Nýja dagblaðið - 24.05.1935, Blaðsíða 3
N Ý J A
D A G B L A B I B
t
NtJA DAGBLAÐIÐ
Útgefandi: „BlaOaútgáfan h.f.“
Ritstjórar:
Gísli Guðmundsson,
Sigfús Halldórs frá Höfnum.
Ritstjómarskrifstofumar
Laugv. 10. Símar 4373 og 2353.
Afgr. og auglýsingaskrifstofa
Austurstr. 12. Simi 2323.
Áskriftargjald kr. 2,00 á mán.
í lausasölu 10 aura eint
Prontsmiðjan Acta.
i' MHimiifiÉ'HHiiwwi'ftnmii iiini>iwi'i"»riiw
Miljónin
og Mðller
I dag er útsvarsskráin vænt-
anleg. I gær gaf Nýja dagblað-
ið lesendum sínum nokkra
hugmynd um boðskap ]jann, er
hún flytúr að þessu sinni heim
á heimili Reykvíkinga. Það er
boðskapur máttarstólpanna,
boðskapur íhaldsmeirihlutans
í bæjarstjórninni, boðskapur
íhaldsins í fjármálum Reykja-
víkurbæjar.
Upplýsingar þær, sem Nýja
dagblaðið gaf í gær, vöktu
undrun í bænum. Blaðið hefir
að vísu áður skýrt nokkuð frá
fyrirætlunum íhaldsins í sam-
bandi við fjárhagsáætlúnina.
En tölur þær, sem blaðið hafði
nefnt í því sambandi, reynd-
ust of lágar. Endanleg niður-
staða útsvarsálagningarinnar
sýnir, að hækkunin er ennþá
meiri en ráð hafði verið fyrir
gert.
Hin raunverulega hækkun
útsvaranna er 40% frá út-
svai-sálagningu síðasta árs. Þar
að auki er svo hækkuð sú upp-
hæð, sem bæjarfyrirtækin eiga
að greiða til daglegrar eyðslu
bæjarsjóðs. Sú upphæð er lögð
á bæjarbúa, sem neyzluskattur.
Alls nemur hækkun útsvara
cg neyzluskatta næi'ri einni
miljón króna frá því, sem var
í fyrra, þar af er hækkún út-
svaranna rúml. 840 þús. og
hækkun neyzluskattanna rúm-
lega 120 þús. kr.
Alls eru nú tekjur bæjar-
sjóðsins og fyrirtækja hans
um' 8 miljónir króna. Það eru
250 kr. á hvert mannsbam í
bænum.
Ef bæjarbúum er skipt nið-
ur í 4-manna fjölskyldur greið-
ir hver fjölskylda til jafnaðar
nál. 1000 kr. samtals til hafn-
ar, rafmagnsstöðvar, gasstöðv-
ar, vatnsveitu, hitaveitu og í
útsvör til bæjarsjóðs.
Gasið er selt með 40% álagn-
ingu og vatnið með 170% á-
lagningu á kostnaðarverð.
En eins og áður er sagt —
r<ú í ár gleypir bæjarsjóðurinn
nærri einni miljón meira en
hann gleypti í fyrra.
Hvernig ætli innheimtan
gangi í ár. Auðvitað er hægt
að loka fyrir gas og rafmagn
og knýja fólk þannig til að
borga neyzluskattinn. En
myndi ekki' ganga erfiðar um
útsvörin? I fyrra fórú dráttar-
vextir af útsvörum yfir 60
þús. kr. Og íhaldið var komið
á fremsta hlunn með að kaupa
4000 króna bíl handa lög-
taksmönnum.
ÚfsvarsÝtiginn
Hér fara á eftir þær .reglur,
sem Niðurjöfnunarnefnd Rvík-
ur hafði til hliðsjónar við á-
lagningu útsvara
sinni:
að þessu
I. Útsvarsstigi á tekjur:
•© íT 4J bD c *© Hjón raeð börn:
o # £ $ .5:3 Cdfe •r-» W i 0 3 4 5 6 7 8 9 10
1500 20
2000 35 25 10
2500 60 45 20 10
3000 95 80 35 20 10
3500 140 115 55 35 20 10
4000 190 165 85 55 35 20 10
4500 245 215 130 85 55 35 20 10
5000 305 275 180 130 85 55 35 20 10
5500 370 335 235 180 130 85 55 35 20 10
6000 440 405 295 235 180 130 85 55 35 20 10
6500 515 480 365 295 235 180 130 85 55 35 20 10
7000 595 555 440 365 295 235 180 130 85 55 35 20
7500 680 Þegar kemur yfir 7000 kr. reiknast fjölskyldu-
8000 770 frádráttur eins og við 7000, sem sé :
8500 865 Fyrir konu , . 40 kr.
