Nýja dagblaðið - 30.11.1934, Blaðsíða 3

Nýja dagblaðið - 30.11.1934, Blaðsíða 3
N Ý J A DAGBLAÐXÐ NÝJA DAGBLAÐIÐ Útgefandi: „Blaðaútgáfan h.f.“ Hitstjórar: Gisli GuOmundsson. Hallgrimur Jónasson. Ritstjómarskrifstofumar Laugav. 10. Símar 4373 og 2353 Afgr. og auglýsingaskrifstofa: Austurstrœti 12. Simi 2323. Áskriftargjald kr. 2,00 á mán. f lausasðlu 10 aura eint PrentsmiBjan Acta Fiskímálafrumvörp FISKIMÁLANEFND. Fvr. um fiskimálnefnd var til 2. umr. í fyrradag. Bergur Jónsson fulltrúi Framsóknar- manna í sjávarútvegsnefnd, sýndi fram á, hversu reynt væri í frv. að fá fiskiframleið- endur til þess að bindast fé- lagsskap sín á milli til þess að fá í umboði fiskimálanefndar leyfi til þess, að annast um og ráða yfir útflutningnum. Þá sagði þm. að ákvæði 12. gr. frv. um að taka upp ríkiseinka- sölu á saltfiskinum væri ein- göngu varaákvæði, sem eklti væri ætlazt til að grípa þyrfti til fyr en fullséð væri um það, að framleiðendur sjálfir vildu eða gætu ekki með neinu móti komið sér saman um að mynda nauðsynlegan félagsskap. Hins- vegar væri öllum ljóst, að ekki væri til þess hugsandi að hafa útflutninginn óskipulagðan cg væri því ákvæði frv. um einka- sölu sett sem1 fullkomið vara- ákvæði, er ekki yrði notað fyr en útséð væri, að fiskframleið- endur gætu ekki unnið saman. íhaldið í nd. hefir tekið þessu frv. með fullum fjand- skap. ólafur Thors hefir sagt. að aðeins það, að frv. hefði koipið fram, mundi geta leitt til þess að Sölusamlag ísl. íiskframleiðenda sundraðist. Hinsvegar vita allir, að þessi fjandskapur ólafs og flokks- mapna hans stafar af því, að það framleiðendfélag, sem frv. gerir ráð fyrir, á ekki nð byggjast á „atkvæðum skip- pundanna" eins og ólafur vill, vegna Kveldúlfs, heldur á fé- lagið að vera reist á persónu- legum atkvæðum allra félags- manna. SlLDARÚTVEGSNEFND. Finnur Jónsson hafði fram- sögu um frv. um síldarútvegs- nefnd, er var til 1. umr. í fyrradag. Frv. þetta er að mestu leyti eins byggt og frv. um fiskimálanefni, enda til- efni svipað. Finnur sagði frá í sambandi við málið, að í Bret- landi hefði nú verið skipuð nefnd, er ynni að því að skipu- leggja síldveiðina, sem væri þar mjög í óreiðu eins og hér. Hefði borizt hingað til Fiskifé- lagsins eitt eintak af áliti og tillögum þessarar nefndar, og væri það einkennilegt, að brezka nefndin hefði komizt að sömu niðurstöðu í þessum mál- um og stjómin og sjávarút- vegsnefnd nd. í frv. Þó mun- aði því að nefnd hinnar miklu fríverzlunarþ jóðar, Englend- Varnir Vestur-Evrópu Landamæri Sfóra-Bretlands við Rín Fyrir alllöngu síðan var það haft eftir Stanley Baldwin, for_ manni íhaldsflokksins enska, í ræðu, sem hann hélt, að landa- mæri Bretlands væru við Rín. Þau orð þóttu þá alleinkenni- leg og torskilin. En nú þykir sem þýðing þeirra sé að koma fram í dags- ins ljós. Um miðjan þennan mánuð, fór sú frétt um Evrópu eins og eldur í sinu, að Bretland, Frakkland og Belgía hefðu gert með sér hernaðarlegan samn- ing. Þessi fregn var ekki opin- berlega staðfest, og það fylgdi með sögunni, að stjórnir hinna þriggja landa stæðu sjálfar ekki að samningunum, heldur væru það herstjórnir ríkjanna, sem ættu þar hlut að máli. Hitt er öllum vitanlegt, að herstjófnirnar starfa að þess- um málum sem öðrum þýðing- armiklum í fullu samráði við ríkisst j órnirnar. Það eru flugárásir, sem Eng- land óttast mest. Sama er um Frakkland að segja. Og þótt að í þessum samningsmálum sé enginn ákveðinn og væntanleg- ur óvinur nefndur, vita allir, hvert þessar þjóðir renna tor- tryggni og óttaaugum. . Það er herveldi Þýzkalands, sem við er átt og þess vel búni, en að ýmsu leyti lítt kunni, flugfloti, sem Bretar og Frakk- ar óttast. Ef til lofthernaðar kemur og þessi lönd berast út í styrjöld gegn sameiginlegum óvini, gengur samningurinn út á það að sameina flugflota allra þjóðanna þriggja, þannig, að hann geti varist og tekið þátt í stríði sem ein heild. Brytist út ófriður við Frakk- land í náinni framtíð, myndi England samstundis geta sent loftflota sinn inn á franskar og belgiskar stöðvar, sem flugfor- ingjar brezka hersins hafa þeg_ ar kynnt sér nákvæmlega. Þetta er frá Englands hálfu öruggasta leiðin til þess að fá svarað samstundis og með álit- legustum árangri harðsnúinni loftárás á eyríkið