Nýja dagblaðið - 26.04.1934, Page 4
4
-•-'■'Tpiiy
n
t » A
DAOBLABIB
Annáll
Frá hallærisfundlnum. Mbl. skýr-
ir frá því í gœr, að þeir Óskar
Clausen, Jón á Akri, Alfred Jónas-
son tollþjónn og Jóhannes oddviti
i Bolungarvík hafi flutt ræður um
trúmál og uppeldi á landsfundi
íhaldsmanna í fyrradag. Að lokn-
um umræðum var aamþykkt „í
einu hljóði“ tillaga frá Gísla
Sveinssyni um mótmæli gegn „nið-
urrifsmðnnum og trúleysingjum".
Jóhannes fyrv. bæjaríógeti stýrði
sumkomunni í fyrradag.
Gestir í bænum. Kristinn Stef-
ánsson skólastjóri Reykhoiti, por-
gils Guðmundsson kennari sst,
Halldór Ólafsson bóndi Fögru-
brekku, Jón Tómasson bóndi
Hnitatungu, Sæmundur Oddsson
bóndi Garðsauka.
Nova fór héðan i gærkveldi, og
fiafði meðferðis m. a. yfir 50 tonn
aí vörum úr Reykjavík til hafna
út um land. Bæði strandferðaskip
ríkisins, eru þó rétt ófarin héðan.
Fer annað í kvöld og hitt um
næstu helgi. En kaupsýslumenn
Reykjavíkuríhaldsins hirða ekki
um að halda flutninginn til þeirra,
jafnvel þó engu muni á tíma eins
og nú. Samhliða auglýsa þeir svo
stórum stöfum í blaði sínu: Notld
íslenzk skip. Og nú á að heita „ís-
lenzk vika“. En einlægni ihalds-
munna í því að efla íslenzkar sigl-
ingar kemur álika vel fram nú og
í fyrra, þegar allur íhaldsflokkur-
inn á Alþingi greiddi atkvæði á
móti því að setja löggjöf íslenzku
skipunum til vamar.
AUar nefndir á íhaidsfundinumi
áttu að skila álitum i gær, sagði
Mbl., og öll nefndarálitin áttu að
vera útrædd fyrir kvöldið. þá ætl-
aði Varðarfélagið að gefa fundar-
mönnum kaffi. Eftir þessu heíir
ekki verið gert ráð fyrir löngum
umræðum um hvert nefndarálit
Svo gengur það til, þar sem „afla-
klæmar" ráðal
Af veiðnm. komu i gær Arin-
björa hersir, Belgaum, Ólafur,
Geir, Otur, Karlsefni og Tryggvi
gamli, allir með góðan afla
prír transkir togarar komu í gæi‘
að fá sér kol og salt, auk þess var
einn þeirra lekur, og þuríti að-
gerðar við.
Brezka olíuskipið íór í gær, einn-
ig franska efitrlitsskipið sem legið
hefir hér inni nokkra daga.
MeSal farþega með „Nova“ norð-
ur um land í fyrrakvöld vora:
Júlíus Havsteen sýslumaður og
Einar J. Reynir til Húsavíkur,
Pétur Lárusson og Pétur Ólafsson
til Akureyrar.
Skipafréttir. Gullfoss var í gær á
leið til Vestmannaeyja frá Leitli.
Goðafoss fer til útlanda á morgun.
Brúarfoss fór frá Leith í fyrra-
kvöld á leið til Kaupmannahafnar.
Dettifoss var í Hamborg í gær.
Lagarfoss kom til Djúpavogs í
gærmorgun. Selfoss var hér í
Reykjavík í gær.
Framboð Alþýðuilokksmanna i
Snæfellsness- og Hnappadalssýslu
hefir v.erið ákveðið. Verður Jón
Baldvinsson þar í kjöri. í Vestur-
Skaptafellssýslu bjóða þeir fram
Óskar Sæmundsson formann verk-
lýðsfélagsins í Vík.
Með Súðinni komu að norðan og
vestan síðast um 70 farþegar. Með-
al þeirra voru pórhallur Bjöms-.
son frá Kópaskeri, Gunnlaugur
Magnússon á Ósi, Magnús Jónas-
son frá Staðarfelli með frú, og
Hálfdan Einarsson frá Stykkis-
hólmi.
