Nýja dagblaðið - 14.10.1934, Síða 3
N Ý J A
DAGBLAÐIÖ
3
Hvar á ieikvangur (Stadion)
Reykjavíkur að vtraP
Borgarstjóri og íorseti í. S. í.
NtJA DAGBLAÐIÐ
Útgefandi: „Blaðaútgáfan h.f.“
Ritstjórar:
Gísli Guðmundsson,
I-Iallgrímur Jónasson.
Ritstjórnarskrifstofurnar
Laugav. 10. Símar 4373 og 2353
Afgr. og auglýsingaskrifstofa:
Austurstræti 12. Sími 2323.
Áskriftargj. kr. l,50ómánuði.
Í lausasölu 10 aura eint.
Prentsmiðjan Acta.
Ihaldið vill tala -
en ekki af viti
í ræðu þeirri, sem fjármála-
ráðherra flutti, er hann lagði
fjárlagafrumv. fyrir Alþingi,
gat hann þess m. a., að and-
stæðingar stjórnarinnar myndu
sjálfsagt hafa sitthvað út á
fjármálatillögur stjórnarinnar
að setja.
En ef þeir gætu ekki bent í
gagnrýni sinni á heppilegri
leiðir, en stjórnin leggur til að
farnar séu, félli gagnrýni
þeirra um sjálfa sig.
Þessi ummæli finnst Mbl.
fram úr hófi óviðeigandi. Að*
þeim íhaldsmönnum beri að
benda á leiðir, jafnframt og
þeir mótmæla stefnu stjórnar-
innar, að þeim beri að flytja
rökhugsað mál? Hvílík regin-
firra. Mbl. hefir bókstaflega
aldrei heyrt annað eins.
Það fer um þetta svofelldum
orðum m. a.:
„Hann (þ. e. fjármálaráðh.)
sagðist fyllilega búast við því,
að hann mætti gagnrýni frá
andstæðingum sínum. Slík upp-
gjöf, slíkt ráðleysi er í raun
og veru svo langt fyrir neðan
allar hellur, að vart er hægt
að fjölyrða um“ (Mbl. 9. okt.).
Hver er nú hugsun blaðsins
og mannsins, sem skrifar
þessa klausu?
í hverju liggur „uppgjöfin“
og „ráðleysið"?
Er það ráðleysi, af stjórn að
búast við gagnrýni andstæð-
inga sinna? Er það ekki ein-
kenni andstöðunnar, að gagn-
rýna?
Mönnum skilst, að á henni
byggist m. a. andstaða í þing-
inu.
Það kann raunar að vera,
að fjármálaráðh. hafi notað
hér of virðulegt orðatiltæki
um1 íhaldið, þegar hann gerir
ráð fyrir gagnrýni frá þess
hálfu.
Með orðinu gagnrýni er átt
við rökhugsaðar athugasemd-
ir og mótmæli.
En það er til annarskonar
mótstaða. Mótstaða hins
glaumháa málæðis. Þóf, sem
ekki hirðir um rök, sem lætur
sig engu skifta skynsamlegar
úrlausnir, sem einungis á sinn
tilgang í gjallandi hrópyrðum
og glamri, er liggiír utan við
svið rökhugsaðs máls.
Og þarna er óneitanlega
form þeirrar mótspyrnu, sem
að ríkisstjórninni snýr.
íhaldinu er boðið upp á að
benda á leiðir, er séu réttari en
þær, sem frumv. stjórnarinnar
fer.
Fyrir nokkrum dögum birti
Mbl. viðtal við Jón Þorláksson
borgarstjóra og Ben. G.
Waage, um það hvar heppileg-
ast væri að byggja leikvang
fyrir Reykjavíkurbæ.
1 því viðtali tjáir borgarstj.
blaðinu, að hann álíti heppileg-
asta staðinn vera sunnan við
skemmtigarðinn við tjörnina,
norðan við Njarðargötu.
Ég hefi verið að bíða eftir
því, að þetta viðtal væri leið-
rétt, því ótrúlegt er annað en
það hafi eitthvað aflagast í
rneðförunum. Borgarstjóri tek-
ur það sem sé fram, að ekki
sé hægt að byggja á þessum
stað af þeim ástæðum, að frá-
rennsli verði ekki fengið það-
an. Af því leiðir fyrst og
fremst það, að miklum erfið-
leikum verður bundið að
þurka landið, en það er fyrsta
skilyrðið til þess að þétt og
sterk rót fáist á grasvöllinn.
