Nýja dagblaðið - 31.10.1934, Page 3
N Ý J A D A 0 8 L A 0 I 0
tmmmmmmamamammmsmaam
nýja dagblaðið
Útgefandi: „Blaðaútgáfan h.í.“
Hitstjórar:
Gisli Guðmundsson,
Hallgrimur Jónasson.
Ritstjómarskrifstofumar
Laugav. 10. Simar 4373 og 2353
Aígr. og auglýsingaskriístofa:
Austurstrœti 12. Simi 2323.
Áskriftargj. kr. l,50ámánuði.
í lausasölu 10 aura eint
Prentsmiðjan Acta.
Morgunblaðið
þakkar
Eins og um hefir verið getið
hér í blaðinu í gær, kepptust
íhaldsmenn við að bannsyngia
Mbl. á fundunum austan fjalls
s. 1. sunnudag. Peir máttu ekki
heyra það nefnt.
En þegar heim er komið
verður þessum sömu mönnum
það fyrst fyrir að segja frétt-
irnar í Mbl., þessum útskúfaða
saurbleðli, sem þeir sóru af
sér af svo innfjálgri ákefð.
Hitt er vitanlega ekki vonum
framar, þó þeir „hagræðí sann-
leikanum" í þeirri frásögn.
Það liggur við að maður
kenni í brjósti um vesalingana
við Mbl. og Vísi.
Þegar húsbændur þeirra eru
út á meðal fólks sveita- og
sjávarplássa, hrækja þeir á
blöð sín og þjónustulið. Segja
að þau hagi sér „heimskulega",
séu ekki „heilvita", „komi sér
og sínum málum ekkert við“,
og það sé ekkert að marka
fleipur þeirra og fjandskap.
En er heim kemur, er íhalds-
mönnum- runnin reiðin við blöð.
in og ritstjórana. Þeir hafa
fyrirgefið þeim allar yfirsjón-
irnar á leiðinni og eru nú ekki
alveg frá því að gera þau aft-
tir að farvegi sinna snöggu
skoðanaskipta.
Og Morgunbl. er himinlif-
andi. Það tekur sér tii fyrir-
myndar auðmýkt hundsins,
sem legst niður, bljúgur og
biðjandi meðan hann er barinn
og skammaður, en skríður að
fótum húsbónda síns, þegar
honum kann að þóknast að siga
seppa á ný eða láta hann gelta.
Þetta er auðmjúkt og ham-
ingjusamt hugarfar fyrir
Morgunblaðið, sem flytur í
gær „fréttimar“, sem afneitur-
unum hefir þóknast að tilreiða
handa lesendum sínum innan-
bæjar.
Og alveg eins og rakkinn,
sem flaðrar alls hugar feginn
upp urri húsbóndann,'eftir hirt-
íngu, alveg eins flýtur nú lof
Morgunblaðsins um bæði munn-
vik ritstjórans, þeim til lofs
og dýrðar, sem1 lýstu á því
skömm sinni og fyrirlitningu
fyrir einum degi síðan.
Svona hugarfar og heilindi
húsbænda til hjúa og hjúa til
húsbænda, þekkist hvergi nema
innan íhaldsflokksins.
það er ekki þörf é því ann-
arsstaðar.
Og mennimir, sem afneita
og svívirða iðju þjóna sinna
og þjónamir, sem lúta og lofa
húsbænduma, þrátt fyrir allt,
Einar Benediktsson
sjötugur
Einar Benediktsson skáld er
sjötugur í dag. Blöð landsins
minnast þessa afmælis og í
kvöld heiðrar Ríkisútvarpið
skáldið með sérstakri dagskrá.
Slíka athygli og sæmd hljóta
þeir einir menn, sem1 hafa skil-
að þjóðinni sérstaklega miklu
v.erðmæti með starfi sínu eða
list sinni. Og Einar Benedikts-
son er ekki einungis frábær,
heldur einstæður listamaður
þjóðarinnar.
Einar Benediktsson er kom-
inn af merkilegu foreldri. Fað-
ir hans, Benedikt Sveinsson.
sýslumaður, var á sinni tíð
einn merkasti maður landsins.
Hann var lengi sýslumaður
Þingeyinga og bjó á Héðins-
höfða. Benedikt Sveinsson tók
ríkan þátt í sjálfsstæðisbaráttu
íslendinga og var ótrauður
fylgismaður Jóns Sigurðssonar.
Og er Jón Sigurðsson leið tók
Benedikt upp merki hans.
Benedikt Sveinsson var talinn
mestur mælskumaður Islend-
inga, sem uppi voru um hans
daga, og hinn ákafasti mála-
fylgjumaður. Ætt Benedikts
Sveinssonar verður rakin ó
Strandir og í Skaftafellssýslu.
