Nýja dagblaðið - 25.04.1935, Qupperneq 3
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
8
Fj ármálaóstjómin
í Reykjavík
Hvar er sparnaðarvilji íhaldsins?
i. m.
nýja dagblaðið
Útgefandi: „Blaðaútgáfan h.f.“
Ritstjóri:
Gísli Guðmundsson.
Ritstj ómarskrifstofumar
Laugv. 10. Sfmar 4373 og 2353.
Afgr. og auglýsingaskrifstofa
Austurstr. 12. Sími 2323.
Askriftargjald kr. 2.00 á mán.
f lausasölu 10 aura eint.
Prentsmiðjan Acta.
QaBakosiðn f Asi
Guðrún Lárusdóttir var að
íræða lesendur Mbl. um það
héma á dögunum, að bömum
Qg sjúklingum hefði orðið illt
af gerilsneyddri mjólk, svo
að heilsu þeirra væri hætta
búin. Prúin í Ási þykist þess
vist betur ulmkomin að vitna
urn þetta, heldur en læknar
bæjarins. Frá þeim hafa engar
tilkynningar komið um þessa
hættu. Það er líka svo, að
hingað til bæjarins er selt mik-
ið af ógerilsneyddri mjólic
„beint úr kýrspenanum“ eins og
frúin í Ási kemst að orði. Sú
mjólk er mestöll seld utanSam.
sölunnar, og ekki ætti blessaðri
frúnni að þykja hún verri fyr-
ir það! Það hefir líka jafnvel
komið til orða, að auka söluna
á ógerilsneyddu mljólkinni, ef
neytendur óska og vilja taka á
sig þá ábyrgð, að draga úr
heilbrigðislégu öryggi m'jólk-
urinnar.
Nýja dagbláðið verður sem
sagt mjög að draga það í efa,
að frú Guðrún segi satt um,
að böm og sjúklingar hafi beð-
ið tjón af gerilsneyddri mjólk.
En það er hægt að skýra frá
öðrum tíðinduim í þessu sam-
bandi. Það er til gamalt og las-
burða fólk héma i bænum, sem
hefir veikst og líður illa —
ekki af því að hafa drukkið
genÍsneydda mjólk — heldur
af því að hafa enga mjólk
drukkið. Frúin í Ási ber ábyrgð
á þessu. Fyrir hennar fortölur
hafa þessar m'aimeskjur — að
vísu ekki margar — farið að
neita sér um þá fæðu, semj
sjúkum og hrumum er nauð-
synlegust. Þær hafa látið telja
sér trú um, að þeirra veika
þátttaka í „stríðinu" myndi
geta ráðið úrslitum, að hinni
„heilögu“ baráttu gegn Samsöl-
unni og sunnlenzkum bændum
væri þá og þegar lokið og full-
ur „sigur“ unninn.
Frúnni í Ási væri það nú á-
reiðanlega sæmst, að reyna að
bæta fyrir þennan ósóma. í
staðinn fyrir að halda áfram
ritiðju sinni í Mbl„ ætti hún
nú að fara heim til þessa fólks
og hvetja það til að fara að
drekka mjólkina sína aftur. Ef
hún ekki gerir þetta, þá er
hún áreiðanlega ekki sá vinur
gamalmennanna, sem hún vill
^ era láta.
Frúin í Ási sér það ef til víll
nú, að framkoma hennar í
mjólkurmálinuj var mikil yfir-
sjón. Trú hennar í málinu hef-
ir sjálfsagt í upphafi verið öllu
meiri en skilningurinn. En hún
í\ að sýna þá kristilegu auð-
mýkt að læra af reynsluhni, og
Hér í blaðinu var í gær gerð
grein fyrir hinni miklu útsvars
hækkun, sem orðið hefir, og
er að verða í Reykjavíkurbæ. Á
þessu ári er hækkunin áætluð
hvorki meira né minna en 25%.
Fyrir ihverjar 1000 kr., sem
bærinn tók í útsvörum í fyrra
ætlar hann nú að taka 1250 kr.
En ekki nóg með það. Jafu-
framt er nokkur hluti af tekj-
um! gasstöðvarinnar og raf-
liiagnsstöðvarinnar látinn renna
í bæjarsjóð. Þetta er neyzlutoll-
,ur á alla bæjarmenn, fátæka
sem ríka. Sennilega lætur nærri,
að skatthækkun sú, sem íhaldið
leggur á bæjarbúa, nemi alls
um 30% frá því, sem var í
fyrra.
