Nýja dagblaðið - 23.11.1934, Side 2
2
N Ý J A
D
I B
Hreinn Pálsson
syngur í Fríkirkjunni í kvöld kl. 8V2.
I síðasta sinn.
♦
Aðgöngumiðar fást hjá K. Viðar og Hljóðfærahúsinu.
Ándsvar við, leikdómi
Eftir Gunnar Hansen leikstjóra
■í
Páll Isólfaaon við hljóðfærið.
Hárgreiðslustofa
Iiindísar Halldórsson
Eg er nú nýkomin heim úr utanför, þar sem ég
hefi kynnt mór allar nýjungar í hárgreiðslu og and-
litsfegrun.
Eg hefi fengið nýjan augnabrúnalit, svo að nú tekur
það aðeins fáar mínútur að láta lita augnahár og augna-
brúnir hjá mór.
Einnig hefi ég fengið ný tæki í grenningarvél mína.
Allar nýjustu aðferðir í hárlitun, sem þolir perman-
ent hárliðun.
Virðingarfyllst
Lindís Halidóreson
Tjarnargötu 11 — Sími 3846
Hestamenn
Höfum til fóðurhafra
beztu tegund
Samband isl. samvínnuféiaga
1 Nýja dagblaðinu 16. þ. m.
birtir hr. Freymóður Jóhanns-
son „leikdóm" um starf mitt
hjá Leikfélagi Reykjavíkur. —
Það er ekki efnilegt, sem hann
segir, en þeirra orða var þaðan
von. Freymóður Jóhannsson
hefir neitað að taka við leik-
sviðsstjórn undir minni umsjá
og þar með að mála leiktjöld
eftir uppdráttum mínum, en
það er ófrávíkjanlegt skilyrði
frá minni hálfu, að ég gert
sjálfur uppdrættina að leik-
tjöldunum í hverjum þeim
leik, sem ég undirbý til sýn-
ingar. Af þessari ástæðu tel ég
ótilhlýðilegt, að F. J. setji sig
sem „dómara“ yfir verk mitt í
opinberu málgagni, því honum
kann að ganga annað til en
„listrænn áhugi“. Það er áþekk-
ast því, er leikari, seni finnst
framhjá sér gengið í hlut-
verkaskipuninni, færi að skrifa
cpinberlega leikdóma, þár sem
hann sendir félögum sínum
hnútur og hnífilyrði. Brosað
yrði að hverjum slíkum leik-
dóm erlendis. Og í rauninni
hefi ég enga sérlega löngun til
að svara honum, en geri það
þó til að leiða hann úr allri
villu. Ég tek þá „leikdóminn“
lið fyrir lið.
Hann byrjar á því að veita
mér ádeilur fyrir að vera ekki
af íslenzku bergi brotixm. Það
er seint að segja arnen, þegar
allir djáknar eru þagnaðir.
Ég er fæddur í Danmörku fyr-
ir liðlega 33 árum síðan, það
er of seint að hrófla við því
héðan af. Hann segir, að ég
geti ekki kennt íslenzkum
leikurum að tala íslenzku. Hví-
lík djúpvizka. En annars er
athugasemdin ófrumleg, því
hún var áður komin á fram-
færi hjá nafnlausum greinar-
höfundi í sama blaði, og F. J.
er nú innilega sammála þeim
höfundi. — En skyldu ís-
lenzkir leikarar fara að tala ó-
skiljanlegar mállýzkur í vetur,
þó ég leiðbeini við nokkrar
leiksýningar? Það er enginn,
sem gert hefir ráð fyrir því,
að ég hróflaði hið minnsta við
málfæri þeirra. Hann játar
sjálfur, að ég muni engin áhrif
áþetta hafa. Hversvegna er
hann þá að gera þetta að um-
ræðuefni?
Síðan fer nú F. J. að segja
mér til, hvemig eigi að búa
leikrit Holbergs á svið, hvern-
ig landslagið á Sjálandi lítur
út, hvemig húsgögnin eru á
dönsku óðalssetri. Þeir segja
mest af Ólafi kóngi, sem
hvorki hafa heyrt hann né
séð. Svo við byrjum á Holberg:
Það hefir verið venja á þjóð-
leikhúsi Dana frá því á dögum
Holbergs, að skeyta danssýn-
ingu framan eða aftan við leik-
rit hans, sem flest em mjög
stutt, og á hans dögum voru
menn ekki að víla fyrir sér
að „punta upp á“ leikinn með
ýmsu gamni, söng og danzi.
Holberg krefst þess sjálfur
oftar en einu sinni. Þetta vita
skólaböm. Og F. J. heldur á-
fram, hann hellir sér yfir
svarta forhengið. Hann vill að
það sé gult eða grænt. Hvers-
vegna ekki rautt, blátt eða
fjólublátt? Hæfi guli eða græni
liturinn landslaginu, þá myndi
r-autt eða fjólublátt fyrir gagn-
áhrif fá litinn til að njóta sín
betur. Þetta er smekk-atriði.