1 öðru lagi fylgja leikvangi ó-
hjákvæmilega ýmsar bygging-
ar, sem ekki verða starfræktar
án frárennslis.
Næst á eftir viðtali borgar-
stjóra kemur svo viðtal við
forseta í. S. I., þar sem hann
lýsir yfir því, að hann hafi í
mörg ár haft augastað á þess-
um bletti, sem sérstaklega á-
kjósanlegum fyrir leikvang. 1
næsta blaði þakkar svo Kjart-
an fyrir, eins og hann er van-
ur, því hann er 'þakklátur. Er
Og málgagn íhaldsins tryll-
ist af vandlætingu.
Magnús Jónsson, Öl. Thors og
m. fl. íhaldsmanna tala sig
móða og „dauða“ um frumvarp
stjórnarinnar. Þeir t. d. vilja
ekki hækkaða tolla á lítt þarfar
munaðarvörur, kæra sig lítið
um afnám gengisviðauka á
kaffi og sykri, finnst fátt um
lækkuð eða afnumin útflutn-
ingsgjöld á framleiðsluvörum
landsmanna og tapa nær stjóm
á sjálfum sér, þegar minnst er
á hátekju. og stóreignaskatt.
En séu þeir minntir á að benda
þá á aðrar réttlátari leiðir,
snýst málgagn þeirra til stjórn.
lausrar reiði. Að íhaldið færi
að benda á leiðir til úrlausnar!
Skárri er það nú ósvífnin.
Ályktanirnar af framkomu
Mbl. og íhaldsmanna í þinginu
hljóta því að verða þessar:
Þeir vilja hafa takmarka-
lausan ræðutíma, en þeir stand.
ast ekki reiðari, en ef þeim er
bent á að vel sé viðeigandi að
þeir hagi orðum sínum af viti
og af velvilja til þeirra mála
þjóðarinnar, sem bíða skjótra
og hagfeldra úrlausna.
Þeir vilja tala flaumósa og
óhugsað, en ekki gagnrýna, þ.
e. rökhugsa.
þetta hvorttveg'gja að vísu óá-
nægjulegt fyrir íþróttamenn,
en þó varla til annars en að
brosa að því, því vonandi verð-
ur það ekki málefninu til
tjóns.
Hvar á að byggja Leikvang?
Þar sem telja má nú líklegt
eða jafnvel víst, að mjög bráð-
lega verði hafizt handa um
það, að byggja íþróttavelli og
ef til vill leikvang hér í bæn-
um, þá verður það að teljast
mjög æskilegt, að sem flestir
láti til sín heyra um það,
hvar eigi að byggja þessa velli.
Þess vegna ætla ég að gera
grein fyrir minni skoðun á
þessu máli, með fáum orðum,
þó að tillögur mínar geti ekki
orðið svo ákveðnar og ljósar,
sem ég hefði kosið, af því að
það land, sem ég tel bezt fall-
ið til þessa, er ókortlagt.
Það er mitt álit, að bærinn
éigi sem allra fyrst að ákveða
völlunum stað, og taka all-
stórt land til þessa, frekar of
stórt en of lítið, því hér á ekki
að byggja til bráðabirgða,
heldur þannig, að það verði
viðunanlegt um langa framtíð,
því þetta hlýtur að kosta mik-
ið fé og taka langan tíma. Má
í því sambandi benda á, að í-
þróttavöllurinn á Melunum,
sem nú er notaður, kostaði að
minnsta kosti 60—70 þúsund
krónur.
Sá staður, sem ég álít bezt
til þessa fallinn, er, eins og ég
hefi áður bent á, vestan við
Öskjuhlíðina. Vil ég leggja til,
að vegur verði lagður frá
Laufásvegi suður að Naut-
hólsvík, og austan þess vegar
verði vellirair byggðir. Skal
ég gera nánar grein fyrír
þessari hugmynd minni í eft-
irfarandi línum. •
1. Sjóbaðstaður. Við Naut-
hólsvík sé byggður sundskáli
úr steinsteypu, og verði þar
sjóbaðstaður, en nokkurt land
meðfi'am sjónum afgirt, þar
sem komið sé fyrir sólbaðs-
skýlum við sjóinn, en þar upp-
af verði grasvöllur, til af-
nota fyrir baðgesti.
2. íþróttavellir og leikvellir.
