Nýja dagblaðið - 19.02.1934, Blaðsíða 1
NYJA
2. ár.
íDAG w -
DAGBIAÐIÐ
Reykjavík, þriðjudaginn 19. febrúar 1934.
43. blað
Ljúévitnamálið
gegn Hermanni Jónassyni lögreglustjóra.
þegar aðrir varalögreglumenn
komust að því, að hann hefði
skrifað undir.
Hann hefir einu sinni komizt
undir hendur lögreglunnar hér
í bænum. Það var haustið 1929.
Hann varð uppvís að því, að
hafa ásamt öðrum manm
sprengt tvær „bombur“ seint
um kvöld inni á Hverfisgötu í
því skyni að hræða eða meiða
gömul hjón, sem bjuggu þar í
litlum skúr ein sér. Þetta verk
mæltist illa fyrir, en þeir, sem
að því stóðu sluppu við refs-
ingu fyrir æsku sakir. Annari
bombunni hafði 0. B. stolið frá
þáverandi húsbændum sínum í
Kveldúlfi.
Oddgeir Bárðarson hefir
verið atvinnulaus síðan um
nýjár að hann fór úr varalög-
reglunni. Hann hefir gert ÍOGO
kr. skaðabótákröfu til Magnús-
ar Guðmundssonar dómsmála-
ráðherra fyrir atvinnumissi, og
er blaðinu ókunnugt um, hvort
sú krafa hefir verið greidd.
„nokkrar upplýsingar um rann-
sóknina“.
V itnaleiðslumar.
Hermann Jónasson óskaði
þess af rannsóknardómaranum,
að honum væri gefið ttekifæri
til að vera viðstaddur vitna-
leiðslur, sem fram kynnu að,
fara frá upphafi. Rannsóknar-
dómarinn varð ekki við þeirri
ósk H. J. Þau vitni, sem vitn-
uðu gegn H. J. voru prófuð án
þess að hann væri við, og þeg-
ar því var lokið var H. J.
kvaddur til samprófunar við
þau.
Kærandinn og vitnin frá í
haust.
Viðvíkjandi því atriði kær-
unnar, að H. J. hafi skotið úr
byssu úti í „eyju“ í október
í haust, hefir verið tekinn
framburður þriggja manna í
réttinum, kærandans Oddgeirs
Bárðarsonar, Gustavs Karlsson-
ar fyrv. varalögreglumanns, og
; Jóns Valby verkamanns.
Framburður Oddgeirs Bárð-
arsonar.
Oddgeir Bárðarson segist
hafa verið staddur úti í „eyju“
í októbermánuði í haust, ein-
hverntíma fyrrahluta mánaðar-
ins, man ekki hvenær, þrátt
fyrir ítrekaðar spurningar.
Hann segist hafa séð H. J.
ganga með „riffil"*) út eftir
grandagarðinum og út í eyj-
| una, og áleiðis út á hæð, sem
I er á tanga vestan á eyjunni.
; Þá segist vitnið hafa lagt af
stað til lands, og þá heyrt
j skot, sem hann viti ekki hvað-
| an hafi komið. En þegar hann
, hafi verið kominn dálítið upp á
; grandagarðinn, hafi hann séð
') í kærurmi „lryssu“.
Framh. á 3. síðu.
Hlbert I. BelDlukonuiDur látian
Hanu hrapadi fram af klettum í
Ardennatjöllum, og beið þegar bana.
Sóláruppkoma kl. 8.1!.
Sólarlag kl. 17.14.
Flóð árdegis kl.
Flóð síðdegis kl. 9.35.
Veðurspá:* Vaxandi sunnanátt og
rigning.
Ljósatími hjóla og bifreiða kl. 5.45
til kl. 7.40.
Söfn, skrlfstofur o. fL:
Landsbókasafnið opið kl. 1-7 og 8-10
þjóðskjalasafnið ...... opið 1-4
þjóðminjasafnið ...... opið 1-3
Náttúrugripasafnið ..... opið 2-3
Alþýðubókasafnið .. . .opið 10 10
Landsbankinn ......... opinn 10-3
Búnaðarbankinn opinn 10-12 og 1-3
Útvegsbaní inn opinn 10—12 og 1—4
Útbú Laitdsb., Klapparst. opið 2-7
Sparisj. Rvk og nágr. 10-12 og 5-7%
Pósthúsið: Bréfapóstst. .. opin 10-6
Bögglapóststofan ...... opin 10-5
Landssíminn ............ opinn 8-9
Skrifstofa útvarpsins kl. 10-12 og 1-6
Búnaðaríélagið .. opið 10-12 og 1-4
Fiskifél.... Skrifst.t. 10-12 og 1-5
Samb. ísl. samvinnufél. 9-12 og 1-6
Sölusamb, ísl. fiskframleiðenda
opið 10—12 og 1—6
Skipaútg. ríkisins opin 9-12 og 1-6
Eimskipafélagið .......... opið 9-6
Stjórnarráðsskrifst. .. 10-12 og 1-4
Skrifst. bæjarins opnar 9-12 og 1-4
Skrifst. lögreglustj. opin 10-12 og 1-4
Skrifst. lögmanns opin 10-12 og 1-4
Skrifst. tollstjóra opin 10-12 og 1-4
Tryggingarst. ríkisins 10-12 og 1-5
Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6
Baðhús Reykjavíkur .... opið 8-8
Lögregluvarðst. opin allan sólarhr.
