Nýja dagblaðið - 08.05.1935, Qupperneq 2
2
N Ý J A
dagblabið
Síðasti söludagur fyrir 3. flokk á morgun
Æilið þéraðgleymaaðendurnýja?
Happdrættið
Til Borgarfjarðar og Búðardals
byrja hinar árlegu bílferðir fimmtudaginn 9.
maí og verður þeim“ haldið uppi í sumar
hvern mánudag og fimmtudag og til^baka
alla þriðjudaga og föstudaga.
Bifreldastöðm HEKLA
Sími 1515
Norður á Holtavörðuheiði
verða ferðir frá Bifreiðastöð íslands fimmtudaginn 9.,
laugardaginn 11. og þriðjudagiun 14. maí.
Sömu daga kemur bifreið frá Blönduósi á móti suð-
ur á Holtavörðuheiði.
Afgreiðsla í Reykjavík á
Bííreiðastöð Islands, sími 1540
Kaupum flöskur
til föstudagskvölds, en þó aðeins
Portvín, Sherry og Akvavit-flöskur.
Afengisverzlun ríkísíns
Nýborg
Prjðnavélar
Husqvarna-
prjé>*avélar
eru viðurkeund&r
tyrir g-æ i
Pó er verðið
otrúiega lÁgt
Samband ísl. samvinnufélaga
Bifreíðastjórafél. Hreyfill
Fundur í kvöld kl. 12 á miðnætti í K.R -húsinu.
Umræðuefni: Biireiðaeftirlitið.
Áríðandi að félagsmenn mæti vel og stundvíslega.
BifreiðaeftirlitsmanninUm boðið á fundinn.
S t j ó r n i n
Ríkisskuldir Þjóðverja
aukast hröðum skrefum
FRÁ FRÉTTARITARA
NÝJA DAGBLAÐSINS.
i
Kaupm.höfn í april. ;
Frá Þýzkalandi hefir komið
sú freg'n, að sökum samein-
ingar Saarhéraðsins við Þýzka-
iand og ennfremur vegna ann- !
ara breytinga, sem orðið hafi
undanfarið, hafi ekki verið
mögulegt að afgreiða nein
fjárlög fyrir nýbyrjað fjár- |
hagsár, sem hófst 1. apríl.
Samt sem áður er það alkunn- 1
ugt, að á fjárhagsárinu 1934
—35 hefir afkomu þýzka rík-
isins hrakað mjög, þrátt fyrir
það þótt skattamir hafi verið j
hækkaðir til stórra muna.
Þessi skuldaaukning er að i
nokkru talin stafa af óhag-
stæðri utanríkisverzlun. Höf-
uðástæðan liggur þó í því, að
stofnað hefir verið til stór- '
kostlegra opinberra fram-
kvæmda, hemaðarútgjöldin
hafa aukizt mjög mikið og
ríkið hefir gengið í allskonar
ábyrgðir í stórum stíl. I upp-
hafi fjárhagsársins voru ríkis-
skuldirnar 14,5 miljarðar
marka, en í lok þess 16 milj-
arðar og hafa því aukizt um
1,5 miljarða marka á árinu.
Verzlunarjöfnuður Þýzkalands
var hagstæður í marzmánuði,
en því var ekki fyrir að þakka,
að útflutningur hefði aukizt,
heldur aðeins vegna þess að
dregið hafði verið úr inn-
flutningi. En sökum þess, að
hráefnabirgðimar hljóta að
þverra, ef stöðugt verður
haldið áfram á þéirri braut
að draga úr innflutningnum,
er Þjóðverjum mikið kapps-
inál, að auka útflutninginn á
ný, svo mögulegt verði að
flytja inn í landið nauðsynleg
hráefni.
