Nýja dagblaðið - 23.11.1934, Síða 3
N f J A
SASBIABIB
8
NÝJ A DAGBLAÐIÐ
Útgefamli: „BlaðaútgAfan h.f."
Bitatjórar:
Gísli Guðmundsson,
Hallgrimur Jónasson.
Ritstjómarskrifstofumar
Laugav. 10. Símar 4373 og 2353
Afgr. og auglýsingaskrifstofa:
Austurstrœti 12. Sími 2323.
Áskriftargjald kr. 2,00 á mán.
f iausasölu 10 aura eint.
Prentsmiðjan Acta.
Hámark þjðnustu-
aldurs embsttis-
manna
Eins og um hefir verið get-
ið, flytur meirihluti allsherjav-
nefndar Ed. frumV., eftir
beiðni dómsmálaráðh., um
það, að embættismenn ríkis og
bæjarfélaga, skuli leystir frá
störfum, er þeír hafa náð 65
ára aldri, en í síðasta lagi,
þegar þeir ná sjötugu.
Þetta frumv. er hið merki-
legasta um margt. Bak við það
liggur viturlegur hugsunar-
háttur, bæði gagnvart ein-
staklingunum, sem það snertir
mest og ekki síður því opin-
bera, er njóta þarf vinnu
þeirra og þreks.
Um 65 ára aldur eru flestir
þeir, sem unnið hafa vel og
samvizkusamlega, famir að
láta ásjá. Slit margra ára hef-
ir sett spor þreytu og minnk-
aðrar afkastagetu á störf
þeirra — oftast.
Og þeir sem svo hafa hlíft sér
á manndómsskeiðinu svo að í
iðju þeirra verður ekki séð aft-
urför við áminnst aldursmörk,
hafa sjaldnast verið heilir
menn í starfinu og eru því
alla jafna opinberum stofnun-
um til lítilla heilla.
En svo kemur og annað til
athugunar.
Þeir tímar, sem nú ganga
yfir heiminn, hafa sín sterku
einkenni og blæ.
Þeir eru markaðir hinum öru
breytingum, þeim ólíku, skift-
andi sjónarmiðum og skoðun-
um í lífsvenjum og atvinnu-
háttum, trú og hugmyndum,
er koma og fara framhjá
sjónum kynslóðanna, eins og
skuggamyndir á tjaldi.
Hversu gífurlegar breyting-
ar hafa t. d. ekki orðið á síð-
ustu 45—50 árum — mann-
dómsskeiði 65 ára manns.
Og mennimir eru ávalt böni
síns tíma. Hver kynslóð mót-
ast af þeim tíðaranda, sem var
ráðandi í uppvexti hennar og
æsku, og eftir þeim leiðum er
henni gjamast að vinna og
beina lífi sínu. En áður en sú
kynslóð verður miðaldramenn,
hefir önnur uppvaxandi skapað
nýjan tíðaranda, ný sjónar-
mið, nýja starfsháttu.
Og gamlir starfsmenn fella
sig oft trauðlega inn í ný
vinnuform, reist á nýjum sjón-
armiðum.
Fyrir því er það hverju ríki
nauðsynlegt að haf'a í sinni op-
inberu þjónustu starfskrafta,
sem skilja gerst samtíð sína
og þarfir líðandi tímabils.
Hitt verður skylda þess op-
Um s a lt vinnslu
á Islandi
Eftir Höskuld Baldvinsaou verkfræðing
Síðastliðin 7 ár hefir verið
flutt hingað til lands árlega um
87,500 tonn af salti, fyrir um
21,4 milj. króna, að meðaltali.
Við athugun á því, hverjar
innflutningsvörur vér helzt get-
um framleitt hér á landi, er
því ástæða til að veita saltinu
alveg sérstaka athygli, því að
alkunnugt er, að salt er hægt
að vinna úr sjó hér með aðstoð
jarðhitans, en af honum eig-
um vér gnægðir.
Undanfarin ár hefi ég eftir
föngum kynnt mér skilyrði
fyrir saltvinnslu hér, í þeim
tilgangi, að reyna að hrinda aí
stað framkvæmdum á því
sviði. Enn hefi ég þó ekki tal-
ið rétt að hreyfa málinu opin-
berlega, en með því, að nú hef-
ir verið vakið máls á þessu
efni í blöðum hér, þykir mér
rétt að gera nokkrar athuga-
semdir um málið, því að mér
virðist að nokkur misskilning-
ur ríki um sum aðalatriði þess.
í „Tímanum" 26. okt. sl.
ritar húsameistari ríkisins, hr.
Guðjón Samúelsson, um salt-
vinnslu. Hugsar hann sér hana
sem nokkurskonar atvinnu-
bótavinnu. I sömu átt munu
greinar í dagbl. Vísi hafa hnig-
ið.