brezka. Fregnir gizka á, að L. Bart- hou utanríkisráðh. Frakka, hafi, skömmu áðru en hann var myrtur í Marseille, rætt þessa ráðagerð við helztu stjórn- málamenn í London. En svo hafi Weygand hers- höfðingi gengið frá samnings- atriðumi síðar í sumar er leið, einnig í Lundúnum. Talið er að Hollandi hafi enn verið boðin þátttaka í samn- ingnum, en það hafi neitað. En þessar fyrirætlanir telja ýmsir að legið hafi á bak við orð S. Baldvins, þegar hann talaði um Rín sem landamæri Bretlands í austri. inga legði til, að gengið verði lengra heldur en gert er í frv. um síldarútvegsnefnd. Jakob Möller, seni viður- kenndi, að hann hefði ekki les- ið frv. það, sem um var rætt, talaði samt á móti því. IÐRUN JÓHANNS. Jóhann úr Eyjnm og Sig. Iíristjánsson eru í sjávarút- vegsnefnd. Þeim var boðið að flytja þetta frv. eins og öðrum nefndarmönnum, en þeir þorðu það ekki og neituðu. I ræðum Jóhanns við þessa umr. kom glöggt fram iðrun yfir því að hafa neitað að flytja frv. Kvað hann sig ekki hafa verið búinn að kynna sér það, en sagðist nú vilja ljá því allt það lið, er hann gæti, þó hann að vísu væri því ekki að öllu leyti sam- þykkur. Jóhann mun af íhalds- þingmönnum hafa einna frek- ast skilning á skipulagsmálurn sjávarútvegsins, en verður að hlíta forstjórn skammsýnni manna. HREINSKILNI ÞINGM. Annars kom margt eftir- tektarvert fram í ræðu hans. Á fundi síldarinnflytjenda í Danzig, þar sem Jóhann hafði mætt fyrir hönd Islendinga í fyrravetur, höfðu kaupmemi- irnir tjáð sig fúsa til þess að kaupa fleiri tugi þúsunda tunna af íslenzkri síld ef hún yrði seld héðan frá einni hendi. Jóhann tjáði stjórninni þetta tafarlaust er heim kom og Ás- geir Ásgeirsson bcðaði til fundar með síldarútflytjendum. Þeir komu á fund. Fundahöldin stóðu á aðra viku, sagði Jó- hann, og var unnið viðstöðu- laust, en því miður með eng- um árangri. Þingm. sagði að síðar á árinu hefði þó Matje- síldarsamlagið verið stofnað, en taldi hinsvegar vafasamt, að því hefði tekist vel að nota Danzig-markaðinn. „Það má kannske segja, að það sé laat um síldarkaupmennina ís- lenzku“, sagði Jóhann, „að þá skorti þroska á móts við aðra landsmenn til þess að hafa samtök um sölu sinnar fram- leiðsluvöru, en þó hygg ég, að mikið sé satt í þessu“. Þetta er harður dómur í garð íslenzkra saltsíldarútflytjenda, og það frá þeirra eigin flokksmanni, en sá dómur mun því miður ekki vera of strangur. Geymsla Reiðhjól tekin til geymslu á Laugavegi 8, Laugavegi 20 og Vesturgötu 5. Sótt heim ef óskað er. Ornixin Símar: w 4661 & 4161. t Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð ,við Ingibjargar Sigriðar Steingrimsdóttnr. íráfall og jarðaríör Aðstandendnz. Eff þér takið tjölskyldutryg-giDgn hjá SVEA hafið þér tryggt fjölskyldu yðar í tilefni af fráfalli yðar: 1. Fastar, mánaðarlegar tekjur í allt að tuttugu árum. 2. Ákveðna peningaupphæð þar er tuttugu ár eru liðin frá því tryggingin var tekin. Enginn fjölskyldufaðir hefir efni á því, að taka ekki þessa á- gætu tryggingu hjá S V E A. — Aðalumboð fyrir Island: C. A. BROBERG, Lækjartorgi 1. Stmi 3132. „Rödd yðar á silfurp!ðtunni“ Þið, sem ætlið að láta liljóðrita raddir ykkar á „Silfurplötuu og senda hana í jólagjöf til ættingja og vina, bæði vestan hafs og austan ættuð ekki að draga það lengi úr þessu. — Illjóðritunarstöðin er i Bankastræti 7, uppi yfir hljóðfærahúsinu, opin frá 3 — 7, og á öðr- utn titna eftir sanikomuiagi. Sami sími og í Illjóðfærahúsinu: 3lb6. Leitið upplýsinga og pantið í tima hjá Atla Ólafssyni, simar utan hljóðrituuartíma: 3015 og 2756. Norðienskt diikakjöt <ð g Hangikjöt, '•5 Nautakjöt, í buff pg gulasch, ^ Svínakótelettur, Svið, H cí tk Iíjúpur, Ilakkað kjöt, Fars, Pylsur. Ennfremttr mjðg ódýrt kjöt af fullorðnu fö. íshúsið Herðubreið Fríkirkjuveg 7. Sími 4565* B REYEID J. GRUNO’S ágæta hollenzka reyktóbak VERÐ: AROMATISCHER SHAG kostar kr. 0,90 Vjo kg. FEINRIECHENDER SHAG — — 0,95- Fæst í öllum verzlunum FREYJU kaffibætisduftið — nýtilbúið — inniheldur aðeins ilmandi kaffibœti, ekkert vatn eða önnur efni til uppfyllingar. Þess vegna er Freyju kaffibætia- duftið drýgst, heilnæmast og bezt. Og þó er það ódýrara en kaffl- bæti í stöngum. Notið það bezta, sem nnnið er í landinu

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.