Nýja dagblaðið - 23.11.1935, Side 2

Nýja dagblaðið - 23.11.1935, Side 2
2 NÝIA DAGBLAÐIÐ Víkíngsprent Hverflsg;ötu 4 (hús Garðars Gíslasonar) Sími 2864 Tekur að sér alia prenfvinnu fypir lægsfa verð. Bækur, blöð og tímarit; einnig allskonar tæki- færisprentun svo sem bréfhöfuð, umslög, reikn- ingseyðublöð, frumbækur, auglýsingar o>. s. frv. WttT Leitid upplýsinga um verð. Skiptið yið yíkingsprent, þér tapið ekki á því Myndlistafélag Islands Dansleikur að Hótel Borg í kvöld kl. 9,30. Aðgöngumiðar seldir í Hljóðfæraverzlun Katrínar Viðar, Hljóðfærahúsi Reykjavíkur, Bókaverzl. Sigf. Eymunds- sonar og á Hótel Borg eftir kl. I. T ilkynning. Að gefnu tilefni tilkynnist hér með að framvogis verð ég undirritaður alls ekki til viðtals á vinnutíma Löggildingarstofunnar og svara heldur ekki í síma. Bjarni Bjarnason, form. Hreyfils. Kauputn tómar flöskur Frá og með mánudeginum 25. þ. m. til föstudags 29. þ. m. kaupum við ‘/i fl. hvítar og dökkar 7. - - - - með portvíns- og sherryflösku lagi. Ennfr. lítersflöskur og ‘/2 ltr. flöskur hvítar og dökkar. Flöskunum verður veitt móttaka í Nýboig kl. 9—12 f. h. og kl. 1—5 e. h, Afengisverziun ríkisins Auglýsífl i Nýja Dagblaðínu! WF'* Athugíð árangurínn! Skortir kjarnfóður sölt og eggjakvitu? Grein með þessari fyrirsögn birtist í Nýja Dagblaðinu laug- ardaginn 16. nóv. Ég rita eigi um grein þessa sökum þess að ég þykist geta þar neinu um bætt. En af því ég er viðriðinn blöndun kjarnfóðurs og sölu þess, er mér ljóst að höfundur hinnar nefndu greinar, dr. Jón E. Vestdal, hefir í grein sinni rætt málið í allt of þröngum skorðum; þar þarf við að bæta, ef greinin á að gera gagn. Lín- ur þessar eru því hripaðar til þess fyrst og fremst að óska eftir víðtækari svörum við spumingu fyrirsagnarinnar, en grein dr. Vestdals lætur í té. Eins og nú er komið, er inn- flutningur á olíukökum stöðv- aður, er það síldarmjölið sem upp á er hlaupið til þess að fá viðunandi eggjahvítumagn í kjamfóðrið. Þeir, sem selja blandað kjarnfóður, munu nota um 30% af síldarmjöli í blönd- ur sínar. 1 fóðurblöndu þeirri, er S. í. S. selur, eru þannig 30% af 1. fl. síldarmjöli og ennþá, en þar er nú sungið síðasta versið, 10% af olíukök- um. Þeir kúaeigendur, er blanda sjálfir heima hjá sér, munu yfirleitt nota engu minna síld- armjöl, jafnvel meira, eða síld- armjöl og maísmjöl til helm- inga. Hvort mun nú ekki sæmi- lega séð fyrir egjahvítu í slíkri fóðurblöndu? Og hvað er um söltin — steinefnin að segja? Það, er von að kúabændur spyrji þannig, og hvort það muni til bóta að breyta svo um t. d., að minnka síldarmjölið og bæta við fiskmjöli í staðinn, eða á annan hátt. Einnig spyrja ýmsir um hið nýja mjöl — karfamjölið. — Það er þann- ig til komið, veiðin fór fram að hausti til, og unnið úr henni jafnharðan, að margt bendir til þess, að karfamjölið sé á- gæt vara, en upplýsingar um þetta skortir mjög. Yfirleitt. virðist mér þetta mál liggja þannig fyrir, að það sé ekki fyllilega réttmætt, og jafnvel ekki full forsvaran- legt að benda einhliða á fisk- mjöl, sem eggjahvítufóður, nema að drepa nokkuð á síldar- mjölið um leið, þar sem það er sú vara, er menn almennt þekkja og nota mjög mikið, og að ýmsu leyti er þó líkust fiskmjölinu. í raun réttri ber að ræða um allar þrjár tegund- irnar í senn, síldarmjölið, fisk- mjölið