Iðnsamband byggingannanna í
Reykjavík auglýsir nú í blaðinu
eftir manni með þekkingu á iðn-
Trésmiðafélag Reykjavíkur
0 Ódýrn 0
auglýsingarn&r.
aðarmálum til að veita skrifstofu
Iðnsambandsins forstöðu.
I fjarveru Hermanns Jónassonar
hefir Gústav Jónasson verið settur
lögreglustjóri.
Doktor í stjömuiræðL Með Goða-
fossi síðast kom frá þýzkalandi
dr Trausti Einarsson, ættaður héð-
an úr Reykjavík. Hefir hann
stundað vísindanám í þýzkalandi,
nær því samfleytt síðastliðin 5 ár.
Tók hann próf í vor við háskól-
ann i Göttingen og varði þar
doktorsritgerð sína um sólarrann-
sóknir.
*
Framboð. Morgunblaðið skýrir
frá því, að eftirfarandi framboð
séu ákveðin af hálfu íhalds-
manna: í Gullbringu- og Kjósar-
sýslu Ólafur Thors, í Ámessýslu
Eiríkur Einarsson og Ludvig
Norðdahl læknir. í Vestmanna-
eyjum Jóh. þ. Jósefsson. í Rang-
árvallasýslu Jón Ólafsson og Pét-
ur Magnússon. í V.-Skaítafells-
sýslu Gísli Sveinsson. f Austur-
Skaftnfellssýslu Stefán Jónsson
bóndi r Hlíð í Lóni. í N.-þing-
eyjarsýslu Sveinn Benediktsson. f
S.-þingeyjarsýslu Kári Sigurjóns-
son. Á Akureyri Guðbrandur ís-
berg. í Eyjafjarðarsýslu Garðar
þorsteinsson og Einar Jónasson á
Laugalandi. í Skagafirði Magnús
.Guðinundsson og Jón Sigurðsson
á Reynistað. í A.-Húnavatnssýslu
Jón Pálmason á Akri. f Stranda-
sýslu Kristján Guðlaugsson cand.
jur. í Dalasýslu þorst. þorsteins-
son sýslum. f Snæfellsn. og
Hrmppadalssýslu Thor Thors. í
Borgarfjarðarsýslu Pétur Ottesen.
Sundlaugin í Reykholti er vafa-
laust bezta sundlaug landsins. Vatn-
ið er tært og alls hreinlœtis gætt,
enda hefir varla orðið vart við
eyrnaveiki þar tvo síðustu vet-
urna. Flestir nemenda þar verða
prýðilega vel syndir og margt er
þar um ágæta sundmenn. Á ný-
iega afstöðnu vorprófi urðu þess-
ir hlutskarpastir á bringusundi:
48,40 m synti Guðjón Ingimundar-
son á 37,9 sek., en þórdís þor-
kelsdóttir á 43,5 sek. 500 m synti
Hermann Guðmundssorí á 8 mín.
og 57 sek., en þórdís þorkelsdóttir
á 10 mín. og 17 sek. 1000 m
synti Hermann Guðmundsson á
18 mín. og 43% sek., en þórdis
þorkelsdóttir á 21 mín. og 18 sek.
— 2000 m synti Guðjón Ingimund-
arson á 40 mín. og Ásgeir Bjama-
son á 43 min. og 56 sek.
Eldur í enskum togara. Enski
togarinn Wimpole frá Grimsby
kom hér inn seinnipartinn í gær,
með eld í kolageymslunni bak-
iiorðsmegin. Hafði kviknað í tog-
aranum úti á sjó fyrir sólarhring.
• Ilöfðu skipverjar dælt sjó á eld-
inn, en ekki tekizt að slökkva. Var
slökkviliðið kallað, og mun því,
eltir nokkurn tíma hafa tekizt að
kæfa eldinn. Til frekara öryggis
var þó skilinn eftir maður úr
slökkviliðinu í togaranum með
nauðsynlegan útbúnað ef reynast
kynni að eldurinn væri ekki
slökktur. Nánari fregnir höfðu
blaöinu ekki borizt, er það fór í
prentun.
