Nýja dagblaðið - 17.04.1935, Side 3
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
8
Takmörkun á
erlendu byggingarefni
Eftir Kjartan Ólafsson húsasmíðameistara
Nú þegar við verðuml að
mæta því, sem staðreynd, að
ininnka þurfi innflutning á er-
lendu byggingarefni, allveru-
lega, jafnvel um 30—40% mið-
að við árið 1933 og meira í
hlutfalli við innflutnings síðast-
liðins árs. Þá verður að taka
til athugunar alla þá mögu-
leika, sem finnanlegir eru til
að láta þessa takmörkun hins
erlenda efnis ekki koma fram
í tilsvarandi minnkun húsa-
gerðar og auknu atvinnuleysi
byggingariðnaðarmanna og
annara, sem að húsabyggingum
vinna. Þessu marki verður að
ná að miklu á þessu ári og al-
veg á næsta ári,- með aukinni
vinnslu og notkun á innlendu
þyggingarefni og bættri tilhög-
un á vali og meðferð hins er-
lenda efnis. Vil ég fyrst benda
á, að banna innflutning á
öllum tiltölulega dýrum, en
óvaranlegum efnum, svo sem
allskonar veggfóðurplötum1, sem
fluttar hafa verið inn í all-
stórum stíl, nú síðustu árin.
Ennfremur kork og öðru ein-
angrunarefni og jrfirleitt öllum
þeim efnum, sem hægt er að fá
tilsvarandi innanlands. Þá má
takmarka mjög kaup á bik-
pappa og bárujárni, enda ekki
skaði þó bárujárn væri lagt
niður til nýbygginga, en óhjá-
kvæmilega verður að flytja það
inn, lítið eitt, til viðhalds
gömlum húsum. Þá verður
einnig innflutningur á hurðumí
og gluggum, bæði úr tre og
málmi, að leggjast niður, svo og
„gabon“-plötum, sem eru óhæfi-
lega dýrar í hurðir. Einnig þarf
að taka til athugunar, hvort
ekki borgar sig að kaupa allt
timbur sagað i borð, eða jafn-
\ el aðeins í planka og flytja á
þann hátt inn í landið þá
vinnu, sem frekari vinnsla á
því útheimtir — hefling, plæ-
ing og fleira.
Þá verður að breyta húsa-
gerðinni í þá átt, að húnin séu
undantekningarlítið byggð úr
steini í hólf og gólf, éinangruð
með vikur mó eða torfi, 1 stað
pappa, timburs og mjírhúðar
með vímeti, sem nú er mest
notað þegar sæmilega er geng-
ið frá húsumi hér í Reykjavík.
Með þessu móti sparast af út-
lendu efni klæðning á alla út-
veggi húsanna, úr pappa og vír-
neti ásamt tilheyrandi trébind-
ingum. Svo sparast allt timbur,
pappi og þakjám, ef þökin em
steypt, einangruð méð áður-
greindum efnum og bikuð ofan.
Líldega verður einhver svo
fljótfær að halda því fram, að
það sé vafasamur hagnaður að
spara svo timbur til húsanna
og nota ekki mótaviðinn í hús-
in — í þök undir múrhúð og
fleira eins og gert hefir verið.
Því er til að svara að steypa
má mörg hús í sama mptaviðn-
um án mikilla affalla, ef g»tt
er sæmilegrar hagsýni við
mótagerðina og meðferð viðar-
ins.
Þá þarf að fyrirbyggja allan
„luxus“ og gæta ítrustu spar-
semi um val á gólfdúkum, hit-
unartækjuim, handlaugum og
fl. Jafnvel má spara í bráð
ýirisa dýra hluti, þó gagnlegir
séu, svo sem gúmmídúka, vegg-
flísar, baðker og fleira.
Má í þessu sambandi við hit-
unartækin benda á, að auðvelt
væri að búa til hér miðstöðvar-
ofna. Mundi það skapa nokk-
ura atvinnu og minnkaðan inn-
flutning, þó sækja þurfi efnið
til útlanda.
Ef samtaka og ákveðið vero-
ur unnið í þessa átt, sem hér
er bent á, þá getum við ábyggi-
lega haldið áfram sama, eða
jafnvel aukið innflutning á
sementi, steypustyrktarjárni
og öðrum þeim efnum, sem
þessi húsagerð óhjákvæmilega
útheimtir, þó skertur verði —
að verðupphæð, — allverulega
heildarinnflutningur bygging-
arefnisins. Væri þá því tak-
marki náð, að geta byggt á ári
bverju ekki færri íbúðir en
gjört hefir verið að undan.
förnu.
Það að breyta til og spara út-
lent efni í byggingararnar og
geta með því haldið áfram1 eða
jafnvel aúkið húsagerðina, má
öllum vera Ijóst, að er okkur
ihin mesta lífsnauðsyn, en hitt
er líklega ekki mönnum' al-
menn ljóst, að einmitt þessi
sama breyting hefir stórkost-
legt gildi, sem endurbót á húsa-
gerðinni. Nægir í því efni að
benda á þá reynslu, sem feng-
in er með mó og vikur, seini
einangrunarefni. Svo og það,
að útrýma að mestu timbri og
með öllu pappa og bárujárni,
sem eru óvaranleg efni, dýrt í
viðhaldi og óeldtryggt.
Þá mun margur spyrja:
Getum við breytt til méð húsa-
gerðina og það tafarlaust? því
nú þegar er farið að spara út-
ienda efnið.
Það getum við ekki svo full-
ur árangur fáist, nema að allir
aðilar séu samtaka, byggingar-
fræðingar, byggingaiðnaðar-
rnenn, bygginganefndir kaup-
staðanna og* aðrir, sem um
þessi mál fjalla, vinni í sam-
ráði við gjaldeyrisnefnd og fái
íulla aðstoð ríkisstjórnarinnar.
