Nýja dagblaðið - 27.08.1935, Side 2
2
NfJA DAGBLAÐIÐ
öll fjölskyldan notar
eingöngu Sjafnarsápu,
og reynzlan hefir sann-
fært hana um að
Sjafnarsápan sé bezt.
Nonni: Mamma, voða er gaman að þvo sér úr þessari sápu.
Mamma: Já, Nonni minn, þetta er líka SJAFNARSÁPA.
Islenzk framleiðsla.
Sjafnarvörur
Baðsápa Gólfáburður
Handsápa Skóáburður
Sólsápa Tannknem
Stangasápa Næturkrem
Krystalsápa Dagkrem o. fl.
tífnnliK Sjafnarvðrur emgíðar!
Kostir =jjsi
SjRFHflRUORUR framleiða neytendurnir sjálfir!
Vér notum þvi eingdngu SJafnarvörur.
^ eykjavik
kareyrí
A tveim dögum:
Alla þriðjudaga, fimmtudaga laugardaga
A einum degi:
(hraðferðir) um Borgaraes á þriðjudögum og föstudögum.
Frá Akureyri áframhaldandi ferðir til Austfjarða.
Afgreiðsla í Reykjavík Bifreiðastöð íslands. Sími 1540.
Bifreiðastöð Akureyrar.
fastar ferðir alla miðvikudaga og laugardaga
Til Reykjavíkur alla þriðjudaga og föstudaga
Afgreiðsla í Reykjavík:
Nýju Bifreiðastöðinni, Kolasundi. — Sími 1216
Finnbogi Guðiaugsson,
DCáttur aug’lýsing'a
er mikill!
Leikföng
Kúlukassar frá 0,20
Dúkkur frá 0,50
Bílar frá 1,50
Garðkönnur frá 0,35
Gllerkúlur á 0,25
Stell frá . 1,50
Boltar frá 0,85
Myndabækur frá 0,35
Litakassar frá 0,25
Vagnar frá 0,85
Skip frá 1,50
Spil, ýmiskonar frá 1,00
K. [i»n I Billrnsson
Ilankí stneti 11
Nýja dagblaðið
örfá eintök af blaðinu frá
byrjun (complett) fást á af-
greiðslu þess. Eru þau inn-
heft, — hver ársfjórðungur í
sérstöku bindi. Þetta er síð-
asta tækifærið að eignast blað-
ið allt frá því það byrjaði að
koma út, því mörg númer þess
eru þrotin, þegar þessi fáu
eintök eru frátalin.
RETKIÐ
J. GRUNO’S
ágæta holíenzka reyktóbak
VEBÐ:
AROMATISCHER 9HAG kostar kr. 1,05 V20 kg.
FEINRIECHENDER SHAC — — 1,1S — —
Fæ®t í öllum verzlunum
Ianlendur iðnaður
oíí1 vörugæði
Hér í blaðinu var nýlega
skýrt frá því, að riftað hefði
verið námssamningi vegna
þess að meistari hafði látið
nemanda vinna of lengi og
kallað hann illum og ósæmileg-
um nöfnum.
Meistari þessi er húsgagna-
fóðrari og heitir Ilenry Möller.
Er hann danskur að ætt, eins
og nafnið bendir til.
Hóf hann sjálfstæðan iðn-
rekstur fyrir nokkru síðan og
vann nokkuð um tímá fyrir
Húsgagnaverzlunina við Dóm-
kirkjuna.
Það sem selt var af húsgögn-
um þessum reyndist mjög illa,
og snéri verzlunin sér því til
lögmanns og óskaði eftir að
hann tilnefndi tvo m!enn til að
skoða. húsgögn, sem Henry
Möller hafði framleitt, frá fag-
legu sjónarmiði.
Tilnefndi lögmaður þá Krist-
in Sveinsson og Konráð Gísla-
son til að framkvæma þá rann-
sókn og fór hún fram 8. okt.
fyrra árs.
Voru teknir til skoðunar
armstólar 0 g einn hæginda,-
stóll og voru sæti og bök
þessara stóla rist í sundur,
þannig að allur frágangur kom
greinilega í ljós, bæði efni og
vinna.
Var álit skoðunarmanna eft-
ir þessa rannsókn svohljóð-
andi:
„Samkvæmt almennum fyr-
irkomúlagsreglum, um efnivör-
ur og frágang (vinnu) í þess-
ari iðngrein, er álit okkar á
þessa leið:
1. Hvað efnivörur snertir,
minnumst við þess ekki að hafa
séð öllu lélegra og treystum
við okkur ekki til að skipa
þessu atriði undir neinn flokk,
og sama máli gegnir um ann-
an frágang (vinnu).
2. Hvað frágangi (vinnu)
viðvíkur, álítum við að ekki
sé hægt að láta sér nægja við-
gerð í venjulegri merkingu,
heldur verði að bólstra hús-
gögn þau, sem skoðun okkar
fjallar um, að öllu leyti upp
að nýju, og kostar það samkv.
venjulegu útsöluverði frá
vinnustofu, kr. 60.00 pr. arm-
stól af venjulegri gerð, án
virkis og áklæðis, en hæg-
indastólar af líkri gerð og sá,
er skoðun okkar fjallar um,
kosta, án virkis og áklæðis, kr.
120.00.
Álit okkar er miðað við þann
frágang, hvað efni og vinnu
snertir, sem talizt getur nægi-
legur til þess að engar um-
kvartanir þurfi að koma til
greina, og erum við reiðubún-
ir til að leggja fram nánari
greinargerð þessu viðvíkjandi,
ef þörf gerist, svo og að stað-
festa álit okkar með eiði, ef
þess verður krafizt.
Reykjavík, 12. október 1934.
K ristinn Sveinsson.
Konráð Gíslason."
Eins og skýrslan ber með
sér, hefir vinna þessa manns
verið óforsvaranleg með öllu.
Gefur þetta fullkomna á-
stæðu til að spyrja, hvemig sé
háttað eftirliti með innlend-
um iðnaði og hvaða aðstaða
þeim iðnaðarmönnum sé
tryggð, sem framleiða góðar
vörur og standast því ekki að
selja eins ódýrt og þeir, sem
eru hroðvirkir og kærulausir.
Er þetta dæmi nægilega
glöggt til að sýna, hvaða hætta
iðnaðinum getur stafað af
þessu. Danskur maður, sem
nýtur hlunninda sambandslag-
anna, setur hér upp vinnustöð
og keppir við íslenzka iðnaðar-
menn um framleiðslu á vöru,
sem hann hefir búið illa og
óforsvaranlega úr garði.
Þarf þetta atriði sannarlega
athugunar við og geta samtök
iðnaðarmanna ef til vill komizt
fyrir slíkt að einhverju leyti.
Menn, sem eru staðnir að
hroðvirkni og sérstaklega ó-
vönduðum frágangi, ættu að
missa réttindi til að framleiða
og- selja þá vöru.
Innlendan iðnað á að efla og
styrkja. En þau iðnaðarfyrir-
tæki, sem ekki setja sér það
markmið að framleiða góða
vöru, eiga heldur ekki skilið að
lifa.