StotokoBtn&ður og
tramleidsluBkilyrdi
Nú er það svo, að skilyrði
fyrir því að salt sem framleitt
er hér, geti, hvað verð snertir,
keppt við erlent salt, er að
vinnslan sé rekin með góðum
tækjum og helzt stöðugt yfir
allt árið, eða a. m. k. mestan
hluta þess. Þó gæti komið til
mála, að starfrækja saltvinnslu
í sambandi við hitaveitu
Iteykjavíkur, þó að hún ekki
gæti staríað með fullu afkasti
allt árið, —• en að því kem ég
síðar.
En fyrir atvinnubótavinnu
er mest þörf á veturna, eins
og húsameistari tekur réttilega
fram. Að vísu er hverskonar
aukinn iðnaður til atvinnubóta,
en saltvinnsla þó minna en
ætla mætti, vegna þess, að
stofnkostnaður saltvinnslu-
stöðva, sem að verulegu leyti
er fyrir aðkeypt efni, er all-
hár, en vinna við sjálfa fram-
leiðsluna tiltölulega lítil.
Til þess að saltvinnslustöð
hvili á hagfræðilega traustum
grundvelli, þurfa að minni
hyggju eftirfarandi aðalskil-
yrði að vera fyrir hendi:
Hún þarf að vera nærri
góðri höfn eða markaðsstað,
svo að ekki þurfi að flytja
saltið langt á landi.
Hitamagn stöðvarinnár þarf
að vera mjög mikið, því að
tæplega mun hægt að fram-
leiða ódýrt salt, nema að það
sé unnið í allstórum stíl.
Æskilegast er að vísu að
hita svæðið, sem að nota á, sé
rétt hjá sjó, en þó er það ekki
óhjákvæmilega nauðsynlegt, ef
önnur skilyrði eru fyrir hendi.
Vil ég nú minnast á þá staði,
sem að minni hyggju eru helzt
athugandi með tilliti til salt-
vinnslu og þá fyrst þá þrjá
staði, er húsameistari nefnir,
nfl. Reykjanesin, syðra og
vestra og Reykhóla.
Aðstað&n við
Reykhóla
Á Reykhólum hefi ég gert
nokkrar athuganir og mæling-
ar beinlínis, með saltvinnslu
fyrir augum. Svo sem kunnugt
er, liggja Reykhólar á Reykja-
inbera aftur á móti, að sjá svo
um, að þeir menn, er ganga
úr þjónustu þess fyrir aldurs
sakir, geti átt áhyggjulítið æfi-
kveld. Að þeim sé ekki kastað,
slitnum og lítt vinnufærum
út á eyðihjarn örbirgðarinnar.
Þetta frumv. hefir nú hlaup-
ið fyrir hjartað á Mbl. Það
segir í því tilefni:
„Allir embættismenn og op-
inberir starfsmenn, sem náð
hafa 65 ára aldri, skulu víkja
úr embættum, svo gæðingar
stjórnarinnar komist að jöt-
unni“.
Með þessu segir Mbl. þrennt:
í fyrsta lagi að íhaldið sé
vonlaust um að komast í stjóm
og veita embætti.
1 öðru lagi, að gömlu slitnu
embættismennirnir, „hin aldr-
aða kynslóð“, tilheyri ein í
haldsflokknum, æskan, mann-
dómurinn ekki.
Og í þriðja lagi vill íhaldið
þrælka þessa sína gömlu menn
allt fram á grafarbakkann.
Hvort þeir geta gegnt »ínu
starfi eins og ríkið þarfnast,
það skiftir íhaldið vitanlega
engu máli.
Hverju varðar það íhaldsfl.
þótt gamall og slitinn embætt-
ismaður geti t. d. ekki rækt
starf sitt og verði svo uppvís
að mikilli fjáróreiðu, sem ekki
er síður siðspillandi og for-
dæmanleg. Það er allt gott og
blessað, bara ef hann er í-
haldsmaður.
Ihaldið þarf ekki langt að
skyggnast, til hvorrar handar,
sem það vill, til þess að sjá
þess ný og áþreifanleg dæmi,
sem hér var nefnt í framan-
rituðum línum.
En þau dæmi bíta ekki á
„móral“ þess né mannvit.
Það er nú einu sinni hlut-
verk Mbl. og lífsköllun að
spyrna gegn þörfum málum og
þjóðnýtum. Og það er ekki
hættan á, að þvílík verkefni
þrjóti, meðan Mbl. og íhalds-
flokkurinn hæfa hvort öðru
jafn prýðilega og raun ber um
dagleg vitni.
nesi að vestanverðu við Breiða
fjörð innarlega. Innsigling
þangað er máske nokkuð ó-
lirein, éins og víðar um inn-
anverðan Breiðafjörð, en þó
vel fær og aðstaða til að gera
þar bryggju (við Karlsey), er
að minni hyggju sæmilega góð.
