Nýja dagblaðið - 17.06.1934, Síða 3
N Ý J A
DA GBLAÐIÐ
S
NtJA DAGBLAÐIÐ
Boðskapur
æðstaprestsins
„JJeir sem aldrei njóta
frelsis hætta að vera menn,
en þokast niður á sama stig
sljóleikans og vanaþræl-
dómsins og húsdýrin standa
á“.
„Nái flokkur okkar völd-
um eftir næstu kosningar,
verður hann að taka til fyr-
irmyndar þær þjóðir, sem
rekið hafa rauðu hættuna aí
höndum sér“
(Knútur Amgrímsson
í Stefni).
Þetta hvorttvegg'ja boðar
æðsti prestur íhaldsins þjóð-
inni í sömu greininni. Það er
sagt, að -frelsisránið geri menn
að húsdýrum, í sömu andránni,
og það er tilkynnt, að íhaldið
ætli að fara að dæmi þeirra
þjóða, „sem rekið hafa rauðu
hættuna af höndum sér“.
Þessi lönd, sem hér er átt
við, er Þýzkaland, Italía og
Austurríki. Þar hefir mestur
hluti þjóðarinnar verið hneppt-
ur í fjötra kúgunar og ófrels-
is og beygður til að láta að
vilja fámennrar, mannúðar-
lausrar og eyðslusamrar yfir-
stéttar.
„Rauða hættan“, sem íhalds-
menn tala um eru Framsókn-
armenn, jafnaðarmenn og
kommúnistar. Það er þó naum-
ast, nema tveir þeir fyrst-
nefndu, sem íhaldið hefir
ástæðu til að óttast. Þegar tal-
að er um, að reka „rauðu
hættuna“ af höndum sér er
fyrst og fremst átt við þá.
Það er við liðsmenn þeirra
flokka, sem telja vel helming
þjóðarinnar, sem1 á að beita
harðstj óminni, undirokuninni
og píslunum, að hætti þeirra
þjóða, „sem rekið hafa rauðu
hættuna af höndum sér“. Það
eru þessir menn, rúmur helm-
ingur þjóðarinnar, sem æðsti
presturinn tilkynnir, að eigi að
búa við ófrelsi og „þokast
niður á sama stig sljóleikans og
vanaþrældómsins og húsdýrin
standa á“.
1 kosningunum, sem nú fara
í hönd er barizt um mörg stór
og afdrifarík mál. Það er bar-
izt um atvinnumálin, fjármálin,
skattamálin, menningarmálin,
réttarfarsmálin. Það er barizt
urh viðreisn og eyðileggingu,
úrræði og úrræðaleysi, rétt-
læti og ranglæti. En hörðust
og þýðingarmest verður þö
baráttan um frelsið, þar sem
Útgefandi: „Blaðaútgáfan h.f "
Ritstjóri:
Gísli Guðmundsson,
Tjarnargötu 39 Sími 4246.
Ritstjómarskrifstofur:
Laugav. 10. Símar 4373 og 2353.
Afgr. og auglýsingaskrifstoía:
Austurstræti 12. Sími 2323.
Áikriftargj. kr. 2,00 á mámiSi.
í lausasölu 10 aura oint.
Prentsmiðjan Acta.
Sildarbomba
Alþýðubladsras
Þann 14. þ. m. spyr Alþýðu-
blaðið um það, hver muni
verða svör flokkanna um end-
urgreiðslu síldartollsins í ár og
sama dag berst formanni mið-
st j órnar Framsóknarf lokksins
bréf frá Alþýðusambandi ís-
lands um þetta efni. Og svo
segir í Alþýðublaðsgreininni: i|
„Hann (þ. e. Framsóknar- ;
flokkurinn) hefir heldur ekki ||
svarað“. En hvernig gat mið-
stjórn flokksins svarað þessu
erindi áður en henni barst
bréfið í hendur? Þetta eru
Iilægileg mannalæti hjá Al-
þýðublaðinu, en það gætir
þess ekki, að með því að gefa
í skyn að svar miðstj órnarinn-
ar hafi dregist, þá vill blaðið
láta líta svo út sem bréf Al-
þýðusambandsins hafi verið
sent út fyrir löngu. Alþýðu-
blaðið viðurkennir með þessu
það, sem allir hljóta að sjá, að
ef Alþ.samb. hefði verið alvara
með að hrinda málinu áfram
og fá svör flokkanna, þá
hefði það átt að taka málið
upp fyr og vera löngu búið að
senda fyrirspurn sína. Nú er
málið borið fram í ótíma —
örfáir dagar til kosninga — og
miðstjórnir mun bresta heim-
ild til þess að binda hendur
þingmanna þeirra, sem nú
verða kosnir. — Málið er tek-
ið upp í ótíma, látalætin eru
auðsæ og Alþýðublaðið er að
leika sér að þessu þýðingar-
mikla máli fyrir kosningar og
nota það sem „kosninga-
bombu“.
