Nýja dagblaðið - 16.07.1936, Page 2
2
N V J A BAGBLA0IÍ)
Til kanpenda Nvja dagblaðsins
Yfirlæknisstaðan
Þeir, sem skulda blaðinu áskriftagjöld, eru
beðnir að greiða þau sem fyrst.
Eftir 15. ágúst n. k. verður blaðið ekki sent til
skuldugra kaupenda, nema þeir hafi samið um
skuldina við afgreiðslumann blaðsins,
við Akureyrarspítala er laus frá 1. sept.
n. k. Umsóknir sendist undlrrituðum
formanni spítalanefndar fyrir 15 ájgúst.
Akureyri 15. júlí 1936,
Vílhjálmur Þór.
Afgfreiðsla Nýja dagblaðsins, Hafnarstr. 16, Reykjavík
sími 2323, pósthóli 961. — Heimasími aigreiðslumaims 2429, pósth. 9S6
Smiðir.
Við höium til sölu eini til gljáning*
ar (Poleringar) sem eru il ótvirkari
en eldri aðierðir.
Allmargir amiðir eru þegar farnir að nota
þessi efni.
Vélritaðar notkunarreglur fyrir hendi.
Biðjið um þ»r á skrifstofunni.
Áfengisverzlun ríkísins.
»Einmanalegft
að lífa«
segir Axel Munthe
Um þessar mundir dvelur
hann í London, Axel Munthe,
læknirinn og skáldið víðkunna.
Hann vinnur þar að nýrri
bók, sem á að koma út með
haustinu.
Vitanleg'a sækjast fréttarit-
arar blaðanna eftir því að ná
taii af Munthe. Við einn þeirra
hefir hann sagt, að til London
sé hann kominn til þess að leita
sér svefns.
„Ef guð vildi unna mér of-
urlítils svefns — sagði hann
— vona ég að geta skrifað bók,
sem skýrir heiminum frá þeim
tíma og því lífi, er ég var her-
læknir í ófriðinum mikla. Þá
var ég sérfræðingur í sjálfum
dauðanum.
Á þeim árum stytti ég fjölda
manna stundir. Það er mikils-
vert að geta hjálpað þeim til
að deyja, sem ekki er nokkur
leið að bjarga til lífsins.
— Ég mun líka deyja bráð-
lega — bætir Munthe við —
það verður einmanalegt.
En það getur ekki orðið ein-
manalegra en að lifa.“
Um leið brosir hann, þessi
aldni spekingur og göfugmenni,
framan í blaðamanninn, mildu,
dulu og angurværu brosi, og
endurtekur lágt: „Það getur
ekki verið einmanalegra en að
lfa.“
En svo hristir hann af sér
ásókn og áhrif gamalla endur-
minninga og lýkur viðræðunni
með góðlyndu fjöri:
„Nú er eftir að vita, hvort
London lær mér svefnfrið. Svo
sjáum við til hvenær bók mín
kemur út“.
Náttúrufrædingur
etur höggorm
Danskur náttúrufræðingur,
sem var nýverið á rannsóknar-
ferð úti á landi, með flokk
manna, fann þá fjóra högg-
orma og náði einum lifandi.
Hans Krass, en svo heitir nátt-
úrufræðingurinn, bar þennan
dólg, sem var rúmur metri; á
lengd og óvenjustór eftir því,
sem í Danmörku tíðkast, í ann-
ari hendi, þar til þeir félagar
koma til bæja.
Helzta vöm þessara kvik-
inda er sú, að gefa frá sér
hræðilegan óþef, sem ekki er
talinn að líkjast neinni annari
lykt. En Kvass lét sér hvergi
bregða. Hann er sérfræðingur
um allt, er að skriðdýrum lýt-
ur og þekkti snákinn út í æsar.
Einungis eitt vissi hann ekki,
og það var hvérnig 'sá mundi
vera á bragðið.
Þessvegna var ormurinn
drepinn og matbúinn fyrir
náttúrufræðinginn, sem borð-
aði þennan frernur nýstárlega
rétt með beztu lyst og lét mik-
ið af.
Dönsk blöð segja, að það séu
hundrað ár síðan maður þar í
landi hafi lagt sér til munns
höggorm — og hafa rætt tals-
vert um þennan nýja rétt á
dönsku matborði.
Eyðilegfg'ja olíu-
líndir Búkarest ?
í Rúmeníu hefir nefnd sér-
fræðinga undanfarin ár rann-
sakað magn olíulindanna þar í
landi og skilað áliti sínu fyrir
stuttu síðan. Sú skoðun nefnd-
arinnar hefir vakið almenna á-
nægju, að magn olíulandanna
leyfi fullkomlega sömu árs-
framleiðslu næstu 100 árin og
verið hefir undanfarið, án
þess að þær gangi nokkuð
verulega til þurðar.
Hinsvegar vekur það álit
nefndarinnar talsverðan ugg í
höfuðborginni Bukarest, að
undir borginni sjálfri séu mikl-
ar olíulindir, sem enganveginn
sé ólíklegt að geti brotið sér
farveg upp á yfirborðið, flætt
yfir götur borgarinnar og or-
sakað margvíslegar og stór-
kostlegar sprengingar.
Kosning'ar
á Korsiku
14 fleiri atkv. en kjós-
endurnir.
Franska þingið hefir með
282:193 atkv. samþykkt að ó-
gilda kosningu Chiappe fyrv.
lögreglustjóra í París, en hann
átti einna mesta sök á óeirð-
unum í febrúarmánuði 1934,
sem leiddu til þess að stjórn
Daladiers núv. hermálaráðherra
féll.
Chiappe er frá Korsiku og
var kosinn í börginni Ajaccio
þar á eynni. Kosningin var
gerð ógild sölcum þess að
greidd voru 14 fleiri atkv. en
kjósendur í borginni og þessi
14 atkv. voru afgerandi fyrir
kosninguna.
Talið er óvíst hvort Chiappi
freistar hamingjunnar aftur,
því hann er orðinn fjárhags-
lega illa stæður, en kosninga-
baráttan er dýr á Corsiku. Er
getið til að óberst de la Roque
foringi Eldkrossins, hins ný-
uppleysta fasistafélagsskapar,
muni bjóða sig þar fram í
stað hans.
K a n p i ð
Notið
Sjafnar-sápur.
Altj wej tslenskum sklpnni!
M orður - V estiur
Til Norðurlandsins eru ferðir — um Borgarnes —
og áframhaldandi til Austurlandsins á sunnudögum og
föstudögum. Til Dala og A.-Barðastrandarsýslu á mið-
vikudögum og laugardögum og Hólmavíkur á miðviku-
dögum. Til Stykkishólms á þriðjudögum, föstudögum og
laugardögum. Til Ólafavíkur á þriðjudögum og föstu-
dögum. Upp um allt Borgarfjarðarhérað eru venjulega
ferðir frá Borgarnesi strax eftir komu Laxfoss þangað.
Beinustu og ódýrustu ferðirnar norður og vestur
á land eru með Laxfossi til Borgarness og þaðan með
bifreiðum.
Farseðlar og nánari leiðbeiningar hjá:
Afgreiðslu Laxfoss Bifreiðasföð Islands
sími 3557. sími 1540.
Bökunardropar
á. v.
Romdropar
Vaniliudropar
Citrondropar
Möndludropar
Cardemommudropar
Smásöluverð er tilgreint á hverju glasi
Öll glös eru með áskrúfaðri hetftu.
Áíengisverækn rikisins.