Nýja dagblaðið - 24.03.1934, Blaðsíða 4
4
M Ý 3 A
DAOBLADIÐ
Aunáll
Skipairéttir. Gullíoss er á ísa-
íirði. Goðaíoss íer til Hull og
Hamborgar í kvöid. Brúarfoss fór
frá Loudon í fyrradag á ieið tii
Kaupm.hafnar. Dettifoss fór frá
Hull í gærkvöldi á leið tii Vest-
mánnaeyja. Lagarfoss er á ísa-
íirði. Selfoss er í Reykjavik.
peir, sem gerast kaupendur
blaðsins í dag, fá sérstaklega góð
kjör,
Steingrímur Matthíasson iæknir
á Akureyri heíir fengið lausn frá
embætti frá 1. júní næstkomandi
að telja.
Ásgeir Ásgeirsson forsætisráð-
herra fór i gær með fiugvél frá
London til Kaupmannahafnar.
Kíkisráðsfundur. Forsætisráð-
herra verður á rikisráðsfundi með
konungi í dag. Mun hann leggja
fram stjórnarskrárbreytinguna og
kosningaiögin nýju til undir-
skriitar.
tiuðmnudur Finnbogason iands-
bókavörður ílytur erindi i útvarp-
ið í kvöid um Wiiliam Morris,
hinn nafnkunna enska íslandsvin.
Erindið er íiutt i tilefni af því, að
hundrað ár eru nú liðin frá fæð-
ingu hans.
Flokkspingsfulltrúarnir fóru all-
margir héðan úr bænum í gær.
Borgíirðingar og Mýramenn fóru
með Suðuriandi í gærmorgun og
margir norðan- og vestanfuiitrúar
með Súðinni í gærkvöldi. Rangæ-
ingar fóru líka í gær. í dag fara
fulltrúarnir úr Árnessýslu.
Goðafoss fer til útlanda í kvöld.
Fór hann í fyrradag til Iiafnar-
fjarðar og tók þar fisk.
Höfnin. Af veiðum hafa komið
Geir með 85 lifrarföt, Ver með 75
og Sindri með 58.
Dómsmálaráðherra Fríríkisins
írska skaut í vetur til Hæstarétt-
ar þeim úrskurði yfirréttarins, að
herrétturinn liefði ekki vald til
þess að dæma i máli O’Duffys, en
hann var sakaður um að tilheyra
ólöglegum félagsskap, að hafa
gerst sekur um landráðastarfsemi,
og að hafa eggjað menn til að
myrða de Valera. Úrskurður
Hæstaréttar var kveðinn upp í
dag. Hann er á þann veg, að her-
rétturinn hafi vald til að taka
fyrir fyrstu ákæruna, þ. e. um að
tilheyra ólöglegum félagsskap, en
ekki hina síðartöldu. — FÚ.
Runciman verzlunarm.ráðherra
Breta tilkynnti í neðri málstofu
brezka þingsins nýl., að stjórnin
mundi bera fram frumvarp til
laga til þess að greiða íyrir leit að
olíulindum í brezku eyjunum og
tryggja skipulagða vinnslu þeirra,
er kynnu að finnast. Ennfremur
sagði hann, að gert yrði ráð fyrir
þjóðnýtingu islíkra olíulinda. FÚ.
Fimm flugvélar hafa nú verið
gerðar út, til þess að reyna að
bjarga C.heljuskin leiðangrinum, og
eru flugvélamar á leið til Anadyr.
I hverri flugvél eru 3 menn, og er
gert ráð fyrir því, að þeir geti
tekið með sér 5 eða 6 farþega. FÚ.
Sprenging varð nýlega í olíu-
skipi á Seine-fljótinu nálægt Rou-
en í Frakklandi, og kviknaði sam-
stundis í því. Engu hefir verið
bjargað úr skipinu, því önnur skip
hafa ekki komizt nálægt því vegna
hitans. Ekki er vitað um orsakir
sprengingarinnar. — FÚ.
Sprengju var varpað á Unter
den Linden í Berlín nýlega,
rétt hjá byggingu innanríkisráðu-
neytisins. Tveir menn meiddust,
en sá sem verkið framdi komst
undan og. þekktist ekki. — FIJ.
