Nýja dagblaðið - 21.12.1934, Blaðsíða 5

Nýja dagblaðið - 21.12.1934, Blaðsíða 5
í* 1 i A SAOSJUA'BIB B Bagnheiður Jónsdóttir: Æfinfýralaikir Fáar skemmtanir eru börn- um kærari og þroskavænlegri en góðir sjónleikir. En allt of lítið hefir hér verið gert til þess að laða börn að þeirri fögru list, og nota hana í þarf- ijr uppeldisins. Erum vér í því efni eftirbátar flestra grann- þjóða vorra. íslenzk böm hafa því miður haft lítið af þessháttar leikj- um að segja, því að þessi grein barnabókmennta vorra hefir verið mjög fáskrúðug. Er það því sérstakt gleðiefni, að henni hafa nú í haust bætzt tvær góðar bækur, hvor á sínu sviði. Steingrímur kennari Arason gefur út aðra þeirra og nefnir Helgu í öskustónni. Er hún fyrst og fremst ætluð skóla- bömum til náms í lestri og framsögulist, en nokkrir leikj- anna eru einnig vel fallnir til sýninga á leiksviði. Bókin er í stuttu máli hin prýðilegasta of auk þess ódýr. Er barna- skólunum áreiðanlega mikill fengur í henni. Hin bókin heitir Æfintýra- leikir og eru þeir einkum ætl- aðir til sýninga á almennum skemmtistöðum. Frú Ragn- heiður Jónsdóttir kennari hefir samið leiki þessa, en Þorsteinn M. Jónsson gefið þá út. Er þetta fyrsta bók höf., en frúin er þó áður góðkunn fjölda bama fyrir sögurnar, sem hún hefir sagt þeim í útvarpið. tamsmms*ESíássís^s-. ■ -■ Bókin er 110 bls. og pappír- inn góður. Hún er bundin í stíft og bandið allgott. Verð kr. 2,50. í kverinu eru fjögur leikrit, og vitanlega öll stutt, eins og venjulegast er um leiki handa bömum. En það tekur lengri tíma að sýna leiki þessa en virðast mætti við fljótan yfir- lestur. Ekki valda því örðugar sviðbreytingar eða nijög tíð þáttaskil, heldur líkamsæfingar og dansar, sem’ felldir eru inn í leikina. Eykur það mjög fjölbreytni og gerir sýningarn- ar miklu glæsilegri, ef vel er með farið. En séu ekki tök á að sýna þá, má oftast sleppa dönsunum, án þess efni leikj- anna raskist. Leikirnir heita: Dóttir skýjakonungsins, Hvíti riddar- inn, Gilitrutt og Nátttröllið. Efnið er góðkunn æfintýri og vinsæl meðal barna. Veit ég, að þeim er forvitni á að sjá kónga og drottningar, dverga, álfa og undravættir, sem þau hafa áður kynnst af frásögn sinni, birtast ljóslifandi á leiksviðinu. Og ánægjan mun engu minni hjá þeim, sem spreyta sig á að sýna þessar persónur í allri þeirra dýrð, mætti, tröllskap og afkárahætti. En fullorðnir á- horfendur njóta vafalaust ó- blandinnar ánægju, ef leikur bamanna tekst sæmilega, og lifa aftur í leik þeirra nokkrar gleðistundir liðinnar bernsku. B. SL J. JðlatrésskemmtuD Framsðknarmanna Jólatrésskemmtun Framsókn- armanna verður haldin 28. þ. m. í K.R.húsinu. Það var fyrst í fyrra, sem tekin var upp sú nýbreytni að efna til slíkrar skemmtunar og gafst þá vel. Er áreiðanlegt, að allir, sem sóttu þá skemmtun munu koma á þessa og hefir því verið séð fyrir stæri’a húsrúmi, svo fleiri geti komið núna. Framsóknarmenn efna ekki til annarar skemmtunar um jólin að þessu sinni. Má því telja víst, að skemmtun verður engu síður vel sótt af þeim eldri, en þeim yngri. Er full- orðnum ætlaður aðgangur eftir kl. 10 og verður dansað eftir þann tíma lengi nætur. Þarf eklci ag fjölyrða um það, að þessi skemmtun verð- ur bæði fjölmenn og skemmti- leg. Vetrarhjáfpin Forstöðunefnd Vetrarhjálp- arinnar þakkar bæjarbúum fyrir drengilegan stuðning að starfi. Hefir nú með atbeina þeirra þegar reynst fært að hjálpa hátt á annað hundrað heimilum um matvæli, fatnað og kol. Níu stúlkur eru stöðugt að fatasaumum, enda er þörfin allra mest á því sviði. Daglega bei’ast 30—50 nýjar hjálpar- beiðnir. Verður því aðeins nokkur leið til að veita öllum hjálp, að gjafir frá bæjarbú- um fari enn vaxandi. 