Nýja dagblaðið - 30.11.1934, Page 1
NYJA DAGBIAÐIÐ
2. ár. | H§§ Reykjavflí, föstudaginn 30. nóvembr, 1934. 284. blað
Þjóðabandalagið ráðþrota
Evrópuiriðurinn í stór-hættu
Yfirlit um helztu atburðina
Brúðkaupið mikla í London
Athöfninni var útvarpað og fylgt með athygli viða um lönd
Marina prinsessa „situr iyrir“ 1 vinnustoiu málarans P. A. de Lando.
Morð Alexanders Júgóslava-
konungs og Barthou utanríkis-
ráðherra Frakka hafa á ný
vakið mikla athygli og deilur,
sem taldar eru að geta orðið
hættulegar fyrir friðixm í Ev-
rópu.
Nokkru eftir að morðin voru
framin, birtust ummæli í júgó-
slafneskum blöðum, þar sem
fyllilega var gefið í skyn, að
Ungverjar myndu eiga minni
eða meiri þátt í morðunum.
Menn vonuðu þá, að hér væri
aðeins um venjulegar lausa-
fréttir blaðanna að ræða, en
ekki upphaf að þeirri deilu,
sem nú ógnar friðinum í álf-
unni.
En svo reyndist ekki. Orð-
rómur þessi varð bráðlega það
magnaður, að stjómin í Júgó-
slavíu taldi sér skylt, að taka
málið að sér. Við athuganir og
rannsóknir, sem hún hefir lát-
ið gera, hafa böndin borizt
meira að Ungverjum, um ým-
ist beina eða óbeina þátttöku i
morðunum.
Skömmu eftir mánaðamótin
seinustu barst sú frétt eins og
eldur í sinu, um allan hinn
menntaða heim, að Júgóslavar
myndu senda til Þjóðabanda-
lagsins kærur á hendur Ung-
verjum og æskja þess, að það
léti rannsaka hverja hlutdeild
Ungverjar ættu í konungs-
morðinu.
Jafnframt fréttist það líka,
að Litla bandalagið, en í því
eru, auk Júgóslavíu, Tékkó-
slóvakía og Rumenía, myndi
etanda óskipt að baki þessari
kröfu og Frakkar myndu einn-
ig styðja það, að þessi rann-
sókn færi fram.
Ákæran á Ungverja
Reynslan hefir nú leitt í ljós,
að allar þessar fréttir eru
réttar.
!>ann 22. þ. m. sendú Júgó-
slavar ákæruskjal sitt til Þjóða-
bandalagsins. Er það alllangt
og margir telja það harðorðara
og óvægara en viðeigandi sé í
jafnalvarlegri deilu. Er þar
haldið hiklaust fram, að ung-
versk yfirvöld hafi haldið hlífi-
skildi yfir samstarfsmönnum
konungsmorðingjans, með því
að lofa þeim að dvelja í land-
inu og undirbúa konungsmorð-
ið. Jafnframt er gefið í skyn, að
ungverskir iiðsforingjar hafi
undirbúið tilræðismennina, m.
a. með því að kenna þeim með-
ferð skotvopna og fleirum álíka
þungum ásökunum er haldið
fram í ákæruskjalinu. Að end-
ingu er þess krafizt, að Þjóða-
bandalagið láti fara fram rann-
sókn á konungsmorðinu.
Tveim dögum síðar sendu
Ungverjar mótmælaskjal til
Þjóðabandalagsins og var þar
harðlega neitað allri þátttöku
í morðunum og ákæruskjalið
nefnt „ósvífin árás á þjóðar-
heiður Ungverja“. Jafnframt
var þess fastlega óskað, að
Þjóðabandalagið léti hina um-
beðnu rannsókn fara fram, þvi
þá myndi koma ótvírætt í
Ijós, að þeir ættu enga hlut-
deild í morðunum.
Afstaða nágrann-
anna
Eins og gefur að skilja, hax/i
þessar orðsendingar vakið
feikna æsingar í þessum lönd-
um og reyndar víðar, því
hvorutveggju hafa leitað sér
styrktar annara þjóða. Gam-
bös, forsætisráðherra Ungverja,
hefir nýlega farið til Austur-
ríkis og haft einkasamtöl við
Schuschnigg. Er talið að Ung-
verjar munu njóta óskiptrar
liðveizlu Austurríkis. Afstaða
Italíu hefir alltaf verið ákveð-
in, því Mussolini er svarinn
fjandmaður Júgóslavíu og hef-
ir lengi alið þær óskir, að ná
landinu eða einhverjum hluta
þess undir veldi sitt.
Hinsvegar veitir Tékkó-
slóvakía og Rúmenía Júgóslöv-
unf allan þann stuðning, sem
þær geta veitt, og Frakkar
hafa einnig látið það eindregið
í ljósi, að þeir væru á þeirra
máli.
Vandræði Þjóða-
bandalagsins
Um það leyti, sem krafan
um rannsókn í morðmálunum
barst Þjóðabandalaginu, átti að
halda fund í Þjóðabandalags-
ráðinu, til að ræða Saarmálin.
En honum hefir verið frestað
til 3. des. Ástæðan til þess er
engin önnur en að hinir leið-
andi menn Þjóðabandalagsins,
sem standa utan við deiluna,
hafa enn ekki komið auga á
nein þau ráð, sem leitt gætu til
farsællar lausnar, þó aðrar
ástæður séu látnar í veðri
vaka, til afsökunar því, að
fundinum var frestað.