Hcimsóknartími sjúkrahúsa:
Landsspítalinn ........... kl. 3-4
Landakotsspítalinn ....... kl. 3-5
Laugarnesspítali .... kl kl. 12V£-2
Vifilstaðahælið 1214-1% og 3%-4i4
Kleppur ................. kl. 1-5
Fæðingarh., Eiríksg. 37 kl. 1-3 og 8-9
Sólheimar .............. opið 3-5
Næturvörður í Laugavegsapóteki
og Ingólfsapóteki.
Næturlæknir Hannes Guömunds-
son, Hverfisgötu 12. Sími 3105.
Skemmtanir og samkomur:
Nýja Bíó: Vermlendingar kl. 9.
Gamla Bíó: Maðurinn sem hvarf
(amerísk mvnd) kl. 9.
Samgöngur og póstferðir:
Dettifoss væntanlegur snemma í
morgun.
Lyra væntanleg frá Bergen.
Dagskrá útvarpsins:
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há-
degisútvarp. 15,00 Veðurfregnii'.
19,00 Tónleikar. 19,10 Veðurfregnir.
19,20 Tilkynningar. Tónleikar.
19.30 Erískukennsla. 19,55 Auglýs-
ingar. 20,00 Klukkusláttur Fréttir.
20.30 Erindi: Uppruni og þróun
tónlistar, III. (Páll ísólfsson). 21,00
Tónleikar; Celló-sóló (þórhallur
Árnason). 21,20 Upplestur: þýdd
ljóð (Kristján Albertson). 21,35
Grarnmófónn: a) Mozart: Symp-
honia nr. 40 í G-moll. b) Danslög.
Sigurður Jónsson rafvirki.
Mál þetta varð til í síðast-
liðnum mánuði nokkru fyr-
ir bæj arst j órnarkosningarnar.
Sigurður Jónsson rafvirki, 7.
maður á lista íhaldsflokksins
skrifaði grein í Mbl., þar sem
hann segir, að efsti maður D-
listans, Hermann Jónasson lög-
reglustjóri hafi skotið æðar-
kollu út í örfirisey 1. desem-
ber árið 1930. Um þetta skrif
Sigurðar, um æðarkolludrápið,
var mikið ritað í blöð íhalds-
flokksins fram að kosningun-
um.
Hjá Magnúsi Guðmundssyni.
Nokkrum dögum eftir að
Sigurður skrifaði í Mbl. kemur
fram svohljóðandi kæra og er
lögð fram í dómsmálaráðuneyt-
inu:
„A f r i t.
I s. 1. október mánuði var ég
undirritaður Oddgeir Bárðarson
Njáisgötu 60, staddur úti í Örfiris-
ey. Sá ég þá hr. lögreglustjóra
Hermann Jónassson, þar með
byssu, og skjóta af henni. Að því
er ég hygg á sjófugla.
þar sem ég nú veit, að þessi
verknaður lögreglustjórans, er
brot á lögreglusamþykkt Reykja-
víkur og þar sem ég tel mig með
vitnum, geta fært sönnur á þetta
lagabrot lögreglustjórans, þá leyfi
ég hérmeð að kæra það fyrir hinu
háa Dómsmálaráðuneyti, í von
um að það fyrirskipi rannsókn í
málinu.
Jafnframt leyíi ég mér að kæra
yfir broti því, er lögreglustjórinn
hefir gert sig sekan um, gegn írið-
unarlögunum, og sem frá er
skýrt af Sigurði Jónssyni rafvirkja
í sjöunda tbl. Morgunblaðsins þ. á.
Reykjavík, 12. jan. 1934.
Virðingarfyllst.
(sign.) Oddgeir Bárðarson.
Til bins háa dómsmálaráðuneytis
íslands."
I kærunni er eins og sjá má,
vísað til greinar Sigurðar Jóns-
sonar í Mbl. Sambandið milli
hans og kærandans því auð-
sætt.
Hver er Oddgeir Bárðarson?