Enda verður ríkið að greiða
íyrir flutningi og vinnslu á hin.
um ínnlendu byggingarefnum,
svo þau verði ekki einstakling-
um dýrari en sambærileg út-
lend efni. Væri efalaust hægt
að verja til þessa noltkuru af
atvinnubótavinnunni og þar
með gjöra hana hagnýtari en
verið hefir að undanfömú.
Þegar aðgætt er að auk þess,
sem við þurfum að byggja yfir
þá fólkstölu, sem árlega bætist
við þjóðina, 3.—4. hundruð
NtJA DAGBLAÐIÐ
Útgeíandi: .Júaðaútgáfan h.f."
Ritstjórar:
Gísli Guðmundsson.
Hallgrímur Jónasson.
Ritstjómarskrifstofumar
Laugv. 10. Símar 4373 og 2383.
Afgr. og auglýsingaskrifstofa
Austurstr. 12. Sími 2323.
Áskriftargjald kr. 2,00 á mán.
í lausasölu 10 aura eint.
Prentsmiðjan Acta.
íbúðir á ári hverju, þá erum
við á fáum áratugum að endur-
urnýja allan húsakost þjóðar-
innar, því að allt fram að síð-
ustu aldamótum var ’ tæplega
byggt nokkurt hús, sem nú
og framvegis verður talið íbúð-
arfært. Með tilliti til þessa má
það vera öllum ljóst, að bygg-
ingaiðnaðurinn er orðinn stór
þáttur í atvinnulífi þjóðarinn-
ar og jafnframt mjög mikils-
verður þáttur í þjóðarbúskapn-
um, meðan við sækjum megin-
hluta byggingarefnisins til
annara landa. Byggingariðnað-
armenn hér í Reykjavík hafa
margir, og ég vona flestir, gert
sér ljóst, hvernig þessum1 mál-
um horfir nú við, og erú þess
reiðubúnir að taka það föstum
og skynsamlegum tökum, að
því leyti sem1 þeirra verka-
hringur leyfir, eða þeir verða.
til ráða kvaddir.
Um leið og ég framset hér í
stuttum dráttum! þau úrræði,
sem mér eru ljósust við um-
hugsun þessa stórmáls, þá er
þag með fullri kröfu þess að
þegar verði tafizt handa og
ekki látið „fljóta sofandi að
feigðarósi", meðan iðnaðar-
mennirnir erú að berast yfir í
hóp atvinnuleysingjanna og
þjóðin stöðvuð méð þær fram-
kvæmdir, sem öðrum fremur
bera hana áfram til frekara
menningarlífs.
Ur víngarðí
íhaldsins
Úr víngarði íhaldsins.....
Kaupgreiðslur Magnúsar Guð-
mundssonar og Þorst. Briem
1933 til nokkurra „verkamanna
: ríkissjóðs.
I.
Háttsettur íhaldsmaður í
stjórnarráðinu:
1. Laun................kr. 6000
2. Dýrtíðaruþpb. ... — 690
3. Fyrsti bitlingur . . — 1200
4. Annar bitlingur . . — 1500
5. Þriðji bitlingur .. — 633
6. Fjórði bitlingur .. — 764
7. Fimmti bitlingur . — 2249
Samtals kr. 13036
Daglegur vinnutími 10—12 og
1—4. Frh.
Nýtt nantakjðt
i selur
Ishúsið Herðubreið
Sími 2678.
Ní BÖK:
MEIST4RI HÁLFDAN
eftir dr. theoL Jón Helgason, biskup.
pessi bók, sem íyrst og íremst er æfisaga hins merka
fræðimanns og bókaútgefanda Hálfdánar Einarssonar,
skólameistara á Hólum, er jafnframt að líkindum bin
fyrsta og einasta lýsing á skólahaldi í Hólaskóla, sem
prentað hefir verið hér á landi. JJeir mörgu, sem hafa
mætur á sögufróðleik og æfisögum, fá hér bók, som í
senn er fróðleg og mjög skemmtileg aflestrar.
Bókin er í stóru broti, með fjórum myndum og rithand-
arsýnishomum, og fæst, hjá bóksölum, lieft og innbundin
í mjög vandað og fallegt skinnband, og því heppileg til
tækifærisgjafa.
mmiEM
______________ttólMivcrslim - Sími 2720
Um hátíðarnar
verða rakarastofur bæjarins opnar, sem hér segir:
Miðvikudaginn fyrir skírdag til kl. 8 e. m.
Á laugardaginn fyrir páska til kl. 6 e. m.
Á síðasta vetrardag til kl. 8 e. m.
Lokað allan dagi i r, á skírdag, . östutaginn lang i, 1.
og 2. páskadag og sumardagirui fyrsita.
I hátíðabaksturinn
eru hinir góðkuimu Bökunardropar
okkar sjálfsagðir
Afengisverslun ríkisins
Benzínsölur vorar
verða opnar hátíðadagana eius og hér segir:
Skírdag opið kl. 7—11 árd. og kl. 3—6 síðd.
Föstudaginn langa lokað allan daginn.
Laugardaginn fyrir páska opið allan daginn.
Páskadag lokað allan daginn.
Annan páskadag opið kl. 7—11 árd. og kl. 3—6 síðd,
Hið islenzka steiaoliuhlutafélag.
Hangikjöt
— það bezta táanlega —
selur
Samband ísl. samvinnufiélaga
Sími 1080 (4 línur).
Gula bandið bezt
og ódýrast, aðelas kréaar 1.30 kflóið.
Þetta flóða smjðrliki fœst í Kaupfélagi Eeykjavíkur