JarSarför Emmu ekkjudrottning-
ar af Hollandi fer ekki fram fyr
en á þriðjudaginn kemur, og hefir
Kona Roosevelts
Um eng-an mann mun hafa
verið talað meira síðastl. ár en
Roosevelt forseta. Hinar stór-
felldu aðgerðir hans til við-
reisnar og atvinnuaukningar
vekja heimsathygli, enda hafa
þær þýðingu miklu víðar en í
Bandaríkj unum.
Hinsvegar hefir verið hljótt
um Mrs. Roosevelt og helzt um
hana talað sem góða eiginkonu
og samhenta Roosevelt. En hún
hefir líka sýnt það nú í seinni
tíð, að hún lætur sér hag al-
mennings miklu skipta og fylg-
ist vel með framkvæmdum
manns síns.
1 Washington er skólabörn-
um, sem ekki komast heim
vegna fjarlægðar í matmáls-
tímum, veitt ókeypis máltíð af
hj álparnefnd landstjórnarinnas.
Nýlega gerði Mrs. Roosevelt
sér ferð til að athuga hvernig
máltíðirnar væru. Strax á eftir
fór hún beint á fund formanns
hjálparnefndarinnar og krafð-
ist þess að mörgum starfs-
mönnunum væri vikið frá. Þeir
seldu máltíðirnar í eiginhags-
munaskyni, en hugsuðu ekki
um börnin. Ennfremur sagði
hún að gera yrði matskrá fyr-
ir hvern dag og sjá um að
henni yrði framfylgt.
1 annað sinn ók hún einn
daginn 80 míiur, til að kynnast
hag fólks í héraði, þar sem
sögð var mikil fátækt. Jarðirn-
ar þar voru í eigu manna, sem
sjálfir bjuggu í borgunum, en
lifðu á því að leigja eða láta
aðra yrkja þær. „Fjarverandi
jarðeigendur“, er haft eftir
Mrs. Roosevelt um þetta, „það
er sama ástandið og það, sem
kollvarpaði írlandi forðum og
nokkru af Englandi". Jafn-
framt kvaðst hún vona, að slíkt
þekktist hvergi annarsstaðar í
Bandaríkjunum.
henni verið frestað vegna þess, að
dómkix-kjan í Delft, þar sem öll
Nassau-Oranie-konungsættin hvílir,
er undir viðgerð. það hefir frétzt,
að ekkjudrottningin hafi beðið þess
í ei'fðaskrá sinni, að jarðarförin
færi fram án allrar viðhafnar. FÚ.
Jámbrautarslys. Frá því var
sagt í fréttum fyrir skömmu, að
járnbrautarslys hefði orðið í Sovét-
Rússlandi 12. marz s. 1. það hefir
fyrst nú frétzt greinilegar af slysi
þessu, og munu 33 menn hafa far-
izt, en 68 meiðst. Sagt er að slysið
liafi verið skeytingarleysi nokk-
urra jái-nbrautarembættismanna að
kenna, og hefir mál verið höfðað
gegn þeim. — FÚ.
Franska lögreglan telur sig hafa
komizt á snoðir um skipulagða
njósnarstarfsemi, er rekin hefir
verið undanfarið í Paris, af hálfu
tveggja Evi'ópuríkja, til tjóns fyrir
Bretland, Bandaríkin og Frakk-
land. S.extán manns hafa verið
teknir fastir, sem taldir eru riðnir
við njósnir þessar. — FÚ.
Einn af flugmönnum Byrd-leið-
angursins í suðurheimskautslönd-
um og loftskeytam., sem með hon-
um var, hafa orðið viðskila við
leiðangurinn, sökum þess, að þeir
þurftu að nauðlenda alllangt frá
bækistöð hans. Byrd segir samt
enga ástæðu til að óttast um þá,
því þeir hafi vistaforða til 30
daga, og verði önnur flugvél send
þeim til hjálpar svo fljótt, sem
veður leyfi. — FÚ.
Afurðasalan
Framh. af 3. síðu.
síðuna fara að taka verulegan
þátt í samstarfi kaupfélags-
manna. Með vexti útgerðarinn-
ar á undanförnum áratugum,
hefir fólkinu fjölgað mjög ört
í sjóþorpum og bæjum. Er nú
svo komið, að íbúatala sveit-
axma stendur í stað ár eftir
ár, en íbúum bæja og sjóþorpa
fjölgar um 1500 manns á ári.
