Nýja dagblaðið - 20.03.1935, Qupperneq 1
Líftrv^iMastofnun
Frumvarp nm bana er nú flntt at meirahluta
allsherjarneindar Nd., samið at Arna Björnssyni
t'yffflngatrsiingi
Meirihluti allsherjarnefndar
neðri deildar flytur sanikvæmt
beiðni atvinnumálaráðherra
frumvarp til laga um Líftrygg'-
ingarstofnun ríkisins. Upphaf-
lega er frv. samið af Árna
Bjöi’nssyni tryggingarfræðing
eftir beiðni skipulagsnefndar,
sem síðar hefir gert á því ýms-
ar breytingar.
Samkvæmt frv. skal setja á
fót stofnun fyrir iíftryggingar,
sem nefnist Líftryggingarstofn-
un ríkiöins og hefir hún með
höndum alla venjulega líftrygg-
ingarstarfrækslu hér á landi.
Eftir 1. jan. 1936 er engum
öðrum heimilt en líftryggingar-
stofnun ríkisins, að taka að sér
líftryggingar, af hvaða tegund
sem er.
Núverandi liitrygglngar
kosta erlendan gJaldeyrL
I greinargerðinni segir, að
liftryggingarstarfsemi hér á
landi hafi eingöngu verið rekin
af erlendum félögum og stofn-
unum, en það myndi tvímæla-
laust verða til mikilla bóta, að
gera líftryggingarstarfsemina
innlenda.
Á síðari árum hefir verið
skortur á erlendum gjaldeyri
til kaupa á erlendum nauð-
synjavörum, en á meðan líf-
tryggingarstarfsemin er rekin
hér af erlendum stofnunum,
verður yfirfærsla iðgjaldana
jafnan einn liður, sem eykur
þörfina fyrir erlendan gjald-
eyri. Innlend tryggingastarf.
semi mundi hinsvegar á því
sviði takmarka gjaldeyris-
þörfina á varanlegan hátt.
Líftryggingastarfsemi hér á
landi hefir farið mjög í vöxt á
síðustu tveim áratuguml Ná-
kvæmar skýrslur eru að vísu
ekki til um þessa starfsemi, en
af þeim skýrslum, sem eru til,
virðist mega ráða, að tala
tryggingarskírteina hafi meir
en 5-faldazt á árunum 1914—
1982, og að tryggingaupphæð-
ir hafi meira en 10-faldazt á
sama tíma.
Ária 1032 vorn iglenxkir
menn liitryggBir íyrir nm 27
milj. kr.
Samkv. Hagtíðindum (19.
árg. nr. 4) hefir tala trygginga
og samanlagðar tryggingar-
ulpphæðir í árslok verið sem
hér segir:
Lífsábyrgðir
Upphæðir
Tala kr.
1914 ......... 1353 2530452
1932 ......... 7219 26925410
Þó eru árið 1932 ekki með-
taldar tryggingar, sem enn
kunna að hafa verið í gildi af
líftryggingum félaga, sem áð-
ur hafa starfað hér, en nú eru
hætt að taka nýjar tryggingar
og hafa hér engan umboð3-
mann. En jafnframt er talið
sennilegt, að eitthvað vanti á,
að taldar séu allar tryggingar
árið 1914. Það má því telja lík-
legt, að það, semj vantalið er,
raski ekki mikið þeirri hug-
mynd um vöxt líftrygginga-
starfseminnar, sem taflan gef-
ur.
Árley lSgJBld um 800 þús.
Líftryggingastarfsemi er nú
rekin hér á landi af 6 líftrygg-
ingastofnunum. Þar af eru
þrjár danskar, tvær sænskar
og ein norsk. Iðgjöld hafa sam-
tals numið þeira upphæðum,
sem hér greinir:
Iðgjöld:
1980 ..............kr. 469232
1981 ................— 570054
1982 ................— 579127
Þessar tölulr bera það með
sér, að líftryggingastarfsemi
hér á landi hefir farið vaxandi,
þrátt fyrir kreppuna, og bend-
ir það til þess, að líftryggingar
hafi þegar náð hér almennri
hylli, þótt mikið vanti á, að
þær hafi náð svo mikilli út-
breiðslu sem í nágrannalönd-
unum.
]ói Pirláksson
borgarstjóri
andaðist að heímili sinu í nótt
klukkan hálf tvö, eftir stutta
legu.
Banameinið mun hafa verið
hjartabilun.
Frakkar og Italir ásaka Breta
fyrir að senda sir John Simon til Berlin
»Vér munum þurka hina fasistisku
ræningja út af yfirborði jarðarinnar«
segir Sovét-blaðið Pravda
porbergur porleifsson alþm.
Þau einkennilegu mistök
urðu í prentsmiðju Nýja dag-
blaðsins í gær, að mynd af Sig-
urði Baldvinssyni póstmeistara
lenti inn í blaðið í stað myndar
af Þorbergi Þorleifssyni alþm.
