Nýja dagblaðið - 24.03.1934, Page 1
NYJA DAGBIAÐIÐ
2. ár.
Reykjavík, laugardaginn 24. marz 1934.
71. blað.
í DAG
Sólaruppkoma kl. 6.21.
Sólarlag kl. 6.51.
Flóð árdegis kl.
Flóð síðdegis kl. 12.25.
Afurðasalan og umbætur hennar
Ur ræðu Jóns Arnasonar framkv.stj.
Verkföll í Bandarikjunnm
Vcrkfall í bifreiðaiðnaðinum. —
Roosevelt gcngst fyrir sáttatil-
raun. — Bílstjóraverkfall í New-
Vork. í fyrradag urðu meiri róstur
þar en verið hafa f mörg ár.
5
Veðurspá: Vestan gola og nokk-
ur snjóél.
Söfn, skrifstofur o. fL:
Landsbókasafnið opið kl. 1-7 og 8-10
jfjóðskjalasafnið ....... opið 1-4
Alþýðubókasafnið ....... opið 10-10
Landsbankinn .... opinn kl. 10-1
Búnaðarbankinn .. opinn kl. 10-1
Útvegsbankinn .... opinn kl. 10-1
Útbú Landsb., Klapparst. opið 2-7
Sparisj. Rvk og nágr. 10-12 og 5-7%
Pósthúsið: Bréfapóstst. .. opin 10-G
Bögglapóststofan ...... opin 10-5
Landssíminn ............ opinn 8-9
Skrifstofa útvarpsins kl. 10-12 og 1-6
Búnaðarfélagið .. opið 10-12 og 1-4
Fiskifél.... Skrifst.t 10-12 og 1-5
Samb. ísl. samvinnufé! 9-12 og 1-6
Skipaútg. ríkisirin opin 9-12 og 1-4
Eimskipafélagið ...........opið 9-4
Stjórnarráðsskrifst. .. 10-12 og 1-4
Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6
Skrifst. bæjarins .... opnar 10-12
Skrifst. lögmanns .... opin 10-12
Skrifst. tollstjóra .... opin 10-12
Ríkisféhirðir .......... opið 10-2
Skipaskoðunar og skráningast.
ríkisins 10-12 og 1-6
Lögregluvarðst opin allan sólarhr.
Heimsóknartími sjúkrahúsa:
Landsspítalinn ........... kl. 3-4
Landakotsspítalinn ........ k! 3-5
Laugarnesspítali .... kl kl. 12%-2
Vifilstaðahælið 12y2-iy2 og 3y2-4y2
Kleppur .................. k! 1-5
Fæðingarh., Eiríksg. 37 k! 1-3 og 8-9
Sólheimar .............. opið 3-5
Næturvörður í Laugavegs- og Ing-
ólfs-apóteki.
Næturlæknir: Halldór Stefánsson,
Lækjargötu 4, sími 2234.
Skemmtanlr og aamkomur:
Nýja Bíó: Kátir karlar k! 9.
Gamla Bió: Bros gegnum tár k! 9.
K.-R.-húsið: 35 ára afmælisfagn-
<aður k! 9.
G.-T.-húsið: S. G. T. Eldri dans-„
arnir.
Samgöngur og póstferöir:
Goðafoss til útlanda.
Dagskrá útvarpsins:
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há-
degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir.
18,45 Bamatími (þuríður Sigurðar-
dóttir). 19,10 Veðurfregnir. Til-
kynningar. 19,25 Tónleikar (Út-
varpstríóið). 19,50 Tónleikar Aug-
lýsingar. 20,00 Klulckusláttur. —
Fréttir 20,30 William Morris, 100
ára minning: Erindi (Guðm. Finn-
bogason). Upplestur. Ensk tónlist
o. s. frv. Danslög til k! 24.
Símar Nýja dagblaðsins:
Ritstjóri ....................... 4373
Fréttaritari .................... 2353
Afgr. og augl. .................. 2323
á fulltrúafundi samvinnufélaganna,
sem settur var í gær.
Inngangur
Það er kunnara en frá þurfi
að segja, að framleiðsla vor Is-
lendinga er fábreytt. Vér þurf-
um margt að kaupa frá öðrum
þjóðum til lífsframfæris og til
framleiðslu þeirra vara, sem
landið og sjórinn kringum
strendur þess gefur af sér. Til
þess að geta fullnægt óhjá-
kvæmilegum kröfum til sæmi-
legra lifnaðarhátta er oss nauð-
synlegt að geta selt öðrum
þjóðum a. m. k. eins mikið
verðmæti af landsins eigin
framleiðslu, eins og vér þurf-
um að borga fyrir innfluttar
vörur.
