Nýja dagblaðið - 26.04.1934, Síða 3
n Ý j a
DAGBLAÐIÐ
S
I
NÝJADAGBLAÐIÐ|
ÍTtgefandi: „BlaÖaútgáfan h.f.“
Ritstjóri:
Dr. phil. porkell Jóhannesson.
Ritstjómarskrifstofur:
Laugav. 10. Símar 4373 og 2353. |
Afgr. og auglýsingaskrifstofa: |
Austurstrœti 12. Sími 2323. |
Áskriftargj. kr. 2,00 á mánuöi. |
í lausasölu 10 aura eint. J
Prentsmiöjan Acta.
Hvar eru
óhreiiiu börnin?
íhaldsmenn hafa nú undan-
farna daga haldið „landsfund“
sinn hér í Reykjavík. Eftir því
sem Mbl. skýrir frá er þar eitt-
hvað mætt af mönnum utan af
landi. Mun þó búseta sumra á
landsbyggðinni vera meira en
lítið vafasöm. Og vitanlega er
fundur þessi ekki skipaður eft-
ir lýðræðisreglum. Kjósendur
íhaldsflokksins hafa yfirleitt
ekkert skipulag og enga kjörna
fulltrúa. Þessvegna gefur þessi
„landsfundur" Reykjavíkur-
íhaldsins enga rétta hugmynd
um vilja kjósendanna úti á
landsbyggðinni.
En eitt hefir vakið sérstaka
eftirtekt þessa dagana, sem
landsfundurinn hefir staðið yf-
ir og gestirnir utan af landinu,
hafa dvalið hér í bænum. Þá
dagana hefir ekkert einasta
nazistablað komið út. Og þó eru
skrílblöð þessi nú a. m. k. fjög-
ur að nafninu hér í bænum.
Þessi kyrsetning nazista-
blaðanna er áreiðanlega engin
tilviljun núna á meðan íhalds-
broddarnir í Reykjavík eru að
tala við samherjana utan af
landinu.
Ólafi Thors og félögum hans
er það ákaflega vel ljóst, að
fólk út um land, og einnig þeir,
sem fylgt hafa íhaldinu við
kosningar, hefir sérstaklega
megna óbeit á hinni erlendu of-
beldis- og einræðisstefnu, sem
íhaldið hér hefir tekið í þjón-
ustu sína og gert opinbert
kosningabandalag við fyrir fá-
um mánuðum. Þeir vita, að
fólkið úti um landið hefir enga
löngun til að afnema þingræðið
og að það kærir sig heldur ekk-
ert um, að fela reykvískum
heildsölum og togaraútgerðar-'
mönnum að fara einum með
það vald, sem nú er í höndum
kjósendanna í landinu.
Og annað óskabarn Reykja-
víkuríhaldsins, fánaliðið, sést
ekki heldur. Þetta lið hefir þó
verið æft vikulega í Kveldúlfs-
portinu í allan vetur og ætti
að vera orðið þess umkomið að
sýna sig við hátíðleg tældfæri
eins og „landsfund“ flokksins.
En einhvernveginn hefir íhalds.
foringjunum ekki þótt ástæða
til að punta upp á samkomuna
á þennan hátt.
Og ástæðan til þess er líka
ákaflega augljós. íhaldskjós-
endunum úti um landið er ekk-
ert um það gefið, að verið sé
að draga saman lið til „her-
æfinga“ í landi þar sem enginn
her á að vera og ætlast er til
5 verk smiðj ur
Sambands íslenzkra samvinnufélaga
Eins og öllum mun kunnugt
hefir Samband ísl. samvinnu-
félaga verið nú um nokkurt
skeið ein allra umfangsmesta
umboðs- og heildsöluverzlun hér
á landi.
Aðalstarfsemi ■ Sambandsins
að sjá um sölu á hverskyns af-
urðum landsmanna, og reka '
gagnkvæma heildsöluverzlun. !