Þessi breyting atvinnulífsins
hefir haft þær afleiðingar, að
innanlandsverzlun með land-
búnaðarafurðir hefir aukizt
mjög mikið, og mest síðasta
áratuginn. Er nú svo komið,
að ætla má, að af aðalfram-
leiðsluvöru bænda sé ekki flutt
út hin síðari ár nema um V3-
hluti kjötframleiðslunnar. —
Samvinnufélögin hafa af eðli-
legum ástæðum lagt meiri á-
herzlu á útflutninginn en inn-
anlandssöluna. Samtök bænda
um afurðasöluna beindust í
upphafi eingöngu að útflutn-
ingnum. Innanlandssalan var
aukaatriði, nema þá helzt hér í
Reykjavík.
Eftir því sem innlendi mark-
aðurinn hefir aukizt, hin síð-
ari ár, hafa komið í ljós skipu-
lagsgallar hjá félögunum, sem
orsaka glundroða á framboð-
um og tiltölulega lágt vöru-
verð til framleiðenda. Það sem
mestum ófarnaði veldur í
þessu efni, er sá galli á skipu-
lagi félaganna, að aldrei hefir
verið innleidd eða framkvæmd
söluskylda hjá félagsmönnum.
Þetta hefir ekki haft mjög
skaðlegar afleiðingar fyrir
verzlun með þann hluta fram-
leiðsluvaranna, sem fluttar eru
til útlanda. Þar treysta félags-
menn yfirleitt á félögin, enda
eiga þeir ekki hægt um vik
með að losna við vörumar á
annan hátt af eigin ramleik,
og kaupmenn hafa yfirleitt
lagt litla alúð við þessa verzl-
un. T. d. hefir enginn kaup-
maður komið upp frystihúsi, til
að geta flutt út frosið kjöt.
Félagsmenn 1 kaupfélögum
og sláturfélögum geta aftur á !
móti auðveldlega boðið vörur ;
sínar til sölu á innlendum j
markaði, án milligöngu félag- ‘
anna. Eru þessi skipulagslausu
framboð bænda á framleiðslu-
vörunum, helzta orsökin til
viðskiptaglundroðans og hins j
lága verðlags, sem einkum hef- ;
ir verið áberandi 2—3 síðustu |
árin. Á þessu verður að ráða
bót. Það er á valdi lands-
manna sjálfra, að tryggja
bændum það hátt verð fyrir
það • af framleiðsluvörunum,
sem selt er innanlands, að
hægt sé að lifa viðunandi lífi
á landbúnaði, og það er hags-
munamál allra stétta þjóðfé-
lagsins, að takast megi að
finna leið til þess. En fyrst og
fremst eru það bændurnir
sjálfir, sem verða að sýna þann
þroska og skilning, sem gerir
það mögulegt að koma þessum
málum í viðunandi horf. — Þær
framleiðsluvörur bænda, sem
ég geri hér á eftir að umtals-
efni, eru kjöt, mjólk og mjólk-
urafurðir, kartöflur og egg.
Undirróður nazista
f ^Lithauen.
Berlín kl. 8, 23/3. FÚ.
Stjórnin í Lithauen hefir
farið fram á það við Schreiber
landstjóra í Memel, að hann
víki 29 þýzkum embættis-
mönnum í Memel-héraðinu frá
störfum fvrir pólitíska starf-
semi í þágu Nazistaflokksins.
Embættismennimir hafa farið
fram á, að mál verði höfðað á
móti þeim, til að komast að
raun um, hvað þeir hafa brotið
af sér.
Nazisti á flótta
Kalundborg • kl. 17, 23/3. FÚ.
Ritmester Lembke, einn af
aðalforingjum Nazistaflokksins
danska, kom til Hróarskeldu í
morgun og var þegar tekinn
fastur og farið með hann til
Kaupmannahafnar. Hafði úr-
skurður verið felldur um það
fyrir nokkru, að Lembke skyldi
tekinn fastur, vegna þess að
hann hefði brotið lögin um
bann við pólitískum einkennis-
búningum, en hann hvarf um
sömu mundir, og spurðist síðan
ekki til hans um hríð. Lembke
var síðan yfirheyrður af Phil
dómara í Kaupmannahöfn, og
að því loknu var úrskurðurinn
um fangelsun hans numinn
úr gildi.
• Ódýrn #
aug:lýsing-8 rnar.
Bökun í heimahúsum, eftir
Helgu Sigurðardóttur er ný-
komin út í annari útgáfu, auk-
in og endurbætt. Fæst hjá öll-
um bóksölum.
