Nýja dagblaðið - 15.01.1935, Side 2

Nýja dagblaðið - 15.01.1935, Side 2
2 H t J A OAQBLABIB HattaYerzlun Margrétar Leví Stór útsala Nú er tækifærið að fá ódýran og smekklegan hatt Hattaverzlun Margrétar Leví Stór verðlækkun Nýr fiakur kemur daglega ef veður leyfir og verður seldur í portinu hjá Von, Laugavegi 55, og byrjar salan í dag, 15. janúar, og kostar 7 aura 7* kg, 'af þorski á staðnum, 8 aura heimflutt, minnst sent 10 kg, Ýsa 12 aura V* kg. Tekið á móti pöntunum í síma 2266. utan matar, drykkjar og hlýinda, er barninu nauðsyn- legra eu leikföng, — Af leikföngunum læra börnin fyrst að hugsa og starfa, Leikföngin gleðja barnið, Gleðin er undirstaða heilbrigðinnar, Gefið bárninu yð- ar því öðru hvoru leikföng frá Bazarnnm 4 Lang&veg 26. Jóhann Sæmu’dsson, lœknir hefir opnað lækningastofu í Kirkjustræti 8 B. Viðtalstími kl 4-6, Sími: 2262, — Heima: 2262, Prjónavélar Husqvarna- prjóúavélar eru viðurkenndar fyrir gæði Þó er verðið ótrúlega lágt Samband ísl. samvinnufélaga Fóðurbætir Bezti föðurbætirinn er S.I.S. - Fódmblanda. Reynið hana. Samband isl. samvínnufélaga Ialenzkar s&gnir og kveðling&r Tómas Steinsson og sögur hans [I haaclritasaini Landsbókasa)ns>ns oru nokluar sfignir úr fói'um Oiafs Daviðssonar frá Hofi i Eyja- tirði, en hann vai’ dtiglegui’ þjóðsagnasafnari, sem kunnugl er, og gaf út þjóðsagnahefli, sem náði miktum \insaddum. I himi óprer.iaðii safni Olafs eru nokkrar sagnir, sem hann kallar „íslenzkar stórlygasögur", og cm sögur Tómasar þaðan tckn- ar. Segir Olafur, að þirr séu „cftir liandriti Arna ))orkelssonar í Sandvík i Grímsey 18Ö5, en hann liaíði eftir sögnum Grímseyinga, cinkum Tómasar, sonai' Tómasar Steinssonar, og Guðmundar lirepp- stjói'a Jónssonar". Athugasemdir neðanmáls eru eftir handriti Ólafs. Fleiri saguir úr sögnum Ól- als verða. biitar í þessu safni smám saman]. Tómas Steinsson er fæddur 1761, og er ætí lians ókunn, enda sveit sú, er hann ólst upp í, en þó er líklegt, aó hann hafi verið eyfirzkúr, ;>ví þaðan fór hann til Grímseyjar vorið 1775 til Benedikts bónda Maguússonar á Borgum. Benedikt þessi var að mörg'ti leyti undarlegur, en gáfumaður og hagorður. Er ein af vísum þeim, sem honum eru eignaðar, þessi: Drýgir lesti’ á kjalars kvon, kenndur flest við slaður Arni prestur Illugason, allra versti maður*)- ________í? ■ *) Séra Arni varð prestur í Grímsey 1787. Hann var faðir Jóns Arnasonar þjóðsagnamanns. Hjá Benedikt bónda mun Tómas hafa verið, l'angað til hann kvæntist Guðrúnu dóttur hans, sem ekki verður séð, hvenær hefir veríð, en kvæntur var hann henni 1807 og þó líklega nokkru fyrr. Guðrún drukknaði á leið til Eyja- l'jarðar á skipi, er fórst. Hét það Strauimönd og átti heima í Eyjafirði. Þetta var fyrir 1828, því þá var Tómas kvæntur Steinunni Sigfús- dótur fi'á Steindyrum, sem lifði hann og flutti til Eyjafjarðar og dó þar. Með fyrri konu sinni •átti Tómas tvö börn, sem upp komust, Tómas, ov bjó á Borgum eftir föður sinn, móðurföður Önnu, konu Guðna Þórðarsonar á Kvíslarhóli á Tjörnesi, og Guðrúnu, móður Soííu á Kaðals- stöðum. Tórníjs Steinsson dó 15. maí 1843, 82 ára. Tómas var í hærra dagi og þrekinn, enda rammur að afli, og vissu menn ógjörla hve sterkur hann var, því að hann var ekki gefinn fyrir aflraunir. Hitt vissu menn, að honum var ekki um megn það, er hann reyndi. Á voi-in reri hann til fiskjar með vermönnum, er höfðu uppsátur hjá honurii, og tók þá tvo riluti, enda tók hann jafnan tvo hluti, hvar sem hann reri, og' reri