Og þennan 'síðasta áratug hefir ■
það víkkað starfsvið sitt mjög, !
svo nú eru rekin af Samband- |
inu fimm iðnaðarfyrirtæki. Er
sá þáttur í sögu Sambandsins '
svo merkilegur að nauðsyn ber
til að almenningur viti sem '
gerst þar um. Verður hér
minnst á hvert þetta fyrirtæki
stuttlega og iðngreinar þeirra.
Klæðaverksmiðjan Gefjun,
sem er þjóðkunnugt fyrirtæki,
keypti Sambandið árið 1931.
Jókst framleiðsla verksmiðj-
unnar stórkostlega strax á !
fyrsta ári, og á þrem árum
hefir ullarvinnsla hennar tvö-
faldast. Þykir rétt að setja hér
nokkrar tölur til skýringar:
1925 er nnnið úr 51,284 kg. ullar
1928 —
1929 —
1930 —
1931 —
1932 —
1933 —
— 45,790
— 40,494
— 40,243
— 53,701
— 63,265
— 85,807
Síðustu árin áður en Sís
keypti verksmiðjuna (en Sís
keypti verksmiðjuna 1931), var
mesta dúkavinnsla árið 1925.
Þá voru unnir 16,335 metrar
af dúkum, en árið 1933 24,028
metrar.
Saumastofur þær, er Sam-
bandið kom upp á Akureyri og
hér í Reykjavík hafa gengið
vel, og sökum reksturs þeirra
hefir selst mikið meira af dúk-
um' en áður hafði verið.
Sérstök ástæða þykir til þess
að benda mönnum á þá merki-
legu nýjung, er verður í rekstri
Gefjunar á þessu yfirstandandi
ári, sem er sú, að keyptar hafa
verið kamgams kembi- og
spunavélar, sem ætlað er að
taki til starfa í haust, og verða
því á næstkomandi vetri unnir
kamgamsdúkar í verksmiðj-
unni. Einnig hafa verið keypt-
ar nýtízku ullarþvottavélar.
Framleiðsla verksmiðjunnar
síðastliðið ár var sem hér
segir:
Kembdur lopi 45.859 kg.
Kembd plata 627 kg.
að stjómað sé með lögum, en
ekki hnefarétti.
En sílk undanbrögð eru
skammgóður vermir. Það þýðir
ekkert að fela óhreinu börnin.
Það er hægt að skipa nazist-
unum að þegja og loka fánalið-
ið inni í Kveldúlfsporti á með-
an aðkomumennirnir eru í bæn-
um. En það er ekki hægt að
fela þau í kosningunum 24.
júní.
Framleiddir fullunnir dúkar
24.028 m.
Pi-jónaband til sölu og heim-
ilisiðnaðar 2756 kg.
Um 50 manns unnu við verk-
smiðjuna.
Sútunarverksmiðja Sambands-
ins var stofnuð 1923, og var
rekin þá nokkur ár, en um
skeið var hún ekki stai’frækt
sökum mikið hækkandi gæru-
verðs.
Frá árinu 1930 heíir verk-
smiðjan verið starfrækt, og eru
árlega afullaðar 60.000—90.000
gærur, og auk þess nokkuð loð-
sútað af gærum og skinnum,
bæði fyrir útlendan og inn-
lendan markað.
í verksmiðjunni starfa ca.
10 manns frá 1. okt. til maí-
loka.
Gamahreinsunarverksmiðju
hefir Sambandið látið starf-
rækja mörg undanfarin ár,
nema hvað veturinn 1931—32
var starfsemin felld niður sök-
um markaðsörðugleika. 1 verk-
smiðjunni vinna um 40 manns
yfir veturinn og eru hreinsað-
ar þar frá 200.000 til 400.000
garnir árlega.
