Nýja dagblaðið


Nýja dagblaðið - 27.08.1935, Qupperneq 1

Nýja dagblaðið - 27.08.1935, Qupperneq 1
r r Meistaramót I. S. I. Nýtt met í 400 metra hlaupi Sprmgisandsför Viðta! við Guðiaug Rósinkranz yfirkennara Fyrra laugardag fóru fjónr iuenn héðan úr Reykjavík til móts við Pálma Hannesson rektor, þegar hann kom úr vísindaleiðangri sínum um Austurland. Fengu þeir þá hesta, er hann hafði haft, og fóru á þeim norður Sprengi- sand og norður í Þingeyjar- sýslu. Nýja dagblaðið hitti i gær einn þessara ferðamanna, Guðlaug Rósinkran2 yfírkenn- ara, og spurði hann af ferða- lagi þeirra. — Hvemig gekk ferðalagið? — Það gekk prýðilega, við fengum til skiptis gott veður og dynjandi rigningu, en allt gekk þó vel og var ferðin hin ánægjulegasta. — Hvað voruð þið lengi á ferðini mili byggða, og hvern- ig höguðuð þið ferðinni? — Við fórum austur í Sölva- hraun, sem er á Fjallabaks- vegi, á bíl þeim, er sótti Pálma Hannesson og félaga hans. Þar ferðinni milli byggða, og hvern- 18. Fórum við af stað, ásamt fylgdarmanninum, Sigurði Jónssyni frá Brún. kl. rúm- lega 3. Þrjá af hestunum höfðum við undir pjönkum okkar, mat, svefnpokum og tjaldi, en hina til reiðar, svo við vorum vel ríðandi. Fyrsta daginn fórum' við norður fyrir Tunguá og gistum þar í leitar- mannakofa. Daginn eftir náð- um við í svo kallað Þúfuver, sem eru mýrarflákai- á sand- inum, kl. 9 um kvöldið, eftir 13 klukkustunda reið. Var þá komin úrhellis rigning, en þurrt veður hafði verið um daginn. TJr Þúfuveri fórum við um morguninn kl. 6V2- Feng- um við ágætisveður allan dag- inn. Sáum við allt í seim: Hofsjökul, Tungnafellsjökul, Arnarfell, Vatnajökul, Trölla- dyngju, Dyngjufjöll, Kverk- fjöllin og Herðubreið, svo helztu fjöllin séu talin. Var bjart veður, og sólskin öðru- hvoru, enda voru þá jöklarnir og fjöllin undurfögur. Er það held ég einhver fegursta fjalla- sýn, sem til er á Islandi, og minnist ég ekki að hafa séð annað útsýni fegurra. I Ey- vindarver, þar sem Fjalla-Ey- vindur bjó, var þriggja tíma ferð úr Þúfuveri( (kofarústir Eyvindar sjást greinilega enn) og síðan 10 klukkutímia reið yfir Sandinn í Kiðagil, en þar er næsti grasblettur á leiðinni. Alla þessa leið sást ekki sting- andi strá. Ekki tjölduðum við þó í Kiðagili, heldur héldum á- fram í svokallaðan Mosa, en þar átti að vera kofi, sem við ætluðum að tjalda við, og hagi var þar góður. Áður en við komumst þangað, skall á kol- svarta þoka og dynjandi rign- ing, og mjög tók líka að dimma, svo erfitt var að rata, þar eð vörðumar voru líka mjög ógreinilegar og langt á milli þeirra. Kofaim fundum við ekki, enda var hann líka fallin. Tæpast var því um ann- að að gera en að halda áfram, því mjög var örðugt að halda hestunum saman í myrkrinu. Héldum við því áfram niður Mjóadal, er liggur fram úr Bárðardalnum, alla nóttina og komum að Mýri, fremsta bæn- um í Bárðardal, kl. 5 um níorguninn. Höfðum við þá setið á hestunum í 22*4 kl.st. samfleytt, að undanteknum nokkrum smáhvíldum. Kom! það sér því vel að hafa marga góða og vana hesta. Á Mýri fengum við hinar á- gætustu viðtökur. Sváfum við þar í 4 stundir og héldum síð- an áfram niður Bárðardalinn, sem er ákaflega falleg sveit, að Fosshóli við Goðafoss, og kom- um þar á þriðjudagskvöldið, en þangað sótti okkur bíll frá Akureyri. Skildum' við þar við okkar ágæta fylgdarmann, Sigurð frá Brún, sem tók nú einn við hestunum, til þess að koma þeim til skila. — Hvemig var leiðin yfir- ferðar? Er þetta hugsanleg skemmtif erðaleið ? — Færðin er víðast ágæt, nokkuð þétt, fíngerð möl , á köflum var þó eggjagrjót og dálítið örðugt yfirferðar. Sand- urinn er svo að segja allur í sandöldum, hver sandaldan eft- ir aðra, ein eyðimörk, svo langt sem augað eygir í allar áttir, en fjöllin rísa upp yfir langt í fjarlægð. Fjölfarin skemmtiferðaleið get ég ekki ímyndað mér að Sprengisand- ur verði. Til þess er hann allt of langur og erfiður, nema fyr- ir þá, sem elska