1 fullu trausti til góðvildar þeirra og hjálpfýsi, heitir nefndin á þá sér til styrktar. Gjafir sendist sem allra fyrst til skrifstofu Vetrar- hjálparinnar Laugaveg 3, sem er opin daglega lvl. 1.30—4, sími 4658. Vetrarhjálpin þyríti enn- fremur að geta sent jólaglaðn- ing til a. m. k. 500 heimila. 1 von um, að það megi tak- ast, óskum vér öllum gleðilegra jóla. Bókín »Úti-íþróttir« kom út í gær eftir Moritz Rasmnsseu og Carl Silverstrand með 120 myndum. Verð kr. 4.50 Nauðsynleg bók hverjum íþrótta- manni, Tilvalin jólagjöf handa ungum mönnum. Iþróttatélag Reykjavíkur Nú eru jólin að ganga í garð! Hvað á að borða? Rjupnasteik, Gæsasteik, Andasteik, Svínasteik, Nautasteik, Svínakótelettur, Nautabuff af ungu, Gulasch, Beinlausir fuglar, Hangikjöt af Hólsfjöllum, Norðl. dilkakjötið, Rauðkál, Hvítkál, Blómkál, Purrur, Selleri, Rauðbeður, Gulrætur, Grænar baunir, Sultutau, innl. og útL, Pickless, EpU, Appelsínur, Þurk. ávextir, Ostar, 4 tegundir, Skinke, Salat, 2 tegundir, Rjómabússmjör frá Ak,, Glæný ísl. egg, Kryddsíld, Marineruð síld í gL -----Allsk. áleggspylsur. — — Nú eru að verða síðustu foiröð með jólapantanir, — pantið því strax i dag. Kfötbúd Reykjavikur Vesturgötu 16. Sími 4769. Oott píanö í mahogni-kassa, ódýrt til sölu til jóla. Hljóðfærahúsið. Ný-orpin egg Húsmæður! Hafið þér athugað að kaffibrauðið verður bragðbetra úr nýjum eggjum en gömlum? Ef ekki, reynið þá nýju eggin frá Eggjasölusamlaginu nú í jólabaksturinn, og þér munuð sannfærast um, að þér komizt af með minna af þeim og fáið þó betri kökur. Eggin frá EggjasÖlusamlaginu eru stimpluð og flokkuð, og koma daglega ný-oxpin á markaðinn. Fást í heildsölu hjá Árni Sigurðsson fríkirkjuprestur. Ásmundur Guðmundsson háslcólakennari. Magðalena Guðjónsdóttir hjúkrunarkona. Þuríður Þorvaldsdóttir hjúkrunarkona. Þórsteinn Bjarnason Bskur tii jólagjafa Allar fáanlegar íslenzkar bækur, fjölbreytt úrval á er- lendum málum, ensku, dönsku, norsku, sænsku(t. d. hin prýði- lega og ódýra afmælisútgáfa af Selmu Lagerlöf), þýzku og frönsku. RlMUR FYRIR 1600. Sláturfélagi Suðurlands Simi 1249 jrólagjafir Allar beztu nýju bækurna og mikið úrval af eldri bókum. Unglinga og barnabækur Bókaverzlun Spil, margar tcgundir og ódýrar Halldóp Eíríksson, Hafnarstra'ti 22 Sími 8175 ódýrasta bók ársins (548 bls., 10 kr.). Á morgun á höfund- urinn (Björn K. Þórólfsson) að verja þetta rit til doktorsnafn- bótar. Réttast að kaupa bókina strax í dag. Bókaverzlun Snæbjarnar Jónssonar Gnðm. Gamalíelssonar Simi 3263 Baðhús Reykjavíkur vorður opið sem hér segir: Verzlið við þá að öðru jöfnu, sem auglýsa ( Nýja dagblaðinii Laugardaginn 22. til kl. 12 á miðnætti. Sunnudaginn 23. tll kl. 6 e. h. Aðfangadag til kl. 2 o. h.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.