Nýja dagblaðið - 26.06.1935, Blaðsíða 2

Nýja dagblaðið - 26.06.1935, Blaðsíða 2
I SAMVINNAN Hafrannsóknír er nýkomin út i nýju iormi í henni eru ritgerðir um samvinnuskóla, byggingar og verzlunarmál, saga og fjöldi ágætra mynda. Allir, sem vilja fylgjast með í samvinnu- og verzlunar- málum, kaupa og lesa Samvinnuna, sem kemur út mán- aðarlega. Atgr. tyrst nm sinn á Laugaveg 10, simi 2353 Det Danske Selskab í Reykjavik I Aften kl. 8,45 i Oddfellowhuset. Oplæsning og Foredrag af For- fatteren Herr Louis Levy. Programmet omfatter bl. a.: Oplæsning: Dansk Lyrik (Johanues V. Jensen og Ludvig Holstein). Foredrag: „Josefs Drömmett. Oplæsning af egne Værker: „Börnerimtt. — Dans til Kl. 2 — Billetsalg: Ingolfs Apotek og hos K. Bruun, Laugaveg 2. Intet Billetsalg ved Indgangen. (Tvangfri Paaklædning). Bestyrelsen Julius Nielsen (Eigandi: H. O. Hansen) Stofnað 1894 Bornholmsgade 2 A Köbenhavn K. Erindrekstur og umboðssala Annast kaup og sölu allra ís). afurða Tilboð óskast Telegr.adr.: Foeringur Coder: Bentley’s og A.B.C. 6th Nýsviðin dilkasvið — ljúffengur matur og ódýr — Einnig ódýr svið at lullorðnu. íshúsið HERÐUBREIÐ Simi 2678 Reykj a ví k --Akur eyri ierðir alla þridjudaga. iimmtudaga og langardaga. Afgreiðsla í Reykjavík á Bitreidastöð Islands Simi 1540. Bifveiðasiöð Akuveyvav. FREYJU kaffibætisduftið — nýtilbúið — inniheldur aðeins ilmandi kaffibæti, ekkert vatn •ða ðnnur efni til uppfyllingar. Þess vegna er Freyju kaffibætis- duftið drýgst, heilnæmast og be*t. Og þó er það ódýrara en kaffi- bæti 1 stöngum. Notið það bezta, sem nnnið er í landinn Viðtal við W. Nellemose höfuðsmann FRÁ FRÉTTARITARA NÝJA DAGBLAÐSINS Kaupmannahöfn í júní. Alþjóðamót sérfræðinga um hafrannsóknir hefir undanfar- ið staðið yfir hér í borginni. Sökum þess að þar hafa verið rædd mörg mál, sem skipta Is- lendinga miklu, hefir frétta- ritari Nýja dagblaðsins átt tal við framkvæmdastjóra Alþjóða- sambands hafrannsókna, W. Nellembse höfuðsmann í sjó- liðinu. Hr. Nellemose er kunnugur á íslandi frá fomu fari. Kom hann oft þangað meðan hann var sjóliðsforingi og .talar ís- lenzku ágætlega. Áður en sam- talið berzt að hafrannsóknun- um, notar hann tækifærið til að láta í ljós hina mestu aðdáun á íslandi og íslendingum. Sér í lagi á hinni miklu náttúru- fegurð Norðurlands og eins hina dæmafáu! gestrisni þjóð- arinnar. — Ég ferðaðist oft á hest- um um Island, segir hann. Það varð afar ódýrt — kostaði mig ekki eyri. Þegar íslendingar heyrðu, að danskur sjóliðsfor- ingi gat gert sig skiljanlegan á íslenzku, tóku þeir ekki í mál að taka á móti nokkurri borg- un fyrir hestlán. Gestrisnin þar á hvergi sinn líka. Hvemig má hindra, að fiskstofninn fari þverr- andi? Hafrannsóknamótig sóttu alls 90 vísindamenn frá 14 löndum. Eitt mikilvægasta m'álið, sem rætt var á mótinu, var um möguleika þess, að stofnað yrði til alþjóðasamþykktar um lág- marksvídd möskva í netjaveið- arfærum1 í þeim tilgangi að koma í veg fyrir, að fiskstofn- inum fækkaði yfirleitt. Og þá sér í lagi til vemdunar þorsks, skarkola og lúðu. — Á mótinu var vakandi áhugi fyrir slíkri samþykkt, segir hr. Nellemose. Það er fullljóst, að annars er fisk- stofninn í alvarlegri hættu staddur og múni minnka til stórra muna, ef ekkert er að gert. Sennilega mun þó líða nokkur tími, þar til hægt verð- ur að ganga frá slíkri alþjóða- samþykkt, því að margt þarf athugunar við í sambandi við þetta m'ál. — Hrakar ekki fiskstofnin- um1 mest í Norðursjónum? — Jú. En einmítt þessvegna er þetta mál enn mikilvægara fyrir Islendinga. Þverrandi veiði í suðlægari höfum býr hættu íslenzkum fiskimiðum. Hættan er í því fólgin, að þeg- ar Englendingar nú banna inn- flutning fiskjar frá norðlægum löndum yfir sumarmánuðina, neyðast togaramir til að stunda veiðar við ísland 3—4 piánuði ársins. Slíkt er vitanlega mið- ur heppilegt fyrir íslenzka út- gerð. Alþjóðleg ákvæði um; tak. markaða möskvastærð eru því mikilvæg fyrir Island. Annars bárust á mótið skýrsl ur frá nefndum, er skipaðar höfðu verið til að rannsaka af hverju stafa aflabrigði sfldar, þorsks og skarkola. Möguleikar hafrannsókn- arvísindanna. — Er