öræfin og hafa gaman af að lenda í hálf- gerðum svaðilförum. Aulcinn rfkisrelrttnr til ftalska siglingatiotans Italska stjórnin hefir á- kveðið að auka ríkisstyrkinn til verzlunarflotans um 24 millj. líra og nemi styrkurinn framvegis 287.6 millj. líra á ári. Jafnframt er þess getið, að ítalir hafi árangurslaust leit- að fyrir sér um lán bæði í Eng- iandi og Frakklandi. Ástæðan fyrir lánbeiðni ítala er bein af- leiðing af stríðsundirbúningi þeirra á móti Abessiníu, sem sagt er að liafi þegar kostað þá 130 millj. líra. Herbúnaður Itala í Afrfku Fyrir nokkru birtist í blað- inu „Le Matin“ ítarleg frásögn um stórfeldar vegalagningai’, sem ítalir hafa með höndum í Erithrea, nýlendu þeirra, sem liggur að landamærum Abes- síníu. Vegalagningar þessar eru gerðar í því augnamiði, að auðvelda herflutninga til A- Samkvæmt heimild frá Fiski- felagi íflands var búið að salta a öllu landinu síðstl. laugar- dagskvöld 61.126 tn. af síld á öllu landinu, en það var um líkt leyti í fyrra 187.544 tn. Samkvæmt fregnum frá Veð- urstofunni sá togai’inn „Sindri“ í gærmorgun stóran borgarís- jaka á reki um 40 mflur norð- ur af Barðanum. í gærkvöldi bárust stofunni ísfregnir frá tveimur þýzkum togurum, „Weser“ og „Sa- gitta“. „Weser“ sá stóran borg- arísjaka á 66° 38’ n.br. og 24° Meistaramót I. S. í. hélt áfram á sunnudaginn og lauk þá um kvöldið. Árang-ur þess er í sumum iþróttagi-einum heldur betri en var á Allsherj- armótinu í vor og Meistaramót- inu í fyrra, en skammt miðar það þó upp á við. Og yfirleitt virðist árangur aðkomumann- anna, sem hafa verri aðstöðu á ýmsan hátt, betri en íþrótta,- mannanna hér í bænum. Þannig unnu t. d. Vest- mannaeyingar meistaratignina í þrístökki og kringlukasti, Borgfirðingar í 5 km. og 10 km. hlaupum og Hafnfirðingar í stangarstökki. Úrslit í hinum einstöku íþróttagreinum urðu þessi: 200 m. hlaup: 1. Sveinn lngvarsson (K.R.) 24,2 sek. 2. Baldur Möller (Á.) 24.4 sek. 3. Jón ólafsson (K.V.) 24,5 sek. Kúluvarp: 1. Kristján J. Vattnes (K.R.) 11,88 m. 2. ÁgTÍst Kristjánsson (Á.) 11,75 m. Á laugardaginn var alis búið að bræða 545.693 hl., en á sama tíma í fyrra var búið að bræða 674.889 hl. í fyrradag og gær var norð- austan rok og því engin veiði nyrðra. 30’ v.l. en „Sagitta" kveðst hafa séð aiuian borgarísjaka á sömu slóðum og „Weser“. Þetta er rétt vestur af Horni að kalla má. Veður var hið versta í fyrradag sunnan- og norðanlands, en vonandi þó að þessi vágestur dragi enga rek- ísdræsu á eftir sér. 3. Júflus Snorrason (K. R.) 11,16 m. Langstökk: 1. Karl Vilmundarson (Á.) 6,26 m. 2. Sigurður Sigurðsson (K. V.) 6,10 m. 3. Georg L. Sveinsson (K.R.) 6,00 m. 1500 m. hlaup: 1. Sverrir Jóhannesaon (K. R.) 4 mín. 35,3 sek. 2. Einar S. Guðmundsson t|K. R.) 4 ndn. 35,4 sek. 3. Gísli Kæmested (Á.) 4 mín. 40 sek. Stangarstökk: 1. Hallsteinn Hinriksson (F. H. ) 3,15 m. 2. Sigurður Steinsson (I. R.) 3,10 m. 3. Karl Vilmundarson (Á.) 3,10 m. í aukastökki stökk Hallsteinn Hinriksson 3,22 m., en íslenakt met er 3,25 m. 10.000 m. hlaup: 1. Gísli Albertsson (1. B.) 38 mín 26,5 sek. 2. Magnús Guðbjömsson (K. R.) 37 mín. 8,3 sek. 3. Jón H. Jónsson (K. R.) 88 mín. 11,1 sek. 400 m. hlaup: 1. Baldur Möller (Á.) 54,5 sek. 2. Gísli Kærnested (Á.) 56,0 sek. 3. Stefán Þ. Guðmundsson (K. R.) 56,4 sek. Tími Baldurs er íslenzkt met. Gamla metið var 54,6 sek., sett af Stefáni Bjamasyni 1927. 110 m. grindahlaup: 1. Jóhann Jóhannesson (Á.) 18.8 sek. 2. Karl Vilmundarson (Á.) 19.9 sek. 3. Gísli Kæmested (Á.) 20,1 sek. Háatökk: 1. Sigurður Norðdahl (Á.) I, 60 m. 2. Sigurður Gíslason (F. H.) 1,55 m. 3. Sigurður Sigurðsson (K. V.) 1,55 m. Kringlukast: 1. Júlíus Snorrason (K. V.) 35,80 m. 2. Karl Vilmundaraon (Á.) 36,28 m. 8. Kristján J. Vattnes (K. R.) 32,48 m. Frh. á 4. síðu. Frh. á 4. síðu. Sild arsöltimin er þretalt minni en i fyrra B o r g a r i s skammt undan Horni

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.