Af þessum ástæðum hefir
dr. Schacht fjármálaráðherra
Þýzkalands ákveðið að stofnað-
ur skuli vera „útflutnings-
sjóður“ að upphæð 1 miljarð-
ur marka. Segja ensk fjár-
málablöð, að með aðstoð þessa
,,útflutningssjóðs“ eigi að
gera tilraun í þá átt, að auka
útflutning Þýzkalands um
50 milj. marka mánaðarlega í
næstu tólf mánuði. Sé ætlunin
að afla nokkurs hluta af stofn-
fé sjóðsins með þeim hætti,
að þýzka ríkið kaupi upp þýzk
rkuldabréf á heimsmarkaðin-
um á núverandi gengi þeirra,
sem er langt undir nafnverði,
og sá hagnaður sem skapast
við þennan verðmun, verði lát-
inn renna í „útflutnings-
sjóðinn". Eftir upplýsingum
ensku blaðanna, álítur dr.
Schacht, að með þessum við-
skiptum verð i hægt að afla
sjóðnum tekna að upphæð 250
milj. marka. Hins hluta stofn-
fjárins — 750 milj. márka —
eigi að afla á þann hátt, að
skattleggja heimaiðnað Þýzka-
lands með 3% „frjálsum"
skatti. Takist ekki með þessu
móti að stofnsetja „útflutn-
ingssjóðinn“, geta Þjóðverjar,
að sögn, naumast haldið uppi
svo öflugri baráttu gegn at-
vinnuleysinu í framtíðinni og
uú er gert. Það er bersýnilegt,
að þýzk fjármál eru nú komin
út í það tvísýni, þegar stefna
verður allri orkunni að því
einu, að reyna að forða frá
fjárhagslegu hruni. Það er
fullyrt, að skuldir þær, sem
þýzka ríkið stofnar nú til, séu
mestmegnis við innlenda borg-
ara, sökum þess hve örðugt sé
um lántökur erlendis. Ríkis-
skuldimar stofna þýzku þjóð-
inni í sömu hættuna og á
stríðsárunum, þegar öllu fjár-
magninu var breytt í stríðslán.
B. S.
Eanpnm
tóm glös nEdan Renol
húsgagnaáburði.
Verzl. Höfn, Vesturgötu 45
Körfugerðin, Bankastr. 10
Verzlunin Fell, Grettisg. 57
Ódýr svið
r
Ishúsið Herðubreið
Simi 2678
Leikhúsið
Illt er bá þrennt er
Gamanleikur i þrem þáttum
eftir Arnold Ridley
Lefkfélag Reykjavíkur sýndi
í fyrsta sinn á sunnudags-
kvöldið var, gamanleikinn
„Allt er þá þrennt er“, eftir
Arnold Ridley.
Aðalefni leiksins er það, að
ungur enskur sveitaprestur,
sem er svo grandvar í líferni
sínu, að hann naumást þorir
að líta í „eldhúsróman", lend-
ir af tilviljun á meðal for-
llertra glæpamanna, og verður
á nokkuð broslegan hátt þátt-
takandi í atferli þeirra. Allt
er þetta nokkuð æfintýralegt
og ekki beinlínis trúlegt. Prest-
urinn sjálfur er býsna furðuleg
persóna, en slíkt verður mað-
ur að fyrirgefa í gamanleik.
Og vel getur leikurinn verið
holl áminning til þeirra, sem
halda, að þeir viti mikið um
lífið.
Það verður ekki annað sagt,
en að hlutverkin séu yfirleitt
sómasamlega af hendi leyst.
Unga stúlkan, sein leiðir prest-
inn út í æfintýrið, er eðlileg
og sjálfsagt svipuð því, sem
höf. hefir ætlazt til að hún
væri. Hún er leikin af Níní
Stefánsson, sem áður lék ung-
frú Kaldan í Straumrofum.
Prestinn leikur Alfreð Andrés-
son. Brynjólfur Jóhannesson
og Valur Gíslason eru ágætir.
Manni dettur ekki í hug að
efast um, að þeir séu erkibóf-
ar. Arndís Björnsdóttir, Gunn-
þórunn Halldórsdóttir og
klarta Kálman leika aldraðar
konur, sem gera sitt til að
koma fólki í gott skap.
Og hvað sem bókmenntalegu
gildi leiksins kann að líða, þá
er hann skemmtilegur og vek-
ur ósvikinn hlátur hjá hverj-
um, sem á horfir.
eru allra dekka bezt. Nokkur
dekk eru til sölu áður en einka.
salan tekur til starfa.
Nýkomin-
F. Olafsson
Austurstræti 14. — Sími 2248