Norðan við þetta svæði, en
austan hins fyrirhugaða vegar,
verði ákveðið allstórt land
fyrir íþróttavelli og leikvelli,
tii afnota fyrir íþróttafélög og
skóla bæjarins. Ætlast ég til,
að einstök félög og skólar hafi
umsjón með þessum völlum,
og leggi fram vinnu við að
byggja þá, eftir nánari ákvæð-
um, sem viðkomandi félög og
skólar koma sér saman um við
bæjarstjóm.
3. Barnagarður. Það er orð-
ið ljóst fyrir öllum meginþorra |
bæjarbúa, þvílík knýjandi |
nauðsyn það er, að komið verði |
upp allstóru dagheimili fyrir
böm, þar sem foreldrar geti
komið börnum sínum fyrir á
um sumartímann, á
heilnæmum og góðum stað
utanbæjar. Bömin eiga að geta
átt þess kost, að vinna ein-
hver störf við sitt hæfi, ein-
hvern tíma dags, undir stjórn
góðra kennara eða annara þar
til hæfra manna, þarf því all-
stórt land fyrir þetta heim-
ili. Sýnist mér að góður staður
væri fyrir það austan íþrótta-
vallanna og sunnan í öskju-
hlíðinni.
4. Leikvangur (Stadion). —
Norðan við íþróttavellina kæmi
svo leikvangur. Væri hægt að
fá þarna ágætan stað til þessa,
sem hefði fleiri og betri kosti
en aðrir staðir hér nærri, sem
ég hefi séð. í nánd við leik-
vanginn ætti að ákveða stað
fyrir útisundlaug, sem byggð
yrði í framtíðinni.
5. Skemmtigarður. Svæðið
austan hins fyrirhugaða vegar
en milli leikvangs og Hring-
brautar, ætti svo áð notast til
skemmtigarða.
Það má vel vera, að sumurn
mönnum þyki þessar tillögur
óhóflegar, og ekki líklegt, að
þær séu framkvæmanlegar í
náinni framtíð. Þess vegna vil
ég líka taka það skýrt fram,
að ég ætlast ekki til þess, að
þetta verði allt fullgert á fáum
ámm.
Nei, það tekur mörg ár, og
á að taka mörg ár, að koma
þessu upp. Annað væri óeðli-
legt, en þetta er mál, sem á að
hugsa stórt, meðal annars af
því, hvað það hefir dregizt ó-
eðlilega úr hömlu allt til þessa
dags, að sjá Reykjavíkurbúum
fyrir sæmilegri aðstöðu í þeim
málum, sem ég nú hefi minnst
á.
Slíkur er starfsháttur for-
ystumánna íhaldsins á Alþingi. ' daginn,
Magnús Stefánsson.
Saumastofan
er íiutt á Grundarstíg 4 (aðra hæð)
1. flokks vinnustofa fyrir allskonar kvenfatasaum, svo
sem: kápur, samkvæmis. og hverndagskjóla. Vinnuna annast
lærðar saumastúlkur. — Saumum einnig allskonar kvenundir-
íatnað eftir máii. Sníðum og mátum fyrir þær, sem óska
að sauma föt sín heima.
Námskeið í kjólasaum heldur áfram eins og áður.
HILDUR SIVERTSEN,
Grundarstíg 4, annari hæð. Sími 3085.
JÖHANN BRIEM:
Málverkasýning
í Góðtnmplarahúsinu 14. til 21, október,
Opin 10—12 og 1—5
. ... -.-. - ......----.......
Tvær
hjúkrunarkonur
vantar að heilsuhælinu á Vífilsstöðum frá 1. des. og 1.
janúar n. k.
Umsóknir ásamt venjulegum upplýsiogum, sendist
undirrituðum fyrir 1. oóvember n. k.
Sigurður Magnússon.
Símaskráin
Handrit að símaskránni fyrir næsta ár liggur
frammi í afgreiðslsal landssímastöðvarinnar frá
óg með 15. til 20. þessa mánaðar. Þeir sem óska
breytinga á skrásetningum í skrána og eigi hafa
þegar tilkynnt það, eru minntir á að segja til á
þessu tímabili.
Ennfremur skal vakin athygli á því, að þeir, sem
eigi tilkynna um breytingar á skrásetningum í
atvinnu- og viðskiptaskrá símaskrár.
innar verða skráðir þar i næstu útgáfu á sama
hátt og áður.