Nýja dagblaðið - 22.08.1935, Síða 2
2
NÝJA DAGB.LAÐIÐ
StefánGuðmundsson
óperusöngvará
K veðj u hlj óm leikar
í Gamla Bíó á morgun (23. þ. m.) kl. 7,15 síðd
Við hljóðfærið: C. Billich
Aðgöngumiðar verða seldir í dag og á morgun í
hljóðfærvverzl. frú K. Viðar og bókaverzl. S. EJymundss.
Ath. Pantaða aðgöngumiða ber að sækja fyrir há-
degi á föstudag, annars seldir öðrum.
Áfengisverzlun
ríkisins
hefir einkarétt á því að framleiða bökun-
ardropa. hárvötn, ilmvötn og andlitsvötn.
Verzlanir, rakarar og hárgreiðslukonur snúa
sér því beint til Áfengisverzlunarinnar,
þegar þessar vöriu- vantar.
Sendum gegn póstkröfu á viðkomuhafnir
strandferðaskipanna.
Góðar vörur. Sanngjarnt verð.
Atengisverzlun rikisins.
fastar ferðir alla miðvikudaga og laugardaga
Til Reykjavíkur alla þriðjudaga og föstudaga
Afgreiðsla í Reykjavík:
Nýju Bifreiðastöðinni, Kolasundi. — Sími 1216
Finnbogi Guðlaugsson,
Grrátt alnllarefni
(Oxford)
8.50 pr. meter
CrEFJUN, Laugaveg 10
FREYJU kaf f ibœtisduftið
— nýtilbúið — inniheldur sðeins ilmandi kaffibseti, ekkert vatn
eða önnur efni til uppfyllingar. Þess vegna er Freyju kaffibætía-
duftið drýgat, heiinsemast og beat. Og þó er það ódýrara ©n kaffi-
bsetir í atöngum.
Notið það bezta, sem nnnið er í landinu
rrí"(' •
I Alþýðublaðinu hefir undan-
íarna daga verið nokkuð rætt
um þá miklu þörf, sem hér er
fyrir aukið hagnýtt nám barna
og unglinga í bænum og um
það, ihvemig úr slíku megi
bæta og það hið bráðasta.
Hér verður ekki í þessari
grein gert að umtalsefni nema
eitt atriði í tillögum þeirra
greina, sem Alþ.bl. hefir birt
um þau mál.
Hr. Gunnar M. Magnússon,
kennari, bendir á leið — í sinni
grein — út úr þeim erfiðleik-
um, sem verða myndi um hús-
næði við lengda skólaskyldu
barna í bænum og breytta
starfshætti um nám.
Ifans tillaga er að hætta að
innrita nemendur í kennara-
skólann, láta hann lognasf út
af, en endurfæðast síðarmeir
sem eina deild háskólans. Taka
svo húsnæði kennaraskólans í
þarfir lengdrar skólaskyldu
unglinga og byggja þar upp
hina nýju kennslu og starfs-
stofnun.
í ritstjórnargrein Alþbl. í
fyrradag, sem um þessi mál
'fjallar, er svo um það spurt,
hvort ekki megi „nú þegar
taka eitthvað af húsnæði kenn.
araskólans til slíkra nota“.
Um það, að kennaraskólinn
gangi inn í háskólann — í þeimi
tilgangi að verða fullkomnari
stofnun, er naumast að ræða,
meðan háskólann skortir
sjálfan algerlega húsnæði og
býr við hin mestu og' bagaleg-
ustu híbýlaþrengsli.
En hitt, að vekja máls á því,
hvort ekki megi „nú þegar taka
eitthvað af húsnæði kennara-
skólans“ til nýrrar fræðslu-
stofnunar, er svo fráleitt sem
verða má.
Kennaraskólanum hefir frá
því fyrsta verið síkorinn þröng-
ur stakkur. Um langt skeið
stóð sikólahúsið, vanbúið og
þægindalítið í óruddri holurð.
Síðan hafa, að vísu verið gerð-
ar umbætur, bæði á bygging-
unni og lóð skólans — sem
liggur raunar undir allt aðra
stofnun, en allt um það eru
húsakynni ■ skólans mikils til of
lítil og ófullkomin, ef miðað er
við nútímakröfur og samskon-
ar stofnanir erlendisi.
En þó er verst, að hann hef-
ir ekki einu sinni fengið að búa
einn að hinu ófullkomna hús-
næði, heldur hefir öðrum,
miklu fjölmennari skóla verið
troðið inn í híbýli hans.
Gagnfræðaskóli Reykjavíkur
hefir allt frá stofnun sinni ver-
ið í húsrúmi þessa eina, fá-
tæka og þægindalitla kennara-
skóla þjóðarinnar.
Kennaraskólann skortir al-
gerlega rúm fyrir æfingabekki
sína. Hann átti nokkurn vísd til
fuglasafns. Það er nú nær eyði-
lagt af því að hvergi er staður
til geymslu. Iiann átti nokkurt
jurtasafn. Það liggur undir
eyðileggingu, líka fyrir pláss-
leysi. Skólinn hafði í sinni eigu
töluvert af eðlisfræðiáhöldum.