Hafnleysi ætti því ekki að
vera verulegur Þrándur í götu,
ef önnur skilyrði væru nægi-
lega góð.
Hitasvæðið er allstórt (ca.
45000 m2 aðalsvæðið). Það
liggur í hálfhring frá norð-
vestri til suðausturs, neðan við
og í túnjaðrinum á Reykhól-
um. Hverirnir eru vatnshverir
70°—100° heitir. Vatnsmagn
hvei-s um sig er frá litlu broti
úr lítra upp í 2 lítra á sek.
Alls munu uppspretturnar vera
30—40. Sameiginlegt hita-
magn þeirra, miðað við að
nota hitann niður 1 85°, virðist
rnér vera um 7 milljón hitaein-
ingar á klst. Með borunum, og
jafnvel með því að grafa niður
með uppsprettunum, má vafa-
laust auka hitamagnið til
muna. En fyrirfram verður
ekki sagt um hve miklu sú
aukning mundi nema. Aðstaða
til að sameina hverina er góð.
Og yfirleitt má telja afstöðu
til saltvinnslu þar mjög góða.
Fjarlægð hitasvæðisins frá
sjó (flóðborði) er aðeins rúm-
ur krir. Þrátt fyrir þetta reikn-
ast mér svo til, að saltvinnsla
]rar beri sig tæplega, nema að
hægt væri að auka hitamagnið
verulega með borunum.
Til að framleiða 1 tonn af
matarsalti úr sjó, þarf að eima
burtu ca. 35 teningsmetra af
vatni. Ef að reiknað er með
80% nýtingu hitans, eins og
láta mun nærri, þarf til þess
um 28 miljón hitaeiningar.
Með þeim 7 miljón hitaein-
ingum, sem fyrir hendi eru á
Reykhólum, má því framleiða
um 0,25 tonn á klst. eða 2200
tonn á ári.
Stofnkostnað saltvinnslu-
stöðvar fyrir það saltmagn á-
ætla ég um 150000 kr., en ár-
leg útgjöld um 60000 kr. (þar,
af rúmur helmingur vinna).
Framleiðsluverð á tonni (kom-
ið í skip) yrði því um 27 kr.
Meðalverð aðflutts salts sí.
7 ár, er um kr. 28,50 fyrir
tonn, en sl. árs tæpar kr. 25
fyrir tonn.
Reykjanes við
Isatjarðardjóp
Á síðari hluta 18. aldar
var saltvinnsla stunduð þar.
Er talið að notaður hafi verið
um 4/7 af jarðhitanum, en
mesta framleiðsla var ekki
nema um 125 tunnur á ári
(1775).
Þó að aðferðin við vinnsl-
una væri að vísu mjög einföld
og nýting hitans hafi alveg
vafalaust verið mjög slæm, þá
bendir þó þessi litla fram-
leiðsla til þess, að hitamagnið
sé fremur lítið, samanborið
við Reyklióla t. d., enda var tal-
ið að framleiða mætti á Reyk-
hólum um 125 tunnur á mán-
uði, eða um 7 sinnum meira en
á Reykjanesi.
Virðist því, þrátt fyrir á-
gæta legu, að skilyrði fyrir
saltvinnslu séu þar ekki nægi-
lega góð, nema ef margfalda
mætti hitamagnið mjög mikið
með borunum.
Reykj&neit syöra
Á Reykjanesi syðra er
mest um gufuhveri. Rýkur
gufan víða upp um smáaugu í
lirauninu og mun sennilega ó-
mögulegt að beizla hitann þar
nema með borunum. Þó eru
nokkrir vatns eða öllu heldur
leirhverir niðri í dældinni norð-
an undir hæðinni, sem gufu-
augun eru flest í.
Hitamagn er þarna vafa-
laust geysimikið, en án borana
er ógerlegt að áætla það. Að-
staða til saltvinnslu er góð að
því leýti, að hitasvæðið er
nærri sjó, en flutningar þang-
að og þaðan mjög dýrir vegna
hafnleysisins.
Fyr en rannsókn á hita-
magninu hefir farið fram, er
ómögulegt að dæma um það,
hvort hagkvæmt mundi að
stofna þar til saltvinnslu, en
vitanlega benda mjög sterkar
líkur til að svo muni vera.
Framh.
Höskuldur Baldvinsson.
Gula bandið bezi
EEYKIÐ
J. GKUNO’S
ágæta hollenzka reyktébak
V E R Ð :
ARQMATISCHER SHAG kostar kr. 0,90 V20 kg.
FEINRIECHENDER SHAG — — 0,95----
bœst í öllum verzlunum