Ef ríkið færi að dæmi hinna
íorsjálu og sparsömu íhalds-
manna í Reykjavík, ætti það að
hækka skattana á landsfólkinu
á næsta ári uml rúml. 4 milj.
kr., eða úr ca. 14 milj. upp í
rúml. 18 miljónir.
n.
Enn eru laun allra, sem vinna
íyrir bæinn hærri en laun sam-
bærilegra manna, sem vinna
fyrir ríkið. Þetta muhar nú allt
upp í 40 og 60%. Á gjaldliðum
bæjarins munar þetta mörgum
tugum þúsunda. Þennan lið má
spara. Það er ekkert sem mæl-
ir með því að borga lögfræðing
í þjónustu bæjarins hærra en
skrifstofustjóra í stjómarráð-
inu. Það er ekkert, sem mælir
með því að borga skrifara hjá
bænum hærra en fulltrúa í
stjórnarráðinu. Þó er þetta
gert. Og þetta dregur dilk á
eftir sér, því starfsmenn rík-
isins vitna að vonum í laun
starfsmanna bæjarins og bera
sig saman við þá.
1 stað þess að spara embætti
þá er bætt nýjum við, og
stundum eins og við rafveit-
una, gegn mótmælum viðkom-
andi yfirmanns.
-Embættum, sem launuð eru
með tugum þúsunda, hefir ver-
ið bætt við og ber flestum
saman um að þau séu öll óþörf.
Bara búin til sem bitlingar
handa góðum flokksmönnum
bæjarstjómarmeirahlutans. —
Slíkur er spamaðurinn.
1 starfsmannahaldi bæjarins
má auðveldlega spara stórfé,
sumpart með því að lækka laun
og sumpart með því að afnema
aftur alóþörf embætti og krefj-
ast sæmilegrar vinnu af starfs-
mönnunum.
játa að henni hafi skjátlast.
Hún á að hætta að leggja sig
niður við að breiða út ómerki-
legar og lúalegar furðusögur
til að hræða ístöðulítið fólk.
Korpúlfsstaðafeðgar geta verið
sjálfum sér nógir í því efni.
Fátækraframfærið vex hröð-
um fetum og ekkert er gert til
að fyrirbyggja það. Menn, sem
eru á föstum launum og hafa
300—400 kr. á mánuði, spenna
bogann svo hátt til lífsþarfa,
að laun þeirra hrökkva ekki og
láta svo bæixm leggja sér. Hár
má áreiðanlega margt gera fcil
sparnaðar og skal bent á nokk-
ur atriði. Það ætti að verða
venja, að gera sameiginleg inn-
kaup handa þurfalingum bæj-
arins. Með því mætti mikið
spara. Væru þarfir þeirra allra
t. d. keyptar hjá sömu verzl-
unum, matvælin hjá einni, fatn-
aðurinn hjá annari, skófatnað-
urinn hjá þeirri þriðju o. s. frv.
þá orkar það ekki tvímælis, að
fá mætti mikinn afslátt.
Þá er mikil spuming, hvort
ekki borgar sig að setja upp
sameiginlegt mötuneyti fyrir
marga þurfamennina. Fyrir
mörgum þeirra eru ástæður
þanníg, að þeir mundu því
fegnir, og það gæti orðið sér
úti um vinnu. Sérstaklega gildir
þetta stúlkur með eitt eða tvö
böm, sem þær eyða tímanum' í
að matreiða fyrir. En þetta
gildir líka ýmsa karlmenn og
jafnvel hjón. Þá er enginn vafi
á, að láta mætti sauma sam-
eiginlega á böm o. fl. og jafn-
vel nota til þess sumja styrk-
þegana, sem ekkert hafa að
gera, ef komið væri á sameigin-
legu mötuneyti.
Bærinn á mikið land og mætti
láta marga þurfamenn rækta á
því kartöflur til eigin nota eða
til nota mötuneytisins, og á
þann hátt styrkja þá til sjálf-
bjargar, eða að minnsta kosti
létta á fátækraframfærinu. En
íhaldsmeirihlutinn heldur að
sér höndum.
IV.