nokurt útlit fyrir að vísindin komizt á það stig, að geta sagt fyrir hvenær fiski- uppgripa má helzt vænta? — Það er alls ekki útilokað, því hafrannsóknavísindin búa yfir miklum möguleikum. Vísindin eru nú þegar komin svo langt, að geta með vissu sagt fyrir um hvenær koma sérstaklega góð aflaár af skar- kola og þorski. Sfldin er öllu erfiðari viðfangs í þessu efni, en þó kemur fyrir, að hægt er að segja fyrir um göngu síld- arinnar og magn. Hr. Nellemose getur þess, að þær þjóðir, sem! hagsmuna eigi að gæta í Eystrasalti og Kattegat m'uni halda ráðstefnu með sér í haust, sennilega í september. Verði þar rætt um ákvæði þess efnis, að heimila notkun möskvasmærri skarkola veiðarfæri. Er Dönum þetta mikið áhugaefni, því að þeir klekja mikið út af skarkola- seyðum og sleppa árlega mörg- um miljónum í Limafjörðinn og víðar, en þar verður stærð þeirra önnur en í Norðursjón- um1. Verndun sfldarinnar. Auk þess er gert ráð fyrir, að fulltrúar þeirra þjóða, sem stunda síldveiðar, komi á ráð- stefnu í Lowestoft á Englendi í októbermánuði. Verður m. a. rætt um sfldarrannsóknir. Þótt ekki verði búizt við, að sfldar- stofninn sé í bráðri hættu, er viðhald hans þó fullkomið al- vörumál. Ekki sízt ef reiknað er með því, að á hverju ári sé veiddur verulegur hluti þeirrar síldar, sem til er í sjónum. Það er kunnugt, að Island er ekki í alþjóðasambandi hafrann sókna. Þegar fréttaritarinn spurði hr. Nellemose hvort ekki þætti æskilegt að Island tæki þátt 1 þessum samtökum, svar- aði hann því, að vitanlega væri það mikið áhugaefni, að svo öflugt fiskveiðaland, sem Is- land er, tæki þátt í starfsemi sambandsins. En aúk þess mundu danskir vísindamenn leggja fulla rækt við að verða Islendingum að liði við hafrann. sóknirnar. B. S. Bálfarafélag Islands Aðalfundur í dag, miðv.dag 26. júuí í Kaupþingssalnum kl, 5 síðd. STJÓRNIN Norskar verzlunarfréttir FRÁ FRÉTTARrTARA NÝJA DAGBLAÐSINS. Oslo í júní. Nýr verzlunarsamningur milll Norðmanna og ítala. pverr- andi útílutningur frá Noxegl til ítaliu. Norsk sendinefnd, sem dvalið hefir á Italíu síðan í aprfl, til þess að gera nýjan verzlunar- samning við Italíu, er nýkomin heim. Ekkert hefir enn verið birt opinberlega um niðurstöð- ur samningsins, en samkvæmt ábyggilegum heimildum munu Norðmenn verða að draga tölu- vert úr útflutningi sínum til Italíu. I fyrra nám innflutningur Norðmanna frá Ítalíu 10,6 milj. kr., en útflutningur þangað var 19,1 milj. kr. Frá áramót- unum síðustu og til aprílloka, fluttu Norðménn inn vörur frá Italíu fyrir 4,7 milj. kr. (3,7 milj. kr. í fyrra), en fluttu þangað vörur fyrir aðeins 2,4 milj. kr. (6,8 milj. kr. á sama tíma í fyrra). NorSmenn mega ekkl flytja meiri síld til Englands á þessu árL Sú fregn hefir komið frá London, að Norðmenn séu þegar búnir með þessa árs ixm- flutningsleyfi sitt á síld til Englands. Megi þeir þvi ekki flytja neina sfld þangað fyrr en 1. jan. 1936. Þessa árs sfld- arinnflutningsleyfi Norðmanna til Englands var 500.000 (hun- dred weight). Ennfremur skýra ensk skeyti frá því, að sfldarafli sé svo mikill í Skotlandi, að skozki síldarmarkaðurinn sé yfirfull- ut. Skuldir norsku skfpaútgerð- artnnar nema 1500 miljón- nm kr. Ríkisstjórnin hefir lagt frumvarp fyrir þingið, þess efnis, að skipaútgerðarskattur- inn verði hækkaður úr 6% og í 10%. 1 tilefni af þessu hefir Samband norskra skipaútgerð- armanna skrifað ríkisstjóm- inni og sagt að skipaútgerðin standi svo höllum fæti, að hún þoli enga skattahækkun. Sam- kvæmt upplýsingum sambands- ins nemur hlutafé, veðlán og aðrar skuldir skipaútgerðar- félaganna meira en 1500 milj. kr. Ef skipastólinn væri met- inn eftir núverandi söluverði, sé hann ekki nema 600 milj. kr. virði. Markaðsleit Norðmianna. Norska fiskimálaráðuneytið hefir sent tvo fulltrúa til Ind- lands og landanna fyrir botni Miðjarðarhafsins, til að athuga og vinna markað þar fyrir norskar fiskafurðir. Fulltrúarn- ir, Qvam yfirfiskimatsmaður og Fred Meyer erindreki, hafa stórt sýnishomasafn meðferðis. Eru sagðir á því góðir mögu- leikar, að þeim verði vel ágengt í ferð sinni. Z.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.