Víðvíkjandi kærandanum hef-
ir blaðið fengið þessar upplýs-
ing: Hann er maður um tví-
tugsaldur, hefir áður verið
og er enn vikapiltur hjá Kveld-
úlfi, var um skeið kommúnisti
gekk í varalögregluna, skrifaði
síðar undir mótmæli gegn vara-
lögreglu, en strikaði aftur yfir
nafn sitt á mótmælaskjalinu,
M. G. tók kæruna til greina.
Þegar þessi kæra Oddgeirs
Bárðarsonai' barst í stjórnar-
ráðið, brá Magnús Guðmunds-
son skjótt við, fyrirskipaði
rannsókn í málinu og setulög-
reglustjóra Arnljót Jónsson
lögfræðing.
Rannsóknarefni Arnljóts eru
tvö, samkvæmt kærunni, sem
birt er hér að framan. 1 fyrsta
lagi er kært yfir því, að Her-
mann Jónasson hafi „í októ-
bermánuði“ 1933 skotið úr
byssu úti í örfirisey að því er
kærandinn „hyggur“ á sjó-
fugla. í öðru lagi, að H. J. hafi
„sem frá er skýrt af Sigurði
Jónssyni rafvirkja í 7. tbl.
Morgunblaðsins“(!) skotið æð-
arkollu úti í sömu eyju 1. des-
ember 1930.
Rannsókn þessara tveggja
atriða mun nú vera lokið. A. m.
k. er nú búið að taka eiða af
vitnum, sem ekki er leyfilegt
að gera fyr en að loknum að-
alyfirheyrslum.
Hermann Jónasson hefir
ekki, þrátt fyrir ítrekaða
kröfu, getað fengið hjá rann-
sóknardómaranum afrit af
prófunum. Hinsvegar segjast
Stormur og Heimdallur hafa
fengið upplýsingar um málið
og eru þau „blöð“ byrjuð að
birta ósannar sögur um niður-
stöðurnar.
Alþýðublaðið birti líka í gær
Kalundborg kl. 17 19/2. FÚ. j
Síðdegis á laugardaginn var
hrapaði Albert Belgakonungur
til bana, þar sem hann var á
fjallgöngu í Ardennafjöllum.
Var hann þar einn á ferð með
þjóni sínum, en lagði í göng-
una og bað þjóninn að bíða sín
í bifreiðinni, svo sem í tvær
stundir, en er konungur kom
ekki að þeim tíma liðnum, varð
þjónninn órólegur, og gerði
embættismanni viðvart um
hvarf konungs, en sá snéri sér
þegar til embættismanna hirð-
arinnar. Var nú hafin leit að
konungi, og fannst hann ekki
fyr en nokkru eftir miðnætti á
sunnudagsnótt. Hann hafði
hrapað, að því er virðist úr
40 m. hæð, og var höfuðkúpa ,
hans mölbrotin. Nýhrundar
grjótskriður voru á veginum,
þar nálægt, sem lík konungs
fannst, og er þess getið til, að I
hrapað hafi undan honum fót-
festi hans.
Leopold krónprinz var á
ferðalag'i í Sviss, er þetta vildi
til, og var honum þegar gert
viðvart. Hann fór þegar á stað
heimleiðis, ásamt konu sinni
Ástríði, Svíaprinzessu, og komu
þau til Brússel á miðnætti síð-
astliðna nótt. Leopold gekk
þegar til fundar við ekkju-
drottninguna, móður sína, og
sátu þau á tali í meira en
klukkustund.
Jarðarför konungsins hefir
veriö ákveðin á fimmtudag,
og verður þar viðstatt ýmis-
legt stórmenni, frá öllum lönd-
um álfunnar, og sendiherrar
fjölmargra ríkja utan hennar.
M. a. mæta þau þar af hálfu
Danmerkur Kristján konungur
X. og Alexandrína drottning,
af hálfu Noregs Ólafur krón-
prinz og kona hans, sem einn-
ig er sænsk prinzessa. Enn-
fremur prinzinn af Wales f. h.
Bretakonungs.
Mjög mikið er ritað um Al-
bert konung í heimsblöðunum í
dag, og er hans sérstaklega
minnst í sambandi við atburði
, þá, er urðu í ófriðnum mikla,
er hann tók að sér forustuna í
vörninni gegn Þjóðverjum, af
hálfu Belgíu, og' þótti þar með
hafa unnið sambandsþjóðunum
ómetanlegt gagn. Var þessa
minnst í Neðri málstofu
Brezka þingsins í dag. 1 full-
trúadeild franska þingsins
lvomst utanríkismálaráðherr-
ann svo að orði í minningar-
ræðu um hinn látna konung,
að það væri ekki einn einasti
Frakki, sem ekki tæki fregn-
inni um dauða hans, eins og
þjóðarsorg, og franska þjóðin
Framh. á 4. síðu.