fyrst háreysti, slökkva síðan ljós-
in og ráðast svo í myrkrinu á
þessa tvo menn er þeir höfðu á-
kveðið a,ð taka fasta, en þeita mis-
tókst fyrir dugnað og snarræði
nokkurra fundaimanna.
Hakakrossinn í DanmOrkn. Óeirð
ir urðu nýl. við smíði Litlabeltis-
brúarinnar út af framkomu eins
verkamans, sem talinn voru mót-
mæli gegn hakakrossfánanum
þýzka, og var kærð til lögregl-
unnar. Verkamenn gerðu verkfall
í gærmorgun til þess að mótmæla
kærunni, en um miðjan dag var
þó deilan jöfnuð. Kæran var tek-
in aftur og félagið, sem annaðist
verkið, lýsti því yfir, að það hefði
ekki skilið verknaðinn, sem kært
var yfir, þannig, að í honum væri
fólgin nein óvirðing við haka-
krossfánann. — FÚ.
Pólför Byrds. Vitaskip Byrds
aðmíráls fóru í gær frá Wellington
á Nýja Sjálandi áleiðis til Dune-
din, en þaðan fer skipið eftir
nokkra daga til þess að mæta
leiðangursskipi Byrds, Rupert-Ja-
cob. — FÚ.
Hollenzka póstflugvélln, sem um
jólaleytið setti nýtt hraðamet í
flugi milli Evrópu og Vestur-India
á fjórum dögum og fjórum stund-
um, kom aftur til Amsterdam í
gær. Hún fór frá Batavíu á föstu-
daginn og ætlunin var sú, að
reyna að setja enn nýtt met á
heimleiðinni, en það tókst ekki
vegna vélarbilunar og vonzkuveð-
urs. — FÚ.
Rússar selja jámbraut. það er
nú opinberlega tilkynnt, að Rúss-
ar hafi gert Manchuko-stjórninni
nýtt tilboð um kaup á Manchuriu-
járnbrautinni, sem þeir hafa ver-
ið að semja um undanfarið. þeir
KLUKKAN 5 Á MORGUN:
Opinber fundur Sovétvinafél.
íslands í Bröttugötusalnum.
FUNDAREFNI:
Björn Fransson: Friðarpóli-
tik Sovétrússlands.
Haukur Björnsson: Sovét-
Kína.
Erling Ellingsen: Bæjaimála-
pólitík í Sovét-Rússlandi.
Auk þess tala Jóhannes
Jósefsson og Skúli Magnús-
son.
Öllum heimill aðgangur. —
Menn eru beðnir að greiða 25
aura við innganginn til að G
mæta kostnaði.
Sovétvinafélagið. É
Æsíngar í
franska þingínu.
Frh. af 1. síðu.
því, aá allt skyldi gert til þess
að komast að því hverjir
væru sekir í þessu máli, og
skyldi þeim hegnt. Ennfremur
skyldi þing og stjóm gera all-
ar. þær ráðstafanir, sem hún
hefði vit á, til þess að koma í
veg fyrir önnur eins fjársvik í
framtíðinni. Chautemps for-
sætisráðherra talaði næstur, og
sagði að stjómin hefði í
hyggju gagngerða endurskipu-
lagningu lögreglunnar og rétt-
arvaldanna. Umræður urðu
með köflum svo heitar, að
þingforseti varð að hringja í
10 mínútur til þess að koma á
friði í fundarsalnum.
Það er mælt að Herriot ætli
að bera fram traustsyfirlýs-
ingu á stjórnina, en talið vafa-
samt hvort hún muni sam-
þykkt.
Iíalundborg kl. 17 12/1. FÚ.