líka á móti tveimur, hvort sem þeir áttu undír sér meira eða minna. Tómas var drengilegur í vfirbragði og þó ekki . Framh. I t I LárusH.Bjarnason fyrverandí hæstaréttardómari Lárus H. Bjarnason fyrver- andi hæstaréttardómari var jarðsettur hér í bænum í gær. Mér eru fyrir minni þrjár myndir úr æfi hans. Fyrstu myndina sá ég í K- hafnar-tímariti þegar ég var á barnsaldri. Hún var af ungum, glæsileguan manni, fríðum, til- komumiklum, mánni, sem sýnd- ist bera það með sér, að hann ætti að verða einn af þeim, sem ganga í fararbroddi heillar kyn- slóðar. Þessi mynd var gerð þegar L. H. B. var ungur lögfræðing- ur. Síðan liðu mörg ár. Hann varð sýslumaður og síðar há- skólakennari, leiðtogi í öðrum áhrifamiklum flokki landsins, rnikill skörungur á Alþingi, dáð- ur af vinum og hataður af and- stæðingum. Mestj blaðamaður landsins beitti allri orku á móti honum og gerði hann kunnan hvefju mannsbarnj á landinu undir fangamarkinu L. H. B. Mér er hann í minni í annað sinn á framboðsfundi í barna- skólaportinu í Rvík þrem ár- um fyrir stríðið. Hann stóð þá á tindi frægðar. sinnar og valda. Hann var fylgismesti stjóm- málamaðurinn í höfuðstaðnum. í það sinn var kosið á laugar- degi. L. H. B. hafði þá að kjör- orði málsháttinn: „Laugardag- ur til lukku“. Og lukkan bar hann lengra áfram. Hann vann mikinn kosningasigur. Tiltrú annara gerði manninn stærri. Þeim1, sem mættu honum á götu, fannst hann höfði hærri en aðrir menn. Síðan liðu nokkur missiri. L. H. B. hafði byrinn með sér. En þá steig hann eitt óhappaspor. Hann gerði það í dag, sem bet- ur hefði beðið til morgun3. Hann bauð sér í hið innsta sæti en beið ekki þess, að hann yrði þangað leiddur. Þá hætti laugardagurinn að vera lukkudagur fyrir L. H. B. — Hann viltist frá samtíð sinni. Hann gekk einn áfram götu sína, en samtíðin annan veg. Nýir tímar og nýjar stefn- ur gengu yfir landið. Forustu- mennimir, sem höfðu vaxið upp og mótast fyrlr aldamót, áttu bágt með að skilja þá kyn- slóð, sem lék sér með stríðs- gróðann. L. H. B. var einn af þessum mönnum frá því fyrir aldamót. Atburðimir 1913 höfðu skilið hann frá flokki sín- um og einangrun hans varð því meiri, sem aldarandinn breytt- ist. Síðan liðu rúmlega 20 ár. L. H. B. hélt áfram að gegna sín- um vandasömu störfum í há- skólanum og hæstarétti. Hann var þar hinn skyldurækni og ör- uggi embættismaður, sem lét sér annt um sæmd sína og sæmd starfsins. Mér er L. H. B. í minni frá þessum árum. Hann hafði enn mikið af þeirri orku og stæl- ingu, sem bar svo mikið á í myndinni gömlu í Sunnanfara. Hann hafði enn mikið af þeim höfðingsskap, sem einkenndi hann á árunum, þegar hann var höíuðsmaður í félagsmál- um Reykjavíkur. í öllumi aðal- atriðum var L. H. B. samur og áður. Hið eina sem hafði breytzt, var viðhorfið til ann- ara; nú var hann í einskonar útlegð í sínu eigin landi og í sinni eigin borg. Hin andlegu bönd, sem tengdu hann við sam tíðarlífið, höfðu brostið. Nú sýndist hann ekki fyrirferðar- meiri en aðrir menn, heldur einn af sinni þjóð. L. H. B. var einn af fyrir- mönnum sinnar samtíðar. Og að líkindum er ekki sanngjarnt að búast við, að nokkrum manni sé lánað meira en að fá að vinna mikið dagsverk með sinni eigin kynslóð. J. J. Vörur hinna vandlátu Mána-b6n Mána-skóábnrdur Kristall-þvóttasápa Mána-stangasópa Spegýll-fegilögur Rex-húsgagna- áburðnr Verzlið við þá aö öðru jöfnu, sem auglýsa < Nýja dagblaðinu V

x

Nýja dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.