9000 965 — — og 1 barn 155 —
9500 1070 — — 2 börn 230 —
10000 1180 — _ 3 — 300
11000 1410 _ 4 — 360
12000 1640 ___ . 5 — 415
13000 1870 _ 6 — 465
14000 2110 _ 7 — 510
15000 2350 _ 8 — 540
16000 2600 — — . 9 — 560 —
17000 2860 — — - 10 — 575 —
18000 3130
19000 3410
20000 3710
21000 4030
22000 4370
23000 4730
24000 5110
25000 5510 og 40% af þvl sem sem fram yfir er.
II. TTtsvnvaatio'i n eign: 75 . 985
Eign: Útsvar: 80 — . 1085
5 þÚS. 10 kr. 85 — .. 1185
7,5 — 20 — 90 — . 1285
10 — 35 — 95 — . . 1385
15 — 60 — 100 — . 1485
20 — 110 — og 2,5% af því sem fram yf-
25 — 160 — ir er.
30
35
40
45
50
55
60
65
70
210
260
335
410
485
585
685
785
885
1) Nettotekjur = tekjur til skatts
áður en persónufrádráttur erdreg-
inn frá.
Og það er engin fúrða í
sjálfu sér, þó að útsvörin inn-
heimtist ógreiðlega. Greiðslu-
geta fólks er auðvitað tak-
mörkuð. Og svo kemur þar
líka annað til. Reykvíkingar
eru orðnir vanir því, að heyra
ínaldsbroddana óskapast út af
því, að skattar séu allt of há-
ir, og heimta að létt verði
„drápsklyfjunum af atvinnu-
vegunum“. Og svo gera þessir
sömu menn sér lítið fyrir og
hækka álögur á Reykvíkingum
um hvorki meira né minna en
miljón króna á einu einasta
ári.
Og í staðinn fyrir miljón-
ina eigum, við svo að fá Jakob
Möller sem borgarstjóra!
Ennfremur voru lögð veltu-
útsvör á fyrirtæki og aðra,
sem atvinnurekstur hafa og
voru þau mismunandi há eftir
tegund atvinnurekstrar og að-
stöðu. Ennfremur skal þess
getið til leiðbeiningar, að út-
hlutaður arður úr hlutafélög-
um og hlutabréfaeign er eigi
talið með útsvarsskyldum tekj-
um og eignum einstakra hlut-
hafa, en er útsvarslagt hjá
fyrirtækjunum sjálfum.
Þegar niðurjöfnun samkv.
þessum reglum var lokið, kom'
í ljós, að töluvert vantaði til
þess að ná þeirri upphæð, sem
fjárhagsáætlun bæjarins á-
kveður. Varð því að bæta 10%
ofan á öll útsvör, sem námu
45 kr. eða méira, þó þannig að
alltaf stæði á hálfum eða hei!-
mn tug.
Dívanar, dýnur og allskonar
stoppuð húsgögn. Fjölbroytt-
ast úrval. — Vatnsstfg 3.
Húsgagnaverzl. Reykjavikur.
\
eykjavík
knreyri
ierðir alla þriðjudaga. timmtudagA og laugnrdagn.
Afgreiðsla í Reykjavík
á Bitreiðastöð Islands
Sími 1540.
Bifreiðastöð Akureyrar.
Stangarveiði
í Laxá í Þingeyjaraýslu fœst á leigu.
Upplýsingar veitir
Aðalsteinn Sigmundsson
Austurbæjarskóla, sími 4868.
Fundur
Saltflskframleiðenda
Kjörbréfanefnd allsherjarfundar fiskframleiðenda
er nú stendur yfir í Reykjavík, verður til viðtals
í Kaupþingssalnum i dag frá kl. 10—11 f. h.
Áríðandi að þeir fundarmenn, sem ekki hafa skil-
að uraboðum eða öðrum skilríkjum til fundarsetu
afhendi þau þar.
Fiskimálanefnd
Sölusamband íslenzkra fískframleiðendn
Bláu funkismatarstellin
og kaffisfellin eru komjn aflur, sama lága verðið
Einnig ýmsar fleiri tegundir af nýtlzku stellum, nýkomnar
K. Einarsson & Björnsson
Bankastræti 11.
Ráðningarstofa ReykjaYíkurbæjar
Lækjartorgi 1 (1. lofti)
Karlmannadeildin opin kl. 10—18 og 1—8.
Kvennadeildin opin kl. 2—5 e. h.
Sixui 4966.
Atvinnurekendur! Munið að þér sparið yður tíma og pen-
inga með því að láta ráðningarstofuna aðstoða yðúr við
láðninguna. Þér skapið einnig hinum atvinnulausu hagræði
með því. Úrvals karlmenn og kvenmenn erú jafnan á tak-
teinum til þeirrar vinnu er þér þurfið að láta leysaaf hendi
í rekstri yðar eða við heimilið. Hringið, sendið eða konúð á
ráðningarstofuna í hvert sinri, sem yður vantar fólk um
skemmri eða lengri tíma í vinnu. öll aðstoð við ráðningu
er veitt án nokkúrs endurgjalds.
Ráðningarstofa Reykjavikurbajar
Lækjartorg 1 (1. lotti) — Blmi 4866.