Umræðunum um fjársvik
Staviski hélt enn áfram í
íranska þinginu í dag. Var af-
armargt áheyrenda viðstatt
eins og í gær, bæði á áheyr-
endasvölunum og utan húss-
ins, og umræður engu síður
heitar en þá, svp að forseti
varð að hafa sig allan við að
halda reglu á fundinum. I gær
safnaðist múgur og margmenni
saman utan þinghússins, og
voru 700 manns handteknir
sakir mótþróa við lögregluna,
en voru allir látnir lausir í
morgun.
1 blöðum er fjársvikamálið
mjög rætt í dag, og virðast
blöðin yfirleitt bíða átekta um
það hvað gerast muni á þingi,
en almenningsálitið virðist í
dag hallast á þá sveif, að mál
þetta verði stjóminni að falli.
kváðu nú bjóða brautina fyrir
lægra verð en áður. — FÚ.
Búshlutir seldir. Innanstokks-
munina í íbúð Ivar Kreugers í
New-York á að selja innan
skamms á uppboði. Gert er ráð
fyrir að þeir muni seljast fyrii
milli 50 og 100 þús dollara. Dýr-
asti hluturinn er málverk eftii'
Rubens, „Backanal". Er gert réð
£ ðdýru §
auglýsinga rnar.
Hús og aðrar fasteignir til
sölu. Hús tekin í umboðssölu.
Skrifstofan í Aðalstræti 9 B
opin kl. 11—12 og 5—7. Sími
4180 og 3518 (heima). Helgi
Sveinsson.
A t h u g i ð:
Frímer'kjaverzlunin Lækjar-
götu 2 kaupir notuð íslenzk
frímerki háu verði.
Nokkur hundruð kg. af ó-
dýru skepnufóðri er til sölu
hjá Hafliða Baldvinssyni,
Hverfisgötu 123. Sími 1456
(tvær línur).
Saltfisksbúðin Hverfisgötu
62 er vel birg af nýjum fiski.
Sími 2098.
„Konti ríki þitt“ fæst hjá
öllum bóksölum. Kostar aðeins
4 kr. bundin, en 3 kr. óbundin.
Ilmvötn, hárvötn og hrein-
lætisvörur fjölbreytt úrval hjá
Kaupfélagi Reykjavíkur.
Sími 1245.
Munið
lága vöruverðið á
TÝSGÖTU 3
Húsnæði
íbúð nálægt miðbænum ósk-
ast til leigu 1. febr. Fyrirfram-
greiðsla. A. v. á.
Stórt kjallaraherbergi til
leigu, hentugt fyrir verkstæði.
Sigurvin Einarsson, Egilsg. 18.
Bílskúr til leigu. Uppl. í
síma 1895.
3—4 herbergja íbúð ásamt
eldhúsi óskast í Austurbænur
14. maí. Tilboð merkt. „íbúð“
sendist á afgr. Nýja dagbl.
fyrir 10. febr. þ. á.
D
Atvinna
Hreinsa og geri við eldfæri
og miðstöðvar. Sími 3183.
Ihaldið sparar!
1 tíð Jóns Þorlákssonar sem
fjármálaráðherra, hafði:
1. Einar Arnórsson 18 þús.
658 kr.
2. Guðm. Sveinbjömsson 20
þús. 530 kr.
3. Sigurður Briem 15 þús.
300 kr.
4. Þorsteinn hagstofustj. 16
þús. 690 kr.
5. Vigfús Einarsson 15 þús.
400 kr.
Og árið 1932 borgaði Jón
Þorláksson frá bænum :
1. Sjálfum sér sem borgar-
stjóra 16 þús. 800 kr.
2. Rafmagnsstjóra 22 þús.
3. Hafnarstjóra 18 þús.
Já, íhaldið sparar!
fyrir að það muni seljast á 20 þús.
dollara.
Miklar deilur eru ennþá í þý'zku
ríkiskirkjunni. Evangeliska lands-
kirkjan í Bayern hefir neitað að
lilýða ýmsum ráðstöfunum MiiOers
íikisbiskups. Hann hefir nú kall-
að saman kirkjufund til þess að
ræðá ástandið. — FÚ.