Atvinnuleysið vex og sam-
hliða vaxa útgjöldin til atvinnu-
bótavinnu. Enn sem komið er
hefir þessu fé ekki verið varið
til verka, sem gefa varanlega
framtíðarvinnu eða skapa mögu
leika fyrir nýrri framleiðslu.
Þetta ætti þó að vera innan-
handar.
Þurfamenn bæjarins leigja
hingað og þangað um' bæinn,
sumir í kjallaríbúðuím, sem
dæmdar hafa verið óhæfar til
íbúðar. Því ekki að nota atvinnu
bótavinnuna til að byggja yfir
þurfamennina? Götur bæjarins
eru malbikaðar með erlendu
rélaafli og að nokkru leyti með
aðkeyptu efni. Því ekki að láta
atvinnuleysingjana hafa vinnu
við að höggva til innlenda
steina og leggja síðan göturnar
með þeim? Með því mundi
skapast vinna í bænum og spar
ast erlendur gjaldeyrir. Yrði
það dýrara? Það þarf rann-
sóknar við.
Og reynist einstaklingsfram-
takið marglofaða ekki megnugt
þess að stofna hér ný fram-
leiðslufyrirtæki, nýja útgerð,
nýjan iðnað, þá verður bærinn
að gera það og með því skapa
möguleika fyrir atvinnu, svo að
atvinnubótavinnan geti horfið
mikið til eða alveg af fjárhags-
áætlun bæjarins.
Það er ekki vafi, að hér þarf
að breyta um stefnu. Það verð-
ur að kref jast þess, að tekin
sé upp sú stefna í atvinnubóta-
málinu, sem hefír í för með sér
varanlega framtíðaratvinnu,
svo atvinnubótavinnan geti
borfið. Það er betra að stofna
atvinnufyrirtæki, þó það kosti
rnikið, sem svo geti með aulc-
irmi árlegri atvinnu útilokað
framtíðaratvinnuleysi, en kasta
árlega fé í óarðberandi atvinnu
bætur, bara til þess að menn
geti fengið borgun, sem ekki
heitir sveitarstyrkur.
V.
En vill íhaldið spara? Er það
nokkuð annað en látalæti, þeg-
ar það talar um spamað? Það
mun sýna sig í framkvæmd-
mni hvort hugur fylgir máli.
Enn ihefir ekki í blöðum þe3S
verið bent á neitt, sem hægt
væri að spara og enn hefir ekk-
ert verið gert í þá átt, heldur
látið fljóta sofandi að feigðar-
ósi. En svo má ekki verða. Hér
þarf að taka fjármálin sömu
traustatökunum og síðasta Al-
þingi tók fjármál landsins. Búa
til fjárhagsáætlun, sem stenzt
rejmsluna og finna leiðir til að
lækka útgjöldin. En jafnframt
má svo fara, að einhverjir
þurfi að gera lífsvenjubreyt-
ingar.
Gleðileét sumar!
Skipaútgerð ríkisins
Dagskrá:
KL 1 Skrúðganga bama frá bamaskólunum að Austurvelli.
Lúðrasveit Reykjavíkur og Lúðrasveitin Svanur leika
fyrir skrúðgöngunum og skátar aðstoða-
Börnin mæti á skólaleiksvæðunum í síðasta lagi kL
12,45.
— 1,30 Lúðrasveit Reykjavíkur leikur á Austurvelli.
— 1,45 Ræða af svölum Alþingishússins: Árai Sigurðsson,
fríkirkjuprestur.
— 2 Hlé (VíðavangsHlaup I. R.).
ti . ...
— 3 Skemmtanir í Nýja Bíó og Gamla Bíó.
— 4,30 Skemmtun í Iðnó.
— 5 Skemmtun í K.R.húsinu.
— 8,30 I Iðnó: HENRIK OG PERNILLA. Hinn bráð-
skemmtilegi gamanleikur L. Holbergs, ieikinn af
menntaskólanemendum.
— 9,30 DANSLEIKUR í K.R.húsinu (7 mannabandið spilar).
Að öðru leyti vísast til dagskrár þeirrar, sem prentuð er í
blaði bamadagsins og verður blaðið selt í dag á afgreiðslum
Nýja dagblaðsins og Morgunblaðsins.
v i :
Aðgöngumiðar að öllum skemmtunum dagsins verða seldir í
skemmtihúsunum frá kl. 10—12 árd. í dag og eftir kl. 1. —
Takið þátt í hátíðahöldunum! Kaupið merkin!