Fyrir frumkvæði Þjóða-
bandalagsins hefir Antony
Eden, hinum unga stjórnmála-
manni Englendinga, verið falið
að reyna að koma á sættum,
áðúr en fundurinn kemur sam-
an. En ekki hafa neinar frétt-
ir komið um það, að sú mála-
leitun hafi borið neinn árang-
ur.
Mörg helztu stórblöð álfunn-
ar hafa látið svo ummælt, að
i heiður Þjóðabandalagsins sé í
veði, og það sé einnig óvíst,
hvort það verði langlíft hér
eftir, ef því takist ekki að
leysa þetta viðfangsefni, því
það hafi einmitt verið sams-
konar atburður og afleiðingar
af honum, sem urðu tilefni
heimsstyr j aldarinnar.
Maður bráílcvaddur
pórshöín 29/11. FÚ.
Guðmundur Einarsson að
Gunnarsstöðum í Þistilfirði fór
að heiman í gærmorgun og
ætlaði til næsta bæjar. Kom
hann ekki heim í gærkvöldi og
var hans þá leitað, og fannst
hann örendur rétt fyrir utan
Hvamm, en þangað var för
hans heitið. Hafði Guðmundur
orðið bráðkvaddur.
Guðmundur var 26 ára að
aldri, ókvæntur,
Háskóladeilan í Prag j
Berlin kl. 8, 29/11. FÚ.
Rektor og dekanar þýzka
háskólans í Prag hafa sagt af
sér, vegna fyrirskipunar Tékk-
nesku stjórnarinnar uni að há-
skólinn skuli láta af hendi
stofnskjöl háskólans, til hins
tékkneska háskóla. Skjölin eru
undirrituð af Karli IV.
London kl. 17, 29/11. FÚ.
Hertoginn af Kent og brúð-
ur hans fóru frá Buckinghan
höll kl. 4,10 í dag og héldu til
Paddington stöðvar og fóru
þaðan nokkru síðar í einkalest
þangað sem þau ætla að eyða
hveitibrauðsdögum sínum, en
það er á búgarði Dudley lá-
varðar í Norður-Englandi. Þau
koma til London um jólin og
London kl. 8.45, 29/11. FÚ.
I umræðunum um aukningu
brezka loftflotans, í neðri
deild brezka þingsins í gær,
hélt Lloyd George ræðu, þegar
Mr. Baldwin hafði lokið máli
sínu. Hann deildi á þjóðirnar
fyrir að hafa ekki getað af-
stýrt því, að friðarmálin lentu
í öngþveiti, sem raun væri nú
á. Sir John Simon talaði af
hálfu stjórnarinnar, og sagði,
að ef til stríðs kæmi, væru
Bretar reiðubúnir, hvenær sem
væri. Hann sagði, að mikið
hefði orðið ágengt með vísinda.
legar rannsóknir um varnir
Nýtt flugfélag
Berlin kl. 8, 29/11. FÚ.
Flugfélag, sem ætlar að
halda uppi ferðum með Zeppe-
linloftskipum, hefir venð
myndað í Amsterdam. Rekst-
ursfé hefir félagið fengið frá
Þýzkalandi, Ameríku, Englandi
og Hollandi, og ennfremur hef-
ir það samið við frönsku
stjórnina um samvinnu. Félag-
ið er að semja um byggingu
loftskipa við þýzku loftskipa-
smíðastöðina í Friederichs-
havðu.
hafa þá í hyggju að dveljast
með konungi og drottningu.
Hjónavígsluna framkvæmdi í
morgun erkibiskupinn af Kant-
araborg. (Segir allítarlega frá
því í bi*ezka útvarpinu í dag,
hvernig athöfnin fór fram,
búningum hinna ýmsu brúð-
kaupsgesta o. s. frv. Fór at-
höfnin fram með mikilli við-
höfn).
gegn loftárásum, en stjórnin
stendur fyrir þeim rannsókn-
um,
Lansbury talaði einnig. Hann
sagði, að jafnaðarmannaflokk-
urinn vildi ógjarna gera frið-
armálin að flokksmálum, en
þrátt fyrir það yrði hann fyrir
hönd flokks síns, að víta mjög
harðlega þann undirbúning
undir stríð, sem stjórnin léti
nú fara fram, ljóst og leynt.
Erkibófi
ráðinn af dögum
London kl. 8.45, 29/11. FÚ.
Síðan Dillinger var drepinn,
hefir maður að nafni Nelson
verið talinn erkibófi Banda-
ríkjanna. Hann er nú dauður.
I viðureign við lögregluna í
fyrradag, hlaut hann sár af 17
skammbyssuskotum, en ekki
þó fyrr en hann og félagar
hans höfðu orðið einum lög-
regluþjóni að bana, og sært
annan hættulega. I gær fannst
Nelson dauðvona úti á víða-
vangi, og höfðu félagar hans
yfirgefið hann, þegar þeir sáu
hvað í hönd fór. Hann var
fluttur í sjúkrahús í Chicágo,
og andaðist þar skömmu síðar.
Hermálin á þingi Breta
Sir John Simon kveður Englendinga albúna I ófrið