Þau eru nú fullkomlega ónot-
hæf af sömu ástæðu og fyr
greinir.
Skólinn á engan leikfimissal,
engan handavinnusal, né handa,-
vinnuáhöld, enda hefir kennara-
efnum (piltum) engin handa,-
vinna verið kennd hin síð-
ustu ár. En í slíkum stofn-
unum erlendis er handavinna
sú námsgreinin, sem nú er á
lögð víða megináherzla, enda
árangurinn með afbrigðum
glæsilegur.
Og loks er því litla, sem
skólinn á til af einföldustu
kennslutækjum hrúgað saman
í eina herbergiskytru, svo
In'önga og óhaganlega, að oft
hefir reynzt ógerlegt með öllu
að finna það, sem nota, þurfti
í þessari eða hinni námsgrein,
þegar mest þörf var á.
í þessum efnum öllum — og
ýmsum íleirum — eru þrengsl-
in til fyrirstöðu hverri umbót.
Og svo er haíið máls á því,
hvort ekki megi taka nokkuð
af þessu húsrými fyrir þriðju
kennsl ustofnunina.
Erlendis eru skólamenn allir
á einu máli urn það, að engar
menntastofnanir þurfi betur að
vanda en kennaraskólana.
Enginn skóli íslendinga hef-
ir jafn víðtæk áhrif á alþýðu-
fræðslu og alþýðumenntun sem
kennaraskólinn. Áhrif hans ná
því að orka svo að segja á hug
og sál hvers barns í landinu.
En þrengslin standa honum
nú bókstaflega fyrir albrýn-
ustu og óhjákvæmilegustu um-
bótum, umbótum, sem nýleg
reglugerð heimtar m. a. hon-
um til handa.
Og frumskilyrðið fyrir því,
að þeim umbótum fáist fram-
gengt, er það, að skóli sá, sem
þar hefir haft til húsa undan-
farið, rými þaðan, en kennara-
skólinn fái aftur til fullra af-
nota það mjög nauma húsnæði,
sem honum var ákveðið fyrir
rúmum aldarfjórðungi síðan,
þegar kröfur til kennaramennt-
unar voru aðrar og miklu
mlinni en nú.
Þessi umbótaþörf skólans er
svo augljóst mál, svo sjálfsagt
og óumflýjanlegt, að það nær
bókstaflega engri átt að halda
svo í kyrkingi áfram jafnþýð-
ingarmikilli fræðslu og mennta-
stofnun þjóðarinnar.
Vandamál alþýðuskólanna
eru mikil og- margvísleg. En
eitt meginskilyrði fyrir þrifurn
þeirra er það, að alþýðukenn-
urum séu búin sem bezt skil-
yrði og hagfelldust til þess að
vinna ábyrgðarfullt starf í sem
fyllstu samræmi við viður-
kenndar kröfur hvers tíma.
Hallgr. Jónasson.
Borð búnaður
úr silfnrplettí, aérlega vmndað-
«r og smekklegnr, hjá
HÁRALDUR HA6AN
Ansturetmti 8. Simi 8880.
Leikföng
Kúlukassar frá 0,20
Dúkkur frá 0,50
Bílar frá 1,50
Garðkönnur frá 0,35
Glerkúlur á 0,25
Stell frá 1,50
Boltar frá 0,85
Myndabækur frá 0,35
Litakassar frá 0,25
Vagnar frá 0,85
Skip frá 1,50
Spil, ýmiskonar frá 1,00
K. Eiiiran & Blörnsson
Ba-ikt stneti 11
Atvinna.
Af sérstökum ástæðum er
til sölu hlutur í arðbæru
iðnaðarfyrirtæki hér í bæn-
um. — Kaupandinn getur
tryggt sér atvinnu við fyr-
irtækið. Lysthafendur sendi
nöfn sín, adressu og síma-
númer í lokuðu umslagi á '
afgreiðslu blaðsins, fyrir 24.
þ. m., merkt: fllvinna.
Laugaveg*
Autoaat
Nýtt l mbakjöt og súpa
verða tramreidd irá kl.
3—11,30 e. hád. tyrst
um sinn.
Rússer notfara sér
ekki vðrolán
í Þýzkalandi
Fyrir 3 mán. síðan fengu
Rússar loforð fyrir 200 millj.
marka vöruláni í Þýzkalandi.
Hafa síðan farið nokkrir er-
indrekar frá Rússlandi til
Þýzkalands, til að athuga,
hvaða vörur Rússum myndi
hagkvæmast að kaupa þar. En
enn hafa þó ekki verið fest
kaup á þýzkum vörum, nema
fyrir lítinn hluta hins um-
rædda vöruláns. Hafa Rússar
gefið þá skýringu, að vöruverð-
ið í Þýzkalandi væri í flestum
tilfellum 30—40% hærra en
verðið á heimsmarkaðinum, og
telji þeir sér ófært að kaupa
vörur með þvílíku verði.
Þýzka stjórnin hefir heldur
enn ekki viljað gefa hinar.
venjulegu útflutningsuppbæt-
ur, sem eru oftast 25%, og
hafa verið færðar fyrir því þær
ástæður, að stjórnin telji ekki
öruggar þær tryggingar, sem
færðar eru fyrir láninu.