Flokkakeppni f fimleikum um
farandbikar Oslo-Tumforening fer
fram í fimleikasal Nýja bama-
skólans i kvöld kl. 8. Að þessu sinni
tekur aðeins einn flokkur þátt í
keppninni, og er hann frá Glimu-
fél. Ármann, en bikarinn vinnst
því aðeins að flokkurinn fái eigi
Á fundi Trésmiðafélags Reykjavíkur 16. apríl 1934 var
svohljóðandi tillaga samþykkt með samhljóða atkvæðum:
„Félagsmenn mega ekki vinna við frágang á hurðum og
gluggum, sem hafa verið unnir utanlands. Undanskilin eru
hurðir og gluggar, sem iðnfyrirtæki hér á landi geta ekki
framleitt".
Þetta tilkynnist hérmeð.
STJÓRNIN.
minna en 350 stig. Stjómandi er
Jón þorsteinsson, fimleikakennari,
og dómendur verða þorgils Guð-
mundsson íþróttakennari í Reyk-
holti, Björgúlfur Ólafsson læknir
og Hallsteinn Hinriksson fimleika-
kennari. Að gefnu tilefni tilkynn-
ist, að þar sem áhorfendasvæði er
mjög takmarkað geta eigi aðrir
fengið aðgang að keppninni en
þeir sem boðnir eru.
Jökulfararnir
25./4. FtJ.
Jökulfaramir bjuggust við
að leggja á Vatnajökul í morg-
un. Útvarpið átti tal við Kálfa-
fell og var sagt að þeir hefðu
lagt upp þaðan í gærmorgun,
og vom í för með þeim 7 menn
úr sveitinni. Tveir voru ráðnir
í að fara með þeim alia leið til
eldstöðvanna, þrír ætluðu að
bíða við jökulbrúnina 2 daga
og einn þeirra ætlaði ef til vill
alla leið, en 2 komu til baka
með hestana í gærkvöldi.
Flutning höfðu jökulfaramir á
6 áburðarhestum.
1 leiðangrinum er sem fyr
er getið, þeir dr. Niels Nielsen,
Keld Milthers magister og Jó-
hannes Áskelsson náttúmfræð-
ingur. Áður en lagt var af stað
í leiðangurinn frá frá Kálfafelli
veiktist Keld Milthers, og fór
ekki með leiðangursmönnum til
eldstöðvanna að þessu sinni.
Hann er nú á Breiðabólsstað og
var sagður kominn til heilsu.
Frá EyfirðiRgum
Sýslufundur Eyfirðinga var
haldinn á Akureyri 10.—13.
þ. m.:
Samþykkt var að veita Ól-
afsfjarðarhreppi leyfi, sam-
kvæmt beiðni, til að virkja
Garðsá til framleiðslu raf-
magns handa ólafsfjarðar-
kaupstað. Einnig var samþ.
að ábyrgjast allt að 160 þús.
kr. lán til virkjunarinnar.
Samþykkt var að greiða úr
sýslusjóði 5000 kr. til björgun-
arskútu, er haldið verði út frá
Siglufirði. Greiðist það fram-
lag með 1000 kr. árlega á ár-
unum 1935—1939.
Þá var og samþykkt að
skora á ríkisstjóm og næsta
alþingi, að láta reisa í sýslunni
heimavistar hússtjómarskóla
fyrir minnst 25 nemendur, og
veita nægilegt fé á fjárlögum
til reksturs skólans. Ennfrem-
ur var ákveðið að leggja til
slíkrar skólastofnunar kvennar
skólasjóð sýslunnar að upphæð
Beztn
rakblöðin
Þunn, flug-
bíta. Raka
hina skegg-
sáru tilfinn-
ingarlaust. -
Kosta að_
eins 25 aura
Fást í nær öllum verzlunum
bæjarins. — Lagersími 2628.
Pósthólf 373.
Tapað-Fundið
Það ráð liefir fundizt, og
skal almenningi gefið, að bezt
og öruggast sé að senda fatn-
að og annað til hreinsunai- og
litunar í Nýju Efnalaugina.
Lopakembupoki og merktur
skíðasleði í óskilum á Skóla-
vörðustíg 9.
M a r c o n i
seztagur
Faðir loftskeyta
og útvarps heiðradur
London kL 18 25/4. FÚ.
Marconi er sextugur í dag.