Var hann kominn af merkri
ætt í Homafirði. Langömmu-
bróðir hans var Jón Eiríksson
konferensráð
Móðir Einars Benediktsson-
ar var Katrín Einarsdöttir frá
Reynistað í Skagafirði. Er
Reynistaðaætt alkunn og verð-
ur hún rakin til þingeyra-
Bjama og Páls lögmanns Vída-
líns.
Benedikt Sveinsson var hug-
sjónamaður mikill og trúði
mjög á land og þjóð. Katrín,
móðir Einars, var stórgáfuð
kona og skáldmælt. Fór þvi
mjög að líkum um stórbrotnar
gáfur Einars og skáldhneigð.
Þau hjón áttu fjögur böm,
er komust til þroskaaldurs.
Sonur þeirra var ólafur Sveinn
Haukur, er bóndi var að Vatns-
enda í Seltjamarneshreppi,
stórfgáfaður maður. Ólafur
druknaði á heimleið úr kaup-
stað í síki nokkru nálægt Ell-
iðavatni, sem hann hugðist að
sundríða. Dætur þeirra hjóna,
en systur Einars, eru þær
Ragnheiður kona Júlíusar
bankastjóra Sigurðssonar á Ak.
ureyri og Kristín, sem hefir
lengi verið kennslukona í
Reykjavík.
Þau hjón, foreldrar Einars,
slitu snemma samvistum. En
Einar ólst upp að mestu á Héð-
inshöfða hjá föður sínumi og
dvaldi þar lengstum á sumrum
meðan hann var í skóla. Hann
eru hvorir tveggja gæddir teg-
und þess hugarfars, sem eng-
um manni né flokki gæti hæft,
nema íhaldsflokknum.
Þar á það prýðilega við.
Og þar er þess fullkomín
þört
vakti ungur athygli manna
vegna bráðþroska og stórbrot-
ins gáfnafars. Hann las lög við
Kaupmannahafnarháskóla, en
átti þá við vanheilsu að stríða
er mjög þjáði hann um tíma.
Hlaut hann þó bót meins síns
og lauk námi. Var hann um
stund settur sýslumaður í
Þingeyj arsýslu í forföllurrí og
fjarveru föður síns. Síðan gerð-
ist hann málafærslumaður við
landsyfirréttinn og var sícipað-
ur sýslumaður í Rangárvalla-
sýslu. Hann hlaut meiðsli í
embættsiferð og var leystur
frá embætti með eftirlaunum.
Enda þótt Einar Benedikts-
son vekti snemma eftirtekt
vegna afburðagáfná, þá varð
ekki viðkuimugt um skáldgáfu
hans fyr en árið 1891. Þá hófst
útgáfa blaðsins Sunnanfara,
sem var á sinni tíð merkilegt
bókmenntablað og mun Einar
hafa verið einn af ráðamönnum
um útgáfu blaðsins. 1 fyrstu
blöðum ySunnanfara" birtust
nokkur kvæði Einars Bene-
diktssonar og má meðal þeirra
nefna þessi kvæði: „Úr ís-
landsl j óðum“, „Grettisbæli“,
„Draumur“ og „Hvarf séra
Odds frá Miklabæ". Varð Eih-
ar þegar við birtingu þessara
kvæða þjóðkunnur sem skáld.
Hefir hann síðan aulcið skáld-
hróður sinn svo mjög, að hánn
gnæfir nú, við þessi tfmamót
í lífi hans, mjðg hátt yfir með-
aimennskuna í íslenzkri skáld-
frægð.
Fyrsta bók Einars, „Sögur
og kvæði“, kom út 1897. Síðan
hafa ekki birzt éftir hann
skáldverk í óbundnu máli. En
ljóðagerð hans tók þá að færast
mjög í aukana. ,,Hafblik“
komu át árið 1906, „Hrannir“
1913, „Vogar“ 1921 og „Hvamm
ar" 1930. Auk þessara ljóða-
bóka kom út 1901 þýðings Ein-
ars á „Pétri Gaut“, einu fræg-
asta skáldverki Ibsens Norð-
mannaskálds. Var þýðing sú
endurprentuð árið 1922. Ibsén
mun verða talinn stórbrotnast-
ur Norðmannaskálda og hefir
Einar Benediktsson snémma
hneigst til mikillar hrifni af
yfirburðum Ibsens í skáldskap.
Þýðing sína á „Pétri Gaut“
mun hann hafa gert ungur,
heima á Héðinshöfða, meðan
hann stundaði enn skólanám.
Þýðing á „Pétri Gaut“, gerð
af ungum skólamanni, vottar
ef til vill sterklegar en nokkuð
annað um þær yfirburðagáfur,
sem Einar Benediktsson hefir
verið gæddur.