Framleiðendur til lands og
sjávar hafa um langt skeið lagt
mjög ríka áherzlu á að fram-
leiða sem mest af vörum til út-
flutnings og sníða meðferð
þeirra eftir kröfum hinna út-
lendu kaupenda, eftir því sem
þekking og reynsla hefir bent
til á hverjumi tíma. Hér þarí
þó sífelt að vera á verði um
nýjar aðferðir við vöruverkun,
svo afurðirnar nái sem hæstu
verði og útbreiðsla þeirra geti
orðið sem mest.
UtanríkiS"
verzlunin
Utanríkisverzlun með fram-
leiðsluvörur landsmanna hefir
einkum verið með tvennum
hætti, félagsverzlun (samvinnu.
félög) og einkarekstur (kaup-
mannaverzlanir). Þó hefir rík-
ið annast verzlunina með sum-
ar framleiðsluvörur öðru hvoru.
Félagsverzlun: Þegar bændur
stofnuðu samvinnufélögin fyrir
rúmum 50 árum, varð það
strax annað aðalhlutverk félag.
anna að vinna að umbótum á
meðferð framleiðsluvaranna og
annast sölu þeirra fyrir félags-
menn. Tóku sum samvinnufé-
lögin upp mat á framleiðslu-
vörunum, löngu áður en lög-
gjafarvaldið lét sig það mál
nokkru skipta. Kom brátt í
ljós, að vöruvöndun og mat á
vörunum margborgaði sig fyrir
framleiðendur og varð til þess
að tryggja þeim bezta verð fyr-
ir vörur sínar á hverjum tíma.
Framan af seldu félögin vör-
ur sínar annaðhvort með milli-
göngu erlendra umboðsmanna,
eða til innlendra útflytjenda. I
byrjun stríðsins stofnuðu þau
fyrst heildsöluskrifstofu í
Kaupmannahöfn, sem annaðist
innkaup á vörum félaganna og
sölu á framleiðsluvörum kaup-
félagsmanna. Það er þó ekki
fyr en í stríðslolcin, að heild-
sala félaganna, Samband ísl.
samvinnufélaga, verður alger-
lega sjálfstæður útflytjandi. Sá
útflutningur náði þó því nær
eingöngu til landbúnaðarvar-
anna. Á þeim 15 árum, sem lið-
in eru síðan stríðinu lauk, hafa
þau ótíðindi gerzt, að aðalfram.
leiðsluvara landbúnaðarins,
kjötið, varð því nær óseljan-
legt í því ástandi, sem það
hafði verið áður flutt út, þar
sem sífelt dró úr saltkjötssölu
til Noregs, sem var eina land-
ið, sem keypti þá vöru, svo
nokkru nam. Vegna samtaka
félaganna varð þó hægt að
mæta þessum örðugleikum, svo
minna tjón hlauzt af en vænta
mátti, með því að breyta um
verkunaraðferð á kjötinu og
flytja það út frosið, í stað þess
að salta það. Hafa félögin sýnt
dæmafáa þrautseigju og stór-
hug í sambandi við þetta mál,
þar sem þau á 6 árum komu
upp 12 frystihúsum fyrir sam-
tals um 1.300.000 kr.
Árangurinn af samstarfi fé-
laganna er sá, að þau flytja nú
út, fyrir milligöngu Sís, alit
kjöt, sem fryst er til útflutn-
ings, milli 80 og 90% af út-
fluttu saltkjöti og 70—80% af
útfluttum gærum og ull.
Þó nokkuð vanti enn á, að fé-
lögin hafi allar útflutningsvör-
ur landbúnaðarins í sínum
höndum, þá álít ég ekki, að það
sé nein aðkallandi nauðsyn að
gera ráðstafanir til breytinga á
þessu sviði með aðstoð ríkis-
valdsins. Ég býst við að srnátt
og smátt fækki þeim mönnum,
sem fela öðrum en félögunum
sölu á vörum sínum. Sís hei'ir
líka gert nokkuð að því hin síð-
ari ár, að kaupa ull og gærur
frá kaupmönnum. Hættan við
undirboðum á erlendum mark-
aði verður því minni, sem það
vörumagn minnkar, sem kaup-
menn hafa á boðstólum. Þá er
og miklu síður hætta á skaðleg-
um afleiðingum af undirboðum
á þeim vörum, sem hægt er að
selja hindrunarlaust víðsvegar
um heim, eins og á sér stað
með ull og gærur.