Á alþjóðafundi sambands
félaga, er reka loftskeytastöðv-
ar í skipum (Marine Wireless
Association), sem haldinn hef-
ir verið í Róm, var samþykkt
að gera 25. apríl að Marconi-
degi. Á fundi þessum voru full-
trúar frá 50 þjóðum.
Aukakosniag
í Englandi
London kl. 18 25/4. FÚ.
Úrslit aukakosninganna í
North-Hammersmith vom birt
í gærkvöldi. Frambjóðandi
verkalýðsflokksins, I. R. West,
sigraði með 3516 atkvæða
meirihluta. Andstæðingur hans
var íhaldsmaður fylgjandi þjóð-
stjóminni. I allsherjarkosning-
unum fyrir þremur árum! vann
frambjóðandi Ihaldsins með
7000 atkvæða meirihluta.
15 þús. kr. og auk þess 10 þús.
úr sýslusjóði. Var kosin nefnd
til þess, í samvinnu við kvenfé-
lög sýslunnar, að gangast fyr-
ir fjársöfnun til skólans. í
nefndina vom kosnir: Davíð
Jónsson Kroppi, Stefán Stef-
ánsson Vargá og Valdimar
Pálsson Möðmvöllum.
Kaup og sala
Saltfiskbúðin er vel birg af
nýjum fiski. Sími 2098.
Dívanar bestir í bænum.
Lægra verð en áður. Hús-
gagnavinnustofan Tjamarg. 3.
Til sölu lítið einbýlíshús í út-
jaðri bæjarins (Kirkjusandi).
Uppl. kl. 11—12 f. h. og 8—9
e. h. Steingr. Stefánsson, Óð-
insgötu 4. Sími 2769._________
STÓRHÖGGIÐ
kjöt af dilkum og fullorðnu fé
fyrirliggjandi.
S. 1. S. — Sími 1080.
Nokkur ný og vönduð eikar-
skrifborð til sölu á 125 kr. á
Njálsgötu 80 (kjallaranum).
Sel heimfluttan húsdýraá-
burð. Valdemar Jónsson Hverf-
isgötu 41.
Taða, vel verkuð, til sölu á
11 aura kg. A. v. á.
Ilmvötn, hárvötn og hrein-
lætisvörur fjölbreytt úrval hjá
Kaupfélagi Reykjavíkur.
Nýleg reiðhjól til sölu, ódýrt.
Nýja reiðhjólaverkstæðið,
Laugaveg 79.
Tilkynningar
I. O. G. T.
Ungmennastúkan Edda nr. 1
heldur skemmtun á fimmtud.
26. apríl kl. 9. Skemmtiatriði:
Dans og fleira. Aðgöngumiðar
verða seldir á fimmtudag frá
5—9.
Lauritz Jörgensen málara-
meistari VesturvallagÖtu 7 tek-
ur að sér allsk. skiltavinnu,
utan- og innanhúss málningar.
..Áður en þér flytjið í nýja
húsnæðið, skuluð þér láta
hreinsa eða lita dyra- og
gluggatjöld, fatnað yðar eða
annað, sem þarf þess með, hjá
Nýju Efnalauginni. Sími 4263.
Húsnæði
Herbergi til leigu helzt fyrir
stúlku, Bragagötu 29 A, mið-
hæð.
Sumarbústaður nálægt Rvík
óskast til leigu. Uppl. í síma
2146.
Lítil íbúð (2 herbergi og eld-
iiús) er til leigu í nýtízku húsi
við Sóleyjargötu frá 14. maí.
Tilboð sendist afgr. Nýja dag-
blaðsins merkt 70.
Maður í fastri stöðu óskar
eftir tveim herbergjum og eld-
húsi í suður- eða vesturhluta
bæjarins. Tvennt í heimili.
Uppl. í síma 2211.
Herbergi til leigu nú þegar
eða 14. maí fyrir einhleypa.
Uppl. í síma 2898 milli 7—8.
Þægileg og sólrík tveggja
herbergja íbúð er til leigu ut-
anvert í bænum, nú strax eða
14. maí. Tilboð óskast sent á
afgr. blaðsins, sem fyrst,
merkt „tbúð“.
Stór kjallarastofa til leigu.
I-Ientug til húsgagnageymslu o.
fl. Upplýsingar í síma 3687 og
3146.