Eftir að Einar Benediktsson
lét af embætti, dvaldi hann
langdvölum' erlendis og stund-
aði ýmiskonar fésýslu. Er sá
kafli úr æfi hans að miklu
ókunnur íslendingum, enda sízt
eftirtektarverður.— Hann hef-
ir aftur flutt alfari heim til
ættlands síns og Alþingi hefir
fyrir löngu veitt honum viður-
( kenningu með riflegum! heið-
urslaunum, eftir þ-ví sem slík
laun hafa gerzt í sögu þjóðar-
innar.
Hér að framan er stuttlega
rakinn uppruni Einars Bene-
diktssonar, æska hans, nám og
embættisferill. Er þá eftir að
veita yfirlit um líf hans, sem
afburða skálds og listamánns.
Slíkt er torvelt. Þó er tiltölu-
lega auðvelt að vekja eftirtekt
á einni staðreynd: Eftir alda-
mótin síðustu tóku að koma út
ljóðabækur eftir Einar Bene-
diktsson, sem vöktu miklu.
hieiri athygli hugsandi lesenda
í landinu, heldur en áður hafði
gerst ög heldur én síðan hefir
gerst við ' útkomu íslenzkra
ljóðabóka á þessari öld. Síðan
hefir aldrei orkað tvimælis um
það, að Einar Benediktsson er
eitt af höfuðskáldum íslend-
inga fyr og síðar og, þess vegna
orkar ekki tvímælis heldur, að
í .dag ber að votta honum
þakkir fyrir þá andlegu auð-
legð, sem hann hefir gefið þjóð
sinni í slcáldskap sínum.
Hiklaust tel ég Einar Bene-
diktsson mestan bragsnilling
Islendinga, sem uppi hefir ver-
ið fyr og síðar. Með brag-
snilld sinní, orðauðgi og lit-
auðgi í máli og rími, hefir
hann gert myndir, sem aldrei
fymast þeim, sem lesið hafa
kvæði hans og skilið þau.
„Skútahraun" þótti og mun
enn þykja torskilið kvæði. Það
er djarfmannleg og sérgáfuleg
íýsing á mannlífinu í ulrigerð
stórbrotinnar náttúru landsins.
Hefir Guðmundur Finnbogason
á. skemmtilegan hátt skýrt
þ.etta kvæði. .— Ýms önnur
kvæði Einars þykja torskilin
og einkum þau, sem hann hefir
ort á síðari árum. Hefir listin
í þeim kvæðum lotið í lægra
haldi fyrir heimspekinni og
mun fáum listelskum eða vitr-
um mönnum hafa þótt skift um
til bóta í fari skáldsins við
gerð hinna síðustu stóru kvæða
hans.
Við yfirlit um sveit íslenzkra
ljóðskálda, verður gáfuðum
niönnum starsýnt á fáa eina.
Meðal þeirra eru Jónas Hall-
grímsson, Grímur Thomsen,
Einar Benediktsson og Step-
han G. Stephansson. Þessi tvö
skáld, er síðast voru talin,
bera langt af flestum yngri
skáldum okkar. Þeir eru báðir
afburðamenn, en fara þó mjög
sína leið hvor.
Einar Benediktsson mun
vera mestur bragsnillingur ts-
lendinga fyr og síðar. Stéphan
G. Stephansson hefir hinsvegar
haft svo mikið fram að bera
af mannviti og hugsjónaauð-
legð, að hann hefir fyllilega
skipað sæti sem jafnoki Einars.
um skáldfrægð íslendinga á
síðari árum. Kvæði Einars
þykja mjög torskilin. Tor-
skildast við kvæði hans mun
þó verða það, með hverjum
hætti slík kvæði hafa ti^ orðið.
1 kvæðum Einars er saman
borið miklu meira af kyngi
orða, djúprar hugsunar og
hárrar listar en í verkum nokk-
urs annars í skáldsveit Islend-
inga. Þess vegna er hann í dág
sérstaklega eftirtektarverður
sem afmælisbam. Þess vegna
verður hann ógleymanlegur öll-
um þeim, sem í framtíð þjóð-
arinnar meta ljóð og list.
Jónas Þorbergsson.
Mjólkurverð í Reykjavík skal fyrst um sinn frá
og með 1. nóv. n. k. og þangað til öðruvísi verður
ákveðið, vera sem hér segir:
Nýmjólk i flöskum 40 aura líterinn í búðum,
1 en 41 eyri heimflutt
önnur nýmjólk 38 aura líterinn í búðum
en 39 aura heimflutt.
Mj öikurver ðlagsnefndín
Spadkfötid er komíð
Eina og að undanf rnu seljum vér valið og metið spað-
saltað dilkakjöt úr beztu sauðfjárhéruðum landsins.
Kjötið er flutt heim til kaupenda, þeim að kostnaðarlausu
Samband isl. samvinnufélaga
Slmi 1080.