Orsökin vai- sú, að myndarmót-
ið, sem áður hafði verið notað
í blaðinu, hafði • í ógáti verið
sett í skakkar umbúðir, með
mynd af Þ. Þ. utan á, og villfci
þetta þann, sem annaðist „um-
brot“ blaðsins. En þessi mis-
tök hafa að einu leyti haft
mjög góðar afleiðingar, því að
myndin af formanni útvarps-
notendafélagsins minnti í gær
marga frjálslynda útvarpsnot-
endur í bænum á það, að þeir
áttu eftir að fara á kjörstað-
inn í húsi Páls Stefánssonar við
Lækjartorg og kjósa
C-listann.
Yflrlýsing
Bergur Jónsson bæjarfógeti
í Hafnarfirði hefir, að gefnu
tilefni, beðið blaðið að birta
eftirfarandi
SlMSKEYTL
„Alþingismaður
Bergur Jónsson,
Reykjavík.
Ég lundirritaður settur sýslu-
maður í Barðastrandarsýslu
votta. hérmeð, að þér hafið af-
hent mér tregðulaust allai- þær
peningagreiðslur sem yður sam-
kvæmt bókum embættisins bar
að inna af hendi.
Patreksfirði 19. marz 1935.
Þorsteinn Símonarson.
Undirskriftina staðfestir J.
M. Snæbjörnsson stöðvarstj.“.
Lygasaga, sem gengið hefir í
bænum um fjárreiður Bergs
Jónssonar í Barðastrandar-
3ýslu, er hér með kveðin niður.
London kL 20.30 18/3. VÚ.
Orðsending brezku stjórnar-
innar til þýzku stjómarinnar
var birt í London í kvöld. Hefst
hún á mótmælum gegn því að
Þjóðverjar skuli auka landher
sinn og sé sú ráðstöfuh hin
háskasamlegasta, þegar þar við
bætist einnig tilkynning þýzku
stjórnarinnar um stofnun flug-
hers.
Þá bendir brezka stjómin á
orðsendingu Breta og Frakka
3. febr. Er sýnt fram á, að þar
var gert ráð fyrir hernaðar-
herra og utanríkisráðherra þar.
Texti hins brezka boðskapar til
þýzku stjórnarinnar var birtur
í Berlín í dag.
Þýzk blöð ræða mjög mikið
um væntanlega komu Sir John
Simon til Berlínar. Sama máli
gegnir um ítölsk blöð. Þau
telja för Sir John Simon á
þessum tíma örlagaríka bend-
ingu um það, að ekki takist að
ná samvinnu milli Frakklands,
Italíu og Bretlands gagnvart
Þýzkalandi. Kemst eitt blaðið
svo að orði, að með þessan för
Ungar stúlkur úr rauða hemum.
bandalagi til varnar friðinum
í álfunni og jafnframt nýju
samkomulagi um vígbúnað
Þjóðverja, sem kæmi í stað
tilsvarandi ákvæða Versala-
samninganna.
Telur brezka stjómin að
Þjóðverjar hefðu ekki átt að
taka neina slíka ákvörðun fyr
en að loknum þeim umræðum.
Að lokum spyr stjórnin að
því, hvort Þjóðverjar óski eft-
ir umræðum, á þeim grundvelli,
er um hafði verið samið.
Neurath utanríkisráðh. Þjóð-
verja tók við þessari orðsend-
ingu síðdegis í dag. Skömmu
síðar tilkynnti hann, að Þjóð-
verjar óskuðu eftir þessum
umræðum.
Frönsk blöð mæla með því,
að málinu sé skotið til Þjóða-
bandalagsins. Rússnesku blöðin
segja, að herlög Þjóðverja
sýni, að þeir séu að búa sig
undir árásarstríð.
London kl. 17, 19/3. FÚ.
Stjómmálamenn eiga ann-
íikt í dag við að undirbúa við-
ræðumar í Berlín í byrjun
næstu viku. Sir John Simon
hefir í dag átt viðræðu við
sendiherra Itala og Frakka í
London um þessi mál, og sams-
konar viðræður hafa átt sér
stað í París og Róm milli sendi-
hafi Bretland gert að engu
allar vonir um slíka samvinnu,
en sýnt að það ætli að ráða
ráðum sínum á eigin spýtur.
Annað blað segir, að allur
grundvöllur sá, er áður var
undir þessum væntanlegu um-
ræðum, sé hruninn og að jafn
slyngur stjórnmálamaður, sem
Sir John Simon, hefði átt að
vera maður til að hegða sér
eftir hinum breyttu kringum-
stæðum.
Nokkur hluti þýzkra blaða
lætur í ljósi kala og tortryggni
í garð Englendinga, og segja
þau sem svo, að Bretland þurfi
ekki að gera sér vonir um að
ráða um vígbúnað í Þýzkalandi.
Það sé Þjóðverja einna að
skera úr slíku og öðrum verði
ekki þolað að blanda sér í það.
Frönsk blöð taka heldur
kuldalega í liinn brezka boð-
skap og yfirleitt í afstöðu Eng-
lendinga. Þeim ber öllum sam-
an um það, að hin nána sam-
vinna Frakklands og Bretlands
hafi beðið mikinn hnekki. Eitt
blaðið kallar slíkan boðskap
beinlínis sprengikúlu, sem skot-
ið sé á samvinnuhugmyndirnar
milli Frakklands og Englands
og önnur líta svo á, að mjög
illa hafi tekizt. Blaðið Eclio
De París segir, að þetta hve
Framh. á 4. síðu.