Alþýðublaðinu er það full-
ljóst, að það getur ekki búizt
við svari fyrir kosningarnar.
„Annars er hitt líklegra, að
miðstjórn þess flokks (Fram-
sóknarflokksins) svari engu“,
segir blaðið. Það veit, að ekki
er hægt að taka afstöðu til
málsins fyrir kosningar.
Svo notar Alþýðublaðið
þetta mál til þess að kasta
hnútum að Framsóknarflokkn- j
um fyrir áhugaleysi hans í '
síldarmálum. Út af þessum
fyrirliggur skýlaus yfirlýsing
frá stærsta stjómmálaflokkn-
um um það, að nái hann völd-
um, ætli hann að þoka stjórn-
málaandstæðingum sínum,
meirihluta þjóðarinar „á sama
stig sljóleikans og vanaþræl-
dómsins og húsdýrin standa
á“.
Nú er það kjósendanna að
svara, hvort þeir aðhyllast
frelsisránsstefnu íhaldsins,
hvort þeir vilja að Island sigli
í kjölfar Þýzkalands og Ítalíu,
hvort þeir vilja gefa íhaldinu
aðstöðu til þess að þoka meiri-
hluta þjóðarinnar á sama „stig
slj óleikans og vanaþrældóms-
ins sem húsdýrin standa á“.
Þeir kjósendur, sem aðhyllast
það ekki, en vilja vernda frels-
ið, lýðræðið og jafnrétti þegn-
anna, þeir skipa sér um höfuð-
andstæðing íhaldsins, Fram-
sóknarflokkinn.
árásum er rétt að minna á það,
að það er einmitt Framsóknar-
flokkurinn, sem hefir unnið
mest fyrir síldarútveginn og
skipulagt hann svo, að nú er
síldin sæmilega seljanleg og
tryg'g verzlunarvara. Það var
Magnús Kristjánsson ráðherra
Framsóknarflokksins, sem með
einhuga stuðningi og skilningi
flokksins hratt fram byggingu
síldarverksmiðjunnar á Siglu-
firði, gegn alveg óskiftri and-
stöðu íhaldsflokksins. Það var
F ramsóknarflokkurinn, sem
lagði samvinnugrundvöllinn
fyrir vinnslu og sölu á síld-
inni, sem hefir reynzt svo vel,
að nú er ríkið að láta reisa
aðra síldarverksmiðju og bæj-
arfélög og einstaklingar að
reisa síldarverksmiðjur á fleiri
stöðum umhverfis landið. Og
allar hlíta þessar- nýju síldar-
verksmiðjur sama skipulagi og
fyrsta síldarverksmiðjan, sem
Framsóknarflokkurinn lét
reisa á Siglufirði.
Alþýðuflokksþingmennirnir
studdu þetta mál, en þeir
höfðu enga forustu í því. En
án stuðnings Alþýðuflokks-
þingTnannanna hefði málið ekki
náð fram að ganga, svo hat-
röm var ar.dstaða íhaldsins.
Fyrir þennan stuðning eiga Al-
þýðuflokksþingmennirnir þakk-
ir skildar, en bezt er fyrir Al-
þýðublaðið að geyma allar
hnútur um áhugaleysi Fram-
sóknai'flokksins í þessum mál-
um, þangað til Alþýðuflokkur-
inn hefir unnið sjálfur eitt-
hvað svipað fyrir síldarútveg-
inn og Framsóknarflokkurinn
liefir þegar gert. Vitanlegt er
að allir sjómenn og verkamenn
geta fallizt á þetta.
En eins og Framsóknarflokk-
urinn hefir skapað og skipu-
lagt síldarvinnsluna, eins m.un
flokkurinn framvegis beita sér
fyrir hagnýtum umbótum á
saltsíldarsölunni, bæði með því
að íþyngja ekki með óskynsam-
legum skattaálögum og jafn-
framt leitast við að skapa nýti-
leg skilyrði fyrir síldarsöltun-
ina. Þetta mál þarf bráðrar
úrlausnar.
En svo bætir Alþýðublaðið
því við að flokkui’ þess þurfi
svo sem ekki á liðveizlu Fram-
sóknarflokksins að halda —
því að Alþýðuflokkurinn og
íhaldsflokkurinn muni í sam-
vinnu geta ráðið þessum mál-
um til lykta. Það er því sýni-
legt, að blaðið hyggur gott til
samvinnu við íhaldið eftir
kosningar og má vera að það
viti á emi stærri tíðindi.
