Nýja dagblaðið - 22.08.1935, Side 1
Merkileg auglvsingastarfsemi
Ungverjar hæna ferðamenn tii lands
ins með auglýsingum um lækninga
mátt heitra lauga
FRÁ FRÉTTARITARA
nTja dagblaðsins.
Kaupmhöfn í ágúst.
Ungverjar hafa nú ákveðið
að hefja víðtæka auglýsinga-
starfsemi til að draga athygli
ferðamanna að landinu. Fyrst
og fremst ætla þeir að auglýsa
lækningakraft hihna heitu
uppsprettna landsins. Er ætl-
unin að fá sem flesta Evrópu-
biia, sem hjáðst af gigtveiki og
taugagigt að taka sér ferð á
'nendur til Budapest.
1 tilefni af hessu, er aug-
lýsingastjóri ungversku heilsu-
fræðisnefndarinnar, dr. Julius
Somogyi, á ferðalagi um þvera
og endilanga Evrópu. Skýrir
liann frá því, að Budapest sé
orðin einn fullkomnasti bað-
staður heimsins. Við stærri
gistihús borgarinnar sé búið
að byggja sundlaugar og sé
þar notað vatn frá heitum upp-
sprettum. Áður fyrr voru Ung.
verjar alls ófróðir um verð-
mæti heita vatnsins, en nú
hafa þeir komið auga á það og
hafið víðtæka starfsemi til að
notfæra sér1 þeteisajr auðsupp-
sprettur.
Auk þess, sem heita vatnið
er leitt til gistihúsanna og
notað í sundlaugunum, hefir í
Budapest verið sett á stofn
gigtarhæli, sem rekið er með
ríkisstyrk. Hafa márgir
læknar víðsvegar frá, dvalið
þar til að kynnast starfsemi
þess. Þar að auki hafa verið
byggðir margir baðstaðir eða
réttara sagt heilsuhæli. Heita
vatnið er bæði notað á gigtar-
hælinu og baðstöðunum. Þeir
sjúkdómar, sem reynt er að
lækna með heilsuböðum í heita
Svenska Dagbladet skýrir ný-
lega, frá stórfelldu mannvirki,
sem Rússar hafa nú með hönd-
um. Það er Moskva-Volga-
skurðurinn, sem verður stærsti
skipaskurður í heimí, þegar
Panamaskurðurinn, sem er
nokkuð annars eðlis, er ekki
meðtalinn.
Til þess að fullgei'a skurð-
inn, þarf að moka í burtu 140
vatninu, eru auk gigtar og liða-
gigtar, lærtaugagigt og ýmtear
tegundir meltingarkvilla. Einn-
ig hefir það komið í ljós, að
heita laugavatnið í Ungverja-
landi hefir góð áhrif á þá,
sem þjáðst af offitu. Alþjóða-
nefnd lækna hefir athugað
lækningamátt heita vatnsins.
Hefir hún tilkynnt, að það sá
mjög mikilvægt frá heilsu-
fræðilegu sjónarmiði og ráð-
leggur að nota það við áður-
nefndum sjúkdómum.
Einnig er heita laugavatníð
við Budapest notað til upphit-
unar í fjölda mörgum húsum
borgarinnar og er það mjög
hagkvæmt.
Sem sagt, er nú hafin víðtæk
auglýsingastarfsemi til að
kynna heita vatnið í Buda-
pest. Það hrekur vitanlega
ekki þá staðhæfingu, að heitu
laugarnar á Islandi hafi fólg-
inn eins mikinn lækningamátt.
Sennilega miklu meiri. Og ekki
mundi það draga úr aðsókn
ferðamanna til íslands, ef það
yrði kunngjört betur út um
heim.
Það er ekki langt síðan, að
ég átti, fyrir hönd Nýja Dag-
blaðsins, tal við danska ferða-
málaforstjórann, Mogens Lich-
tenberg. Sagði hann, að auka,
mætti ferðamannastrauminn til
íslands til stórra múna, ef
lækningamáttur heita vatnsins
væri auglýstur nægilega er-
lendis. Aðrir ferðam!álafræð-
ingar, sem ég hefi átt tal við,
eru sömu skoðunar.
Forstjórinn fyrir auglýsinga.
starfsemi Ungverja, álítur að
þessi starfsemi geti leitt til
stóraukins ferðamannasitraums
til landsins. B.
millj. rúmmetrum af jarðvegi
og steinsteypa 3.100 þús. rúm-
metra.
Þetta stórkostlega verk er
nú rekið með miklum dugnaði.
133 grafningsvélar eru í stöð-
ugum gangi, auk margra ann-
ara véla og verkfæra.