Stoppuð húsgögn eru til sölu
með sérstöku tækifærisverði.
Hringbraut 186.
IIús og aðrar fasteignir til
sölu. Hús tekin í umboðssölu.
Skrifstofan 1 Aðalstræti 9 B
opin kl. 11—12 og 5—7. Sími
4180 og 3518 (heima). Helgi
Sveinsson.
Rúgbrauð, franskbrauð og
normalbrauð á 40 aura hvert.
Súrbrauð 30 aura. Kjamabrauð
30 aura. Brauðgerð Kaupfél.
Reykjavíkur. Sími 4562.
D 1 V A N A R
(og viðgerðir) með góðu stoppi
og mörgum fjöðrum, verða
beztir og sterkastir, ódýrastir
og fallegastir. — Húsgagna-
vinnustofan Skólabrú 2 (hús
Ól. Þorsteinssonar læknis).
35 krónur.
Nýja divana, madressur o.
fl. fáið þér mjög ódýrt og
vandað. Laugav. 49, bakhúsið.
FROSIN DILKASVIÐ
fyrirliggjandi.
S. í. S. — Sími 1080.
Framleiðsla á eggj um og
kartöflum hefir aukizt mjög
mikið seinni árin, en þó vantar
talsvert á, að nægilega miMð
sé framleitt til að fullnægja
þörf landsmanna. Þó gengur
mjög illa að selja þessar vörur,
af því þær geymast illa og
mikið berst að á skömmum
tíma ár hvert.
Einfaldasta ráðið til að létta
fyrir framleiðendum, er að rík-
ið taki einkasölu á kartöflum
og eggjum. Með því móti er
hægt að gera framleiðendum
unnt að losna við þessar vörur,
og þó ríkið borgaði ekki hátt
verð, þá er ólíkt meiri trygg-
ing í því fyrir framleiðendur,
heldur en með núverandi fyrir-
komulagi, þar sem allt er í ó-
vissu með söluna, af því verzl-
anir vilja heldur kaupa útlend-
ar kartöflur og egg, þar sem
oftast nær er hægt að selja
þessar innfluttu vörur með
miklu meiri hagnaði. Fyrir
neytendur ætti þetta að koma
í sama stað niður, því engin
ástæða er til að ætla, að út-
söluverð til almennings þyrfti
að hækka. Einkasalan mundi
líka geta gert miklu betri inn-
kaup á þeim vörum, sem flytja
þyrfti inn, heldur en með nú-
verandi fyrirkomulagi, þar sem
innflutningurinn er dreifður á
margar hendur.
Geymsla á eggjum og kar-
töflum er því nær óhugsandi,
ef hver framleiðandi þarf að
annast hana sjálfur. Hinsvegar
gæti ríkiseinkasala komið upp
2—3 geymslustöðum á landinu,
án þess að kostnaður af því
yrði óbærilegur.
Eðlilegast virðist mér, að
Áburðareinkasalan og Kar-
töflu. og Eggjasalan yrðu und-
ir sömu stjórn. (Framh.).
Fyi*ir páskana seljast blúss-
ur og pils frá 4 krónum og
kjólasilM frá 20 kr. í kjólinn.
Saumastofan Tízkan, Austur-
stræti 12.
Ilmvötn, hárvötn og hrein-
lætisvörur fjölbreytt úrval hjá
Kaupfélagi Reykjavíkur.
Atyinna
Vantar mann við trillubáta-
útgerð, má vera unglingur.
Uppl. í síma Hábæ, Vogum.
Jakob Sigurðsson.
Ung stúlka óskar eftir at-
vinnu sem fyrst, ekki vist. Til-
boð merkt Atvinna, sendist af-
greiðslu Nýja dagbl.
Stúlka óskast, Ránargötu 6
(miðhæð).
Tilkynningar
Veitið athygli! Fæði og
lausar máltíðir fáið þið bezt
og ódýrast. Matstofan Tryggva-
götu 6.______________________
Gott ódýrt fæði fæst í K.-R-
húsinu. Einnig einstakar mál-
tíðir.
Húsnæði
Lítil íbúð óskast helzt strax
eða 14. maí, með öllum þæg-
indum, í nýju húsi. Uppl. í
síma 4015.
Ef
þið viljiö aö teklö eá rel
eítir auglýsingum ykk-
ar, þá skuluö þið helzt
auglýsa í
Nýja dagblaðinu