Hinsvegar vill Nýja dagblað-
ið taka það nú þegar fram, að
það býst ekki við, að Fram-
sóknarflokkurinn geti tekið
þátt í þessari samvinnu íhalds-
flokksins og jafnaðarmanna-
flokksins né treystir sér til að
leysa síldarsöltunarmálin eða
nokkur önnur mál í samstarfi
við íhaldið.
Kartöflumyglan
Hvernig á að verjast kartöflumyglunni?
1. Með því að velja heppilegt garðstæði.
2. Með því að rækta garðána vel, ræsa þá vel,
vinna þá vel og bæta þá með lieppilegum
áburði, og með því að hirða þá vel.
3. Með því að nota útsæði af þeim tegundum,
sem reynast hraustastar gegn myglunni.
4. Með því að kaupa og nota þau tæki og efni,
sem geta orðið til að hindra eða draga úr
skemmdum af völdum myglunnar.
5. Með því að geyma útsæðið vandlega frá
hausti til vovs.
Vér urðum fyrstir til þess að flytja inn og útbreiða
svo um munaði þær tegundir af útsæði sem hraustastar
eru gegn myglunni. Vér urðum einnig fyrstir til þess
að hafa á boðstólum tæki og efni til þess að verjast
árásum kartöflunlyglunnar.
Höfum ávalt til:
Sprautur til að dreiia vökva — Bordeauxvökva og
Burgundervökva. Verð kr 52.00—85.00
A.K.I. koparsódamjöl til að blanda Burgundervökva
Fýsibelgi tíl að dreifa dufti. Verð: litlir kr. 4,50,
stærri kr. 15,00.
A.K.I. koparsódaduft.
ATV. Tilraunastöð danska ríkisins mælir eindregið með
A.K.I. koparsódadufti til varnar gegn kartöflumyglunni
Látið ekki skeika að sköpuðu með kartöfluræktina
Hafið tæki og efni við hendina til þess að verjast
myglunni. Biðið ekki þangað til það er um seinan.
Sogsvirkjunin ogHengillinn
Ætlar Alþýduflokkuricn að tefja Sogsvirkjunina?
Alþýðublaðið hefir tvo und-
anfarna daga skrifað mjög á-
berandi um hugmynd Gísla
Halldórssonar um hita_ og raf-
magnsveitu úr gufuhverunum
í Henglinum. Sýnilega á
þetta að vera mjög stórt
kosningamál hjá blaðinu og
mun þó sannazt, að málið sé
órannsakað enn, svo hér er
um hreinar ágizkanir að ræða.
Kemur það því einkennilega
fyrir sjónir, þar sem Alþýðu-
flokkurinn héfir hingað til bar-
izt fyrir virkjun Sogsins og
það mál er nú komið svo
langt á veg og nauðsyn virkj-
unarinar svo brýn, að ekki
kemur til mála að stöðva það
mál. Skal það undirstrikað hér
mjög ákveðið, að nú ber að
leggja áherzlu á, að hraða
sem mest virkjun Sogsins.
Jafnvel þótt Alþýðubl. kunni
að álíta að halda beri áfram
með Sogsvirkj unina, kemur
það enganveginn nógu skýrt
fram í þessum skrifum blaðs-
ins, enda tæplega skiljanlegt,
að blaðið styðji svona fast
virkjun Hengilsins, nema því
að eins að það telji álitamál
hvort ekki beri að fresta Sogs-
virkjuninni þangað til rann-
sóknum í Henglinum er lokið.
Hitt er annað mál, að rétt
mun vera að rannsaka hvort
skilyrðin fyrir hitaveitu frá
Reykjum muni vera þau beztu
fáanlegu. — I þessu máli
má ekki endurtaka sig sama
fyrirhyggjuleysið eins og ráð-
ið hefir hjá íhaldinu bæði með
Elliðaárvirkjunina, vatnsveit-
una o. fl„ að hitaveitan verði
þegar í byrjun alveg ófull-
nægjandi. Og því frekar er
þörf á að athuga hitaveitumál-
ið, sem rannsóknir Jóns Þor-
lákssonar og útreikningar hafa
reynst í ýmsum málum í
mesta máta villandi.
Aftur á móti verður að
telja skrif Alþýðubl. mjög
óheppileg á þessum tíma við-
komandi Sogsvirkj uninni. Ekki
sízt ef svo færi, að íhaldið,
sem hefir verið á móti Sogs-
virkjuninni, notaði sér þetta
hik blaðsins til þess að veita
málinu nýja mótstöðu.
Virkjun Sogsins verður að
byrja í sumar og halda henni
tafarlaust áfram þangað til
henni er lokið.
Og þó málið sé fyrst og
fremst mál Reykjavíkur, þá
snertir það líka fleiri staði.
Nágrenni Sogsins og þoi*pin
austanfjalls eiga líka að geta
notið góðs af virkjuninni. Það
eru þarfir margra þúsunda
manna, að málið sé leyst sem
fyrst.