Nýja dagblaðið - 26.04.1934, Side 2
2
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
FATAGERÐIN H.F.
framleiðir
Blá verkamannatöt
úr hinu alþekkta NELSON XXX nankin, allar algengar teg.
Brún verkamannaföt
úr Ia khaki, svo sem: Samfestinga, jakka, tvær tegundir,
sloppa, tvær tegundir, strengbuxur.
Hvlta karlmannssloppa,
þrjár tegundir.
Hvita kvensloppa,
tvær tegundir.
Mislit barna- og nnglinga-töt,
smekkbuxur og samfestinga í 4 litum.
Ef þér gætið þess að kaupa eingöngu föt með voru vörumerki, þá
munuð þér sjá, að treysta má íslenzkum höndum og íslenzku framtaki
FATA6ERÐIMH.F., REYKJAViK
Símnetni FSF. — Pósthólf 255. — Simi 2724.
H.f. Hamar, útibú í Hafnarfirði
Vesturgðtu 22 & 24 - Sími 9141
framkvæmir 1. flokks vinnu við vélar og skip.
Styðjið íslenzkan iðnað og menn!
Hitar, ilmar, heillar drótt,
hressir, styrkir, kætir.
Fegrar, yngir, færir þrótt
Freyju kaffibætir.
■
. :
.
FIíKVJA
KONUR
OG
STÚLKUR
VEITIÐ ATHYGLII
Kjólar
frá 8 krónum upp í 200
krónur (fínustu sam-
kvæmis-, ball- og kveld-
l^jólar).
Hvergi eins ódýrir.
Blússnr
bæjarins fallegasta úr-
val. Verð við allra hæfi.
I
Feysnr
frá 3.50, !/4 ódýrari en
annarsstaðar.
Hvergi eins fallegar.
Pils
frá 8 krónum, sem er
það ódýrasta er hér
hefir sést.
Hvergi eins gott snið.
— Allt nýjar vörur. —
Nýtt verð.
NINON
\Austurstræti 12 (uppi).
Opið 2—7.
Bókmenntir — íþróttir — listir
Nemendahljómieikar
Tónlistarskólans
Tónlistarskólinn hélt nem-
endahljómleika á sunnudaginn
í Gamla bíó fyrir fullu húsi.
Komu þar fram sex úrvalsnem-
endur skólans. Léku fimm
prýðileg. Má skólmn vel við
una að geta sýnt slíkan árang-
ur eftir ekki lengri tíma. —
Sumir af nemendunum, sem
þarna komu fram, höfðu verið
aðeins tvo vetur í skólanum. —
En jafnframt má það vera öll-
um mönnum gleðiefní, að við
Efri röð, frá vinstri: Árni Björnsson, Rögnvaldur Sigurjónsson, Ól-
afur Markússon, Haukur Gröndal, þórarinn Kristjánsson, Björn Ól-
afsson, Indriði Bogason. — Neðri röð, frá vinstri: Katrín Ólafsdóttir,
Svala Einarsdóttir, Jórunn Viðar, Guðríður Guðmundsdóttir, Friða
Andrésdóttir, Anna Ólafsdóttir, Katrín Daihoff Bjarnadóttir, Margrét
Eiríksdóttir.
þeirra á pianó og einn á fiðlu.
Verkefnin, sem nemendurnir
höfðu til meðferðar, voru yfir-
leitt fjölbreytt og vönduð. Má
t. d. nefna Fiðlukonsert í E-
moll, Op. 64, eftir Mendelssohn
og Ballade í G-moll, Op. 23,
eftir Chopin, sem hvorutveggja
krafðist mikillar leikni og
fastra taka. Meðferð nemend-
anna á viðfangsefnunum var
yfirleitt góð og hjá sumum
skulum nú hafa eignast öflugan
tónlistarskóla, með jafn full-
komnum kennslukröftum og
þessir hljómleikar báru vitni
um. Og haldi hann áfram eins
og hann hefir byrjað, verður
hann íslenzku tónlistarlífi til
ómetanlegs gagns.
Síðari nemendahlj ómleikarnir
verða á sunnudaginn kemur,
og verður þá vonandi hvert
sæti skipað. X.
Til þess að
hafa full
not af útvarpstæki sínu,
verða menn að hafa góðan
grammófón, enda sannfærast
menn nú betur og betur um
þetta atriði. Sönnun þess er
hin sívaxandi eftirspurn eft-
ir góðum en ódýrum grammó-
fón.
'l'il þess að fullnægja þessari
eftirspurn, höfum við nú
ákveðið, að bjóða yður okk-
nr landsþekktu Polyphon-
grammófóna, sem eru mjög
fallegir og sterkir, og einmitt
nú voru að koma frá verk-
smiðjunni, fyrir
aðeins 55 kr.
en venjulegt verð er um kr.
, 80,00. Komið strax i dag og
heyrið hina fallegu og hljóm-
fögru fóna. — þeir eru til í
svartri, blárri og brúnni leð-
urlíkingu.
Hijöðíærahúsið
Bankastræti 7.
(við hliðina á Lárusi Lúð-
vígssyni).
Notið íslenzkar vOr-
ur og ftlenzk skip
Seðlaíölsun 1 Póllandi
Framh. af 1. síðu.
Vín hafði verið stofnaður sér-
stakur banki, sem leit út fyrir
að vera alveg venjuleg og heið-
virð peningastofnun, en hafði
það sem aðalmarkmið, að koma
framleiðslu seðlafalsaranna í
verð. Hafði hann leyst þetta
starf svo vel af höndum, að
falsaðir seðlar og verðbréf
voru komin í umferð á flestum
kauphöllum í Evrópu.
Eins og áður er sagt, var
það fölsunin á 7% pólsku rík-
isskuldabréfunum, sem leiddi
til þess, að glæpurinn var
uppgötvaður. Hefir verið kom-
izt að raun um, að slík bréf
hafa verið fölsuð fyrir 1 millj.
kr. virði. Auk þess hafa verið
falsaðar fleiri tegundir af
pólskum ríkisskuldabréfum.
Einnig hafa verið fölsuð aust-
urrísk, tékknesk og ungversk
verðbréf. Hlutabréf ýmsra
fyrirtækja hafa líka verið
fölsuð. Eftirlíking hefir verið
gerð bæði eftir enskum og
amerískum peningaseðlum. Tal-
ið er að íölsuð hafi verið verð-
bréf og seðlar fyrir allt að 20
millj. kr. virði og mun mikill
hluti þess hafa þegar verið
kominn í umferð.
Þegar seinast fréttist höfðu
18 menn verið teknir fastir í
Varsjá, vegna seðlafölsunar-
innar og 3 í London.