og karfamjölið, kosti þeirra og galla, 0g hversu þau uppfylla eggjahvítu- og stein- efnaþörfina í góðri fóður- blöndu. Um leið verður að miða að einhverju við verðlag á tegundum, því að framhjá því atriði kemst hvorki sá, er blanda skal fóðurblöndu og selja, né sá er skal nota hana til framleiðslu. Um leið vaknar sú spuming, hvort það sé alls- kostar heppilegt að teppa al- veg notkun á olíukökum, ef hægt er að selja t. d. fiskmjöl- ið, sem mun vera dýrast þess- ara tegunda, úr landi fyrir mun hærra verð hverja fóður- einingu, en hægt er að kaupa olíukökur fyrir. Verður ekki kjarnfóðrið nokkuð einhæft þegar engar eru olíukökumar, og ef hlýtt er því ákvæði sem er í „mjólkurreglugerð“, að nota ekki yfir 20% af sfldar- mjöli í fóðurblöndur, sem gefn- ar eru. Hvemig fer þá um eggjahvítuþörfina og stein- efnaþörfina? Enn eitt; dr. Vestdal minntist á kalciumfosfatið í fiskmjöl- inu, en hvað um þörfina á kolsúru kalki og matarsalti? Er hægt að spara sér að nota „fóðursalt“ (mineralnæring) með því að gefa fiskmjölið? Er ekki sanni nær, að þrátt fyrir síldarmjöls- eða fisk- mjölsgjöf geti eigi að síður, við vissar kringumstæður, verið þörf á viðbót af vissum steinefnum, og að auðveldast sé að fullnægja þeirri þörf með því að blanda þeim efn- um í fóðurbætinn sem „fóður- salti“, krít 0. s. frv. Það ætti ekki að vera fymt yfir það, sem kom fyrir í Eyjafirðinum í fyrravetur. Það mundi vera vel þegið af fjölda bænda, að þetta mál væri rætt með fyllra yfirliti en dr. Vestdal hefir gert. Ég vona að bæði sjái hann ástæðu til þess og þeir sem bezt hafa áður ritað fróðleik um fóðrun búfjár og nefni ég þar helzt til þá Hvanneyrarmenn H. Vil- hjálmsson og Þóri Guðmunds- son. Umfram allt, eins og nú ligg- ur fyrir, samhliða upplýsingar um öll þrjú innlendu fóðurefn- in, síldarmjöl, karfamjöl og fiskimjöl. 21/11. ’35. Ámi G. Eylands. iVI.s. Dronning Alexandrine fer í kvöld kl. 6 síðd. til Isafjarðar, Siglufjarðar, Ak- ureyrar. Þaðan sömu leið til baka. Farþegar sæki farseðla í dag fyrir hádegi. Tilkynningar um vörur komi i dag fyrir hádegi. Skipaafgreiðsld Jes Zimsen Tryggvagötu ■ Sími 8025. Sími 1700 Munid aö brunatryggia. Nýtt grænmeti Hvítkál Rauðkál Sellerf Purrur KJOtbúðReykJavíkur Vesturgötu 16, sími 4769 oand. jur. tekur að sór allskonar lög- fræðistörf, málfærslu, inn- heimtur, samningagerð, kaup og sölu fasteigna. Skrifsto('a Brekkugötu 9 Hafnarfirði, sími 9 0 6 6 Viðtalstími 4—5 síðdegis. Heimasími 9121, (Setbergi). Jafnaðarmaður ráflinn til aö stjörna norska þjóflleikhúsinn „Arbeidsbladet" segir frá því, að nýr forstjóri, Axel Otto Normann, hafi verið ráð- inn að þjóðleikhúsinu norska. Það er öllum ljóst, að Verka- mannaflokkurinn, sem ræður stjórn Osloborgar, hefir ákveð- ið unnið að því að hann yrði skipaður í þetta embætti. Kjörorð hans er: „að sýna lífið eins og það er“ á leiksviði, 0 g vitanlega teljast stjóm- málastefnur þar með. Annars eru um það miklar ráðagerðir í Noregi, að koma á samvinnu milli leikhúsanna jafnframt því, að sendir séu leikflokkar um landið til þess að sveitimar geti einnig notið góðs af leiklistinni. Þetta er mikil ráðagerð og góð, sem ef- laust gæti komið bæði listinni sjálfri og þjóðinni í heild að miklum notum. Z.

x

Nýja dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.