Sápuverksmiðjan „Sjöfn“ tók
til starfa árið 1932. Eru þar
framleiddar allar tegundir
sápu, svo sem krystalsápu,
grænsápu, sólsápu, og margar
tegundir handsápu. Ennfremur
er þar framleitt gólfbón, hár-
þvottalögur, andlitsáburður,
skósverta og skógula o. fl. Yör_
ur þessar fást hjá öllum kaup-
félögum landsins og mörgum
kaupmönnum, og í heildsölu
hjá Sambandinu eða verksmiðj-
unni á Akureyri.
Sama ár stofnaði Sambandið
Kaffibætisverksmiðjuna Freyju
á Akureyri, og hefir hún starf-
að síðan. Við þessar tvær síð-
asttöldu verksmiðjur vinna um
20 manns.
Iðnsamband byggingarmanna í Reykjavík.
Umsókn
óskast frá manni, með þekkingu á iðnaðarmálum, til að veita
forstöðu skrifstofu Iðnsambands byggingarmanna í Reykja-
vík. Byrjunarlaun kr. 400,00 á mánuði. Umsóknir ásamt upp-
lýsingum sendist fyrir kl. 2 e. h. 1. maí n. k. til
formanns skrifstofunefndar:
HELGA GUÐMUNDSSONAR, málarameistara,
Ingólfsstræti 6.
Kj örskrá
til alþingiskosninga í Hafnarfjarðarkaupstað er gildir
fyrir tímabilið frá 23. júní 1934 til 22. júni 1935, liggur
frammi almenningi til synis á skrifstofu minni, Vestur-
götu 6, frá 24. apríl til 22. maí næstkomandi.
Kærur yfir kjörskránni skulu komnar á sama stað
eigi síðar en 3. júní n. k.
Bæjarstjórinn i Hafnarfirði,
20. apríl 1934.
Eimil Jónsson.
Það hlýtur öllum að verða
ljóst, hversu stórt spor Sam-
bandið hefir stígið með áður-
töldum iðnrekstri, bæði til
fyllri nýtingar á íslenzkum af-
urðum á erlendum markaði, og
ekki síður til framleiðslu verð-
mæta er ella þyrfti að kaupa
utanlands frá.
Því þykir hlýða, nú þegar ís-,
lenzka vikan stendur yfir, að
benda mönnum á þessar, og
aðrar, greinar íslenzks iðnaðar,
og hvetja menn til þess að gera
allt árið að „íslenzkri viku“
með því ætíð að styðja þann
iðnað er íslenzkir staðhættir
gera okkur kleift að starf-
rækja.
íslenzka vikan er prófsteinn
á okkur öll, hvort við erum svo
hagsýn að styðja íslenzkan iðn-
að á þann hátt að andvirði þess
er við þurfum að kaupa, geti
orðið að veltufé í landinu, og
á þann hátt skapað atvinnu
handa okkur sjálfum.
Lækjartorgi 1 Sími 4260
Forstjóri: Jón Olatsson
Býður yður hagkvæmar líftryggingar. —
Spyrjist fyrir um ýmsar líftryggingar á
skrifstofu félagsins eða hjá tryggingamanni
þess
Kristjáni Pétnrssyni
U Vestnrgrötu 67
* J á )Mtík
iStftttffefaHfretttftttt en (ihttt
34 Jb»■ i 1500 ^ttgkjAvíii
Býður ekki viðskiptavinum sínum annað en fullkomna kem-
iska hreinsun, litun og pressun.
(Notar eingöngu beztu efni og vélár).
Komið því þangað með fatnað yðar og annað tau, er þarf
þessarar meðhöndlunar við, sem skilyi'ðin eru bezt og reynsl-
an mest.
Sækjum og sendum.
Símanúmer
á lækningastofu minni er
3020
Jónas Sveinsson, læknir
^ MV
Allt ineð íslenskum skipiwi! •§*]
Mynda og pammaverzl.
FREYJUG. 11 Sími 2105
ÍSLiENZK MALVERK
1,11' Ipm
Esja
fer héðan í Austfjarðaferð
mánudaginn 30. þ. m. kl.
8 síðdegis.
Vörum verður veitt móttaka
á morgun og til hádegis á
laugardag.