Enginn lifir svo öllum líki. Er-
lendis eru víðast notuð nær
eingöngu svört tjöld, því þau
eiga að vera hlutlaus. Áhorf-
endur eiga að horfa á leikend-
uma, ekki á tjaldið. Síðan
kemur F. J. með það, að skýin
reki í ákveðna átt, en „storm-
urinn“ beygi trén „í þveröfuga
átt!!“ Dimmar eru rúniraar
hans, þó má ráða þær. F. j.
álítur auðsjáanlega, að storm-.
urinn úti í Danmörku geti
sveigt trjástofna, sem eru alin
í þvermál. Þetta er alveg út í
loftið, ekki er stormurinn hjá
okkur það sterkur. Hinsvegar
sveigja staðvindar úr vestri
ungar trjáplöntur til austurs,
og þegar þær verða að full-
orðnum trjám, geta þær því
miður ekki rétt sig við „í þver-
öfuga átt!!“, þó eitthvað
kunni á þær að blása. Og F. J.
bætir við, um sveigðu trén,
„eða svo var á þeirri sýningu,
sem ég sá“. Þannig hafa þau
reyndar verið á öllum sýning-
um, eða heldur F. J. að við
sveigjum trén í hina áttina,
þegar hann er á austan í
Reykjavík? Slíkt er ekki gert
„á neinu leiksviði, sem ætlazt
er til, að tekið sé alvarlega“.
Þá er komið að húsakynnum
barónsins. Veggirnir eru auðir
og tómir, segir F. J. „háar
glerhurðir gripnar úr nýjustu
þýzkri byggingagerð". Nei.
Misskilningur F. J. stafar af
því, að hann kann ekki að
greina stíltegundimar. En sá
verður að vaka, sem öðrum á
að halda vakandi. „Jeppi" var
sýndur í fyrsta sinn 1722.
Franski málarinn Watteau dó
um sama leyti. Með honum og
samtíð hans byrjaði rokoko-
stíllinn að ryðja sér til rúms.
En stíllinn varð ekki á svip-
stundu sá, er við erum nú oft-
ast vanir að kenna við rokoko.
Það sem einkennir stílinn um
1722, er það, að hann líkist
merkilega mikið vorum stíl.
Hann var afar einfaldur, her-
bergin næstum auð, „motivin"
mjög fyrirferðarlítill; dyr voru
háar, aðeins gullnir listar.
Stíllinn á sal barónsins er tek-
inn beint eftir mynd frá
Louvre í Paris: „Le thé chez
le prince de Conti". Myndin er
frá þessum tíma. Ég hefi verið
3 ár í Frakklandi og kynnt
mér sérstaklega tímabilið frá
1700 til 1730. Hefir F. J. nokk-
umtíma gert það? Og rúmið
verður hjá honum í „jólakert-
isstíl“. Það er missldlningur.
DettifosH
fer á laugardagskvöld (24,
nóv.) i hraðferð vestur og
norður.
Vörur afhendist fyrir
hádegi sama dag, og far-
seðlar óskast sóttir.
Lögfrsðinga
nefndin
Þáltill. þeirra Jónasar Jóns-
sonar og Jóns Baldvinssonai'
um skipun 3ja manna lög-
fræðinganefndar, til þess að
undirbúa endurbætur á réttar-
farslöggjöfinni, var í fyrrad. af_
greidd sem ályktun frá sam«
einuðu þingi til ríkisstjómar-
innar. Voru samþ. tvær brtt.
við þáltill. önnur frá fjárveit-
inganefnd þess efnis, að undir-
búningur þessi skuli á þessu
ári verða framkvæmdur „að
svo miklu leyti sem fært þykir
kostnaðar vegna“ og hin brtt.
irá Gunnari Thoroddsen um að
nefndin skuli undirbúa breyt-
ingar og endurbætur á lög-
gjöfinni um landsdóm,. auk
einkamála og opinberra mála,
sem þál. tilgreinir.
Rfkisábyrgð fyrir
Hafnarfjðrð
Á fundi í sameinuðu þingi í
fyrrad. var samþ. við fyrri umr.
með 29 samhlj. atkv. þáltill.
frá Emil Jónssyni um að heim-
ila ríkisstj., vegna ríkissjóðs,
að ábyrgjast 10000 sterl.punda
lán, sem bæjarsjóður Hafnar-
fjarðar hefir fengið loforð fyr-
ir hjá The Pearl Assurance
Company Ltd., London. Fyrir-
hugað er að verja V3 hlutum
þessa láns til greiðslu á lausa-
skuldum og ósamningsbundn-
um skuldum bæjarfél., en x/3
lánsins á að ganga til bygging-
arsjóðs Hafnarfjarðar.
Það er í „rennæssancestíl". —
Annars er stíltegundunum hér
blandað saman með vilja. Á að-
alsetrum í Danmörku geymir
fólk gömul húsgögn allt frá
gotniskum stíl og fram til
vorra daga. F. J. hrópar
hneykslaður: „Hvar er stíl-
þekkingin?“ Frjáls er spökum
spuming. En leggi hann þessa
samvizkuspumingu fyrir sjálf-
an sig. Hann kæmist þá vænt-
anlega að því, að m!argur villist
þó vís þykist.
Reykjavík, 17. nóv. 1984.
Guiuiar Hanswi.