Nýja dagblaðið - 09.12.1934, Síða 2
N Ý J A
DAOBLAÐIÐ
Jólagjafir
lyrir unga og gamla. Mesta úr aö velja.
Marteinn E'narsson & Co.
Damslells
heldur F. U. J. i Hafnarfiröi í kvöld
(sunnud ) kl. 9 e. m.
Muniö F. U. J. d nsleikir bezt r
S t j ó r n i n
Deildarsljéri
óskast að kjötbúð hér i bænum.
Umsóknir ásamt meðmælum leggist inn á afgr.
Nýja dagbl. fyrir 12. þ. m., merkt „Deildarstjóri“.
Höskuldur Björn^son
M á Iverkasýn ingin
í Goodíemplarahúsinu.
Daglega opin frá kl. 10—8
Hótel Borg-
r
I dag:
Tónleikar frá 3—4
Dansað írá 4-5,30
O.s. Island
fer mánud. 10. þ. m. kl. 6 síð-
degis til ísafjarðar, Siglufjarð-
ar og Akureyrar. Þaðan sömu
leið til baka.
Farþegar sæki farseðla fyrir
hádegi á mánudag. Fylgibréf
yfir vörur komi fyrir hádegi
á mánudag.
Skipaaigreiðsla
Jes Zímsen
Tryg'gvagötu — 'Síuíí 8025
Ótrolegogægilog sunAraun
Ungur sundmaður frá Nas-
kov, Helge Olsen, sýndi fyrir
fáeinum árum þá sundraun í
höfninni í Naskov, að láta
fjötra sig á höndum og fótum1
og- stinga sér síðan í sjóinn.
Kom hann síðan upp af því
kafi eftir tæpa mínútu og þú
laus úr böndunum. Þessa eða
því líka þraut iðkaði hann síð-
an á ýmsa vegu og náðu þær
hámarki 22. f. m. úti í Eystra-
salti.
H. Olsen sigldi út á fiskibát,
ásamt vinum sínum nökkrum.
Þegar út.var komið á opið haf,
voru sett handjárn á hann,
því næst vafin járnfesti um
handleggi og bol, en fætur
bundnir saman.
Við annan fótinn var bundin
löng taug og við hana festur
50 kg. þungur jámklumpur.
Þannig útbúnum var honum
varpað í sjóinn, er þar var ærið
djúpur, þannig, að járnklump-
urinn hlaut að draga sundmann-
inn niður, sem var ekki í neina
sambandi við bátinn.
Loksins eftir tvær mínútur
og seytján sekúndur skaut hon-
um upp. Honum hafði fljótt
tekizt að losa sig við handjárn-
in, sömuleiðis losnaði hann
brátt við fjöturinn, bæði um
fætur og bol. En þungi járns-
ins varð honum erfiðastur. Það
togaði hann stöðugt niður á
við og hann var rétt í þann
veginn að missa meðvitundina,
er honum tókst loks að losa sig
við taugina.
Og um leið og honum var
náð inn í bátinn leið sund-
garpurinn í öngvit.
Þrátt fyrir þennan hættulega
leik, sem nær hafði kostað har.n
lífið, segir blaðið, er frásögnina
birtir, að H. Olsen ætli næsta
sumar að endurtaka þessa sjald-
gæfu sundraun.
Foringi Tsjeljuskin*
leiðangiirsins
búinn í aðra íshafsferö.
Allir þeir, sem fylgst hafa
með erlendum fréttum og við-
burðum síðustu tíma, kannast
við nafn prófessors Schmidt,
Rússans, er komst í hann
krappastan í Norðuríshafinu s.
1. vetur, ásamt skipshöfninni á
ísbrjótnum rússneska, sem
sökk þar norðurfrá.
Prófessor Schmidt var bjarg-
að, með naumindum þó, hann
var fluttur veikur til Alaska,
en fólk hans flest til Asíu,
og varð sú björgun víðfræg.
Nú herma erlend blöð, að
Schmidt sé þess albúinn að
leggja í aðra rannsóknarför
norður í höf. Leggur stjórn
Rússlands til ísbrjótinn Sadko,
sem á m. a. að hafa tvær flug-
vélar innanborðs.
Stjórnin leggur á það hið
mesta kapp, að kanna höfin
norðan Asíustranda og komast
að þvi, hvort auðið sé að sigla
norðausturleiðina svonefndu,
þ. e. milli Atlanzhafs og Kyrra-
hafs, norðan Síberíu.