Hinn 1. þ. m. var gert ráð
fyrir að búið yrði að moka, í
burtu 69 millj. rúmmetrum, og
Framh. á 4. síðu.
Eftírmaður
Baden Powell?
I Stokkhólmi hefir undan-
farið verið háð alþjóðlegt mót
skáta. Mótinu stjórnuðu Baden
Po'well, yfirforingi skáta, og
Gustaf Adolf Svíaprins, sem er
formaður sænskra skáta. Vann
prinsinn sér mikla hylli á mót-
inu og er hann talinn líkleg-
astur til að verða eftirmaður
Baden Powell, sem er maður
aldurhniginn.
Nýtt gisti- og
veitingahús
Seinustu vikur hefir verið
unnið að því, að breyta hús-
inu Vallarstræti 4 og útbúa
það til veitinga,- og gistihúss-
reksturs.
Verður það í dag opnað til
gistingar, en veitingasalurinn
mun ekki verða opnaður fyrr
en um miðjan september.
I húsinu eru tilbúin 17 gesta.
herbergi fyrir 1—2 menn
hvert.
Gistihúsið hefir hlotið nafn-
ið Hótel Vík. Forstöðumaður
þess er Theodor Johnson.
Stórfellt mannvirki I Rússlandi
Stœrstl flóðakurdur heimsins.
Frá Norræna kennaraþinginu
í Stokkhólmi
Talið frá vinstri: Borgbjerg kennslumálaráðherra Dana,
Engberg kennslumálaráðherra Svía, Mantere kennslumálaráð-
herra Finna og Arngrímur Kristjánsson form. Sambands ísl.
barnakennara.
Landakeppni í skák
í Yarsjá
Fjölmennasta skákmót
FRÁ FRÉTTARITARA
NÝJA DAGBLAÐSINS.
Oslo í ágúst.
Nýlega er afstaðið alþjóð-
leg-t skákmót, sem! haldið 'var í
Bad Nauheim í Þýzkalandi.
Úrslit urðu þau, að Bogoljubof
varð .hlutskarpastur og hafði
sex vinninga. Auk hans tóku
átta frægir skákmenn þátt í
mótinu. Var samkeppnin hörð
og fékk enginn þátttakenda
færri en 3 vinninga og fimm
iengu 41/2 vinning og þar yfir.
Þátttakendur í þessu móti,
eru nú lagðir af stað til að
taka þátt í landakeppni í skák,
í.em .háð verður í Varsjá síðari
hluta þessa mánaðar. Verður
sem ean hefír verið háð
það fjölmennasta skákmótið,
sem enn hefir haldið verið.
— Jafnframt landakeppninni
verður þar keppt um heims-
meistaratitil kvenna í skák. —
N úverandi heimsmeistari er
ungfrú Menchik frá Tékkoslo-
vakiu. — Konur frá tólf lönd-
um taka þátt í keppninni og
hefir akákmót kvenna aldrei
verið eins fjölmennt
Norðmenn taka ekki þátt í
landakeppninni, en senda tvo
fulltrúa á mótið, karl og konu.
Karlmaðurinn er fyrv. Nor-
egsmeistari, Andreas Gul-
brandsen, Moss, sem á Norð-
urlandametið í blindskák á
móti 15 manna sveit. Z.
„Alltaf að tapa-“
Islenzku knattspymu-
mennirnir bíöa mikinn
ósignr i Berlin.
I gærkvöldi kepptu íslenzku
knattspyrnumennimir, sem
fóru til Þýzkalands, við knatt-
spyrnumenn í Berlín. Unnu
Þjóðverjar með 11:0.
Á sunnudaginn kepptu Is-
lendingarnir í Dresden og
fengu þar jafn ömurlega út-
íeið.
Seinni hálfleiknum í gær-
kvöldi var endurvarpað. Heyrð-
ist sæmilega. Lýstu þeir leikn-
um til skiptis: Pétur Sigurðs-
son, Guðjón Einarsson og Gísli
Sigurbjörnsson. Lýtti mjög
frásögnina leiðinlegar lýsingar
á móttökunum og upptalning-
ar á mannanöfnum.
Fiskveiðar
Portúgala
í Norðurhöfum
Stjómin í Portúgal hefir
sent nefnd manna til að semja
við skipasmíðastöðina í Frið-
riksisundi um byggingu tveggja
eða þriggja 500 tonna skipa.
Er ætlunin að skip þessi stundi
veiðar norðarlega 1 Atlants-
hafi. — Hafa Portúgalar á-
kveðið að afla sjálfir sem mest
af þeim fiski, sem þeir þurfa
til neyzlu, í stað þess að kaupa
hann'frá Islandi og Noregi. —
Bygging þessara skipa er því
einn liður í þessum fram-
kvæmdum.