Um saltkjötið vil ég láta þess
Framh. á 3. síðu.
F l o \k k s þ i n g i ð
Á síðasta fundi flokksþings-
ins, sem haldinn var í fyrra-
dag, voru samþykktar í einu
hljóði eftirfarandi ályktanir:
Umbætur á Hellisheiðar- |
vegi.
„Flokksþing Framsóknar-
manna telur umbætur á vetrar-
veginum austur um Hellis-
heiði svo nauðsynlegar og þýð-
ingarmiklar, bæði fyrir héruðin
austanfjalls og Reykjavík og
llafnarfjörð, að ekki megi
dragast úr hömlu, að fram-
kvæmdir hefjist nú þegar í
þessu efni, eftir því er fjár-
hagur ríkissjóðs leyfir“.
Kreppulöggjöfin.
„Flokksþing Framsóknar-
manna lítur svo á, að kreppu-
löggjöfin beri ekki nauðsynleg-
an og fyrirhugaðan árangur
nema aukinn sé hinn beini
stuðningur ríkisins bændum til
handa. Flokksþingið skorar því
á þing og stjóm að ákveða, að
ríkið leggi fram fé til styrktar
þeim.
Jafnframt skorar flokksþing-
ið á Framsóknarmenn um land
allt, að beita sér fyrir þessu
máli, og fylgja því örugglega
fram til sigurs“.
Ályktun fulltrúa utan
Reykjavíkur.
Helgi Thorlacius bóndi á
Tjörn í Vestur-Húnavatnssýslu
bar fram eftirfarandi tillögu til
ályktunar, sem samþykkt var
í einu hljóði af fulltrúunum
utan Reykjavíkur:
„Kjörnir fulltrúar úr kjör-
dæmum utan Reykjavíkur, sem
mættir eru á fjórða Flokks-
þingi Framsóknarmanna, votta
miðstjórn Framsóknarflokks-
ins og öðrum flokksmönnum í
Reykjavík, fyllsta traust sitt
og þakkir fyrir örugga fram-
kvæmd á ákvörðunum síðasta
flokksþings, svo og fyrir þá
ótrauðu baráttu fyrir málefnum
flokksins, sem þeir hafa haldið
uppi í blöðunum og á öðrum
vettvangi gegn árásum stjórn-
málaandstæðinganna“.
Fundur samvinnufélaganna
var settur í gær.
Kl. IOV2 í gærmorgun var
fulltrúafundur samvinnufélag-
anna settur í Iðnó, uppi.
Fundur þessi er boðaður af
stjórn Sambands ísl. samvinnu-
félaga, til þess sérstaklega,
að ræða um afurðasöluna til
sjávar og sveita.
Fundarstjóri var Sigurður
Bjarklind kaupfélagsstjóri
Kosin var nefnd til að fara
á ’ fund Kreppulánasj óðs-
stjómar og ræða við hana um
kreppuhjálpina til bænda. —
Síðan var gefið fundarhlé.
Kl. 1 hófst fundur að nýju.
Þá flutti Jón Árnason fram-
kvæmdarstjóri útflutnings-
deildar Sambands íslenzkra
samvinnufélaga erindi um af-
urðasöluna og birtist útdrátt-
ur úr því erindi á öðrum stað
í blaðinu.
Þvínæst voru kosnar fimm
nefndir til að taka til með-
ferðar einstök atriði viðkom-
andi afurðasölunni.
Næsti fundur verður haldinn
síðdegis í dag.
De Yalera herðir baráttuna
LRP. 23/3. FÚ.
Það hefir valdið stjórn írska
fríríkisins allmiklum örðug-
leikum og áhyggju, að öld-
ungadeild þingsins hefir fellt
lagafrumvarpið um bann gegn
notkun pólitískra einkennisbún-
inga, en því var einkum beint
gegn blástökkum O’Duffy.
Ekki er tahð, að De Valera
muni ganga til kosninga um
þetta mál, en hefir svarað með
því, að flytja frumvarp um
afnám öldungadeildarinnar, og
var það lagt fyrir þingið í gær.
Talið er að De Valera muni
láta túlka lögin til verndar
opinberu öryggi, til hins ít-
rasta í þá átt, að hnekkja
flokki O’Duffy.